Morgunblaðið - 17.02.1967, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1967.
Æwatotrtt
Pélur Sigurðsson á Alþingi í gær:
Nauðsynlegt að rýmka aðild
að lífeyrissjóði togarasjómanna
PÉTUR Sigurðsson flutti
framsöguræðu í neðri deild
Alþingis í gær fyrir frv. sínu
um rýmkun á rétti til aðildar
að Lífeyrissjóði togarasjó-
manna. Benti flutningsmað-
ur á, að því væri skv. logum
mjög þröngur stakkur skor-
inn hverjir rétt hefðu til að-
ildar að sjóðnum, en það eru
einungis lögskráðir sjómenn.
Pétur Sigurðsson taldi eðli
legt, að á sama hátt og tog-
arasjómenn hafa rétt til þess
að fá framlag sitt til sjóðsins
endurgreitt nytu togaraút-
gerðir sama réttar, ekki sízt
með tilliti til ástands togara-
útgerðarinnar og beindi hann
því til þeirrar þingnefndar,
lem fær málið til meðferðar
að taka þetta atriði til at-
hugunar. Þess væru einnig
dæmi, að aðrir sjómenn en
togarasjómenn og undir-
menn á farskipum óskuðu
eftir aðild að lífeyrissjóðn-
um. Kvaðst Pétur Sigurðsson
telja eðlilegt að þetta atriði
yrði einnig athugað í nefnd.
Pétur Sigurðsson gerði í upp-
hafi máls síns grein fyrir megin-
efni frv. en það að rýmka aðild
að lífeyrissjóði togarasjómanna
á þann hátt, að starfsmenn sjó-
mannasamtaka eigi rétt til þátt-
töku í honum, svo og sjómenn
sem starfa á vegum útgerðarfé-
lags, þótt skip áe um stimdar-
sakir í viðgerð eða þeir ekki
lögskráðir af öðrum ástæðum.
Ennfremur að sjómenn, sem
stunda nám í sjómannafræðum
eigi rétt til þátttöku í sjóðnum
meðan á námi stendur. Sagði
Pétur Sigurðsson, að það kæmi
fyrir, að sjómenn veigruðu sér
Pétur Sigurðsson
við að setjast á skólabekk nú
vegna þess að þeir misstu líf-
eyrissjóðsréttindi þann tíma.
Sparnaður í
innheimtu gjalda
að leggja Viðtækjaverzl. niður
GYLFI Þ. Gíslason, mennta-
málaráðherra gerði grein fyr
Ir frv. ríkisstjórnarinnar tun
afnám einkasölu ríkisins á
Útvarpstækjum í Efri deild
Alþingis í gær. Ráðherrann
sagði að hér væri fyrst og
fremst um að ræða sparnað
i innheimtu, þar sem ríkis-
sjóður mundi nú innheimta
beint gjald, sem Viðtækja-
verzlunin hefði áður annazt
innheimtu á og jafnframt
létta af ríkinu hallagreiðslum
af Viðtækjaverzluninni.
Menntamálaráðlherra sagði að
Viðtækjaverzlunin mundi eiga
nokkrar nettóeignir og væri
•ðlilegt að þær rynnu til þess
eð greiða ógreidd framlög til
6infóníuhljómisveitarinnar svo
og til Þjóðleiklhússins til greiðslu
byggingarskúlda, en að öðru
leyti mundu eignir fyrirtækis-
ins ganga til framkvæmdasjóðs
Ríkisútvarpsins.
Alfreð Gíslason (K) spurði
ráðherrann, sem j'afnaðarmann,
bvort ekki hefði verið atlhuguð
*rú leið að hressa Viðtækjaverzl-
Ný mól
Björn Pálsson og Jón Skafta-
«on hafa lagt fram í Nd. frv. um
breytingu á lögum um launa-
•katt.
Ragnar Amalds o.fl. hafa lagt
fram frv. um breytingu á lögum
um utanríkisráðuneyti íslands
og fulltrúa þess erlendis.______
Þingmál í gær
Auður Auðuns (S), mælti í
gær í Efri deild fyrir áliti
menntamálanefndar um frv. um
breytingu á lögum um vernd-
un barna og ungmenna. Frv.
var samiþykkt til 3. umræðu.
unina við og taldi að vegur
hennar hefði minnkað undanfar
in ár vegna aðgerða ríkisstjórn-
arinnar til hagsbóta einkaaðil-
um.
Gylfi Þ. Gíslason svaraði og
sagði, að sú leið hefði verið
atihuguð af nefnd, sem um þetta
fjallaði og hefði hún verið sam
mála um að það væri ekki hægt
og hefði forstjóri fyrirtækisins
sagt að til þess þyrfti 40—50
millj. króna í nýju fjármagni
og þrefaldað starfslið.
