Morgunblaðið - 17.02.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1967.
5
ÞRJÁTÍU ára afmælisfagnaður
Sjálfstæðiskvennafélagsins Hvat-
ar var haldinn í Sjálfstæðishús-
inu í fyrrakvöld. Var þar fjöl-
menni og góður fagnaður, og
bárust félaginu árnaðaróskir og
Svavar Pálsson færir formanni Hvatar, Maríu Maack, silfurkeðju frá Landsmálafélaginu Verði.
Aðrir sem sjást á myndinni, talið frá hægri, eru Jóhann Hafstein, dómsmálaráðherra, frú
Auður Auðuns, frú Ingibjörg Thors, frú Sigríður Björnsdóttir, Ingólfur Jónsson, landbúnað-
arráðherra, frú Eva Jónsdóttirog lengst frá eru borgarstjórahjónin Geir Hallgrímsson og Erna
Finnsdóttir.
Hvöt fékk silfurkeðju
í afmœlisgjöf
Ánœgjulegur fagnaður í Sjálfstceðishúsinu
góðar gjafir.
Auður Auðuns, forseti bæjar-
stjórnar, var veizlustjóri. Dr.
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra flutti ræðu. Baldvin
Tryggvason færði Hvöt keðju
frá Sjálfstæðisfélögunum. Og
Svavar Pálsson afhenti með
nokkrum orðum gjöf til félags-
ins frá Landsmálafélaginu Verði.
Var það falleg hálskeðja með
silfurskildi, sem fálkinn, merki
Sjálfstæðisflokksins, var á og
áletrun hinum megin. Er keðjan
ætluð formönnum Hvatar og eiga
þeir að nota hana við hátíðleg
tækifæri hjá félaginu. Þá flutti
Gróa Pétursdóttir ávarp til
heiðurs Maríu Maack, formanns
félagsins. Og að lokum þakkaði
María vinsemd og gjafir.
Afmælisfagnaðurinn hófst með
sameiginlegu borðhaldi og lék
hljómsveit hússins undir borð-
um og eins fyrir dansi á eftir.
Kaffi var drukkið á hliðarsvöl-
um og fóru þá fram skemmti-
atriði. Guðmundur Guðjónsson,
óperusöngvari söng, með undir-
leik Skúla Halldórssonar og
danspar úr dansskóla Heiðars
Ástvaldssonar sýndi dansa.
Var það mál manna að þessi
afmælisfagnaður Hvatar hefði
verið mjög ánægjulegur.
Frá afmælisfagnaði Hva tar. Bjarni Benediktsson, íorsætisraðherra i ræoustoi.
— Ræða Bjama B.
Framh. af bls. 3
ir nokkur alvara. Og óneitanlega
er það tímanna tákn og fróð-
legt að athuga, að það s'kuli ger-
ast nokkurn veginn sömu dag-
ana, að það er hrækt ekki á
fullorðna karlmenn af rússnesku
kyni austur í Peking, heldur á
konur og börn, sem þar verða
að flýja sendiráð og land undan
aínum kommúnisku flokksbræðr
um og þau látin krjúpa frammi
fyrir óaldarmönnum, áður en
þeir komast upp í farkost sinn.
Það eru brúðumyndir af for-
ystumönnum Sovét-Rússa, sem
verða fyrir misþyrmingu af
menningarbyltingarmönnunum
kommúnistisku austur í Kína og
ýmislegt fleiri í þá veru.
Sömu dagana Og þetta á sér stað,
gengur forseti Sovét-Rússa á
fund páfans. Það var sú tíð, að
valdamesti maður í Rússlandi,
Stalín, spurði í hálfkæringi:
IHvað hefur páfinn mörg her-
fylki? og gaf með þvi til kynna,
að hann teldi ekki mikið upp úr
því leggjandi, hvoru megin páf-
inn væri, úr því að hann hefði
ekki yfir vopnuðum hersveitum
að ráða. Stalín var sem sagt
sömu skoðunar eins og Mao er
því sagt er, að hann hafi að orð-
taki, að valdið liggi í byssuhlaup
inu.
