Morgunblaðið - 24.01.1967, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1967.
Tékkar unnu veröskuldaðan sigur á HM
Rúmenar í þriðja sæti eftir
sigur yfir Sovét 21-19
TÉKKAR urðu heimsmeistarar í handknatUeik, eins og stuttlega
var frá skýrt í sunnudagsblaðinu. Unnu þeir Dani í úrslitaleiknum
með 14-11, en í hálfleik var staðan jöfn, 8-8.
Frammistaða Dana í þessari keppni hefnr komið mjög á óvart
—- ekki sízt í Danmörku. Einn leikmanna Dana, markvörðurinn
Erik Holst, var af fréttamönnum kjörinn bezti markvörður keppn-
innar. Sagði Holst fyrir leikinn, að danska liðið hefði sett sér það
markmið að verða ekki neðst í 8 liða úrslitum. En síðan áttu þeir
tvo stórleiki — sigur yfir Júgósiövum og Rússum. Og þó sigur
Tékka hafi verið verðskuldaður var frammistaða Dana þeim til
sóma.
I baráttu um þriðja sætið unnu Rúmenar (heimsmeistararnir
í tvö síðustu skipti) Rússa 21-19 eftir framlengdan leik.
Jafnt i byrjun
Flestir eru á einu máli um að
Tékkar hafi átt sterkasta liðið í
þessari keppni og sigur þesss hafi
því verið fyllilega verðskuldað-
ur. Þeir hafa komizt í úrslitaleik
tvívegis áður og tapað í bæði
skiptin naumlega — þó sumir
4 (2 úr víti), Bruna 4, Duda 3,
Mares 2, Havlik 1. — Mörk Dana:
Christiansen 4 (2 víti), Vods-
gaard 2, Verner Gaard 2, Per
Svendsen 1, C. Lund 1 og Klaus
Kaae 1.
Dómari var Svíinn Torild
Janerstam (sem hér dæmdi lands
leik við V-Þjöðverja á dögun-
um) og fær misjafna dóma.
Rúmenía — Sovét
Sovétmenn sýndu í byrjun
miklu betri leik og komust tví-
vegis í mjög gott forskot. Fyrst
komust þeir í 6:2 en á þeim tíma
lögðu Rúmenar alla áherzlu á að
gæta Klimovs, en slepptu öðr-
um lausum. Síðan náðu Rúmenar
að jafna 6:6, en aftur komust
Sovétmenn í forystu 11:6. En
Rúmenum tókst að ná jafnvægi
í leikinn aftur og á síðustu mín-
útu að ná að jafna 18:8. Fram-
lengt var og þá voru Rúmenarn-
ir hinir sterkari og unnu 21:19.
Þeir fóru því ekki allslausir heim
hvað verðlaun snertL Rúmeninn
Gruia átti stærstan þáttinfi 1
þessu afreki Rúmena, skoraði 12
mörk (3 úr víti) en var þó sér-
staklega gætt.
Fréttamenn segja að Sovét-
menn kunni út í þaula nokkrar
leikaðferðir, en þegar mótherj-
inn finni vörn við þeim, sé getn
þeirra lokið. Þessi sé skýringin
á góðum leikköflum, sem færa
þeim góð forskot í mörkum.
Molar
ERIK HOLST markvörður
Dana á HM hlaut sérstök heið
ursverðlaun Dagens Nyheter
fyrir beztu og óvæntustu
frammistöðu í keppninni.
V-Þjóðverjar hlutu „fair-
play“ bikarinn en hann hlýt-
ur það lið, sem missir leik-
menn sína sjaldnast af velli
fyrir gróf leikbrot eða ítrek-
’ uð. Fóru V-Þjóðverjar aðeins
þrívegis af velli eða í 6 mín.
samtals. Júgóslavar í 8 mín.,
Svíar 10 mín, Danir 13, Tékk-
ar 16, Sovét 18, Rúmenar 20.
Markhæstu menn:
Lúbking V-Þýzkal.
Schmidt V-Þýzkal.
Milkovics, Júgóslavíu
Klimov, Sovét
Bruna Tékkóslóv.
Gruia Rúmeníu
Fenyöe Ungverjal.
Duda, Tékkóslóv.
Marosi Ungverjal.
Jan Hodin Svíþjóð
Horvat Júgóslavíu
Jacob Rúmeníu
Göran Hárd Svíþjóð
Uremovic Júgóslavíu
38
36
36
35
34
34
30
28
28
23
22
21
20
20
teldu þá að þeir hefðu átt sigur
skilið. Danir hafa aldrei náð
jafn langt og nú.
Baráttan nú milli þeirra og
Dana var mjög spennandi fram-
an af. Tvívegis í fyrri hálfleik
voru Danir með 2 marka forskot
(6:4 og 7:5) en á síðustu sekúnd
um var Tékkum dæmt vítakast
og í hléi var staðan jöfn, 8:8.
Betra úthald Tékka
Er líða tók á síðari hálfleik
kom í ljós að Danir höfðu hvergi
nærri úthald á við Tékkana og
þegar Tékkar komust yfir 12:10
var sýnt hvernig færi. Spennan
ríkti þó enn, því næstu 5 mín.
