Morgunblaðið - 12.11.1966, Síða 31
Laugardagur 12. nóv. 1966
MOKGUNBLADID
31
Formannafundur
Norðurlandostúdenta
UNDANFARNA daga hefur
staðið hér fundur formanna
landssambands stúdenta á Norð
urlöndum. Sátu fundinn tveir
formenn frá hverju landssam-
bandi og einnig fulltrúi fær-
eyskra stúdenta. Fundinum átti
að ljúka í gærkvöldi.
Sviðsmynd úr „Koss í kaupbæti". Frá vinstri: Björn Sveinsson, Þórhalla Þorsteinsdóttir,
Marinó Þorsteinsson, Saga Jónsdóttir, Kristin Konráðsdóttir og Ágúst Kvaran. (Ljósm. E. Sig.)
Frumsýning ó Abnreyri
AKUREYRI, 11. nóv. — Leik-
íélag Akureyrar frumsýndi í
gærkvöldi gamanleikinn „Koss
í kaupbæti“ eftir Hugh Herbert
við liúsfylli og ágætar viðtök-
ur áhorfenda. Leikstjóri var
Ragnhildur Steingrímsdóttir.
leiksviðsstjóri Oddur Kristjáns-
son og ljósameistari Arni Valur
Viggósson. Hlutverk eru alls 15
og með þau stærstu fara Þór-
| halla Þorsteinsdóttir, Marinó
| Þorsteinsson, Björn Sveinsson,
Saga Jónsdóttir, Sæmundur Guð
mundsson og Agúst Kvaran
í í
yr.gri, sem vakti sérstaka hrifn-
ingu og kátínu. Hann er sonar-
sonur hins gamalkunna leik-
stjóra og leikara Ágústs Kvaran.
Að leikslokum voru leikendur
og leikstjóri hylltir með blóm-
um og lófataki. — Sv. P.
— Wilson
Framhald af bls. 1
leita eftir aðild að Efnahags-
bandalaginu, lýstu talsmenn
frönsku stjórnarinnar því yfir í
París í gærkvöld, að hún setti
aðeins eitt skilyrði fyrir aðild
Breta: Þeir verða að hlíta „spila
reglunum“, eins og það var orð
að.
I ummælum frönsku talsmann
anna sagði: „Komi það í ljós,
að Stóra -Bretland óski í raun
og veru eftir aðild að Efnahags-
ibandalaginu, þ.e. ætli sér að sam
þykkja Rómarsamninginn, mun
Fcakkland ekki leggjast gegn að
ildinni". Jafnframt sagði, að
Bretland gæti með réttu farið
fram á nokkurt „svigrúm“, þann
ig að hægt væri að laga efna-
hagskerfið að breyttum aðstæð-
ium — þ.e. Rómarsamningnum.
Sérstaklega var vikið að brezk-
um landbúnaði í þessu sam-
bandi.
Hins vegar var bent á, að
Bretar mundu eiga erfiðar með
«ð ganga í Efnahagsbandalagið
nú en 1963, þegar umsókn Breta
var vísað á bug, því að nú heí'ði
verið tekin upp heildarstefna í
landbúnaðarmálum bandalags-
ríkjanna, en landbúnaður væri
eitt mesta vandamál Breba.
Á þingfundi í gær ræddi Wil-
eon þessi mál, en margir stjórn-
málamenn og fréttaritarar telja,
að forsætisráðherrann hafi þó
lítið viljað ræða það eða þau
mál, sem margir telja að hafi
fengið de Gaulle, Frakklands-
forseta, til að leggjast gegn að-
ild Breta á síðustu stundu 1963.
Er hér m.a. átt við Nassau-sam-
komulagfð, sem gert var milli
Breta og Bandaríkjamanna
1962, en skv. því fékk Bretland
rétt til þess að fá í hendur
Pólaris-eddflaugar frá Banda-
ríkjunum.
Þá þykjast margir stjórnmála
menn þess enn fullvissir, að
Leiðrétting
í VIÐTALI við Sigurð vatna-
mann á Steinmóðarbæ í blaðinu
í gær, var m.a. nefndur Eyjólf-
ur Jónsson skipstjóri, sem talinn
var látinn. Það er ekki rétt. Eyj-
ólfur er á lífi og búsettur í
Reykjavík. Eru viðkomandi
beðnir velvirðingar á þessu.
Frakklandsforseti telji það ljóð
á ráði Breta, að þeir skuli styðja
stefnu Bandaríkjanna, m.a. í
málefnum Atlantshafsbandalags-
ins og Vietnamdeilunni.
Þrátt fyrir þá erfiðleika, sem
kunna að verða á vegi Wilsons,
er hann nú óskar eftir aðild að
Efnahagsbandalaginu, þá telja
stjórnmálafréttaritarar í Evr-
ópu, að stjórn Wilsons hafi tek-
ið upp nýja stefnu í málefnum
Evrópu.
