Morgunblaðið - 17.02.1967, Page 1
32 SÍÐUR
Þjóðverjar styðja Breta
Vinna að aðild þeirra að EBE
Tákn Kongressflokksins. Nú standa yfir þingkosningar 1 Indlandi og eru það umfangsmestu
lýðræðislegu kosningarnar, sem fram fara í heiminum, því að um 250 millj. manna eru þar
á kjörskrá. Mynd þessi vartekin á kosningafundi Kongressflokksins í Nýju-Delhi fyrir
skömmu og heldur enn fundar manna á tákni Kongressflokksins, tveimur uxum undir oki.
London, 1*6, febrúar (NTB)
HAROLD Wilson forsætis-
ráðherra og George Brown
utanríkisráðherra komu í dag
flugleiðis herm tiil London að
loknum tveggja daga viðræð-
um í Bonn við vestur-þýzka
leiðtoga.
Skömmu eftir heimkomuna
skýrði Wilson Neðri málstofu
'þingsins frá viðræðunum í
Bonn, og sagði meðal annars
að stjórn Vestur-Þýzkalands
muni vinna ötullega að því
að Bretar fái aðild að Efna-
hagsbandalagi Evrópu.
Áður en Wilson fór frá Bonn.
ræddi hann við fréttanrvenn þar.
Lýsti hann því yfir að hann hefði
mælt fyrir hönid ríkisstjórnar-
innar allrar er hann sagði í nóv-
Kina:
ember s.l. að Bretar óskuðu að-
ildar að Efnahagsbandalaginu,
ef viðunandi skilyrði fengjust.
Er almennt álitið í London að
með þessu hafi Wilson viljað
setja ofan í við Douglas Jay,
verzlunarmálaráðherra. Hélt Jay
því fram á fundi með þingmönn-
um Verkamannaflokksins í gær
að aðild að Efnahagsbandalag-
inu hefði í för með sér neyðar-
ástand í efnahagsmálum Breta
á þriggja ára fresti, missi er-
lendra markaða utan Evrópu, og
4% hækkun framfærslukostnað-
ar. Voru þessa stðhæfingar Jays
helzta forsíðufrétt brezku blað-
anna í morgun.
Wilson lýsti því yfir í þing-
inu í dag að austurlandamæri
þýzkalands væru aðild Breta að
Efnahagsbandalaginu algjörlega
óviðkomandi. Hefði þetta mál
Framhald á bls. 31
Picassosýningin
Kosygin og Wilson helztu stuðn-
ingsmenn heimsvaldastefnu USA
Rólegra nú við sendiráð USSR
slær öll met
París, 12. febrúar.
Peking, 16. febrúar. — NTB
DAGBLAÐ alþýðunnar, aðal-
málgagn kínverska komnjúnista-
flokksins, skýrði lesendum sín-
um svo frá í dag, að leiðtogar
Sovétríkjanna styddu andstæð-
inga menningarbyltingar Mao
Tse-tungs. Sagði blaðið, að
sovézku leiðtogarnir styddu
nokkra áhrifamikla menn, sem
hefðu lagt út á braut kapítalism-
eftir öllu að dæma þeir Kosygin
og Wilson virðast hafa náð í um-
ræðum sínum um Vietnam.
Fyrir utan sendiráð Sovétríkj-
anna í Peking virðist ástandið
vera að færast í eðlilegt horf,
eftir að ofboðslegar mótmælaað-
gerðir hafa átt sér þar stað sam-
fellt í nærri þrjár vikur. Hinir
mörgu hátalarar, sem þar hafði
verið komið fyrir, hafa verið
teknir burtu, og verzlanirnar í
Framhald á bls. 31
í PARÍSARCTGÁFU dagblaðsins
New Tork Herald Tribune segir,
að um 35.000 manns hafi komið
á listaverkasýningu Pablos Pi-
casso í Grand Palais yfir síðustu
helgi. Sýningin hefur nú slegið
öll met í aðsókn fyrr og síðar.
Frá því hún var opnuð, 11. nóv-
ember í fyrra, hafa um 850.000
manns sótt hana. eða um 9.500
manns á dag. Til samanburðar
má geta þess, að Vermeer sýn-
ingin, sem haldin var í París í
fyrra, dró að sér að meðaltali
4.600 manns á dag.
Sýningu Picassos hafa sótt all-
ar stéttir þjóðfélagsins, og er
þess sérstaklega getið, að komm-
únistísk sambönd verkamanna i
„Rauða beltinu“ í úthverfum Par
ísar fylktu liði á sýninguna tll
að votta listamanninum virðingu
sína.
Frægt fólk hefur sótt sýning-
una í hrönrvum, þ.á.m. Robert F.
Kennedy og frú Alexej Kœygin.
