Morgunblaðið - 04.03.1967, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, UAUGARDAGUR 4. MARZ 1967.
Valsmenn unnu íslands-
meist.tign og 10 önnur mót
Korfuknattlelkur um helgina;
Bikarkeppni
— skólamót
Ægir Ferdinandsson
Ægir Ferdinandsson kjörinn
formaftur félagsins
AÐALFUNDUR knattspyrnufé-
lagsins Vals var haldinn í félags-
heimilinu að Hlíðarenda 7. febrú-
ar sl. Páll Guðnason formaður
setti fundinn með stuttu ávarpi
og stakk upp á Frímanni Helga-
syni sem fundarstjóra og Gísla
Sigurðssyni fundarritara. Flutti
formaðurinn skýrslu stjórnarinn-
ar sem var hin ítarlegasta og
vitnaði um margþætt störf deilda
félagsins og félagsins í heild.
Á knattspyrnusviðinu unnust
alls 11 mót, en Valur tók þátt í
öllum kappmótum sumarsins, en
svipmestur var auðvitað sigurinn
í Islandsmótinu, en auk þess
unnust margir góðir ög kær-
komnir sigrar í yngri flokkunum,
sem þera vitni mikilli grósku í
knattspyrnustörfum félagsins í
heild á árinu og ágætri stjórn
þeirra.
Aðalþjálfari félagsins var óii.^
B. Jónsson, sem er þjóðkunnur
knattspyrnuþjálfari. Mun Óli
þjálfa Val næsta keppnistímabil.
Alls voru skoruð af Vals hálfu
403 mörk gegn 195, en stig sam-
aiilögð urðu 191.
Á sviði handknattleiksins var
og mikið líf og fjör og fjöldi
flokka, yngri og eldri stóðu í
eldinum. En þar bar hæst
kvennaflokk félagsins (meistara-
flokk). En sá flokkur vann það
einstæða afrek, að færa félaginu
þrjá bikara, kjörgripi mikla, til
eignar, eftir að hafa unnið þá
álla þrjú ár í röð. En þessir
glæsilegu verðlaunagripir eru
Islandsbikarinn inni og úti og
Reykjavíkurbikarinn. Munu nú
glæsigripir þessir prýða félags-
heimili Vals, um aldur og ævi,
og vitna um dugnað, þrótt og
þrek kvennaflokks félagsins á
árinu 1966, jafnframt þvi að vera
fyrirmynd komandi handbolta-
kynslóða Vals til sóknar og sigra.
í sambandi við sigra þessa, er
ekki um neina heppni að ræða
eða tilviljun, sem stundum getur
ráðið úrslitum keppni. Hér giltu
hreinir yfirburðir, eins og eftir-
farandi tölur sanna, því af 37
leikjum sigraði flokkurinn í 36
skipti og skoraði 426 mörk gegn
207. í>á varð 2. flokkur kvenna
A sigurvegari í sírrum flokki í
Reykjavíkur- og íslandsmóti. —
Aðrir flokkar handboltans stóðu
sig yfirleitt vel og m. a. varð
meistaraflokkur karla annar í
röðinni í Reykjavíkurmótinu.
var hann hylltur af fundarmönn-
um. Aðrir í stjórninni næsta ár
eru þeir Þórður Þorkelsson, Ein-
ar Björnsson, Friðjón Friðjóns-
son og Jón Kristjánsson. Auk
þess eiga formenn deildanna
sæti í aðalstjórninni, en þeir
eru: Elías Hergeirsson formaður
knattspyrnudeildar, Garðar Jó-
hannsson formaður handknatt-
leiksdeildar og Matt'hías Stein-
grímsson formaður skíðadeildar.
Varamenn: Björn Carlsson og
Örn Ingólfsson.
Endurskoðendur voru kjörnir
Jón Bergmann og Guðmundur
Ingimundarson.
