Morgunblaðið - 24.01.1967, Side 15

Morgunblaðið - 24.01.1967, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1967. 15 Hollsysturnar. Höfum aftur íyrirliggjandi ATIKA steypuhrærivélar 2 stærðir. A. WENDEL IIF., Sörlaskjóli 26, sími 15464. Leyndardómur ánægjulegra nýrra og mildari reykinga ■VMTTIER ^ZAUTIE R, PERFECTO FILTER VINDLAR PAKKI MEÐ FIMM KR. 35.50 H54 filter^ Orvals milt vindlatóbak ^ Steinunn Guðmundsdóftir hjúkrunarkona, Minning F. 15. júlí 1928 — D. 15. jan. 1967. ÞAÐ var á fallegum haastdegi í byrjun september árið 1955, að við hittumst í fyrsta sinn í Hjúkrunarskóla íslands, 14 ung- ar stúlkur alls staðar að af land- inu. Allar horfðum við b.iörturn augum á framtíðina, og ailar áttum við sameiginlega eina heita ósk, að vera góðar og dug- andi hjúkrunarkonur. Faestar höfðu nokkurn tíma sézt áður, en áður en margar vikur liðu var þessi hópuc orð- inn ein órjúfanlag heild. sem aldrei hefur rofnað, þó að leið- ir hafi skilizt um tínia. Fyrst eft ir námið dvöldu sumar erlendis um tíma, og síðan hafa flestar stofnað heimili og eignasl önn- ur áhugamál utm hjúkrunar- starfsins, samt erum við alitaf eins og ein fjölskylda. Utan að komandi fólk skilur ekki alltaf orðið „hollsystir", sem svo oft er á vörum okkar, en þetta orð þýðir svo sannarlega að við er- um eins og stór systrahópur og böndin okkar á milli eru áreið- anlega eins sterk og hin svoköll- uðu blóðbönd. Nú er fyrsta stóra skarðið höggvið í systrahópinn. Hún Steina er ekki lengur á með al okkar. Við vitum að veikindi hennar og þjáningar á síðustu ár um voru miklu meiri en við gerð Um okkur í hugarlund, sífelldar vonir um bata urðu aftur og aft- ur að engu. Nú síðustu vikurnar veik von um bata með upp- skurði, og þó að reynsla okkar í svona tilfellum hefði át.t að leiða okkur í allan sannleika, þá héldum við samt dauðahaldi í þessa veiku von, og stöndum nú hljóðar og hryggar og trúum ekki að hún sé horfin. Við hugg um okkur aðeins við, að hún er laus við allar þjáningar og er gengin í ríki Drottins síns, par sem engar sorgir og sjúkdómar fyrirfinnast, og þar fær hún ef- laust stórt hlutverk að vinna. Hún var elzt af okkur og hafði líka öðlazt meiri reynslu í lífinu en allar hinar. Hún var aðeins rúmlega fermd, þegar hún missti móður sína og tók þá við heimili föður síns, annaðist það og sá um upp- eldi 4 yngri systkina sinna, yngsta systirin var aðeins smá- barn og þekkti því varla aðra móður. Það má nærri geta hve mikið er lagt á unglingstelpu, að taka að sér þetta hlutverk og það sýnir þó mest hve mikið er í slíka stúlku spunnið, sem veld ur slíku hlutverki jafn vel og raun varð á. Hún var því komin undir þrí- tugt, þegar hún gat farið að. hugsa svolítið um sjálfa sig, en þá var barnahópurinn kominn vel til manns. Þá hóf hún starf við sjúkrahúsið á Akureyri sem gangastúlka. Henni varð strax ljóst að hjúkrun vildi hún gera að ævistarfi sínu. Hún hafði auð vitað ekki haft tíma til mikillar skólagöngu, og hafði því ekki