Morgunblaðið - 08.02.1967, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÖAR 1967.
FramSialdsaukafundur SH.s
Rœff í dag við
tjórnina
^sZZ
1 GÆR var haldinn framhalds-
aukafundur Sölunniðstöðvar hrað
frystihúsanna að H-'tel Sögu. Á
fundi samtahanna í janúar var
samþykkt að fresta fundinum á
meðan nefnd hraðfrystiiðnaðar-
ins og ríkisvaldsins fjallaði um
vandamálin, sem að þessari at-
vinnugrein steðjar.
Á fundinum að Hótel Sögu í
gær flutti formaður stjórnar
S.H , Gunnar Guðjónsson, skýrslu
um viðræðurnar við ríkisstjórn-
Ina. Greindi hann frá störfum
nefndar fulltrúa hraðfrystiiðnað-
arins og ríkisvaldsins og hug-
myndir sem fram hefðu komið
um lausn á vandamálum hrað-
frystiiðnaðarins.
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson,
framkvæmdastjóri, flutti ræðu
um starfsgrundvöll frystihús-
anna.
Fundarmenn samþykktu að
fresta enn aukafundinum, þar
sem frekari viðræður við ríkis-
stjórnina munu fara fram í dag.
f viðræðunefndinni eiga sæti
af hálfu ríkisstjórnarinnar þeir
Jónas Haralz og Jóhannes Nor-
dal, en af hálfu frystihúsanna
þeir Eyjólfur fsfeld Eyjólfsson
(S.H.) og Bjarni V. Magnússon
(S.Í.S.).
Frá framhaldsaukafundi S.H. í gær. Gunnar Guðjónsson í ræðustóli. — (Ljósm.: Ól. K. Mag.)
Til 1, umræðu » M. deHd ■ gær:
Heildarlöggjöf um orkumáí
KaiTlar ur ræðu Ingólfs Jónssonar
Stöplalínuritið sýnir áfengisneyzlu landsmanna tala í lítrum
á mann allt frá árinu 1881. þar til á síðastliðnu ári. Tölur þessar
fékk Mbl. hjá Áfengisvarnarróði osr eru þær samanlö->-ð n**vzla
léttra vína o«r sterkra. Þar sem um fleiri en eitt ár er að ræða, er
tekið meðaltal áranna.
FRV. ríkisstjórnarinnar
orkumál var til 1. umræðu í
Neðri deild A'þingis í gær og
fylgdi Ingólfur Jónsson, raf-
orkumálaráðherra, frv. úr
hlaði. Lýsti ráðherrann höfuð
atriðum frv. og sagði að með
því væri steypt saman í heild
arlöggjöf lögum um orkumál.
Þar væri byggt á 20 ára
reynslu og kvaðst ráðherr-
ann vonast til þess að frv.
þetta yrði að lögum og að
það yrði til þess að gera fram
kvæmd þessara mála einfald-
ari en verið hefur hingað til.
Ino'ólfur Jónsson sagði m. a.:
Það eru ekki gerðar róttækar
um I breytingar á gildandi 1. í raf-
orkumálum, en eins og áður er
sagt, eru þau samræmd og felld
saman í einn lagabálk. Þykir
mikið við það unnið. En helztu
nýmæli frv. varða stjórn orku-
mála. Það er gert ráð fyrir að
koma á fót sérstakri orkustofn-
un er annist rannsóknir. áætlana
og skýrslugerðir á sviði orku-
mála og verði ráðherra til ráðu-
neytis í beim efnum jpfnframt
Framhald á bls. 21.
Sterka bensínið komið
Verðið á lítra hækkar um 5°]o hér
Áfengisneyzía á mann
jókst um 26 ml. árið 1966
— Aukin neyzla og minna smygl,
segir forstjóri Afengisverzlunarinnar
STERKA bensínið með oktantöl-
unni er komið til landsins. Kom
það með rússneska olíuflutninga-
skipinu Moskovisky Festival, en
skipið kom hingað til hafnar í
fyrradag. Er það með 5000 tonn
af hinu sterka bensíni, er kemur
frá Tuapse við Svartahaf, og
ennfremur allmikið magn af
gasolíu frá Batumi.
Ekki verður byrjað að selja
sterka bensínið strax, þar sem
selja verður þær birgðir sem
fyrir eru af benisíninu með dkt-
antölunni 87, en ráðgert er að
sala á nýja bensíninu hefjist í
seinni hluta þessa mánaðar. Er
gert ráð fyrir að það verði um
5% dýrara en benisin það sem
fyrir er, en lítrinn af því kostar
7,05 kr.