Á fundinum var 4. fl. afhentur
„Jóns bikarinn“ sem verðlauna-
bikar fyrir bezta frammistöðu á
árinu og þann flokk félagsins
sem hlotið hefir flest stig. For-
maður knattspyrnudeildar Elías
Hergeirsson afhenti bikarinn.
Fundurinn var mjög fjölsóttur
og einkenndist af samhug og
sóknarvilja Valsmanna.
Þórarinn Eyþórsson hefir verið
og er aðalþjálfari Vals í hand-
bolta jafnframt því sem hann var
formaður deildarinnar undanfar-
in ár, lét af því starfi á árinu.
Hið mikla forystu- og þjálfara-
starf Þórarins á þessu sviði, inn-
an Vals, verður seint fullþakkað.
Þá las gjaldkeri upp reikninga
félagsins og Sigurður Ólafsson
flutti skýrslu um Hlíðarenda-
eignina og las upp reikninga
hennar. >á voru fluttar skýrslur
og reikningar um félagsheimilið
og Valsblaðið, en blaðið kom út
fyrir jólin, stórt og vandað, þar
sem m. a. var sérstaklega minnzt
55 ára afmælisins.
Miklar umræður urðu um
skýrslurnar og reikningana.
Páll Guðnason, sem verið hef-
ur formaður Vals undanfarin 4
ár lét nú af formennsku, en við
tó'k Ægir Ferdinandsson. Voru
Páli þökkuð ágæt störf í þágu
íélagsins bæði fyrr og síðar, og
Víðavangshlaup með á
2. þús. þátttakendum
44. SAMBANDSMNG Ung-
mennasambands Kjalarnesþings
var haldið að Ásgarði í Kjós
þann 20. nóv. síðastliðinn. 3'5
fulltrúar sóttu þingið auk gesta.
Forsetar þingsins voru Jón M.
Guðmundsson, Pálmi Gislason
og Ól. Þór Ólafsson. Úlfar Ár-
mannsson flu/tti skýrslu stjórnar,
sem nú í fyrsta skipti lá fyrir
fjölrituð ásamt reikningum og
úrslitum af mótum. Gjaldkeri
Sigurður Skarphéðinsson gerði
grein fyrir reikningum sambands
ins. Stairfsemi innan samibands
er með miklum blóma.
Sambandið hélt mörg Jþrótta-
mót og tók þátt í flestum íþrótta-
mótum sem haldin voru í Reykja
vík á síðasta sumri, með Umf.
Breiðablik í broddi fylkingar.
Einnig stóð sambandið að viða-
vangshlaupi milli skóla á Sam-
bandssvæðinu með hátt á annað
þúsund þátttakendum, ef taldir
eru allir sem tóku þátt í undan-
rásunum. Þingið tók fyrir mörg
mál og gerði margar ályktanir,
m.a. til eflingar íþrótta- og æsku
lýðsmálum á svæðinu, stækkun
sambandsins og ráðning fram-
kvæmdastjóra. Innan sambands-
ins eru nú sex félög: Umf. Dreng
ur, Kjós; Umf. Kjalarnes, Kjalar-
nesi; Umf. Afturelding Mos-
fellssveit; Umf. Breiðblik Kópa-
vogi; Umf. Stjarnan, Garða-
hreppi og Umf. Bessastaða-
hrepps, með sanjtals 867 féia^a.
Fráfarandi formaður, Úlfar Ar-
mannsson baðst umdian endur-
kjöri eftir tveggja ára for-
mennsku.
1 stjórn voru kosnir, Gestur
Guðmundsson form., Kópavogi;
Þórir Hermansson varfbrm.,
Kjós, Sigurður Skarphéðinsson,
Birgir Guðmundsson, Gísli
Snorrason og Hallgrímur Sigurðs
Sektaður um
1200 krónuir
fyrir mótmæli
CAN BARTU heitir ein s'kærasta
stjarnan í knattspyrnu í Tyrk-
landi. En hann er auk annars
mjög skapstór. Aganefnd tyrkn-
eska knattspyrnusam'bandsins
hefur nú sektað hann um sem
svarar 1200 ísl. kr. fyrir mót-
mæli við dómara á velli. Um-
ræddum leik lauk án þess að
mark væri skorað.
