Morgunblaðið - 08.02.1967, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 1967.
11
Sjötugur;
Guðmundun B.
Guimundsson
í DAG er sjötugur Guðm. B.
Guðmundsson járnsmiður, Hlíð-
arbraut 15, Hf. Hann mun mörg-
um Hafnfirðingum kunnur, enda
er hann maður vinsæll mjög og
vel látin. Hann er fæddur á Set-
bergi við Hafnarfjörð 8. febrúar
1897, en þar bjuggu þá foreldrar
hans, þau hjónin Guðrún Guð-
mundsdóttir og Guðm. Jónsson.
Nokkrum árum síðar flytjast
þau að Hlíð í Garðahverfi og
búa þar um nokkurt skeið, unz
þau fluttu til Hafnarfjarðar 1907.
Þar hefur Guðmundur búið síð-
an, og þar hófst hans lífsbarátta.
Hann lagði sjómennsku fyrir sig,
eins og margir, ungir menn, sem
ekki áttu margra kosta völ, á
þeim árum. Sinn sjómannsferil
hóf hann á opnum báti, sem
reri frá Austfjörðum. En þar var
formaður hinn velþekkti Hafn-
firðingur Stígur Sæland og hef-
ur hann sagt mér að hann hafi
ekki í annan tíma róið með harð
duglegri ungling en Guðmundi.
Fljótlega réðist Guðmundur á
togara, sem þá voru óðum að
leysa eldri skipin af hólmi. Hann
var alla sína sjómannstíð starfs-
maður í vélarúmi, lengi vel
kyndari eins og það var kallað
og síðar meir vélstjóri.
Guðmundur sigldi til Eng-
lands í tveim heimsstyrjöldum
síðasta, árið í hinni fyrri og
það fyrsta í þeirri síðari, af því
má marka að hann á langan sjó-
mannsferil að baki. Það er aug-
ljóst að allir þeir mörgu íslenzku
sjómenn, sem háð hafa hildar-
leik við hel um margra ára
skeið, eins og stendur í siginga-
vísum Jakobs Jóh. Smára, sú
stétt manna, sem ætti að sýna
meiri sóma, og greiða betur fyrir,
SKODA 1202
Höfum til sölu mjög vel
með farinn Skoda 1202 árg.
1964 á tækifærisverði. Bif-
reiðin er til sýnis í Skipholti
35.
Tékkneska bifreiðaumboðið.
Sími 21981.
en raun ber vitni, þegar f land
kemur.
Það getur verið álita mál, hve
nær telja á menn gamia, og fer
það þá siálfsaet eftir því, hvernig
okkur tekst að bera byrðar þær,
sem lífið leggur öllum á herðar
einhvern tíma á lífsleiðinni. Svo
er að siá, sem sumir eldist um
aldur fram, en aðrir virðast fá
í vöggugiöf ýmsa þá kosti, sem
giörir þeim kleift að lifa lífinu
létt, og láta sér hvergi bregða,
þótt á móti blási. Einn í þeim
hópi er sá, sem þessar línur
eru ætiaðar, enda er hann enn
léttur í lund og spori þrátt fyrir
sjötíu ár að baki.
Eftir að Guðmudur tók pok-
ann sinn og fór í land, eins og
siómenn orða það, kynntist ég
honum að ráði, en við urðum
samstarfsmenn í Vélsmiðju Hafn-
arfjarðar fyrir um það bil 25
árum og höfum starfað þar sam-
an síðan.
Vissulega er gott að vera i
góðum félagsskap, og þá ek'ki
síður meðal góðra vinnufélaga,
en af öllum þeim mörgu, sem ég
hef starfað með á þessu tíma-
bili ,veit ég engan betri en Guðm.
Hans græskulausa gaman og
ljúfa framkoma yfirleitt, gerir
það að verkum, — að í návist
hans þrífst engin ólund.
Guðmundur er handlaginn
mjög og vandvirkur, enda lætur
hann ekkert út úr eldsmiðjunni
fara, sem ekki ber handlagni
hans vitni um leið. Hann er einn
þeirra manna, sem ölium vill
greiða gera, sé það á hans valdi.
