Morgunblaðið - 12.11.1966, Síða 11
Laugardagur 12. n6v. 1966
MORGUNBLAÐIÐ
11
Páll Helgason tækni-
fræðingur — Minning
Hópferðabílar
10—22 farþega, til leigu, í
lengri og skemmri ferðir. —
Sími 15637 og 31391.
BIRGIR ISL. GUNNARSSON
Málflutningsskrifstofa
Uækjargötu 6 B. — II. hæð.
Lækningastofa mín
er flutt í Domus Medica, Egilsgötu 3. —
Viðtalsbeiðnum veitt móttaka mánudaga og fimmtu
daga frá kl. 2.00 — 5.00 í síma 12810.
JÓN MIRSTEINSSON, læknir.
Á NÁMSÁRUM mínum í mennta
skólanum áttum við nokkrir
bekkjarfélagar þess oft kost að
koma á mikið menata- og menn-
ingarheimili hér í bæ og njóta
þar gestrisni og margvíslegra
hollra uppeldisáhrifa. Hús-
bændur þessa góðs heimilis voru
dr. Jón Helgason, biskup ís-
lands, og kona hans Martlia
María, prestsdóitir frá Dan-
mörku. Þau voru foreldrar Páls,
bekkjarbróður okkar, en hann
andaðist á sjúkrahúsi í Hafnar-
firði 5. nóvember eftir stutta
legu, en hafði þó átt við að
stríða nokkra vanheilsu um ail-
langt skeið.
Æskuheimili Páls var um
margt sérstætt, miðað við það,
sem almennt gerðist þá. Fagrar
listir og þjóðleg fræði voru þar
mjög í hávegum höfð. Húsmóðir
in unni mjög tónlist og kom
það ósjaldan fyrir, er félagarnir
tóku lagið, að hún lék undir
eða lék fyrir okkur eigin tón-
smíðar eða þekkt klassísk lög
á slaghörpu. Er það svo enn í
dag, er ég heyri sum þessara
laga, að mér kemur heimili Páls
í huga. - Er ég ekki í neinum
va-fa, hvert rekja má upphaf
þess áhuga, er Páll hafði þegar
í æsku og ætíð síðan á fagurri
hljómlist og söng. í skóla tók
hann jafnan virkan þátt í öllu
hljómíistarstarfi, sem þar var
um hönd haft.
Þá var húsbóndinn, dr. Jón
Helgason, biskup, ekki síður
mikill og eftirtektarverður per-
sónuleiki í augum okkar félaga.
Vakti það athygli okkar, að hve
nær sem okkur bar þar að garði
var hann sívinnandi að embætt-
is- eða fræðastörfum og þá oft-
ast ekki við skrifborð sitt, held-
ur stóð hann jafnan við púlt
sitt, er hann vann að skriftum.
Var það áminning til okkar
sumra, sem áttu það til að lesa
skólalexíurnar hvílandi á legu-
bekk. En þrátt fyrir miklar ann
ir gaf biskup sér oft tíma til
að ræða við okkur og fræða um
marga hluti. Gamla Reykjavík
varð fyrir okkur ljóslifandi,
bæði af frásögnum hans um bæj
arbraginn og af teikningum
hans og málverkum, en það
myndasafn er nú geymt í
Dyggðasafni Reykjavíkur, svo
sem kunnugt er. Þá átti dr. Jón
það einnig til að bregða upp
fyrir okkur myndum úr sögu
þjóðarinnar, einkum tengdar
við einstaka forvígismenn og
voru þær myndir einkar ljóslif-
andi, enda var biskup með af-
kastamestu sagnariturum okkar.
Eitt er það enn, sem mér
finnst vert að geta í þessu sam-
bandi. Dr. Jón Helgason var
jafnan talinn mikill vinur Dan-
merkur og dönsku þjóðarinnar.
Er mér óhætt að fullyrða, að
af kynnum við heimili hans,
lærðist okkur — eða að minnsta
kosti mér — að líta hina dönsku
bræðraþjóð öðrum augum en al
mennt var títt meðal skólapilta
á þeim tíma.
Páll Helgason var fæddur hér
í Reykjavík 26. september 1906
og var því nýlega sextugur.
Ég hirði hér kki um að rekja
ættir Páls, svo kunnar sem þær
eru. Hins vegar hefir mér þótt
hlýða að lýsa lítillega heimili for
eldra hans og því andrúmslofti,
sem þar ríkti, svo mjög sem það
mótaði skaphöfn hans og sam-
6kipti öll við samferðamenn
hans síðar í lífinu. Má með
sanni segja, að veganestið, er
hann hafði með úr föðurgarði.
entist honum allt til æviloka.
Páll varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1927.
Er að sjálfsögðu margs að minn-
ast frá skólaveru okkar, þótt
það verði ekki rakið hér. Hann
var alla tíð mjög félagslyndur
og hrókur alls fagnaðar í vina-
hóp. Páll hafði ríka kímnigáfu
og var alls ófeiminn að segja
skoðun sína um menn og rnál-
efni og var það oft gert í léttri
tóntegund. Vinsældir hans með-
al skólafélaganna jukust við
þetta hispursleysi hans, er.da
jafnan græskulaust af hans
hálfu. Þegar í skóla kom það
fram, að Páll var frábærlego
vel hagur og áhugi hans á hvers
konar vélum og tæknilegum
Framhald á bls. 23
*ts. u.s. p*T.orr.
DULUX SUPER WHITE- OG
VERKIÐ VERÐUR t. FLOKKS
DULUX®SUPER WHITE
er eldhúslakkið fró
DU PONT
DULUX®SUPER WHITE
er endingargott
og gulnar ekki
SKJ&.CO
LAUGAVEG1178 SÍMI 38000
Sjálfvirk þvottavél. — Tekur 3—4 kg.
Electrolux
10,2 cbf. (285 lítra). 7,5 cbf. (215 lítra).
Frystihólf: 45 lítra. Verð kr. 11.712,00.
Kælir: 240 lítra.
Verð kr. 17.698,00.
Electrolux
Uppþvottavél.
Kr. 12.906,00.
Frystikistur með
hraðfrystihólfi.
255, 355 og 510 lítra.
Mjög hagkvæmt verð.
Hansabúðin
Laugavegi 69. — Símar 21-800 og 11-616.