Morgunblaðið - 21.01.1967, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1967.
21
- BÆKUR
Framhald af bls. 17
lesa hana. í bókinni eru augljós
byrjendamerki, en það er lifandi
teð í höfundi. Þá vil ég ennfrem-
*»r nefna til bók Jakobs Thorar-
ensen, Léttstíg öld, og tvo
gamla kunningja sem gaman var
að sjá aftur, Líf og dauði Sig-
arðar Nordals og Kristrún í
Hamravík eftir Hagalín.
Af ljóðabókum vildi ég fyrst
nefna bók Matthíasar Johannes-
sen Fagur er dalur. í bókinni
kemur fram nýr tónn, sérstak-
lega í „Sálmum á atómöld," sem
mér finnst góður skáldskapur.
Þá var ennfremur gaman að
rifja upp kvæði Þorsteins Gísla-
sonar, en Almenna bókafélagið
gaf út bók um skáldskap hans og
stjórnmál. Mér finnst sem Þor-
steinn hafi legið nokkuð óbættur
hjá garði. Hann var hinn mesti
gáfu- og dugnaðarmaður og mér
þótti vænt um að þessi bók
skyldi vera gefin út.
Þý'ddar bækur sem ég vildi
minnast á er „Leiðsögn til lífs-
hamingju" eftir vin minn Mart-
inus. Það er góð bók og gefur
yfirlit yfir kenningar hans í
stuttu máli og bók Helge Thol-
berg um Jóhann Sigurjónsson.
Það er forvitnilegt verk, en ein-
hvern veginn fannst mér hún
þó ekki eins og maður hefði
óskað.
Um þær skáldsögur ungra höf-
unda sem út hafa komið nú á
árinu vil ég helzt ekkert um
segja og það er örugglega enn-
fremur fjöldi bóka sem út hafa
komið sem eru vafalaust góðar,
en ég hef alls ekki séð ennþá.
Ég skrifa um íslenzkar bækur í
norsk blöð, en það virðast ekki
nærri öll forlög hafa áhuga á
því, svo bækur þeirra eru mér
að miklu ókunnar.
Sigurður A. Magnússon rithöfundur:
Islenzkur skáidskapur
með auðupasta moti
Að sjálfsögðu komst ég aðeins
yfirað lesa lítið ‘brot þess bóka-
xnagns sem út kom fyrir jólin,
og get því verið stuttorður. Af
islenzkum skáldverkum var tví-
mælalaust mestur fengur að bók
Guðbergs Bergssonar, „Tómas
Jónsson, metsölubó'k", sem brá
upp ákaflega nærgöngulli mynd
af mannlegum kjörum í nútím-
anurn, lýsti einangrun mannsins
i vélrænu þjóðfélagi samtímans
®g braut niður ýrnsar þær við-
teknu reglur sem háð hafa ís-
lenzkri skáldsagnagerð um langt
árabil. Bókin er að vísu ekki
euðlesin, en hún er auðskilin
og í henni er að finna miklu
markvissari og skemmtilegri
ádeilu á þjóðfélagið en við höf-
«m átt að venjast, einmitt
vegna þess að höf-undurinn hef-
ur skopið á valdi sinu og hefur
ekiki ádeiluna að meginmark-
miði. Héðan í frá er þess að
vænta, að farið verði að skrifa
r-aunverulegar nútimaskáddsögur
á íslandi.
Af ijóðábókum var sennilega
mestur fengur að bók Snorra
Hjartarsonar, ,JLauf og stjörnur“,
sem birtá hið vandvirka skáld i
nýju ljósd og færði hann nær
nútiknanum. „Jarteikn" Hannes-
ar Sigfússonar og „Fagur er dal-
Matthíasar Johannessens
voru láka tii vitnts um fjöl-
breytni og lífsþiótt ljóðlistar-
innar. '
fslenzkum leikbókmenntum
bættist verðmætt verk með
,,Dúfnaveizlu“ Halldórs Laxness,
sem er hans bezta leikrit til þessa
og verður höfundinum vonandi
hvöt til að halda áfram á hinni
nýju braut. Sýningin var alls
ekki hnökralaus, en meginhug-
mynd verksins og útfærsla
heiinar er svo bráðsnjöll, að
lítilvægari agnúar fyrirgefast.
Þannig má segja að íslenzkur
skáldskapur hafi verið með auð-
ugasta móti á liðnu ári, og mætti
nefna fleiri skáldverk til sönn-
unar.
Af öðrum íslenzkum bókum
þótti mér mestur fengur að ævi-
sögu Brynjólfs Jóhannessonar,
„Karlar eins og ég“, sem skráð
var af Ólafi JónssynL Hún er
merkileg heimild um íslenzka
leiklistarsögu og bregður upp
Ijósum myndum af þeim erfið-
leikum sem við var, að etja og
þeirri gleðilegu þróun sem orðið
hefur. Kannski eru spurning-
arnar sem bókin vekur ekki síð-
ur athyglisverðar, t.d. sú hvort
orðið hafi nokkur veruleg fram-
för í listrænu tilliti síðan Þjóð-
leikhúsið tók til starfa.
Málsháttasafn Almenna bóka-
félagsins var líka verðmætur
fengur, og bók Þorsteins Thorar-
ensens, „í fótspor feðranna",
var fróðleg greinargerð um eitt
merkilegasta skeið íslenzkrar
sögu, en hefði mátt vera vand-
aðri að málfari og frágangi.