Víkverjar sigruðu
/ sveitaglímu KR
ÖNNUR sveitaglíma K.R. fór
fram að Hálogalandi 28. febrúar.
Einar Sæmundsson form. K.R.
setti mótið. Glímustjórar voru
Guðmundur Ágústsson og Ey-
steinn Þorvaldsson. Yfirdómarar
Grétar Sigurðsson og Sigurður
Sigurjónsson. Úrslit milli ein-
stakra sveita urðu þessi:
K.R.a — Ármann 22— 3
U.V. — K.R.b. 22— 3
K.R.a. — K.R.b. 22— 3
U. V. — Ármann 17— 8
U.V. — K.R.a. 14—11
K.R.b. — Ármann 13—12
f sigursveit Víkverja voru:
Iiigvi Guðmundsson sveitarfor-
ingi, Ágúst Bjarnason, Gunnar
R. Ingvarsson, Hannes Þorkels-
son og Hjálmar Sigurðsson.
Sigtryggur Sigurðsson K.R.
skjaldarhafi var eini keppand-
inn, er sigraði alla andstæðinga
sína í þeim fimmtán glímum,
sem hver keppandi glímdi.
UM helgina verður mikið um að
vera í heimi körfuknattleiks-
manna. Úrslit skólamóts ÍFRN í
körfuknattleik verða ráðin í
Laugardalshöllinni í kvöld kl.
20.15, en þá leika eftirtalin lið til
úrslita:
í kvennafl.: Kennarask. —
Kvennask.
I III. fl. karla: Langholtssk.
— Vogask.
í II. fl. karla: MR, Lækjarg.
— MR, Hamrahlíð.
I I. fl. karla: Háskólinn — MR.
Öll þessi lið eru taplaus í mót-
inu, sem er með úrsláttarfyrir-
komulagi. og eykur það mjög á
spennuna. Er ekki að efa að um
mjög harða keppni verður að
ræða í kvöld, því í ofantöldum
skólum eru margir fremstu leik-
menn landsins í dag.
Bikarkeppni
Hin árlega bikarkeppni milli
Bandarikjamanna á Keflavíkur-
flugvelli og Reykjavífcurúrval*
hefst á morgun sunnudag kl,
20.15, einnig í Laugardalshöll-
inni. Keppt er um nýjan verð-
launagrip sem hinn fráfarandt
ambassador Bandaríkjanna á í»-
landi James K. Penfield gaf til
keppninnar. Leikirnir í þessari
keppni undanfarin ár hafa yfir-
leitt verið mjög spennandi og er
ekki ástæða til þess að ætla ann-
að en að svo verði einnig að
þessu sinni, en íslenzkir körfu-
knattleiksmenn búast nú undir
átökin við Dani um næstu mán-
aðamót og er þessi leikur liður
í þeim undirbúningi.
Á undan bikarleiknoim verður
forleikur í I. flokki íslandsmóts-
ins.
Sigtryggur
Sigurðsson
sigraði
FYRIR stuttu héldu K.R.-ingar
iinnanfélagsglímumót, er tókst
ágætlega. Glímustjóri var Kjart-
an Bergmann Guðjónsson form.
Glímusambands íslands. Yfir-
dómari Þorsteinn Kristjánsson,
landsiþjálfari Glímusambandsins,
meðdómarar Kristmundur J.
Sigurðsson fyrrv. glímukóngur
íslands og ívar Jónsson form.
glímudeildar Breiðabliks í Kópa-
vogi.
Þátttakendur voru tíu. Sig-
tryggur Sigurðsson sigraði og
lagði alla sína andstæðinga.