En núverandi valdamenn í
Sovét-Rússlandi hafa talið það
gott að vingast við hinn her-
fylkjalausa páfa, og Kosygin fer
til Bretlands, bandamanna þeirra
sem eru að dómi hv. þm. og
naunar Sovétstjórnarinnar lí'ka,
beinir árásarmenn í Suður-Vi-
etnam. Hann fer til Bretlands,
og hann lætur sér ekki nægja
þar að tala við verkalýðinn. Nei,
hann situr, eins og hefðarmönn-
um, ber hjá sjálfri drottn-
ingunni og lýsir því yfir, að sér
muni verða alveg sérstök ánægja
að því, ef Bretadrottning
heimsækti Sovét-Rússland. Það
er satt, að þetta hvort tveggja
gefur til kynna töluverða hug-
arfarsbreytingu, svo og það, að
hann lýsti því yfir á blaðamanna
fundi, að nú væri illþolandi á-
gengni einræðisherranna austur
í Peking. Nú er sem sagt
farið að velja alræði öreiganna
austur í Peking sama nafnið og
Hitler sálugi 'hafði þann tíma,
sem þeir voru óvinir. Stundum
voru þeir vinir Stalin og Hitler,
eins og þegar þeir komu sér
saman um að hleypa seinni
heimsstyrjöldinni af stað.
Nú viðurkenni ég, að þetta er
góðs viti, og ég trúi því, að það
sé margt, sem horfi til betri veg-
ar í Sovét-Rússlandi. Ég er sann
færður um það, að greindir og
gegnir menn, mikilhæfir menn,
eins og loksins forustumenn
kommúnista í Sovét-Rússlandi,
geta ekki farið með völdin
áratugum saman, án þess að
læra mikið og sannfærast um
það, að megirshlutinn af þeirra
kreddum er fjarstæður, sem
ekki eiga neina stoð í veruleik-
anum. Hins vegar hef ég óttazt
enn, að þessi þróun muni taka
langan tíma, og enn skulum við
hafa í ihuga, að það er minna
frelsi í Sovét-Rússlandi í dag en
var á keisaradögunum. Þá
þótti zar-dæmið rússneska vera
ímynd hins svartaista afturhalds,
sem frjálsum mönnum bæri að
forðast og fordæma. En ef skoð-
að er, þá er mir.na frelsi, meiri
kúgun, meira ósjálfræði í Sovét-
Rússlandi í dag en var á dögúm
zaranna. Það er þess vegna enn
lcr.g leið, sem Sovét-Rússi jnd á
etfir að fara, þangað til þar
Kemst á slíkt lýðræði, sem er
bczta öryggið fyrir varanlegu.il
friði. Ég vil sannarlega trúa á
hugarfarsbreytingu, sem orð.ð
hafi <hjá hinum mikilhæfu valda
mönnum í Sovét-Rússlandi, og
auðvitað eru þeir menn, sem nú
fara þar með völd, á engan há1t
sambærilegir við Stalín eða hans
félaga. En það er einnig rétt að
hafa það í huga, að mjög mikiis
verðir og reyndustu stjórnmála-
menn, sem nú eru uppi, hafa lát
ið uppi, að menn skyldu trúa
hugarfarsbreytingunni varlega,
vegna þess að vel kynni svo sð
vera, að þetta væri einungis
herbragð. Sú vingun við Vestur-
veldin, sem nú virðist eiga sér
stað, sé einungis herbragð til
þess að tryggja sig gegn árás
að baki, ef Kínverjar ráðist að
þeim framan að, ef svo má segja.
Að þeir vilji forðast tveggja
hliða stríð, sem vitanlegt er og
t.d. hv. 3. þm. Reykjav., jafngóð
ur sagnfræðingur og hann er,
ef hann vill láta sinn betri mann
ráða, kannast við að var plága
Þjóðverja löngum, Bismarks og
hans skynsamari eftirmanna.
Að það sé til þess að koma sér
úr því að verða þannig ínni-
klemmdir á milli fjandsamlegra
aðila, sem Rússar hafi nú breyti
um aðferð, en þeirra stefna sé
ekki breytt.
Um þetta skal ég ekkert segja.
Ég vonast til þess og vil trúa
því, að það sé raunveruleg hug-
arfarsbreyting. En enn vi;um
við það ekki, við verðum að
bíða eftir því og sjá, hvað reynsi
an kennir okkur í þessu. Við vit
um, að Atlantshafsbandalagið og
þátttaka íslandis á einum úrslita
stað í vörnum bandalagsins hef-
ur átt í því að friða þennan heims
hluta og það, að Sovétstjórnin
sýnir Vesturveldunum þá vin-
semd og virðingu sem þau nú
gera, kemur af því, að þau virða
þeirra samtheldni og þeirra vald.