Magnús Jónsson, fjármálaráð-
herra, sagði á Alþingi í gær, að
niðurfelling einkasölugjalds af
sjónvarps- og hljóðvarpstækjum
og hækkun verðtolls í þess stað
mundi auka tekjur sjónvarpsins
af innflutningi sjónvarpstækja
töluvert. Ekki væri ætlunin með
hækkun verðtolls að auka tékj-
ur ríkissjóðs heldur mundu þess
ar tekjur renna til tiltekir.na
þarfa, sem einkasölugjaidið
hefði áður staðið straum að.
Ráðherrann sagði, að aðstaða
varðandi dreifingu á viðtækjum
væri nú allt önnur en áður.
Hann kvað alþingismenn sam-
mála xim nauðsyn þess að hraða
uppbyggingu sjónvarpsins og
væri þess því að vænta að, hækk
un verðtolls og niðurfelling
einkasölugjalds að sama skapi
mundi hljóta stuðning þing-
manna.
— Viðtækjaverzlun
Framhald af bls. 32.
að ríkissjóður leggi fram 40—50
milljónir til reksturs einkasölu
til sams konar þjónustu og bindi
þar við 30 manna starfslið. Þar
sem mjög óráðlegt virðist að
halda áfram rekstri einkasölunn-
ar með núverandi sniði, leggur
nefndin til, að hún verði lögð
niður.“
Tvímælalaust verður sparnað-
ur að að leggja Viðtækjaverzl-
un ríkisins niður, en hækka jafn
framt verðtoll af viðtækjum, svo
sem lagt er til í frumvarpi um
breyting á tollskrárlögum, sem
lagt verður fram samtímis þessu
frumvarpi. Starfslið Viðtækja-
verzlunarinnar er 10 manns. Er
starf þess að verulegu leyti skatt
heimta, er tollyfirvöld geta haft
með höndum án nokkurs auka-
kostnaðar. í annan stað er til
mikils hagræðis fyrir innflytj-
endur viðtækja, að skattheimta
af innflutningi sé færð á eina
hendi. í þriðja lagi mundi halla-
rekstur Viðtækjaverzlunarinnar
að sjálfsögðu hverfa, og pening-
ar þeir, er verja hefði orðið til
greiðslu hallans, yrði til annarr-
ar ráðstöfunar.
Gildandi lög um einkasölu á
útvarpsviðtækjum eru heimildar
lög. Með hliðsjón af gerbreyttum
aðstæðum almennings til að afla
sér viðtækja, þykir rétt, að heim
ild ríkissjóðs til að hafa á hendi
einkasölu á viðtækjum verði úr
gildi numin.
Upphaflega var gert.ráð fyrir,
að hagnaður af viðtækjaeinka-
sölunni rynni í framkvæmdasjóð
Ríkisútvarpsins, en í lögum nr.
115/1951 segir, að hagnaðurinn
skuli renna í ríkissjóð til
greiðslu á byggingarskuldum
Þjóðleikhússins. Síðar var þeim
lögum breytt og skyldi hagnað-
inum þá skipt milli Sinfóníu-
hljómsveitar íslands og Þjóðleik-
hússins. Nú hafa verið teknar
upp beinar fjárveitingar í fjár-
lögum til rekstrar bæði Þjóðleik
hússins og Sinfóníuhlj ómsveitar
innar. Byggingarskuldir Þjóð-
leikhússins eru að fullu greidd-
ar, en nokkrar framkvæmdir við
húsið þó enn nauðsynlegar. Þyk-
ir rétt, að þær framkvæmdir
vérði kostaðar af tekjum Við-
tækjaverzlunarinnar frá fyrri
árum, en gert er ráð fyrir, að
þær muni kosta 1.0 milljón kr.
Þá er og eðlilegt, að Viðtækja-
verzluniin greiði í ríkissjóð það
fé, sem hún á ógreitt vegna Sin-
fóníuhljómsveitar íslands á ár-
unum 1965—67, en það nemur
1.8 milljón kr. Að öðru leyti
renni eignir hennar í fram-
kvæmdasjóð Ríkisútvarpsins,
eins og ráðgert var, þegar Við-
tækjaverzlunin var stofnuð,
enda taki hann að sér að greiða
skuldbindingar hennar. Tekjur
af hækkun verðtolls af viðtækj-
um renna að sjálfsögðu í ríkis-
sjóð, enda tekur hann að sér
fjárframlög til þeirra verkefna,
sem hagnaður Viðtækjaverzlun-
arinnar skyldi áður renna tiL
Til sölu við:
Sólheima
Glæsileg 5 herb. íbúðarhaeð
í þríbýlishúsi. Fallegt út-
sýni.