ÚRSLIT:
1. Sigtryggur Sigurðsson 9
2. Garðar Erlendsson 7 Vá
3. Ómar Úlfarsson 6%
4. Elías Árnason 6
5. Einar Kristinsson 5
6. Ólafur Sigurgeirsson 4
7.—8. Bragi Björnsson 3
7.—8. Sigurbjöm Svavarsson 3
9. Ingi Sverrisson 1
10. Rögnvaldur Ólafsson 0
Stríðsyfirlýs-
ing gegn
áhoriendum
FORSETI ítalska knattspyrnu-
sambandsins hefur lýst yfir
stríði gegn þeim sem reyna með
ólátum, og öðrum miður æski-
legum athöfnum að eyðileggja
knattspyrnuleiki. Nær stríðsyfir
lýsingin jafnt gegn leikmönnum
og áhorfendum. Segir formaður-
inn að tekið verði mjög fast á
slíkum hlutum og menn látnir
sæta þungri ábyrgð ef út af ber.
Forsetinn sagði á fundi með
forráðamönnum félaga á Ítalíu:
„Það er nóg um slysin á vellin-
um. Verið vissir um að hart verð
ur gengið móti þeim sem vilj-
andi stpfna til slíks og brjóta
aðrar reglur."
NORSKA stökkmanninum B.
Wirkola hefur gengið afar
illa upp á síkastið en fyrr
í vetur var hann gersamlega
ósigrandi. Á móti I Villmans-
strand í Noregi í gær datt
hann í báðum tilraunum sín-
um og komst þvi ekki á blað
í keppninni.
Æskulýðs-
samkoma
í Garðakirkfu
í TILEFNI af æskulýðsdegi Þjóð-
kirkjunar efnir Æskulýðsfélag
Garðakirkju til sérstakrar sam-
komu í Airkjunni klukkan fimm
síðdegis á morgun (sunnudagþ.
Félagar munu annast helgisturw^
söngflokkur Vogaskóla undir
stjórn Helga Þorlákssonar, söng-
flokkur safnaðarins á Keflavík-
urflugvelli syngur, Gísli Ferdin-
andsson og dóttir hans Guðríður
munu leika á flautur, ávarp
flytja Valgeir Ástráðsson og
Ævar Kvaran, leikari og frum-
fluttur verður þáttur fyrir fram-
sögn eftir Unni Eríksdóttur, sen»
nefnist Leitin, nemendur úr leik-
skóla Ævars Kvaran, flytja. Allir
eru velkomnir á þessa samnkomu,
Æskulýðskvold
vaka í Keflavík
Á ÆSKULÝÐSDEGI þjóðkirkj-
unnar verða mikil hátíðahöld i
Keflavíkurprestakalli svo sem
verið hefur undanfarin ár. Þar
eð Keflavíkurkirkja er ekki full-
búin til endurvígslu fara hátíða-
höldin fram að þessu sinni i
félagsheimilinu Stapa.
KL 2 síðdegis verðúr æsku-
lýðsþjónusta, þar sem ungmenm
aðstoða. Um kvöldið kl. 8:30
hefst svo kvöldvaka á sama staði
Dagskrá hennar verður mjög fjöi
breytt, flutt verða ávörp, Hreina
Líndal tenórsöngvari syngur
einsöng, tvær ungar stúlkur, EIV
en Mooney og Elisabet Guð-
mundsdóttir, leika einleik á píanó
og fiðlu, nokkrar stúlfcur úir
G.K. syngja með gítarundirleik
og æsfculýðskór Njarðvíkur
syngur nokkur lög.
í sambandi við æskulýðsguðs-
þjónustuna og kvöldvökuna fara
áætlunarbílar frá SBK í Kefla-
vík 20 mínútum fyrr.
Moskvu, 28. febrúar.
NTB—AP.
HAILE Selassie, Eþiópiukeisari,
hélt áfram viðræðum sínum í dag
við sovézka leiðtoga, milli þess
sem hann fór í könnunarferðir og
heimsóknir í Moskvu og ná-
grenni. Á fimmtudag fer hann tll
Ankara í Tyrklandi í opinber*
heimsókn og dvelzt þar nokkra
daga.
/