Morgunblaðið - 16.09.1966, Side 21
Föstudagtir 16. sept. 1966
MORGU N BLAÐIÐ
2Í
75 ára:
Sigurjóna Jakobsdóftir
BÆEINN að Básum í Grímsey
hefir verið talinn nyrztur
byggðra bóla á landi hér og
býsna langt úr alfaraleið. Þar
fæddist þennan dag, 16. septem-
ber, fyrir sjötíu og fimm árum
meybarn, sem í skírn hlaut nafn
18 Sigurjóna, dóttir hjónanna
Jakobs bónda Jónssonar og konu
hans, Guðbjargar Guðmunds-
dóttur, sem bæði voru af þing-
eyskum ættum. Sex ára göm-
ul fluttist Sigurjóna með for-
eldrum sínum til Akureyrar og
ólst þar upp og á Lómatjörn í
Grýtubakkahreppi. Gerðist hún
brátt mikil fríðleikskona, gáf-
uð og glöð, og er ekki trútt um,
»ð gömlum mönnum þar
nyrðra hlýni enn um hjartaræt-
ur, er þeir minnast þessarar
glæsilegu stúlku.
Hinn 26. október 1909 giftist
Sigurjóna Þorsteini M. Jóns-
«yni skólastjóra og síðar bóka-
útgefanda. Hefir ferill þeirra
síðan legið saman í óvenju-
fögru og ástríku hjónabandi
nær sjö árum betur en hálfa
81d. Saga annars þeirra er saga
beggja, því að svo ríkan þátt
hefir Sigurjóna átt í marghátt-
uðum umsvifum Þorsteins við
kennslu, skólastjórn, þing-
mennsku, bókaverzlun og um-
fangsmikla bókaútgáfu, búskap
& stórbýlinu Svalbarði á Sval-
barðsströnd, stjórn bæjarmála á
Akureyri og mörg önnur trún-
aðarstörf, svo og störf hans að
félags- og menningarmálum
ýmsum, ritstjórn og ritstörf, sem
alþjóð eru kunnug. Flestar
meiri háttar ákvarðanir sínar
mun hann hafa borið undir hana,
og hefir hún verið honum holl-
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
ur ráðgjafi, fjölfróð um menn
og málefni, víðsýn og velviljuð.
Þau Þorsteinn reistu fyrst bú
á Borgarfirði eystra, þar sem
hann hafði á hendi skólastjórn
og ýmis önnur störf, en 1921
fluttust þau til Akureyrar, og
þar varð starfsdagur þeirra
lengstur og annasamastur.
En ekki hefir allur hinn langi
ferill þeirra verið rósum stráð-
ur. Á miðjum starfsaldri tók
Þorsteinn sjúkdóm, sem bann-
vænn var talinn, þótt hann sigr-
aðist á honum, og reyndi þá
mjög á kjark og þrek þeirra
beggja. Og fjarri fór því, að Sig
urjóna gengi sjálf alltaf heil til
skógar, þótt lítt kvartaði hún.
Átta börn þeirra hjóna náðu
fullorðinsaldri, auk þess sem
sonardóttir þeirra ólst upp með
þeim, og afkomendurnir eru
margir orðnir. Meðal þeirra
er dóttur-dóttur-dóttur-dóttir,
sem fæddist nú í sumar. Mun
það ekki títt í ættum, að sam-
tímis séu á lífi fimm liðir f
beinan kvenlegg eins og hér er.
Sigurjóna hefir stýrt sínu
stóra heimili með þeirri hóg-
væru festu, framsýni og ráð-
deild, sem verða mætti til fyrir-
myndar öðrum húsmæðrum. Af
störfum Þorsteins hefir leitt,
að þar hefir jafnan verið mjög
gestkvæmt. enda gestrisni báð-
um í blóð borin, þótt efnin
væru litil lengi framan af. Heim
ili þeirra hjóna er fagurt og að-
laðandi, og þar er góður stað-
ur börnum, blómum og bókum.
Umhyggja þeirra beggja fyrir
börnum sínum, þeirra börnum
og barnabörnum hefir verið
óþreytandi. Hvert það blóm, sem
Sigurjóna fer höndum um, býst
þegar í stað sínu fegursta
skrúði. Og bókasafn þeirra
hjóna, sem verið hefir eitt helzta
hugðarefnið, síðan Þorsteinn lét
af skólastjórn og þau fluttust
hingað suður, er orðið eitt hið
mesta og vandaðasta í einka-
eign hér á landi.
Margur mundi nú ætla, að
húsmóðurstörf á slíku heimili
sem þeirra hefir verið lengst af
væru hverri konu ærið verk-
efni, og tómstundir yrðu
ódrjúgar til annarrar iðju. En
sú hefir ekki orðið raunin með
Sigurjónu. Hún er víðlesin og
margfróð, ljóðakunnáttu hennar
er við brugðið og smekkur henn
ar á bókmenntir og fagrar listir
traustur og hleypidómalaus. A
Akureyri tók hún mikinn og
góðan þátt í félagsstarfi, þar
sem hinar fjölhæfu listgáfur
hennar fengu að nokkru notið
sín, og má þó ætla, að enn meir
hefði að henni kveðið á þeim
vettvangi, ef aðstæður hefðu
verið aðrar og hagstæðari. Hún
var meðal stofnenda Kantötu-
kórs Akureyrar og starfaði í
honum alla tíð, meðan hún var
búsett þar, og var formaður
kórsins um skeið. Á fullorðins-
árum tók hún að stunda leik-
starfsemi með Leikfélagi Akur-
eyrar, og varð brátt ein styrk-
asta stoð þess félags, átti sæti
í stjórn þess um árabil og var
í fremstu röð leikara. Margar
þær persónur, er hún skóp á
á leiksviði, eru í minnum hafð-
ar af þeim, sem sáu.
