Morgunblaðið - 17.02.1967, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1967.
REYKJAVÍKURMÓTIÐ í svigi
hefst um þessa helgi og verður
þá keppt í svigi og stórsvigi.
Var ráðgert að hefja mótið fyrir
hálfum mánuði, en þá varð að
fresta keppni vegna veðurs.
Skíðadeild KR sér um mótið
og verður keppt bæði á laugar-
dag og sunnudag. Á laugardag
fer fram keppni í stórsvigi í öll-
Fórn heim í
mótmælaskyni
Austurríkismenn, V-Þjóðverj-
ar og Svisslendingar hættu við
þátttöku í „prufuleikum“ fyrir
Vetrarleikana í Frakklandi í
gær og hurfu heitn er þeir voru
komnir á keppnisstað. Ástæðan
var sú að þeir voru óánægðir
með það húsrými sem keppend-
um var ætlað að búa í. Attu
6-8 að vera saman í litlu her-
bergi. Sögðu hinir óánægðu að
frönsku keppendurnir hefðu
miklu betri aðstöðu. Þeir gáfu
mótsstjórn nokkurra klukku-
stunda frest til að lagfæra það
sem miður hafði farið — en
hurfu heim er það var ekki gert.
umflokkum. Keppni þann dag
hefst kl. 2 síðdegis.
Á sunnudaginn verður keppt í
svigi í öllum flokkum og hefst
keppnin kl. 12 á hádegi.
70 þátttakendur eru skráðir í
þessar greinar.
Ferðir í KR skálann í Skála-
felli verða á sunnudag kl. 10 og
kl. 1 á laugardag. Hægt er að
fá heitar súpur, pylsur og fleira
í skálanum og vænta KR-ingar
þess að sjá sem flesta gesti á
Reyk j avikurmótinu.
Rúmenar
unnu Pólverja
í 16 liða keppninni um Evrópu-
bikar meistaraliða í handknatt-
leik mættust Dinamo Bukarest
pólska liðið Wybrzeze frá
Gdansk. Rúmenarnir sigruðu
með 23—13.
Undirbúningur Norðmanna fyrir OL:
Kaupið norska sigursveiga
U N D I R vígorðinu: „Kaupið
norska sigursveiga" hefur Ól-
ympíunefnd Noregs hafið mikið
happdrætti og eru vinningar 150
ferðasjónvörp að verðmæti 283,-
500 n. kr. eða um 1.7 millj. ísl.
kr. Tilgangurinn er að skapa
fjárhagsgrundvöll fyrir myndar-
legri þátttöku Norðmanna í
vetrar ÓL í Grenoble og sumar-
leikunum í Mexico. 50% tekn-
anna rennur til þeirra félaga,
hverra meðlimir selja miðana.
Er sala miðanna geysilega vel
undirbúin og gert ráð fyrir 1.3
millj. kr. tekna til ÓL-nefndar-
innar og sömu upphæð til félag-
anna.
Norðmenn ætla sér að senda
40 manna lið til sumarleikanna
í Mexico og taka þar þátt í
frjálsum íþróttum, kajakróðri,
hjólreiðum, sundi, siglingum,
fimleikum og skotfimi Norð-
menn hafa sent könnunarnefnd I þátttaka Norðmanna í vetrar-
til Mexico og hrósar hún mjög leikunum í Grenoble verði mynd
öllum undirbúningi þar. arleg, á því sviði rísa norskar
Enginn þarf að efast um að íþróttir hæst.
Unglingamót í
sviffi á Húsavík
SÍÐASTLIÐINN sunnudag fór
fram hér á Húsavík opið mót í
svigi fyrir fjóra unglingaflokka,
einn flokk stúlkna og þrjá ald-
ursflokka drengja. Keppedur
voru alls 61, þar af 32 frá Akur-
eyri, 1 frá Reykjavík, 5 frá Siglu
firði og 20 frá Húsavík.
í aldursflokki drengja 11 til
12 ára sigraði Gunnlaugur Frí-
mannsson Akureyri, annar varð
Alfreð Þórsson, Akureyri og
Frœgustu knaffspyrnulið Evrópu 6.
