Morgunblaðið - 08.02.1967, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1967.
Stórhríð í
New York
New York, 7. febr. AP-NTB
STÓRHKÍB gekk yfir austur-
strönd Bandarík.ianna í dag, og
olli miklum umferðartruflunum
i 14 ríkium. Loka varð flugvöll-
um víða á þessum slóðum, og
margir þióðvegir urðu ófærir.
Einnig féll öll kennsla niður í
skólum á hríðarsvæðinu.
Vetur hefur til þessa verið
mildur á austurströndinni, en i
gær snjóaði lítillega. Hvessti og
kólnaði £ nótt, og í dag sá vart
milli húsa í New York borg í
hryðjunum. Svo til öll umferð
stöðvaðist um þrjá alþjóðaflug-
veiiina við New York og flug-
vellina tvo við Washington. Vind
hraðinn var um 60 km. á klukku
stund. og víða um 7 stiga frost.
Kyngdi niður 7-25 sentímetra
snjó allt sunnan frá Kentucky
norður til Maine, og var ekkert
lát á snjókomunni.
Sunnar, við New Oreans, gerði
mikla rigningu, og mældist úr-
koman þar 210 millimetrar I nótt.
Varð að flytja 150 fjölskyldur frá
heimilum sínum vegna úrkom-
unnar.
Siglingar um St. Lawrence-
fljótið í Kanada stöðvuðust
vegna ísa, og tókst fjórum ís-
brjótum ekki að halda siglinga-
leiðinni opinni. Farþegaskipið
„Scotia“ frá Cunard skipafélag-
inu, danska flutningaskipið
„Maja Dan“ og tvö skip önnur
reyndu einnig að brjóta sér leið
eftir fljótinu, en ekki var búizt
við að þau kæmust langt.
- STÁLU FLUGVÉL
Fra.mhald af bls. 1
Riyad, utanríkisráðherra Eg-
yptalands, sendiherra Jórdan-
íu á sinn fund, og óskaði eftir
að flugvélinni yrði skilað
heim. Einnig krafðist ráðherr-
ann þess að allir farþegar og
áhöfn yrðu sendir heim til
Karíó.
Egypzka upplýsingaþjón-
ustan ber á móti því að Hajjaj
ofursti hafi starfað við leyni-
þjónustuna. Segir í til-
kynningu upplýsingaþjónust-
unnar að ofurstinn sé þekktur
afbrotamaður, og ástæða sé
til að ætla að hann hafi neyðzt
til að flýja land af þeim sök-
um.
f Amman var tilkynnt að
flóttamönnunum 33 hafi verið
veitt hæli sem pólitískum
flóttamönnum í Jórdaníu. Og
skömmu seinna var einnig til
kynnt að nokkrir yfirmenn úr
sýrlenzka hernum hafi sótt
um og fengið hæli í Jórdaníu
' á sömu forsendum.
- KOSYGIN
Framhald af bls. 1
„rógburðartilraunum", sem gefa
í skyn að Bandaríkin standi Evr-
ópu mun framar tæknilega. „Ef
Guðbjörn Guðmundsson, prentari, heldur á einni af mörgum gjöfum, sem Iðnaðarmannafé-
laginu í Reykjavík berst í tilefni 100 ára afmælis félagsins. E'r það bréfapressa frá Iðnað-
arbanka íslands og ber hún áletrunina 1867—1967. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.).
Sýningu Iðnaðarmanna-
félagsins lýkur í dag
* f dag er síðasta tækifærið til
! þess að sjá sýningu Iðnaðar-
• mannafélagsins, í máli og
: myndum, um starfsemi þess i
; 100 ár, svo og þær gjafir sem
! það hlaut á afmælisdaginn,
■ 3. febrúar sl. Sýningin er í
; Iðnskólanum við Skólavörðu-
j torg, — Inngangur frá Vita-
; stig. Svningin er onin frá kl.
: 17—22 (kl. 5—10 siðd.).
Sýning þessi veTður alls
: ekki framlengd frekar, þar
■ sem nota þarf salinn til ann-
arra þarfa skólans næsta dag.
Þessi sýning félagsins hefir
verið allvel sótt síðan hún var
opnuð 28. janúar sl., enda þar
margt að sjá til fróðleiks um
sögu félagsins og þróun
Reykjavíkur á liðnum þeim
100 árum, sem félagið hefir
starfað.
Iðnðarmannafélagið í Rvík
er eina félagið í landinu, sem
á samfellda starfssögu í 100
ár (auk Bókmenntafélagsins,
en starf þess er og hefir verið
að sjálfsögðu annars eðlis).
Sérstök nefnd var af hálfu
félagsins skipuð til þess að
setja upp sýningu þessa og
voru það þeir Sigurbjörn
Guðjónsson, húsasmíðameist-
ari, Guðbjöm Guðmundsson,
prentari, og Helgi Hallgríms-
son húsgagnaarkitekt, en þeir
réðu sér til aðstoðar um upp-
setningu sýningargripa og rit-
un texta Kjartan Guðjónsson,
listmálara.
við lítum á Evrópu og Sovétrík-
in sem eina heild, og metum nátt
úruauðæfi þeirra, sjáum við að
þau eru meiri og máttugri en
auðæfi Bandaríkjanna. Spara
má mikla vinnu með vísinda-
legri samvinnu Sovétríkjanna og
Bretlands, og Sovétrfkjanna og
Frakklands. Ég álít mikla mögu-
leika vera á hagkvæmri sam-
vinnu á þessu sviði“, sagði
Kosygin.