Oft veit ég að hann hefur unnið
lengri vinnudag en hinir, til þess
eins að afgreiða einhverja beiðn
ina, fyrir ekki neitt, nema ánægj
una af því að hafa getað gert
greiðann. En ef til vill fær hann
þá greiða greidda síðar meir í
verðmeiri gjaldeyri en þeim, sem
við breyskir menn sækjumst svo
mjög eftir.
Guðmundu er tvígiftur, fyrri
kona hans var Þórunn Þorsteins-
dóttir ættuð frá Ólafsvík hún
lézt í júní 1934, með henni eign-
aðist Guðmundur 3 börn sem öll
eru uppkomin og búsett í Reykja,
vík. Síðari kona hans er Vigdís
Guðbrandsdóttir þau eiga upp
komin fósturson sem búsettur er
hér í Firðinum. Vigdís hefur bú-
ið sér og mahni sínum mjög
fallegt heimili, sem ber vissu-
lega vitni þeim eiginleikum sem
húsmóðurin er gædd, og þeir
bezt vita er til þekkja.
Ég óska Guðmundi og hans
fjölskyldu allra heilla og vona
að honum endist fjör og heilsa,
enn um langan aldur.
A. Þ.
Byggingarsamv.félag
vélstjóra
Þeir meðlimir félagsins sem Setla á næstu misserum
að fela félaginu forsjá og framkvæmd í húsnæðis-
málum sínum eru beðnir að hafa hafa samband við
skrifstofu Vélstjórafélags íslands, að Öldugötu 5
,hið allra fyrsta.
STJÓRNIN.
HRINGSTIGAR
Smíðum allar stærðir af hringstigum
úr stáli. — Leitið tilboða.
HÉÐINN
Seljavegi 2. — Sími 24260.
NORSKIBUDAR- OC SUMARHUS
GERÐ „BJÖRN“ SUMARHÚS
-*S -ís- vísífi&r's' ðs -
GERÐ „27“ ÍBÚÐARHÚS
Við höfum tekið að okkur umboð hér á landi fyrir norska fyrirtækið G. BLOCK WATNE
A/S, sem er viðurkennt eitt bezta og vandaðasta fyrirtæki Noregs í framleiðslu timbur-
húsa, enda hefur eftirspurnm verið slík. að þeir hafa ekki getað annað útflutningi fyrr en
nú. Aðeins er notað valið efni og húsin framleidd til að standast ströngustu kröfur.
Ef samið er strax, getum við útvegað örfá hús til afgreiðslu í aprfl. Velja má um nokkrar
stærðir og gerðir og kaupandi getur að nokkru ráðið innréttingu. Önnumst uppsetningu.
Upplýsingar gefur
Björn Sigurðsson, byggingameistari
frá kl. 4—6 næstu daga.
G/obusH
LÁGMÚLI 5, SlMI 11555
Merki
Rauöa
Krossins
eru
afgreidd:
Vesturbær:
1. Efnalaug Vesturbæjar,
Vesturgötu 53.
2. Melaskólinn.
3. Sunnúbúðin, Sörlaskjóli
42.
4. Síld og Fiskur, Hjarðar-
haga 47.
5. Austurver, Fálkagötu 2.
6. Kron, Þverveg 36,
Skerjafirði.
7. Egill Jacobsen, Austur-
stræti.
Austurbær A:
8. Fatabúðin, Skólavörðu-
stíg.
9. Axelsbúð, Barmahlíð 8.
10. Silli og Valdi, Háteigs-
veg 2.
11. Lidokjör, Skaftahlíð.
12. Lyngás, barnah., Safa-
mýri 5.
13. Breiðagerðisskóli.
14. Borgarkjör, Borgargerðl
6.
15. Biðskvlið, Háaleitisbraut
við Hvassaleiti.
Austurbær B:
16. Skúlaskeið, Skúlagötu
54.
17. Elís Jónsson, Kirkjuteig
5.
18. Laugarneskjör. Laugar-
nesvegi 116.
19. Laugarásbíó.
20. Búrið, Hjallavegi 15.
21. Borgarbókasafnið, Sól-
heimum 27.
22. Vogaskóii.
23. Saab, Langholtsvegi 113.
24. Árbæjarskóli.