Bugðulæk
4ra herb. kjallaraíbúð, lítið
niðurgrafin. Sérinngangur,
sérhiti. Góð íbúð. Góð lán
áhvílandi.
Fasteignasalan
Uátúni 4 A, Nóatúnshúsið
Sími 2-18-70
Til sölu m.a.
Hrísateig
3ja herb. hæð auk bílskúrs.
Þrjár íbúðir í húsinu.
Ræktuð lóð. Hagkvæm kjör.
EskihliÖ
3ja herb. kjallaraibúð, lítið
niðurgrafin. íbúðin er í
mjög góðu ástandi.
5 herb. íbúð á 4. hæð í sam-
býlishúsi. Hagkvæmt verð
og greiðsluskilmálar.
/ GarBahreppi
Fokhelt einbýlishús af ýms-
úm stærðum og gerðum.
FASTEIGNA
SKRIFSTOFAN
4USTURSTRÆTI 17. 4. HÆÐ SlMI: 17466
íbúðir og hús
óskast
Okkur vantar sérstaklega
einbýlishús, raðhús, svo
og 2—3 herbergja íbúðir
ásamt gúðum hæðum í
tví- og þríbýlishúsum-
Fasteignasala
Sigurðar Pálssonar
byggingameistara og
Gunnars Jónssonar
lögmanns.
Kambsvegi 32.
Símar 34472 og 38414
17.
Til sölu
4ra herb. íbúð á efstu hæð
við Þorfinnsgötu.
4ra herb. nýjar íbúðir við
LjóSheima, Skólagerði.
4ra herb. hæðir við Víði-
hvamm, Skipasund og
víðar í borginni, Kópavogi
og Hafnarfirði.
Raðhús nýleg og fullgerð í
Kópavogi.
Einbýlishús í SmáSbúðahverfi
og Kópavogi.
4ra—6 herb. hæðir ásamt bíl-
Skúrum í smíðum í Kópa-
vogi.
PASTEIGNASAIAN
HÚS&EIGNIR
BANK ASTRAETI A
Sími 40863
SÓFASETT - BÍLL
Óska eftir góðum sendiferða-
bíl, helzt með drif á öllum
hjólum, í skiptum fyrir glæsi-
legt nýtízku sófasett í léttum
stíl, með 3 stólum og 4ra sæta
sófa. Tveir stólarnir eru
með háu baki með nýtízku
nælonáklæði. Uppl. á verk-
stæðinu, Laufásveg 4. Gengið
niður sundið. Sími 13492.
2ja herb. íbúðir við Reynimel,
Hvassaleiti, Samtún, Kópa-
vogsbraut og Laugarnes’veg.
3ja herb. góð íbúð á 2. hæð
við Kleppsveg.
3ja herb. ný íbúð á 2. hæð
við Hraunbæ.
3ja herbergja efri hæð ásamt
• tveim herb. í risi við Hring-
braut, bílskúr.
3ja herb. íbúð á 1. hæð við
Hraunteig.
3ja herb. kjallaraíbúð við
Miðtún.
4ra herb. góð risíbúð við
Hraunteig.
4ra herb. íbúð ásamt herb. í
kjallara við Stóragerði.
4ra herb. 110 ferm. íbúð á 2.
hæð við Álfheima.
4ra herb. íbúð á 7. hæð við
Ljósheima.
4ra herb. íbúð á 1. hæð við
Sogaveg.
4—5 herb. lúxus íbúð á 11.
hæð við Sólheima.
5 herb. nýleg íbúð við Fells-
múla.
5 herb. sérhæð við Rauðalæk.
5 herb. íbúð á 1. hæð við
Bogahlíð.
5 herb. íbúð á 3. hæð við
Grænuhlíð.
5 herb. íbúð á 1. hæð við
Kambsveg.
5 herb. sérhæð við Lindar-
braut.
5 herb. sérhæð við Bugðulæk.
Einbýlishús við Holtagerði.
Einbýlishús við Smáraflöt.
Einbýlishús við Vallargerði.
Fokhelt raðhús við Sæviðar-
sund. Uppbyggður bílskúr.
Hilmar Valdimarssou
FasteignaviðskiptL
Jón Bjarnason
hæstaréttarlögmaður.
Fiskiskip
Seljum og leigjum fiskiskip,
af öllum stærðum.
SKIPA- 06
VERÐBRÉFA*
SALAN
skiraT
[leiga ,
VESTURGÖTU 5
Sími 13339.
Talið við okkur um kaup og
sölu fiskiskipa.
SKÍÐA...
PEYSUR
BUXUR
HÚFUR
HANZKAR