þar á eftir voru án marka. Dan-
ir komust ekki í færi og það var
eins og Tékkar vildu ekki gera
tilraun til að skjóta — nema ör-
uggt mark yrði. Þeir virtust á-
nægðir með 2 marka forskot.
Og loks skoruðu Tékkarnir
13:10 og þar með var útséð hvern
ig færi þó 6 mín. væru til leiks-
loka.
Síðari hálfleikur leiksins var
mjög harkalega leikinn, slagsmál
á köflum og mikið múður við^
dómarann og í þeim efnum voru
Danir yfirburðamenn Tékkanna.
Beztan leik í liði Dana áttu
Holst markvörður, Jörgen Vod-
gaard og Iwan Christiansen.
Holst gekk þó ekki heill til skóg-
ar. Meiðsli í öxl frá fyrri leik
tóku sig upp. Þá fékk hann blóð
nasir eftir högg og allur var
hann aumur á olnbogum og
hnjám eftir leikinn við Rússa,
en þá sýndi hann þá frammistöðu
„að betur verður ekki gert“, eins
og blöðin sögðu.
Lið Tékka var betra, jafnara,
og umfram allt úthaldsbetra.
Mörk Tékka skoruðu Konecny
Hér er Erik Holst með silfurver ðlaun sín. Enginn í liði Dana er
sagður betur að þeim kominn en einmitt Holst markvörður.
Frá úrslitaleik HM. Per Svendsen hcfur komizt inn fyrir vorn Tékka og skorar. Max Nielsen
og Verner Gaard horfa spenntir á.
KR vann KFR, 93-60 og
IKF vann stúdenta 73-56
Leikskýringar í hátalara
til áhorfenda vinsælar
ÍSIiANDSMEISTARAMÓTINU í
körfuknattleik var áfram haldið
í Iþróttahöllinni í Laugardal á
sunnudagskvöld og voru leiknir
tveir leikir í I. deild. KR sigraði
KFR með 93:60 og ÍKF vann ÍS
73:56. Sá skemmtilegi siður hef
ur verið tekinn upp við leiki í
Danir og Rússni
í kvöld
DANSKA handknattleikssam-
bandið vill hamra sitt járn með-
an það er heitt. í kvöld verður
danska HM-liðið er silfurverð-
launin hlaut hyllt í Kaupmanna-
höfn og á að sýna að það var
engin tilviljun að Danir hlutu
silfurverðlaunin. Reyndu Danir
bæði að fá Japana, Rúmena og
Rússa til að koma til kappleiks
í Kaupmannahöfn. Tvö fyrst-
nefndu löndin gátu ekki þegið
boðið vegna heimferðar, en Sovét
menn voru til í tuskið og mætast
Danir og Rússar í kvöld í stærstu
höll Kaupmannahafnar.
I. deild að Bogi Þorstelnsson
skýrir ieikinn í hátalarakerfi
hússins, og hefur þessi nýbreytni
vakið ánægju meðal þeirra áhorf
enda, sem körfuknattieik sækja,
en þeir eru reyndar alltof fáir.
KR — KFR 93:60, I. deild.
Leikurinn hófst með fremur
rólegu spili af beggja hálfu og
léku KFR-ingar maður mann
vörn en KR-ingar beittu svæðis-
vörn. Styrkleikamunur liðanna
kortr þó fljóilega í ljós og gefur
staðan í hálfleik 48:30 fyrir KR
nokkuð góða mynd af gangi leiks
ins. Hjörtur Hansson var beztur
KR-inga enda var hans mjög illa
gætt og slcoraði hann 18 stig á
þessu tímabili. í síðari hálfleik
jafnaðist leikurinn heldur og um
miðbik hálfleiksins var staðan
39:57 KR í vil. Fór þá þreytan
að segja til sín hjá KFR en þeir
höfðu aðeins einum varamanni á
að skipa og bættu KR-ingar veru
lega við forskot sitt undir lokin
og sigruðu með yfirburðum
93:60.
Hjá KR skoraði Einar Bolla-
son 34 stig og Hjörtur Hansson
Framhald á bls. 31
§und meistara-
mót R.víkur
SUNDMEISTARAMÓT Reykja
víkur 1967 verður háð í Sund-
höU Reykjavíkur 3*1. janúar kk
8.30. Keppt verður í eftirtöldum
sundgreinuim í þessari röð:
100 m skriðsund kvenna
200 m skriðsund karla.
100 m flugsund kvenna
200 m bringusund karla.
200 m bringusund kvenna.
100 m flugsund karla.
100 m baksund kvenna
100 m baksund karla.
4x100 m sfcriðsund kvenna.
4x100 m skriðsund karla.
Einnig fer fram úrslita-
leikur Sundknattleifcsmeistara-
móts Reykjavíkur 1967.
Utanbæjarmönnuim er heimil
þátttaka sem gestum, án verð-
launa.
Þátttökutilkynningar skRist tB
Guðmundar Þ. Harðarsonar,
Sundlaug Vesturbæjar (simá
15004) eða Péturs Kristjánsson-
ar sími 35705. Þátttaka tilkynn-
ist fyrir 27. janúar.
(Sundráð Reykjavikur),