Af þýddum bókum bar „Sagan
af Dafnis og Klói“ af öllu öðru,
enda er Friðrik Þórðarson ein-
hver málhagasti og listrænasti
þýðandi sem við eigum. „Endur-
tekningin“ eftir Sören Kirke-
gaard í þýðingu Þorsteins
Gylfasonar var líka nýstárleg
viðbót við fátæklegan forða
okkar af heimspekiritum, og
væri gaman að fá fleiri verk hins
danska meistara á íslenzku.
Læt ég svo lökið þessari upp-
talningu með þeirri frómu ósk,
að stjórnarvöld landsins sjái
sóma sinn í að létta af íslenzkri
bókaútgáfu þeirri fjárhagsibyrði
sem toilar á efni til bókagerðar
eru.
— Monte Carlo
Framhald af bls. 1
Carlo keppninni á undanförnum
fjórum árum.
Aðeins tólf sekúndum á eftir
Aaltonen voru Svíinn Ove Ander
sen og aðstoðarmaður hans, Bret-
inn Jolhn Davenport, í Lancia
Fulvia. í þriðja sæti voru Bret-
arnir Vic Elford og David Stone
í Pordhe.
í kvennaflokki sigruðu Sylvia
Österberg og Ingelill Edenring,
sem óku Renault Gordini. Auk
þess fengú Renault bílasmiðjurn
ar frönsku sérstök sveitarverð-
laun.
Stigafjöldi tíu efstu keppend-
anna fer hér á eftir:
1. Aaltonen, Finnlandi og Lid-
don, Bretl. — Mini Cooper —
11.491,92 stig.
2. Anderson, Svíþj. og Daven-
port, Br. — Lancia Fulvia —
11.503,92.
3. Eldiford og Stone, Bretl. —
Pordhe — 11.566,16.
4. Leo Cella og Luciano Lom-
bardini, ítalíu — Lancia Fulvia
— 11.651,20.
5. Sandro Munari, ítalíu og
George Harris, Bretl. — Lancia
Fulvia — 111.651,20.
6. Paddy Hopkirk, N-lrland og
Ron Crellin, Bretl. — Mini Coop
er — 11.673,20.
7. Jean-Francois Piot og M.
Kereky, Frakkl. — Renault Cor-
dini — 11.718,24.
8. Berndt Jansson og frk. Sen-
ysman, Svíþj. — Renault Gordini
— 11.960,08.
9. Jean Vinatier og Claude
Roure, Frakl. — Renault Gordini
— 12.006,72.
10. Tony Fall og Raymond Joss
Bretl. — Mini Cooper — 12.117,04
Sigurvegararnir í kvennaiflokki
þær Sylvia österberg og Ingalill
Edenring rfá Svíþjóð, hlutu
13.200,96 stig, og voru í 26. sæti.
— Douði forseta
Framh. af bls. 10
í Fort Worth. Sjö þeirra héldu
síðan til hins lífsglaða nætur-
klúbbs „The Cellar“ (Kjallar-
inn), þar sem þeir bóðu um
„Salty Dicks", en það var sér
drykkur skemmtistaðarins en
áfengislaus að vísu. Einn
þeirra dvaldi þar til kl. fimm.
í hóp hans bættust árla morg
uns fleiri drykkjuglaðir ná-
ungar, þeirra á meðal 4 leyni
lögreglumenn, sem áttu að
vera í fylgdarbifreiðinni rétt
fyrir aftan bilfreið forsetans
á leiðinni gegnum Dallas og
undir árvekni þeirra var ör-
yggi forsetans komið. Þrír
aðrir til viðibótar bættust einn
ig í hópinn. Það voru verðir,
sem í raun réttri áttu að vera
á verði við dyr forsetans fram
til kl. 8 en kusu heldur að
vinna bug á þeim leiðindum,
sem starfa þeirra fylgdi með
þessum hætti.
Amman,. 20, jan. NTB.
Áreiðanlegar heimildir í Amm
an hermdu 1 dag, að ríkisstjórn-
in í Jórdaníu hyggði tíma til
þess kominn, áð taka upp á ný
sendiherraskipti milli V-Þýzka-
lands og Arabalandanna. Sendi-
herraskiptunum var hætt 1965,
er V-Þýzkaland tók upp sendi-
herraskipti við fsrael.
Vatikanið, 20. jan. AP. 1
PÁLL páfi hefur nú lagzt veik-
ur í inflúenzu, sem herjar Róma
borg, og hefur páfinn af þeim
sökum orðið að aflýsa áríðandi
fundum við ýmsa ráðamenn. Um
100.000 Rómarbúar liggja nú rúm
fastir í þessari veiki, sem að
sögn lækna er ekki alvarlegs
eðlis.
Þakkarávarp
Afúðarþakkir færi ég öllum þeim er sýndu mér
hlýhug með kveðjum og blómum og á annan hátt
á níutíu og fimm ára afmæli mínu.
Karl Einarsson.
Breiðfiröingabúð
Dansleikur í kvöld kl. 0
i/
Tops! hljómsveitirnar auðvitað
TOXIC
og POPS
skemmta
kynnt ný hljómsveit Sonet
Aðgöngumiðasala frá kl. 8.
Tryggið ykkur miða timanlega.
BIÐJID KAUPMANN
YÐAR UM
FISKAKEX !
Sími 14-0-14