Þess vegna væri það mesta fjand
skaparbragð við friðinn, við
framfarir, við heill almennings,
við framtíð heimsins, ef menn
nú ryfu þessi samtök og hættu
að vilja leggja fram þann skerf,
sem enn þarf til þess, að örugg-
um friði verði áður en lýkur náð.
Það er einnig algerlega vill-
andi, sem hv. þm. segir um stöðu
Frakka í þessum efnum. Við
getum haft mismunandi skoðan-
ir á því, hversu heppilegar
ýmsar aðgerðir de Gaulles séu.
Ég efast mjög um, að það sé
allt rétt, sem sá aldni herfor-
ingi tekur ákvarðanir um. En
það er a.m.k. víst, að 'hann vill
ekki, að Frakkland fari úr At-
lantsihafsbandalaginu, og þó að
hann hafi sagt sig úr, sem er
kallað hernaðarstofnun innan
bandalagsins, NATO í þrengri
merkingu, þá leggur hann líka
áherzlu á; að bandalagið eigi
að halda áfram, og vitanlega vill
hann samhæfa varnir Frakklands
við aðgerðir þessarar hernaðar-
eða varnarstofnunar flestra
hinna aðildarríkjanna. Við get-
um ekki sagt, að við séum eigin-
legir þátttakendur í þeirri varn-
arstofnun. Við getum sagt, að
bæði við og Frakkar nú höfum
í þessu sérstöðu. En þó að við
séum ekki beinir aðilar í varnar
stofnuninni, höfum við notið
góðs af henni. Með því að varn-
ir séu til á íslandi, tryggjum
við varnir bandalagsin® í heild,
alVeg eins og de Gaulle telur,
að franski herinn og hans nýju
kjarnorkuvopn tryggi varnir
bandalagsins eins vel eða betur
en þátttaka í þessari varnarstofn
un af hálfu Frakka mundi gera.
Það er þess vegna algerlega vill
andi að tala á þann veg, að
Framhald á bls. 31
ALLTMEÐ
EIMSKIP
Á NÆSTUNNI ferma skip
vor til íslands sem hér segir:
ANTWERPEN:
Seeadler 25. febrúar
Mánafoss 7. marz**.
Skógafoss 16. marz
Seeadler 25. marz.
HAMBURG:
Bakkafoss 17. febrúar**
Skógafoss 20. febrúar
Askja 26. febrúar
Goðafoss 10. marz
Bakkafoss um 11. marz**.
Skógafoss 20. marz.
ROTTERDA M:
Skógafoss 17. febrúar
Askja 25. febrúar
Goðafoss 6. marz
Bakkafoss um 8. marz**.
Skógafoss 17. marz
Askja 25. marz.
LEITH:
Gullfoss 24. febrúar.
Gullfoss 17. marz
LONDON:
Gullfoss 21. febrúar
Seeadler 26. febrúar
Mánafoss 10. marz**.
Marietje Böhmer 20. marz.
HULL:
Bakkafoss 22. febrúar.
Seeadler 3. marz
Baikkafoss 13. marz**.
Marietje Böhmer 23. marz.
NEW YORK:
Fjallfoss 24. febrúar*.
Selfoss 3. marz
Brúarfoss 17. marz
Fjallfoss 31. marz*.
GAUTABORG:
Tungufoss 21. febrúar**.
Lagarfoss 26. febrúar
Tungufoss 15. marz**.
KAUPMANNAHÖFN:
Marietje Böhmer 17. feb.
Lagarfoss 27. febrúar.
Gullfoss 15. marz
GuILfoss 5. apríl.
KRISTIANSAND:
Tungufoss 22. febrúar**.
Lagarfoss 1. marz.
Tungufoss 16. marz**
BERGEN:
Tungufoss 23. febrúar**.
Tungufoss 17. marz**.
FINNLAND:
Dettifoss um 9. marz.
VENTSPILS:
Dettifoss um 6. marz
GDYNIA:
Reykjafoss um 8. marz.
* Skipið losar á öllum aðal-
höfnum Reykjavíkur, ísa-
firði, Akureyri og Reyðar-
firði.
•* Skipið losar á öllum aðal-
höfnum auk þess í Vest-
mannaeyjum, Siglufirði,
Húsavík, Seyðisfirði og
Norðfirði.
Skip, sem ekki eru merkt
með stjörnu losa í Reykja-
vík.
ALLTMEÐ
EIMSKIP