í viðræðum þeirra Kosygin og
Wilsons í dag kom Vietnam mál-
ið á dagskrá, og haft er eftir
áreiðanlegum heimildum að þær
umræður hafi lítinn árangur bor
ið. En viðræðum um það mál
verður haldið áfram siðar með-
an á heimsókn sovézka leiðtog-
ans stendur.
TRYGGING
ER
NAUÐSYN
©
Allir heimilis£eður
ættu að ha£a líf-og
slysatryggingu
Hugleiðið vel hver mikið öryggi það er fyrir fjölskyldu
yðar, ef þér eruð líf- og slysatryggður.
Ef þér eruð líftryggður, er eiginkonu yðar og börnum
greidd tryggingarupphæðin, hvernig sem andlát ber að
höndum.
Ef þér eruð slysatryggður, eru greiddar bætur vegna
dauðaslyss, eða varanlegrar örorku. Ennfremur
dagpeningar, ef um tímabundna örorku er að ræða.
Ræðið við umboðsmenn vora um þessar hagkvæmu og
sjálfsögðu tryggingar.
ALMENNAR TRYGGINGAR ”
PÓSTHÚSSTRÆTI 9 . SÍMI 17700
smmiNAR
T auga veiklun
Furðulegustu hlutir verða Tím
anum að yrkisefni þessa dag-
ana og skrif blaðsins benda tfl
taugaveiklunar á háu stigi.
Öðruvísi verður ekki túlkuð
„forustugrein" sú sem birtist f
Framsóknarblaðinu í gær i til-
efni af frétt, sem Mbl. birti fyrir
nokkrum dögum um áhuga út-
gerðarfélags í ísrael á aðstöðu
fyrir togara þess hér á landi.
Óneitanlega virðist taugaveikl-
un Framsóknarmanna vera kom-
in á alvarlegt stig, þegar við-
brögð þeirra verða slík við frétt
sem þessari og þessi viðbrögð
gefa raunar einkar glögga lýs-
ingu á hugarástandi Framsókn-
armanna um þessar mundir.
Sjálfsagt er það fullmikið sagt
hjá Tímanum, að hið ísraelska
úteerðarfyrirtæki muni bjarga
við togaraútgerð á fslandi, þótt
erfitt sé raunar að sjá hvaða
tjón þjóðin komi til með að
bíða á sálu sinni, þótt fsraels
menn seldu íslenzkum frysti-
búsum fisk til vinnslu. En hins
vegar er þetta ágætt tækifæri til
þess að beina þeirri fyrirspurn
til Framsóknarmanna og Tímans
hvaða leiðir þessir aðilar vilja
fara til þess að leysa vandamál
togaraútgerðar á íslandi. Þeir
hafá hingað til verið fáorðir um
það.
Kostuleg skrif
Tíminn birti í gær kostuleg
skrif um gjaldeyrismál og gerði
þar hvoru tveggja í senn að játa
að sparifjárbindingin er ein af
forsendum gjaldeyrisvarasjóðs-
ins um leið og blaðið opinberar
næsta ótrúlega fávisku um við-
skipti íslands við önnur lönd.
f skrifum þessum segir: „Það
leynir sér ekki, að komið hefur
verið við kviku, þegar Helgi
Beres benti á að skvnsamlegasta
meðferð bess gialdeyriss.ióðs,
sem ríkiccfíórnjn hefur mvndað
á síðustu árum með þvi að
krenna að atvinnuvegunum með
sparifjárfr^ctingu oir báum vöxt
um.......“ Hér með viðnrkenna
Framsókna^menn í fvrcta skipti
bað sem fram að k««n bafa
ekki fen-izf til bess að játa, að
snarifiárbindinp-in er ein megin
forsenda gialdeyr*svarasióðcíns
og að ítmkaðar ti|i;;nir beirra
um margra ára skeið um að
hætta sparifiárbindingu eru ekk-
ert annað en tillögur um það að
evða gjaldeyrisvarasjóðnum. l!n
siðan kemur rúsínan í pylsueml-
anum: „Það liggur í augu n
uppi“ segir Tíminn, ,.hve frálett
og léleg hagsýsla það er að
frysta lánsfé atvinnuveganna og
mynda með gjaldeyris«ióð seiit
stendur ónotaður svo til vaxta
laus meðan atvinnuvegirnir en
sveltir og geta ekki endurnýjaí
vélakost eða aukið hagræðingu
og verða þannig ósamkeppnis-
færir. Gjaldeyrisssjóður umfram
nauðsyn er of dýru verði keypt-
ur fyrir það.“! Þessi síðasta til-
vitnun er vafalaust einhver sú
kostulegasta í skrifum Tímans
um efnahags- og gjaldeyrismál,
og hefur blaðið þó ekki kallað
allt ömmu sína í þeim efnum á
undanförnum árum. Það er sem
sagt „fráleitt og léleg hagsýsla"
að mynda gjaldeyrisvarasjóð
„sem stendur ónotaður svo til
vaxtalaus". Verzlunarfrelsið,
sem byggist á gjaldeyrisvara-
sjóðnum skiptir auðvitað engu
máli í augum Framsóknarmanna.
Lánstraust þjóðarinnar erlendis
sem byggist á gjaldeyrisvara-
sjóðnum skiptir auðvitað heldur
engu máli í augum Framsóknar-
manna. Lán til Búrfellsvirkjun-
ar, sem fékkst vegna gjaldeyris?
varasjóðsins skiptir náttúrlega
heldur ekki máli í augum Fram-
sóknarmanna. Annars eru þessi
skrif svo fráleit að menn rekur
í rogastanz þegar slíkt sézt í
dagblaði á íslandi. Hvernig
skyldu þeir menn stjórna land-
: inu, sem standa að slíkum fá-
I vitaskrifum.