Forsætisráðherrann hefur um
langt skeið verið mótfallinn að-
ild Breta a'ð bandalaginu, og fyr
ir aðeins nokkrum dögum lét
hann í ljós efasemdir um rétt-
mæti slíkrar aðildar. Því var
það, er forsætisráðherrann kunn
gerði nýja stefnu í þessum mál-
um í gær, að margir þingmenn
neðri málstofunnar létu í ljós
vafa um, að hve miklu leyti
ætti að taka mark á ummælum
hans.
Hins vegar er mikill meiri
hluti brezkra stjórnmálamanna
á þeirri skoðun, að það sé í
raun og veru ósk Wilsons, að
Bretar fái nú aðild að banda-
laginu.
Vitað er þó, að margir úr
vinstri armi Verkamannaflokks
ins eru á öndverðum meiði við
Wilson, og hefur fyrrverandi
varnarmálaráðherra, Emmanuel
Shinwell, hótað að segja af sér
formennsku þingflokksins.
í fregnum frá Brússel í dag,
þar sem Efnahagsbandalagið hef
ur aðalstöðvar sínar, segir, að
það skref, sem Wilson hefur nú
tekið, sé upphaf að langri og
erfiðri samningagerð.
Flest brezk blöð lýsa í dag
ánægju sinni yfir ákvörðun Wil
son, þótt nokkur þeirra, þ.á.m.
„The Times“, telji, að De Gaulle
kunni enn að reynast erfiður
vi'ðureignar.
— Siðasta
Framhald af bls. 1
fjærst er. Síðar átti að breyta
brautinni, þannig að Gemini
færi í hring um 296 km. frá
jörðu til þess að eiga stefnumót-
ið við Agenaeldflaugina í þriðju
umferð.
Skömmu eftir að Gemini hafði
verið skotið upp bárust fregnir
um að radíósambandið við þá
Lovell og Aldrin hefði rofnað.
Geimfarinn Pete Conrad, sem
staddur var í stjórnarstöðinni á
jörðu niðri, reyndi þrásinnis að
kalla geimfarið upp, en án árang
urs, þótt reynt væri bæði að
kalla á hátíðnibylgjum og ultra
bylgjum. Óttast er, að geimfar-
arnir hafi lent í vandræðum með
fjarskiptakerfi geimfarsins, ell-
egar þá, að fjarskiptastöð á
Uppstigningareyju hafi ekki
gegnt hlutverki sínu sem skyldi.
Nokkru síðar náðist samband
við geimfarana um fjarskipta-
stöð á Madagaskar, og tilkynnti
Lovell þá: „Þetta og Gemini 12,
við heyrum hátt og skýrt“.
Gemini 12 á að vera á braut
umhverfis jörðu í fjóra sólar-
hringa, og á meðan eiga geim-
fararnir að framkvæma allskyns
tilraunir. Hápunktur ferðarinn-
ar verður tveggja tíma „geim-
ganga“ Aldrins, þ.e. að hann á
að halda sig utan geimfarsins í
tvær klst.
9 _ i
Blaðfa iurðarfólk vantar í eftirtalin hverfi:
Laugarnesveg. I Langahlíð Bogahlíð Fálkagata Faxaskjól Austurbrún Fossvogsblettur Lambastaðahverfi Hluti af Blesugróf Skerjaf. - sunnan fL Háahlíð
Talið við afgreiðslunn sími 22480 :: ..t.t
SÞ í dag.
Tillögur U Thants eru þessar:
Hætt verði loftárásum á
N-Vietnam, dregið úr hernaðar-
aðgerðum allra aðila í S-Viet-
nam og sýndur verði vilji á
að taka upp samninga við „alla
þá, sem raunverulega berjast".
— Rufu
ísland
Framhald af bls. 32
af skemmtilegri keppni þessara
tveggja sterku skákþjóöa.
Eftir sex umferðir er staðan
þannig:
i. Sovétríkin 16% (4 ótefldar)
2. Júgóslavía 16V2
3. Bandaríkin 15% + 1 bið (4 ótefldar)
4.-6. Argentína 14%
4.-6. Búlgaría 14%
4.-6. Tékkóslóv. 14%
7. Ungverjal. 12% + 1 bið
8. Rúmenía 12%
9,—10. Danmörk 9%
9.—10. fsland 9%
11. A-Þýzkaland 9
12. Spánn 8
13. Noregur 5%
14. Kúba 5
Framhald af bls. 1
tilraun með, hafi verið öflug.
Orðrómur er á lofti um
það í Bandaríkjunum, að
bandarískir visindamenn hafi
mælt geislavirkni, sem stafi
af tilrauninni.
Bann það, sem verið hefur
í gildi siðan 1963, gegn kjarn
orkusprengingum, sem leiða
af sér geislavirkt úrfall,
kann því að hafa verið brot
ið af Sovétríkjunum.
Engin staðfesting hefur
fengizt hjá bandaríks-
um yfirvöldum á því hvort
geislavirkni hafi mælzt, en
tilraun sú, sem hér um ræð-
ir, mun hafa verið gerð á
íshafseyjunni Novaya Zeml-
ja.