Hollenzku meistararnir vonast
til að komast í úrslitaleikinn
Hollenskir knattspyrnuunn-
endur bera í brjósti vonir
um að meistaraliði þeirra í
knattspyrnu, Ajax í Amster-
dam, takist að halda sigur-
göngu sinni áfram og kom-
ast í úrslit — í fyrsta sinn —
í keppninni um Evrópubikar
meistaraliða.
Þetta eru að sumra áliti
fjarstæðir draumar, en Ajax
var það lið er „sló út“ úr
Evrópukeppninni ensku meist
arana Liverpool. Nú mætir
Ajax Dukla Prag í 8 liða úr-
slitum og verða leikirnir 1.
marz í Amsterdam og 8. marz
í Prag.
Gert Bals, fyrirliði Ajax,
hefur varað stuðningsmenn
félags síns við of mikilli bjart
sýni. Hans spá er að Interna-
zionale Milan — félagið sem
vann Evrópubikar meistara-
liða 1964 og 1965, verði í úr-
slitaleiknum sem fram fer í
Lissabon í maímánuði. En
hann bætti því við, að Ajax
gæti orðið hitt lio\ð — ef
vel dregst eftir 8 liða úr-
slitin. Hann þóttist ekki í vafa
um að Ajax kæmist í 4 liða
úrslit.
„Inter Milan var eina liðið
sem við vildum ekki mæta í
8 liða úrslitunum'* sagði Bals,
sém er markvörður liðs síns.
Hann ásamt Klaas Nuninga,
innherja, sem þykir skærasta
stjarna liðsins, vildu báðir
þakka Michels 43 ára þjálfara
Ajax velgengi liðsins á und-
anförnum árum. Hann hefur
byggt upp leik liðsins sem
byggist á snöggum stöðuskipt
ingum leikmanna til að skapa
skotmönnum færl.
Nuninga innherji segir að
tæknilega séð sé Ajax-lið-
ið mjög vel skipulagt lið og
geti breytt um leikaðferðir
meðan á leik stendur. Sókn-
arleikurinn er byggður upp
af varnarleikmönnum og
leika útherjarnir stórt hlut-
verk í þeirri uppbyggingu.
Bals markvörður og fyrir-
liði segir að liðsmenn hafi
lært að standast mikinn sókn-
arleik mótherjanna og breyta
vörn í sókn ef nokkurt færi
gefst.
Hann segir að ensk og þýzk
lið skorti fjölbreytni í leik
miðað við Ajax-liðið.
Ajax hefur aldrei náð svo
langt í Evrópukeppni sem nú.
Vinni liðið Dukla Prag og
komist þannig í undanúrslit
nær liðið jafnlangt og annað
bollenskt lið, Feyenord, hefur
lengst náð fram til þessa en
1963 komst Feyenord í und-
anúrslit.
Ajax er yfirburðalið í
hollensku 1. deildinni og
markahlutfall liðsins var 76
skoruð gegn 18 í 19 leikjum
í deildinni.
19 ára piltur, Johan Cruyff
ber af í liðinu. Hann er mið-
herji og langmarkhæstur
hollenskra knattspyrnu-
manna. Hann er háfættur,
fljótur og einstaklega skot-
viss.
Hann var settur í árs keppn
isbann í leikjum við erlend
lið vegna vandræða er hann
lenti í landsleik við Tékkó-
slóvakíu. A-þýzkur dómari í
þeim leik sagði að Cryuff
hefði slegið sig. Cryuff sagði
að hönd hans hefði óvart rek
ist í dómarann — en refs-
inguna varð hann að þola.
Ajax var stofnað 1893 og
vann hollensku meistara-
keppnina í fyrra í 11. sinn.
Fimm leikmenn liðsins eru
landsliðsmenn, Suurbier 21
árs h. bakvörður, Muller, 28
ára gamall h. framvörður,
Swart h. útherji, Kunninga
innherji og Keizer. /rír aðr-
ir í liði Ajax hafa áður leik-
ið í landsliði Hollands.
