Morgunblaðið - 24.01.1967, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1967.
23
Hvenær verður
borg dbyggileg?
1
Reykur og óhreinindi i andrúmslofti
ógna milljónaborgum Ameriku
MEIRA en 5.5 milljónir
bifreiða og 400.000 verk-
smiðjur menga daglega
andrúmsloftið í þremur
stærstu borgum Banda-
ríkjanna. Sérhver þessara
borga — New York, Chic-
ago og Los Angeles —
berst nú harðvítugri bar-
áttu til að kafna ekki í
eigin reykjarsvælu. Nú
sem stendur geta þeir dag-
ar komið, er reykurinn
virðist allt ætla að yfir-
buga og fólk stendur á
öndinnL
Sú spurning hefur vaknað,
sem enginn veit reyndar
svar við: Hversu langt er
þess að bíða, að ólíft og ó-
búiandi verði í bandarísfcum
borgum? Þvú íleiri ílbúar,
sem byggjia gefið svæðd, þeim
mun meiri orku krefjast þeir
í formi rafhagns og benzíns
og þeim mun meiri er hætt-
an af reykmistrinu. Fáir sér-
fræðingar taka j.afn djúpit í
árinni og Frank M. Stead,
'heilbrigðisráðunautur Kali-
fornóiufylkis. Hann segiir að
innan 14 ána ver'ði andrúms-
loftið í Kaliforníu svo mett-
að reyk og öhreinindum, að
það taki ekki við meiru.
Hann vilil, að al'lar bifreiðar,
sem fyrir benzíni ganga,
verði teknar ur notkun fyrir
1980.
Það er ýmsum vandkvæð-
um 'háð að framkvæma mæl-
ingar á óhreinindum í and-
rúmslofti. Sénfræðingar styðj
ast helzt við staðtölur um
orkunotkun á þeirra svæð-
um; hversu mikiu magni af
kolum, Olíu, gasi og benzáni
er brennt og fer út í andrúms
loftið. Er s.tillur og hitar
koma myndast nokkurskonar
lok yfir borgunum og þá geta
þeir nokkurnveginn reiknað
út hve miklu rey.kjarmiagni
er dælt út í andrúmsloftdð á
klukkustund í því. lokaða
hólfli, þar sem þieir gera at-
huganir sínar.
Hvenær verður borg ó-
byggilieg? Það er undir því
komið hve lengi þetta reyk-
mettaða 'hólf er lokað. Það er
einnig undir þvá komið
hversu lengi fólkið í þessu
hólfi getur þolað hið and-
styggi’lega loft, áður en það
tekur að skaða aug.u þess,
nef, barka og lungu. Hinir
veikbyggðustu, eldra fóilk og
þeir, sem vdð öndunarenfið-
leika eiga að strfða, verða
áhrifanna flyrst varir.
Flesitar borgir hafa lagt
drög að neyðaráætlun, sem
gerir ráð fyrir stöðvun bif-
reiða, takmörkunum á sitarf-
semi verksmiðja og brennslu
á olíu og sorpd. Unnt væri að
afstýra öngþveiti með þvi ð
fyrdrskipa útgönguibann og
Manhattan séð í reykjarmistri frá Hudson-ánnL
koma fólk3, sérstakiega því truflunuim, fyrir í loftræstum
sem við þjáist af öndunar- byggingum.
f þeim borgum, þar sem
reykjaribrælan horfir til vand
ræða hafa verið gerðar ráð-
stafanir til að setja upp reyk-
hreinsunartæki í verksmiðj-
um og nýhæfa brenns>luofna
fyrir sorp og annað þess hátt-
ar í þvi skyni að minnka
reykmyndunina.
En baráítan er erfi'ð og
sdgrarnir fáir og smáir. í
sumum tilvikum eykur orku-
þörf ibúanna svæluna meir
en sérfræðingar geta skorið
hana niður. Hins vegar tak-
markast þetta' greinilega af
sjállfu sér. Þegar hreinsunar-
vandkvæðin verða alvarleg
hætta borgir að vaxa og
reyndar minnkar íbúafjöld-
bobba, því hann hefur enga
þörfin og reykurinn.
Ef hreinsunarsérfræðingur
er að því spurður, hvernig
inn og um leið minnkar orku-
fullkomna la.usn á takteimum.
Hins vegar hefui hreinsunar-
sérfræðingur New York-
borgar, Austin N. Hel'ler, sett
fram sína hugmynd. Hann
segir: „Fyrst og fremist mundi
ég dreifa íbúun.um á stærra
svæði og taikmarka hæð bygg
inga. Eg mundi fyrirskipa
miðstöðvarhitun og setja á
stofn kjarnorkustöðvar til að
framleiða þá orku, sem borg-
arbúar þarfnast. Ég mundi
banna bifrefðaiumiferð í verzl-
unarhverfum og láta gera
fyrir þá stæði neðanjarðar
umhverfís miðborgina. Fó'lk
kæmist leiðar sinnar á hreyfi-
brautum eða á annan hátt.
Ég mundl koma á sorpmölun
og fleyta möluðu sorpinu
bunt eftir k>kræsakerfi“.