Á SÍÐASTLIÐNU ári jókst
áfengisneyzla, miðað við hreinan
vínanda á mann, um 26 millilítra
Er þá miðað við tölur frá árinu
áður. Mest var aukninein í sterk
um vínum eða sem svarar 22
millilítrum. Aukningin í Iéttum
vínum nam aðeins 4 millilítrum.
Áfengisneyzlan á mann árið 1966
nam 2,33 lítrum og hefur aldrei
náð svo miklu magni síðan á ár-
uniim 1881—1885, en meðaltal
þeirra ára er 2.38 lítrar á mann.
Aukningin hefur ekki verið
svo mikil frá ári til árs sem nú
allt frá árinu 1057, en þá jókst
áfengisneyzlan um 40 millilitra
frá árinu áður, eftir að hafa
minnkað 3 árin á undan. Á ár-
unum 1041 — ‘45 var áfengis-
neyzla á mann að meðaltali þessi
ár 1.16 lítrar, en næstu fimm ár
(1946-‘50) að meðaltali 1.76 lítr
ar. Hafði neyzlan því aukizt um
60 milhlítra.
Mbl. hafði tal af Jóni Kjartans
syni, forstjóra Áfengis- og tóbaks
verzlunar ríkisins og spurði hann
álits á þessari miklu aukningu sið
astliðins árs. Jón sagðist telja,
Rauðu skikkiunni seinkar
NOKKRAR tafir hafa orðið I
á afhendingu kvikmyndarinnar
Rauða skikkjan, sem tekin var
hér í sumar. Var ráðgert að hún
yrði tekin til sýningu i tveimur
kvikmyndahúsum í Peykjavík
um síðustu mánaðam^t, en þar
sem framköllun hefur seinkað
i Danmörku, er ekki von á film-
unni hingað til lands fyrr en 14.
þ. m., að því er Guðlaugur Rós-
inkrans þjóðleikhússtjóri tjáði
Mbl. Bjóst hann við að byrjað
yrði að sýna hana strax upp úr
miðjum mánuðinum.
fslenzkt tal hefur verið sett
inn á kvikmyndina, og sagði
Guðlaugur, að hann hefði nýlega
fengið bréf frá Danmörku, þar
sem greint væri frá því, að það
hefði tekizt mjög vel.
að aukningin væri mjög mikil,
en hins vegar hefði dregið mjög
úr smygli á áfengi og hækkuðu
því tölurnar. Söluaukning áfeng
is hjá Áfengisverzluninni nam
á síðastliðnu ári 102 milljónum
króna.
Jón sagði, að málin hefðu ver
ið tekin öðrum tökum en áður á
síðastliðnu ári, takmarkað hefði
verið með reglugerð, það áfengis
magn, sem fólk hefði fengið að
fara með inn ? l=ndið og stuðlaði
það að aukinni sölu hjá Áfengis-
verzluninni.
Lægðin við Grænland hreyf þá hvessa á miðunum vestan
ist fremur hægt en ákveðið til lands. í gær var gott veður á
norðausturs í gær og var bú- landinu. 2ja - 4ra stíga hiti og
izt við regnsvæði hennar til úrkomulaust að kalla.
landsins nú í morgun. Mundi
-^i.
Þingsályktunartilla^a Axews J«^iis~oTi«irs
Olíumöl á VesturSamSsveg
— trá Ártúnshöfða fil Þingvallavegar
AXf?L Jónscon hefur flutt á
Alþingi þingsályktunartil-
lögu þar sem skorað er á
ríkisstjórnina að láta gera
ítarlega athugun með lagn-
invu olíumalar á fjölfarnasta
kafla Vesturlandsvegar, þ. e.
frá Ártúnshöfða að vegamót-
um Þingvallavegar. Er þings-
ályktunartillaga þessi á dag-
skrá Sameinaðs Alþingis í
dag.
f greinargerð með tilliögunni
segir flutningsmaður:
Um Vesturla.nidsveg fer öll bif-
reiðaumferð til Vestur.lands, Vest
fjarða, Norðurlands og Austur-
lands. Auk þess er mikil um-
fer’ð í hin þéttbýlu héruð Kjós-
arsýslu og um Þingval.laveg. Við
Kollafjörð og víðar eru starf-
ræktar malarnámur og efnið
flutt þaðan til höfuðborgarsvæð-
isins.
Framhald á bls. 21.
*