IViinnisvarði
á Læk|arbotnum
Á MORGUN, sunnudaginn 13.
nóv. kl. 3 verður minnisvarði um
Guðmund Magnússon fyrrum
skálavörð í Lækjarbotnum
vígður. Þessi minnisvarði hefur
verið reistur í stæði gamla
skólans í Lækjarbotnum, en
skálinn sjálfur var fyrir nokkr-
um árum fluttur að Árbæ, og
varðveittur þar sem elzti skáta-
skáli landsins. Meðan skáli þessi
stóð í Lækjarbotnum var hann
mikið notaður af skátum, sem
fór þangað í útilegur aðallega
um helgar. Fjölda ára var Guð-
mundur heitinn Magnússon
skálavörður í Lækjarbotnum,
gætti skálans og sá um viðhald.
Eru þeir eflaust margir, sem
muna sína fyrstu komu þangað.
Er Guðmundur dó árið 1958,
voru jarðneskar leyfar hans
grafnar í Lækjarbotnum, að
hans eigin ósk. Nú hefur Skáta-
félag Reykjavíkur látið reisa
minnisvarðann.
Lagt verður af stað frá Skáta-
heimilinu við Snorrabraut kL
14,30.
Ahugi
Taka skal tillit til þess að
Bandaríkin og Sovétríkin hafa
einungis teflt 20 skákir, en allar
aðrar þjóðir hafa þegar lokið
24 skákum.
í sambandi við vinning Frið-
riks yfir Bent Larsen mun öllum
skákum, sem þeir hafa teflt sam
an síðan þeir tefldu um Norður-
landameistaratitilinn í Reykja-
vík 1955, um það bil 20 skákum,
hafa lyktað með því að svart
hefur unnið. 1 skák sinni gegn
Larsen hafði Friðrik svart.
- U Thant
Framhald af bls. 1
Yfirlýsing Thants kom fram í
orðsendingu, sem hann sendi
Brockway lávarði, formanni
„Brezka ráðsins um frið í Viet-
nam“. Hafði Brockway spurt
Thant hvað „sérhver okkar
gæti gert til þess að leggja eitt-
hvað af mörkum til stöðvunar
styrjaldarinnar í Vietnam." Bréf
U Thants er dagsett 19. október,
en það var birt í aðalstöðvum
Framhald af bls. 32
ræktarmálin og kom víða við
í máli sínu. Meðal annars benti
hann á nauðsyn á gagngerðri
breytingu og endurskoðun á lax
veiðilöggjöfinni, ræddi vanda-
mál þeirra, sem við fiskrækt fást
og nauðsyn þess, að þeim yrði
skapaður heilbrigðiu starfsgrund
völlur með hagstæðum lánamögu
leikum og styrkjum. Harmaði
hann að veiðimálastjóri hefði
ekki rætt þessi mál á fundinum
og óskaði etfir upplýsingum hans
um þau og beindi til hans nokkr-
um þýðingarmiklum spurning-
um.
Næstur tók til máls Skúli Páls
son, fiskiræktarbóndi í' Laxa-
lóni ,og deildi allhart á veiði-
málastjóra vegna afskipta hans á
einkaklakstöðvum og tregrar
samvinnu.
Guðmundur J. Kristinsson, for
maður Landssambands Stanga-
veiðimanna skýrði frá góðri sam-
vinnu við landbúnaðarmálaráð-
herra Ingólf Jónsson um það að
fá fjárveitingu til laxamerkinga.
| Fundarstjóri, Jónas G. Rafnar,
alþm. tók síðastur til máls, og
þakkaði fundarmönnum og gest-
um þeirra fyrir komuna. Kvað
hann æskilegt, að fleiri slíkir
fundir yrðu haldnir á næstunni
, °fi einnig, að félagið gæti beitt
sér fyrir auknum lánum og fjár-
veitingum til fiskræktar.
— Bókmenntir
Framhald af bls. 12
gjalda verðar. Til dæmis er fyrsti
þáttur ritsins með ágætum. Hann
fjallar um föður höfundarins,
Steingrím Thorsteinsson skáld,
og var upphaflega fluttur sem
erindi vestur í Ameríku — „fyr-
ir 44 árum og er hér birt ó-
breytt", segir höfundur.
Lögberg og íslenzkir bændur
heitir önnur gömul grein, stutt,
en gagnger. Tilefni þeirrar grein-
ar var áróður vesturheimska
blaðsins Lögbergs, sem rembdist
við að lokka sem flesta íslendinga
vestur um haf. Axel Thorsteins
son andmælir þeim málflutningi
af einurð og festu. Fæ ég ekki
betur séð, en grein hans standi
enn í fullu gildi, þó liðinn sé
hálfur fimmti áratugur, síðan
hún var í letur færð, og forsend
ur málsins séu nú úr sögunni.
Hafi höfundur samið margar
slikar greinar um ævina, virð-
ist mér hann hefði heldur átt að
safna þeim saman til útgáfu held
ur en söguþáttum sínum, sem
eru hvorki fugl né fiskur. Það
er að segja — hafi honum verið
sérstakt keppikefli að gefa út
bækur. En vorkunnarlaust átti
honum að vera að vanda betur
útgáfu rita sinna, gamalreynd-
um blaðamanninum.
Erlendur Jónsson.