ÞVí miður er þetta enn að-
eins hugsýn. Verkefnd Hell-
ers er þéttbyggðasta borg
veraldar og íbúar hennar
þarfnast meiri orku og fram-
leiða meiri reyk en nokkrir
aðrir borgarbúar í heiminum.
i
i
'i
i
i
i
Ólöf EinarsdóftSr
F. 28.5. 1886. — D. 15.1. 1967.
FRÚ Ölöf Einarsdóttir fæddist
í Bíldsey á Breiðafirði, og voru
foreldrar hennar Einar Jónsson
og kona hans Soffía Þórðardóttir,
sem lengi bjuggu í Bíldsey Þar
ólst ólöf upp þar til um ferm-
ingu, að hún fór til séra Sigurð-
ar Gunnarssonar í Stykkishólmi.
Var hún þar mikið til, þangað til
hún fluttist til Reykjavíkur um
tvítugsaldur. Minntist hún jafn-
an séra Sigurðar og fólks hans
með miklum hlýhug, því það fólk
reyndist henni í alla staði vel.
Þegar til Reyjavíkur kom, fór
ólöf á hússtjórnarskólann í Iðnó,
til þeirra frk. Hólmfríðar og frk.
Ingunnar Bergmann. Að loknu
námi var Ólöf við og við að-
stoðarstúlka þar, unz hún giftist
eftirlifandi manni sínum, Erlendi
Jóhannssyni, ættuðum úr Rangár
vallasýslu, 18. des. 1915. Lifðu
þau í hamingjusömu hjónabandi
I 51 ár. Þaiu bjuggu fyrst í
Reykjavík, en fluttust til Hafnar
fjarðar 1918 og áttu þar heima
lengst af síðan, unz Ólöf veikt-
ist hastarlega fyrir nokkrum ár-
wm, og gat hún enga björg sér
veitt eftir það.
Þau hjónin höfðu eignazt eina
dóttur, Unni, sem þá tók foreldra
sína að sér, og hjúkraði móður
sinni svo að segja til hinztu
SL. HAUST var haldinn fund-
ur nokkurra áhugasamra sölu-
manna með forráðamönnum V.R.
um stofnun sölumannadeildar
innan V.R. Aðalhvatamaður að
þessum fundi var Klemens R.
Guðmundsson, sölumaður.
Kosin var undirbúningsnefnd
til að hrinda málinu í fram-
kvæmd.
Að loknu starfi undirbúnings-
nefndar var boðið til stofnfund-
ar 14. jan. sl. að Hótel Loftleiðir.
Mikill einhugur ríkti á fundin-
stundar af dæmafárri fórnfýsi og
umhyggjusemi, enda er frú Unn-
ur frábær að mannkostum og
manngöfgi. Var það mikil ham-
ingja þeirra hjóna að eignast svo
um og urðu líflegar umræður um
málefni sölumanna og þegar á
stofnfundi innrituðu sig 75 fé-
lagar.
Tilgangur deildarinnar er að
hafa afskipti af iauna- og kjara-
málum sölumanna. Gangast fyr-
ir námskeiðum og halda uppi fé-
lags- og Iræðstiustarfsen:).
Ákveðið er að halda námskeið
fyrir sölumenn þegar á næs«:a
hausti og er búist við mikilli þátt
töku.
, Framhald á bls. 25
góða dóttur.
Frú Ólöf var kona fríð sýnum,
hæglát og kurteis í fasi, hlédræg
og frábitinn því, að vilja trana
sér fram. Hún var umtalsfróm
og vildi hvarvetna koma fram til
góðs. Blessuð sé minning hennar.
Jakob Jóh. SmárL
MOÐIR mín segir mér að fara í kirkju, krefst þess,
að ég lesi Biblíuna og lætur mig taka þátt í heimilis-
guðræknisstundum. Mér finnst, að trúin sé einkamál
og að enginn eigi að troða trúarsannfæringu sinni inn
á aðra.
Ég geri ráð fyrir, að móðir yðar segi yður einnig
að fara til læknis, þegar þér eruð veikur, segi yður
að fara till tannlæknis, þegar þér eruð með tannpínu,
segi yður að fara í bað, þegar þér þarfnist þess, og
krefjist þess, að þér borðið á matmálstímum. En
hvað þér eigið kröfuharða móður!
Þér ættuð að vera þakklátur fyrir móður, sem trú-
ir einhverju og reynir einnig að fá böm sín tiil að
trúa einhverju. í>eir foreldrar eru eklki of margir,
sem hafa nógu sterka trú á Guð, á bænina og á
Biblíuna, til þess að þeir krefjist þess af börnum
sínum, að þau gerist hluittakendur í trú þeirra. Þér
eruð lánsamt barn, og sá tráni kemur, að þér verðið
þaklklátur fyrir að hafa átt sliíka móður. Biblían
segir: „Heiðra föður þinn og móður þína“, og ég er
sannifærður um það, að Guð býður okkur einmitt að
heiðra móður á við móður yðar. Mér þykir leitt að
þurfa að segja það, en þeir foreldrar eru margir nú
á dögum, sem ekki hljóta virðingu og heiður barna
sinna. Þau eru líkamlega fær um að eignast börn,
en óhæf til að ala þau upp á þann hátt, sem börn
eiga að vera alin upp. Þér eruð ríikur, en vitið það
ekki. Hlýðið móður yðar, farið að fordæmi hennar
í trúnni, og þér munuð losna við mikið af angri og
sorg.
i
.
;
i
'i
s
i
i
i
Fremrl röð sitjandi frá vinstri: Klemens R. Guðmundsson, Eiís
Adolphsson, Birgir Rafn Jónsson, Einar Kjartansson. — Aftari
röð standandi: Páll Stefánsson, Jón Rafnar Jónsson, Eggert Boga
son, Jóhann Kristjánsson og Ásgeir Einarsson.
Stofnuð sölumanna-
deild innan V.R.