Mesta furðu hefur vakið að lista-
maðurinn sjálfur hefur ekki lát-
ið sjá sig þar, en kaus fremur
að dvelja á setri sínu á Cote d’Az
ur, en að mæta í eigin persónu
við opnun þessarar heiðurssýn-
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra á Alþingi i gær:
ans.
Blaðið birti einnig grein, þar
uem ráðizt er harkalega af frétta
stofurvni Nýja Kína að forsætis-
ráðherrunum Aleksei Kosygin og
Harold Wilson. Segir þar um
fund forsætisráðherranna
tveggja 1 London í sl. viku, að
þar hafi komið fram, að þeir
séu tveir helztu stuðningsmenn
bandarískrar heimsveldisstefnu.
Stjórnmálafréttaritarar í Pek-
Ing eru þeirrar skoðunar, að hið
háðslega orðalag greinarinnar
eigi að nokkru leyti rót sína að
rekja til raunverulegrar áhyggju
út af því, hve miklum árangri
250 drukknu
Ferju hvolfdi
á Persaflóa
Teheran, 16. feb. — (AP-NTB)
ÓTTAZT er að um 250 manns
hafi drukknað í Persaflóa sl.
þriðjudagskvöld þegar ferju
hvolfdi þar í miklu óveðri.
Ferjan var á siglingu milli
Bahrein og Danbi við Persaflóa,
þegar slysið varð og voru far-
þegar aðallega Indverjar, Iran-
búar og Arabar.
Þegar ferjan kom ekki á
éfangastað á réttum tíma, hófst
leit að henni. Var leitað bæði
á sjó og úr lofti, en leitin hefur
engan árangur borið.
Atlantshafsbandalagið á meginþátt
í friðvænlegra ástandi í Evrópu
Algjörf varnarleysi fjörráð v/ð þjóðin
í MERKRI ræðu um utan-
ríkis- og varnarmál á Alþingi
í gær sagði dr. Bjarni Bene-
diktsson forsætisráðherra m.
a., að enginn vafi léki á því,
að Atlantshafsbandalagið
ætti meginþátt í því, að nú
horfði mun friðvænlegar í
þessum heimshluta en verið
hefði um mjög langt skeið.
Um varnarmálin sagði for-
sætisráðherra: „Það, sem við
verðum að gera okkur ljóst
er: Viljum við hafa varnir?
Teljum við að varnir séu
nauðsynlegar, ekki vegna
annarra, heldur vegna okkar
sjálfra? Ef við teljum að svo
sé, verðum við að hafa kjark
til að segja það og fram-
kvæma það.“
í frumvarpi því, sem þing-
menn Alþýðubandalagsins flytja,
er kveðið svo á, að ríkisstjórn-
inni skuli nú þegar æskja end-
urskoðunar á varnarsamningi
milli íslands og Bandaríkjanna
frá 5. maí 1951, samkv. heimild
í 7. gr. samningsins, og síðan
segja samningnum upp, þegar sá
endurskoðunarfrestur, er í sairm
ingnum er ákveðinn, heimilar
það.
Fyrsti flutningsmaður frv. var
Einar Olgeirsson, og fylgdi hann
því úr hlaði. Vék hann m.a. að
þeim atriðum, sem sérstaklega
er getið í greinargerð frv. og
taldi að ekki væru lengur for-
sendur fyrir dvöl varnarliðs á
íslandi.
Að ræðu hans lokinni tók dr.
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra til máls og kom hann
víða við í ræðu sinni. Hann
vék fyrst að því, að E. Olg.
hefði látið á sér skilja fyrir
nokkrum vikum, að þetta yrði
hans síðasta þing. Ýmis tillögu-
flutningur hans upp á síðkastið
o, unz öruggum friði er náð
l benti til þess, að hann vildi láta l
1 brottför sina verða nokkuð eft- I
Bjarni Bcnediktsson.
irminnilega. Samtímis frv. þvf
sem hér væri til umræðu hefði
t.d. komið frá hans hendi tillaga
sem ætlaði íslendingum forystu
um að bjarga öðrum þjóðum, og
þó einkanlega Norðmönnum, frá
einokunarklóm auðhringa í
heiminum. í greinargerð þeirrar
till. kæmi ljóst fram, að hv. þm.
teldi sjálfan sig ekki einungis
hafa betra vit en aðrir á því,
hvað íslenzku þjóðinni hentaði,
heldur einnig betra vit en for-
ystumenn norsku þjóðarinnar á
því, hvað Norðmönnum kæmi
bezt. Þannig kallaði hann búsi-
fjar og nauðungarsamninga fyr-
ir Norðmenn það sem norska
Stórþingið hefði samþykkt nær
samhljóða.
Forsætisróðherra kvað mjög
athyglisvert, hversu glöppótt var
su saga af varnarmalunum og
áhrifum þeirra varðandi ísland,
sem hv. þm. rakti í framsögu-
ræðu sinni. Hann talaði fyrst
Framh. á bls. 3