Morgunblaðið - 08.02.1967, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 1967.
— Já, já, og á fjögur bðrn.
Oft er erfitt að vera lang-
dvölum frá fjölskyldunni, en
það kemst upp í vana eins og
annað, en stundum langar
mann heim aftur. Vertíðin er
nú ekki ýkja löng, svona þrír
mánuðir og er oft gott að
koma heim.
— Hvaðan ert þú í Fær-
eyjum?
— Ég er frá þorpi á Suð-
urey, sem heitir Vog, um
1800 manna bær, en atvinna
er ekki nóg í landi. Það er
ávallt unnt að komast á bát,
— Spjallað við tvo Færeyinga
á leið á vetrarvertíð i Ólafsvík
VETRARVERTfÐIN er að
hefjast og í hvert sinn, sem
skip kemur frá Færeyjum er
hópur Færeyinga um borð,
menn og konur í atvinnuleit.
Kronprins Frederik kom
til Reykjavikur siðastliðinn
mánudag og með honum
fjöldi Færeyinga. Að kvöldl
mánudags brugðum við okk-
ur í gistihús Hjálpræðishers-
ins og hittum að máli tvo
Færeyinga, sem komið höfðu
þá um morguninn. Þeir ætl-
uðu ekki að hafa langa við-
dvöl í höfuðborginni, heldur
ætluðu árla næsta morguns til
Ólafsvíkur, þar sem þeir
ætla að róa á báti.
Samkvæmt upplýsingum,
sem við fengum á gistihúsum,
dvelja Færeyingamir stutt
þar. Þeir gista ekki nema
hæsta lagi eina nótt og margir
hverjir fara beint frá skips-
hlið út í verstöðvarnar. Þeir
félagar, sem við hittum að
máli hétu Hans Arnfinn Poul-
sen og Pétur Jakobsson. Þeir
ætla, eins og sagt var, að
stunda róðra frá Ólafsvík á
vertíðinni, sem í hönd fer og
virtust hlakka mjög til að
geta hafizt handa.
Hans Arnfinn segir okkur,
að hann búi í Suðurey, sem sé
2000 manna bær. Hann er
ekki kvæntur og segist ekki
hyggja neitt á hjónaband
a.m.k. ekki í náinni framtíð.
Við spyrjum Hans, hvort þeir
séu búnir að fá skipsrúm, og
hann svarar:
— Já, við ætlum að vera
á báti, sem gerður er út frá
Ólafsvík og heitir Stapafell.
— Er erfitt að fá atvinnu
í Færeyjum nú?
— Já, segir Hans og dreg-
ur svarið við sig — á sumum
stöðunum er ekki mikið að
gera, einkum minni þorpun-
um og því voru tæplega 300
manns, sem komu með prins-
inum í morgun, konur og
karlar. Flestallt fólkið er
ráðið fyrirfram.
— Hefur þú verið hér
áður?
— Já, já. Ég hef verið hér
mörg ár. Þetta er fjórða ver-
tíðin mín á íslandi. íslend-
ingarnir eru allflestir ágætir
menn að vinna með.
Pétur Jakobsson hefur
tmnið á íslandi síðan rétt
eftir að styrjöldinni lauk.
Hann hefur eins og félagi
hans ráðið sig á Stapafellið
og eins og Hans líkar honum
mjög vel við íslendinga og
vill helzt ekki vinna með
öðrum. Hann segir:
— Ég er búinn að vinna á
fslandi í mörg ár, ekki allt
árið í einu, heldur á vertíð-
um og á sumrin.
— Þú talar allgóða ís-
lenzku?
— Það veit ég nú ekki, en
maður bjargar sér, segir
Pétur af lítillæti og kveikir
sér í sígarettu.
— Ert þú fjölskyldumaður?
sem veiðir við Grænland, en
þá er betra að vera á bát á
íslandi. Það er allt ðru vísi
að vera hérna.
— Hver er munurinn?
— Munurinn er, skal ég
segja þér, að vinnan er allt
önnur. Það er minna frí á fær-
eyskum bátum. Fari maður
á bát, sem veiðir við Græn-
land má maður ekki reikna
með þvl að túrinn sé styttri
en 3 til 3% mánuður. Aflinn
er allur saltaður og það er
mikil vinna í sambandi við
það. Fari maður á línubát fer
mikill timi í það að beita og
þá er unnið stanzlaust.
— Það er ekki mikið um
tima til að hvíla sig?
— Jú, það eru til bátar
sem hafa frívaktir, en ég hef
aldrei verið á slíkum báti. Á
togurunum eru vaktir eins og
á íslenzku togurunum.
— Hefur þú áður verið á
Stapafellinu?
