Morgunblaðið - 08.02.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.02.1967, Blaðsíða 1
54. árg. — 32. tbl. MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins SOVÉZKA SENDIRADIDIPEKING í ,HERKVÍ' Verkamenn í Itfioskvu efna til mófmæla við sendiráð Kína Peking, Moskvu og Tókíó, 7. febrúar. — NTB-AP. SOVÉZKIR sendiráðsmenn eru nú að kalla í stofufangelsi f sovézka sendiráðinu í Peking. Var sendiráðssvæðið um- kringt æpandi varðliðum, sem kölluðu svívirðingar í garð Sovétríkjanna í gjallarhorn og límdu áróðursmiða á múrinn, sem umgirðir sendiráðsbygginguna. — Tass-fréttastofan í Moskvu sagði í dag, að sl. mánudagskvöld hefði brjálaður lýð urinn brotið niður járnhliðið að sendiráðsbyggingunni, en sovézkir sendiráðsmenn hefðu myndað vegg og varnað varð- liðunum inngöngu. Kínversk yfirvöld sendu sovézku sendi- ráðsmönnunum skeyti í dag, þar sem þeir eru varaðir við að fara út fyrir sendiráðssvæðið af öryggisástæðum. Sovézka Sendiráðið mótmælti jregar aðvörunum, og sagði í mót mælaorðsendingunni, að aðvörun in stefndi að því að skerða rétt- indi sovézkra diplómata. Gifurleguir fólksfjöldi var sam an kominn fyrir framan sendi- ráðið í diag 13. dag mótmælaað- igerða gegn endurskoðunarsinna- kWkunni í Moskvu. Segja frétta- ritarar að sendiráðið hafd verið 4 herkvd. Um tvö hundiruð Siovét nxenn eru nú í sendirá’ðinu, en allar eiginkonur þeirra og börn hafa nú verið flutt til Moskvu. Á flugvel'linum í Peking í gær réðust rauðir varðliðar inn í far- þegavagnana, sem fiuttu fóiikið þangað, og börðu konurnar og börnin. Er karlmenmirnir reyndu að koma þeim tiil hijiá'lp- ar voru þeir um.svifali.uist slegn- ir niður. Nokkrir Sovétmanna kom- ust efcki aftur til sendiráðsins, vegna lýðsins, sem fyllti allar götur í nágrenninu. Leituðu marg ir þeirra hælis í pólska sendiráð inu. Sovézkir fréttaritarar í Pek ing hafa flúið úr íbúðum sínum í diplomatahverfinu í Ptefcing og leitað 'hælis í sendiráðum A- Evrópuríkja. Tass-fréttastofan sagði í dag, að ofsóknirnar gegn Sovétríkj- unum í Kína ættu sér enga hlið stæður í stjórnmálasamskiptum landa. Segir fréttastofan að að- gerðirnar verði stöðugt brjálæð- islegri. Sovézkir verksmiðjuverka- menn fjölmenntu til kínverska sendiráðsins í Moskvu í dag og efndu þar til mótmaplaaðgerða gegn ofsófcnunum í Peking. Festu þeir spjöld á girðinguna um- hverfis sendiráðið. þar sem skor að var á Kínverja að hætta ögrun unum í Peking. Jafnframt þessu gengu 9 verkamenn upp að dyr um sendiráðsins, börðu bylmn- ingshögg á þær og kröfðust þess að fá að ræða við kínverska sendi fulltrúann og afhenda honum mótmælaorðsendingu. Neituðu Kínverjarnir að opna dyrnar. Rússarnir límdu þá orðsending- una á gluggan á hurðinni. í henni var rangfærsla Maos á stjórn- Framhald á bls. 27 Stálu farþegaflug■ vél og flýðu land 33 egypzkir flótfamenn til Jórdaníu Kaíró og Amman, 7. febr. (AP-NTB) SKÝRT var frá þvtf í Kaíró í dag að farþegaflugvól hefgi „týnzit“ á leið frá Kaíró tiil Hurghada á strönd Rauða hafsins. Var talið að sprenging hefði orðið í vélinni og hún far- izt. Seinna bárust fréttir frá Amman í Jórdaníu uom að egypzk flugvél hefði lent þar, oig að 33 farþeganna hefði leitað þar hælis sem pólitíski.r flóttamenn. Leið togi flóttamannanna er Ri- yad Kamal Hajjaj, otfursti í leyniþjónustu Egypta, en hinir al'lir yfirmenn úr hernum. Flugvélin, sem saknað var f Kaíró, átti að koma til Hurg- hada klukkan átta í morgun eftir klukkustundar flug frá Kaíró. Vélin kom ekki frám, og í sex klukkustundir var ekkert um hana vitað. Barst þá út sú frétt að sprenging hefði orðið í vélinni, og voru leitarflugvélar sendar á vett- vang. En ekkert brak fannst, og rikti algjör óvissa um ör- lög flugvélarinnar. Þegar fregnir bárust frá Amman um komu vélarinnar þangað, bar þeim ekki saman við Karíó-fréttir að því er varðar gerð vélarinnar. Segir í Karíófréttinni að vélin sé af gerðinni Antonov-24, en í Ammanfréttinni er talað um