gagnfræðapróf, sem til þarf að setjast í Hjúkrunarskólann, en hún settist í Iðnskólann á Akur- eyri og tók próf þaðan í þeim námsgreinum sem tilskildar voru, og hóf hjúkrunarnám eins og áður segir í september 1955. Síðan tóku við námsárin þrjú, íbúðaskipti 4ra — 5 herbergja íbúð óskast í skiptum fyrir 5 her- bergja raðhús við Sæviðarsund, tilbúið undir tré- verk. Húsið er 160 ferm. með innbyggðum bílskúr. Tilboð merkt: „8695“ sendist afgr. MbL en þau eru án efa beztu ár æv- innar í augum okkar allra. Vinn an var þroskandi og skemmtileg á hinum ýmsu deildum Lands- spítalans og á sjúkrahúsum úti á landi. Frístundir áttum við marg ar og ógleymanlegar, við vorum kátar og lífsglaðar og lífið lék við okkur. Við sungum og ort- um vísur um allt milli himins og jarðar m.a. um allar hollsyst- urnar. Steina var síðust i st'af-. rófinu og hennar vísa byrjaði svona: Hér hefur farið fagurt fé, fremst þó teljum eina..... Þetta er ef til vill ekki mikill skáldskapur og framhald vísunn ar skiptir ekki máli, en hún sýn ir bara örlítið brot af þeim hug og virðingu, sem við bárum fyr- ir Steinu. Hún var okkar fremst á svo margan hátt. Hún var mjög dul og hlédræg daglega, en í okkar hóp var hún kát og glöð og gat hlegið dátt með okkur. Hún var mjög tíúuð og sótti fundi í K.F.U.M og Kristilegu félagi hjúkrunarkvenna. Hún var elskuð af sjúklingum sínum, enda var hún framúrskar andi vandvirk og skyldurækin við öll sín störf. Eftir að námi iauk tvístraðist hópurinn og Steina fór til Akureyrar, þar sem hún tók að sér mjög erfiða deild. Hún vann myrkranna á milli, en hjúkrunarkvennaskort- urinn var þá mjög tilfinnanleg- ur fyrir norðan. Hún ætlaði að fara til Svíþjóðar ásamt þrem hollsystrum ári seinna, en þá syrti í lofti. Hún hafði alveg ofgert sér með vinnu og heilsan var að bjia. Hún lá fyrst á sjúkrahúsinu á Akureyri, kom síðan suður og var alla tíð und- ir læknishendi helztu sérfræð- inga Landsspítalans upp frá því. Öðru hvoru hresstist hún svo að hún gat farið að vinna stund og stund. Nú síðast vann hún á Reykjalundi í Mosfellssveit, og var aftur orðin bjartsýn á bata. Eins og áður segir voru vonir tengdar við uppskurð, sem gerð- ur var 13. jan. sl., en langvar- andi sjúkur og þreyttur líkami hennar stóðst ekki raunina og hún andaðist tveim dögum seinna. Við vottum öldruðum föður hennar systkinum og öðrum vandamönnum okkar dýpstu samúð. Við kveðjum þig elsku holl- systir og þökkum þér allt, sem þú varst okkur. Vertu guði fai- in um alla framtíð. Blitza plastlakk Clitza mattiakk Gluggaplast Múrhúðunarnet Saumur, svartur og galvaniseraður EGILL ÁRNASON SLIPPFÉLAGSHÚSINU SÍMAR: 14310 OG 20275 VÖRUAFGREIÐSLA: SKEIFAN 3 SÍMI 38870. KAUPMENN KAUFÉLÖG DORRES TízkusCæðnr ALLTAF í TÍZKU Nýkomið. Mikið litaúrval. SAMA LÁGA VERÐIÐ. DORRIS slæðurnar eru notaðar sem Höfuðklútar — Hálsklútar og Herðasjöl. HEILDSÖLUBIRÐIR: S. Óskazssott & heildverzlun Garðastræti 8. — Sími 21840.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.