— Nei, aldrei, en ég hef
verið á báti vestan frá Grund
arfirði í tvær vertíðir og 1962
var ég eina vertíð á báti frá
Ólafsvík. Fyrst eftir striðið
var ég á litlum báti frá Horna
firði. Þá voru bátarnir ekki
eins og þeir eru nú. Stærsti
bátur þar var um 25 tonn, og
hefur margt breytzt síðan.
— Hvar hefur þér líkað
bezt?
— Ég veit það ekki, segir
Pétur og hugsar sig um
stund, en bætir svo við. — Mér
líkaði býsna vel í Grundar-
firði — annars vil ég segja
þér að flestallir, sem ég hef
unnið með og átt eitthvað
samneyti við hafa verið
ágætismenn yfirleitt. Það
geta verið einn og einn, sem
ekki hafa komið vel fyrir, en
menn eru eins misjafnir og
þeir eru margir, segir Pétur
um leið og við kveðjum þá
félaga og óskum þeim farar-
heilla vestur til Ólafsvíkur.
Færeysku félagarnir, Petur Jakobsson og Hans Arnfinn Poulsen. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.)
.......................................................................................................I
„Menn eru eins misjafn-
ir og þeir eru margir"
Góðir dómar um verk
Hallgríms Helgasonar
ÍSLENZK svíta fyrir etrok-
blgóims-veit eftir Hallgrí'm Helga
oorv, sem er forlagsverk hjó hinu
heimskunna útgáfufyrirtæki
Dreitkopf & Hartel, er nú flutt
oiloft á meginiandi Evrópu.
Síðusitu i >pfærsluT voru I
Ber M n ar-ú t varpi nu í sept. og
áeo. sl. Stjórnandii var Dietrich
Knothe. önnur verk í sama pró-
grammi voru eftir Sohumann,
Eckartz, Novák og Mozart.
Gagnrýnandinn Alfred
Fritzsdh lætur svo ummælit um
verk Hallgríms: „Gaman hefði
verið að hilusta lengur á þessa
norrænu tóna. Þessi íslenzka
þjóðlaga&víta va<r hvorttveggja í
senn viðkvæm og hrjúf, glaðleg
og þó alvörublandíin, tiifinninga-
rí'k og um leið skorinort í mál-
efnislegu innihaldi. Hér voru
andstæður lifsins meistaralega
aameinaðar í knöppu formi.“
Svita Hallgríms var einnig
flutt á hljómleikun í Ghem.nitz
af kammerhljómsveitinni Er-
win Walda í marz sl.
Þá hefur franski fiðluleikar-
inn Janine Volant-Panel tvíveg-
is flutt rómönzu^ Hall.gnim* í
París á »1. sumri. f Cliib Franco-
Scandinave og í Salle Detoussy-
Pleyel og var ,j 'ta 1097. kon-
sert hljómleikafélagsins Le
^/■]Ítt tt íl o
HÖFUM MIKIÐ ÚRVAL
Höfum mikið úrval af hinum þekktu Alundco
Jersey kjólum. Einlitir og munstraðir.
Heilir, tvískiptir og þrískiptir. Allar stærðir.
Athugið að Alundco kjólarnir hafa ávallt verið
taldir beztu Jerseykjólarnir á markaðinum.
TÍZKUVERZLUNIN
(ju&i
run
Rauðarárstíg 1. — Sími 15077.
Bílastæði við búðina.
Triptyque. Flutt voru eingöngu
nútímaverk.
í hinni rómuðu listvinaborg
Meisenheim í Rin-Pfalz lék
Janka Weinkauff píanósónötu
nr. 2 eftir Hallgrím, ásamt verk-
um eftir Handel, Beethoven og
Brahms í nóv. sl.
Gagnrýnandinn Peter Rusa
segir í Meisenheimer Tagtolatt:
„Síðast á efnis'S'kránni var
sónata eftir Helgason, djúptæk í
norrænni tjáningu. Með snjöllu
kohtrapunkfíiS'ku handlbragði
birtir hún gnótt fegurðar með
listrænu, göfugu yfirtoragði.”
1
Skuldabréf
Vil selja fasteignatryggð skuldabréf til stutts tíma,
40 þús. til 2ja ára, 70 þús. til 2\í árs og 70 þús. til
3V2 árs, með 8% vöxtum. Tilboð sendist Mbl.
merkt: „994 — 8597“ fyrir föstudagskvöld.
HÖSMÆÐUR
munið
matarkynninguna
í dag, miðvikudag, kl. 2 — 6
Kynntir verða kjötréttir. Uppskriftir af
réttunum fást í verzluninni.
Kynnið yður úrvals matvörur
LÍDÖ-KJÖR