Ilyushin-vél. Báðar eru þess- ar gerðir smíðaðar í Sovétríkj- unum. Auk egypzku flóttamann- anna voru með vélinni sjö þýzkir ferðamenn og forstjóri egypzku ferðamálaskrifstof- unnar, Salah Abdel Wwhab, auk fjögurra manna áhafnar. Eftir að fregnir bárust frá Amman um komu vélarinnar þangað, kvaddi Mahmoud Fraimhald á bls. 3 Andsovézkir áróðursmiðar þekja járnhliðið fyrir framan sovézka sendiráðið í Peking. Á miðun- um stendur: „Hengið Kosygin", „Brennið Kosygin". Brúða af Kosygin hangir í trénu til vinstrL Kosygin í London: Evrópa og Sovétríkin, auðugri en Bandaríkin London, 7. feb. (NTB-AP) ALEXEI Kosygin, forsætisráð- herra Sovétrikjanna, kom í opin- bera heimsókn til Bretlands í gær, hélt í dag áfram viðræðum sinum við brezka leiðtoga í Lon- don. Snerust umræðurnar í dag aðallega um viðskiptamál, og lagði Kosygin til að löndin tvö hefðu samvinnu um þróun ákveð inna greina iðnaðarins til að full- nægja þörfum hvors annars, og miðla hvort öðru af þekkingu á sviði vísinda og tækni til efl- ingar efnahags landanna. Kosygin og ráðgjafar hans ræddu fyrst við Harold Wilson forsætisráðherra og Douglas Jay, verzlunarmálaráðiherra í forsætisráðherrabústaðnum að Downing Street 10. Kvartaði Jay þar undan því að Sovétríkin hefðu ekki staðið við viðskipta- samninga á síðasta ári, og aðeins keypt vörum af Bretum fyrir 50 milljónir sterlingspunda, en Bretar hafi á sama tíma keypt vörur frá Sovétríkjunum fyrir 125 milljónir punda. Einnig minntust brezku full- trúarnir á aðgerðir til únbóta á viðskiptajöfnuði ríkjanna, svo sem tiltooð Leyland bílasmiðj- anna um að hefja smíði lang- ferðabifreiða i Sovétríkjunum, og ósk B.M.C. bílasmiðjanna um að setja á stofn samsetningarverk- smiðju fyrir bifreiðir í Sovétríkj unum. f hádeginu sat Kosygin og fylgdarlið hans hádegisverðar- boð iðnrekendasamtiakanna brezku. Flutti hann þar hálf- tíma ávarp, og ræddi m.a. um samvinnu Bretlands og Sovét- ríkjanna í iðnaði. Sagði hann að unnt væri að auka viðskipti landanna með því að hafa sam- vinnu* um framtíðaráætlanir á sviði iðnaðar. Unnt væri að stíga þessi spor í tveimur áföng- um, miðað við tímabilin 1967- 1970 og 1970-1975. Saigon og Washington, 7. febr. — NTB-AP: UM 1,5 millj. hermanna beggja styrjaldaraðila í Vietnam hafa fengið skipun um að leggja nið- ur styrjaldaraðgerðir næstu fjóra daga að minnsta kosti, í sam- bandi við nýárshátíðahöld viet namísku þjóðarinnar. Viet Cong hafa lýst yfir 7 daga vopnahléi, en stjórnin í S-Vietnam hefur ekki viljað samþykkja það, þar eð Viet Cong neituðu að ræða málið við hana. Vopnahlé þetta er hið þriðja á 7 vikum í Viet- nam, en áður var hlé á bardög- um um síðustu jól og áramót. Fréttaritarar í Saigon telja ó- líklegt, að um meiri háttar að- gerðir verði að ræða þá þrjá daga, sem Viet Cong hafa lýst yf ir vopnahléi framyfir S-Vietnam. „Þetta hefði það í för með sér að við fengjum mjög gott yfir- lit yfir þróun viðskiptanna á næstu átta árum, og að við gæt- um skipulagt þróun iðnaðarins í samræmi við það“, sagði for- sætisráðherrann. „Við munum auka framleiðsluna á ýmsum vörutegundum heima fyrir, til að senda á brezkan markað". Kosygin vísaði á bug þeim Framhald á bls. 3 Ný-Sjálenzk hersveit gerði f dag árás á ástralska hersveit í misgripum. Fjórir Ástralíumenn féllu og 13 særðust. Ekki er vit- að um orsakir fyrir þessu atviki. f dag eru liðin þrjú ár frá þvf að Bandaríkjamenn hófu loftór- ásir á N-Vietnam. Stjórnarblaðið í Hanoi hélt því fram í dag, að frá því að loftárásir hófust hefðu N-Vietnambúar skotið niður rúm lega 1700 bandarískar flugvélar. Bandarískar og s-vietnamískar hersveitir felldu í dag 160 skæru- liða í átökum víðsvegar í Viet- nam. Tvær bandarískar flugvél- ar voru skotnar niður af loft- varnarskyttum N-Vietnam í dag. Að öðru leyti segja fréttaritarar í Saigon, að svo virðist, sem á- hrifa vopnahlésins sé þegar far- ið að gæta. Vopnahlé í Vietnam

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.