Bals mai yvörður og fyrir-
liði liðsins er sá eini sem
ekki er atvinnumaður að
fullu. Hann vinnur í raftækja
firma og æfir með B-liði
Ajax á kvöldin að vinnutíma
loknum. Hinir æfa 4 sinnum í
viku að morgni til.
Liðinu bættist nýlega júgó-
slavneskur landsmaður frá
1‘artizan í Belgrad. Hann hef
ur sameinast liðsmönnum
einkar vel. „Þetta var bara
spurning um tungumál" sagði
Bals fyrirliði. „Hann talar
ensku og það gerum við allir
í Ajax.“
þriðji Ólafur Halldórsson Akur-
eyri.
í drengjaflokki 13 til 14 ára
sigraði Þorsteinn Vilhelmsson,
Akureyri, annar varð Guðmund-
ur Frímannsson, Akureyri, og
þriðji Þorsteinn Baldvinsson,
AkureyrL
í flokki stúlkna 14 til 16 ára
sigraði Sigþrúður Sigurlaugs-
dóttir, Akureyri, önnur varð Sig-
rún Þórhallsdóttir, Húsavík, og
Pessl mynd er Ira lelK Framx
*:] og Honved, Ungverjalands-" *
•{• meistaranna, en þann leik! \
| unnu Framarar með 18—16.] ]
]•; Ingólfur Óskarsson sýndi> •
•{• sinn bezta leik um langan] ]
]•; tíma og sézt hér skora eitt af ] ]
v sínum 5 mörkum í leiknum.. >
•{• — Ljósm. Sv. Þorm. I
••• .>
I* ♦{» %»*{♦♦!* **• %♦ «*♦ »*• **• < i
þriðja Barbara Geirsdóttir, Akur
eyri.
í flokki drengja 15 til 16 ára
var keppnin mjög spennandL
Brautin var 300 m. löng og á
henni 54 hlið. Eftir fyrri um-
ferð höfðu þessi beztan brautar-
tíma:
Þórhallur Bjarnason, Húsavík
31.5 sek.
Björn Haraldsson, Húsavík
32.0 sek.
Árni Óðinsson, Akureyri
32.2 sek.
Ingvi Óðinsson, Akureyri
33.0 sek.
Síðari umferðin mistókst fyrir
þeim Þórhalli Bjarnasyni og
Árna og Ingva Óðinssonum.
Björn Haraldsson náði þá bezta
brautartímanum, 31.0 sek.
Sigurvegari varð Björn Har-
aldsson Hú. (32.0+31.0)
= 63.0 sek.
2. Björn Þórsson, Akureyri
(33.4+33.3) = 66.7 sek.
3. Jónas Sigurbjörnsson, Akur
eyri (35.5+35.5) = 71.0 sek.
Björn Haraldsson var íslands-
meistari í svigi í sínum aldurs-
flokki í fyrra.
Mótið fór hið bezta fram, veð-
ur var all gott, en mikið harð-
fenni. Áhorfendur voru all marg-
ir og skemmtu sér vel.
Að keppni lokinni bauð íþrótta
félagið Völsungur, sem sá um
mótið, starfsmönnum og kepp-
endum til kaffidrykkju og þar
voru afhent verðlaun.
Næsta skíðamót á Húsavík
verður háð á sunnudaginn kem-
ur. Það er firmakeppni og taka
um 80 firmu þátt í henni.
Nýr golf-
klúbbur
NOKKRIR áhugasamir golfmenn
hafa ákveðið að boða til stofn-
fundar nýs golfklúbbs og er
ætlunin að félagssvæði hans
nái yfir Hafnarfjörð, Garða- og
Bessastaðahrepp og Kópavog.
Verður stofnfundurinn haldinn i
Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði
á morgun, laugardag kl. 2 e.h. —
Að undirbúningi þessa máls hafa
starfað í undirbúningsnefnd
þeir Sigurbergur Sveinsson,
Rúnar Guðmundsson, Jónas
Aðalsteinsson, Sigurður Helgason
og Hafsteinn Hansson. Er það
von nefndarmanna að sem flestir
er áhuga hafa á þessu máli mæti
á stofnfundinum á morgun.
Svig og stórsvig
fer fram um helgina
70 skráðir þátttakendur