Starfsdagur þessarar mikil-
hæfu merkiskonu er orðinn
langur og hefir ekki alltaf ver-
ið léttur. En ellina ber hún svo
vel, að fátítt er. Hún er enn
glæsileg i sjón og framkomu og
yngri í anda en margur sá, sem
miðaldra er kallaður. Ég tel
mér það mikið lán að hafa
kynnzt henni, þótt kynni okkar
yrðu ekki náin fyrr en á efri
árum hennar. Hún hefir verið
mér eins og önnur móðir. Megi
ævikvöld hennar verða bjart
og fagurt.
Jón Þórarinsson.
Vér viljum vekja athygli heiðraðra við-
skiptavina vorra á því að vöi ur, sem liggja
í vörugeymslum vorum eru ekki tryggðar
af oss gegn bruna, frostum eða öðrum
skemmdum og hggja því á ábyrgð
vörueigcnda.
Hf. Eimskipafélag íslands
IMÍIUIR
V
Lifandi tungumálakennsla
ENSKA, DANSKA ÞÝZKA, FRANSKA, ÍTALSKA,
SPÁNSKA, HOLLENZKA, RÚSSNESKA, NORSKA,
SÆNSKA, ÍSLENZKA FYRIR ÚTLENDINGA.
Simar 1 000 4 og 2 16 55.
Innritun kl. 1—7 e.h.
ARID13B5 * STOR VIDBURDIR ÞESS í MVNDUM OG MÁLI
Viljið þið stcmda utan við stórviðburði vorra tima? Nei, vitaskuld ekki... tafl-
iS í stjómmálum heimsins, hin stórfellda tækniþróun nútímans... allt þetta og
margt, margt fleira upptekur hug nútímamannsins.
AS fylgjast meS.
aS kunna sldl á þvL
sem er aS gerast
og tengslum þess við fortíSina.
það er þetta, sem við köllum almenna menntun.
Þessvegna lesum viö blöð og hlustum á út-
varp: á þann hátt fylgjumst við dag frá degi
með því, sem er að gerast og leitumst við að
'mynda oþkur skoðanir um það.
Én dagblbðin eru Bkammlíf og hið talaða orð
•útvarpsins á sér enn skemmra líf.
'Og minni mannsins er valt. Það sem gerðist
í gær gléymist kannskl fyrir áhrif þess, sem
•gerðist f dag. Það sem gerðist f fyrra.., hvo
mikið af því er okkur tiltækt, þegar við lelt-
um í huga okkar?
Nei, við viljum eiga tlltækt eitthvert verk,
sem geymir fyrir okkur í glöggu máli, og þó
einkum f mýndum, það sem markverðast
gerðist f nálægri eða fjarlægri fortíð. — Bók
ARID1965
er tilraun til að svara þeirri þörf. Þetta er
annáll ársins i máli og myndum, sem kemur
út á sjö þjóðtungum samtímis. Myitdaefni í
henni er einstætt—úrvalið úr fréttamyndum
heimsblaðanna, fullur fjórðungur þeirra í lit-
um, og myndunum til skýringar fylgir
ur og gagnorður texti.
Stórviðburðir hvers árs
■mun framvegis koma út árlega og verða
er írá líður ómetanlegt heimildarrit um lið- j|g| | __
in ár, því mætara sem lengra líður.
9. JAN. 196At Pill pdfi VI fór Í plla-
•grlmsfðr til Jerúsatem, en tnnar megin-
tilgangur fararinnar var að hiita trOsta
mann grisk hapólsku kirkjunnar, patri-
arkinn Athenogaras 1. ÆOstu menn róm•
versk- og grlskkaþólsku kirkjunnar hðfðu
þé ekki hitU siðan W9. - Fjölii hlaða-
manna var stððugt é htrlum pdfa d ferð
hans um land'ið helga, eins og sjd md hfr
i myndinnt, en hún er tekin við dna Jór-
dan, d þetm stað, þar sem sagan segir, að
Jóhannes hafi skirt Jtsús.
6. JÖNÍ 1964:'j>rnnan dag voru 20 dr
liðin siðan bandamenn hófu innrds sína i
Frakkland, en i dðgun þann dag voru sett•
ir d land / Normandl 200.000 hermenn.
Dagsins var minnzt þar d strðndinni, sem
harOasl var barlzt og bandamenn misstu
þúsundir manna. En þrdlt fyrir mikiO
mannfalt, markaOi þessi innrds timamót I
styrjðldinni.
Stórviðburðir ársins 1965
er mjög stór bék um 300 bls. í fjögurra
blaða broti (4to) f. d. eins og símaskráin og
prentuð á vandaðan myndapappír.
(Jtgáfa þessa stórverks vill vekja sér-
staka athygli á því, að STÖRVIÐ-
BURÐIR ARSINS eru allt önnur út-
gáfa en sú hin danska útgáfa, sem'
hér hefur verið á boðstólum, á þvi
máll, að undanfömu. 1 þeirri útgáfu
eru engar litmyndir. í þessu verki er
fjórði partur myndanna litmyndir,
margar heilar blaðsíður eða opnur
verksins.
ARID1365
er ekld einungis prýði f hverjum bóka-
skáp, heldur er verkið náma fróðleiks, og
mun er tímar líða verða samandregin
saga mannkynsins í myndum og máli.
Band verksins er einstáklega fagurt, snið-
ið við hæfi þess;
Þessi bók veiður bæði á almennum bóka-
markaði, jafnframt því að hún verður seld
í áskrift með afborgunarkjörum.
■ •VKJAVlK . BIMI IVOBi . ■SlTHÓLF («7