Morgunblaðið - 04.04.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.04.1967, Blaðsíða 1
32 SiÐUR Fer fram vopnahlé Washington, Hanoi, 4. apríl — AP — AÐALRITARI SÞ, U Thant, ákvað sl. laugardag, að fara þess á leit við Bandaríkja- stjórn, að hún hætti einhliða ölliun hernaðaraðgerðum í Vietnam. Ákvörðunina tók U Thant eftir að öldungardeild- arþingmaðurinn Joseph Clark hafði lýst sig fylgjandi Þri&gja-liða tillögu hans, og lagði Clark til í öldungadeild- inni, að Washington hæfi vopnahléið 15. apríl n.k. Form legt svar hefur enn ekki bor- izt og ætla stjórnmálamenn, að Bandaríkin muni ekki fall ast á þessa umleitan. Fulltrúi Framhald á bls. 21. ---------------------«1 Frá fundi Norðurlandaráös í Helsingfors. f fremstu röð eru talið frá vinstri: Per Borten, forsætisráðherra Noregs, Birger AnderssoD, Svíþjóð, Georg Becklund Finnland, Jón Skaftson ísland, Sigurður Bjarnason formaður íslenzku sendinefndarinn- ar og varaforseti Norðurlandsráðs. (AP-mynd) ________________________________ Islenzka ríkisstjórnin hlynnt aöild Færeyja að Norðurlandaráði Viðtal Mbl. v/ð forsœtisráðherra 3 Norðurlanda og lögmann Fœreyja Frá Styrmi Gunnanssyni, fréttamanni Mbl. á Norðurlandaráðsfundinum. EMIL Jónsson, utanríkisráð- herra, lýsti því yfir á fundi Norðurlandaráðs í gær, að ís- lenzka ríkisstjórnin hefði fjall að um aðild Færeyja að Norð urlandaráði og væri hlynnt lausn þess máls í samræmi við óskir Færeyinga. Utan- ríkisráðherra sagði, að Fær- eyingar væri eigin þjóð með eigin tungu og menningu, eig- in fána og heimastjórn, sem fjallaði um flest mál sem Færeyinga varða. Hann sagði að Færeyingar hefðu lifandi áhuga á norrænni samvinnu og fullan vilja til að taka þátt í henni. Danski forsætisráð- herrann Jens O. Krag lagði einnig þunga áherzlu á að Færeyingar fengju aðild að Norðurlandaráði í ræðu er hann flutti sl. laugardag. Kvaðst hann vænta þess að viðunandi lausn fengist á þessu máli nú. Á fundi laga- nefndar í morgun var ákveð- ið að vísa tillögu Dana til ríkisstjórna Norðurlandanna. Morgunblaðið sneri sér í gær til Peters Moihr Dam, lögmanns Færeyja og forsætisráðherra Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar og spurðisit fyrir um afstöðu þeirra til málsins. Peter Dam sagðist vera ánægður með af- stöðu Dana og íslendinga. I>eir hefðu staðið af heilum hug með Færeyjum í málinu. Hann kvaðst einnig vita að Norðmenn hefðu samúð með Færeyingum í þessu máli. Það væri nokkur spurn- ing um afstöðu Finna, en þeir ættu við að etja vandamái þar sem væri staða Alandseyja. „Við viljum ekki annað en rétt okk, ar“, sagði færeyski lögmaðurinn. „í Færeyjum eru allir sammála um að óska eftir aðild að ráð- inu“. Jens O. Krag, forsætisráðherra Dana, sagði, að Danir hefðu frem ur viljað að ákvörðun hefði ver- ið tekin nú á þessum Norður- landaráðsfundi en málsmeðferð- in skipti ekki öllu máli heldur niðurstaðan. Hann sagði að Dan- ir væru reiðubúnir til þess að taka þetrta mál upp við ríkis- stjórnir hinna Norðurlandanna, og gott tækifæri gæfist til þess á fundi utanríkisráðherra land- anna, sem halda á i Reykjavík í vor. Hann sagði Finna og Svía Petking, 3. apríl, AP-NTB UM hálf milljón skólabarna, Sinurung ó landsiunði Hannover, 3. apríl, NTB. LANDSFUNDUR Frjálsra demó krata í V-Þýzkalandi ihófst í Hannover í dag. Við setningu fundarins gagnrýndi formaður flokksins. Eridh Mende, gjald- kera flokksins, Wolfgang Rubin, fyrir að hafa stutt, að Oder- Neisse-línan yrði ausurlanda- mæri Þýzkalands. Sagði Mende, að hver sá, sem hefði í hyggju, að semja um Oder-Neisse-línuna í dag ætti á hættu, að þurfa að taka þátt í samningum um upp- gjöf V-Berlínar á morgun. Rub- in er leiðtogi vinstri arms Frjálsra demókrata. stúdenta og verkamanna fórn í mótmælagöngur um stræti Peking-borgar í dag og hróp- uðu slagorð gegn forseta kín- verska Alþýðulýðveldisins Liu Shao-chi. Krafðist múg- urinn þess að hann segði af sér. Þetta er annan daginn í röð, sem skipulagðar eru mótmælagöngur gegn forset- anum. A veggspjöldum í Peking mátti einnig lesa árásir á utan- ríkisráðherrann Chen Yi. Var honum lýst sem svarta sauðnum í utanrikisráðuneytinu, sem ekki fylgdi byhingarlögmálum Maós. Kínversku blöðin geta Segjast hafa fundið lækninp við blnðkrabba Texas, 3. apríl — AP BANDARÍSKI mannvinur inn J. K. Wadley tilkynnti í dag, að rannsóknarstofn- un í Dallas, sem hann er eigandi að, hefði náð merk um áfanga í leit að lækn- ingu blóðkrabba. Sagði hann að ný lækningarmeð- ferð á þessum sjúkdómi hefði verið reynd, undir stjórn framkvæmdastjóra stofnunarinnar dr. Joseph M. Hill, á 9 ára gömlum dreng með blóðkrabba á mjög háu stigi. Átti dreng- urinn, samkvæmt spám lækna, aðeins eftir að lifa í fáeinar vikpr. Hálseitlar drengsins voru þrútnir og stærri en epli og sömu sögu var að segja um milta hans. Nokkrum dögum eftir fyrstu meðferð sýndu ljós- myndir, að háls drengsins og milta höfðu náð eðlilegri stærð og Uðan hans var ágæt. Wadley sagði, að meðferð- in væri fólgin í því, að „svelta í hel hinar illkynjuðu frumur". Dr. Hill nefnir að- ferðina „Amínsýru tæmingar- lækningu", (amino-acid deple tion therapy). Wadley, sem varð níræður á laugardag, sagði á fundi með fréttamönnum á afmæl- isdaginn: „Dr. Hill kveðst ekki geta sagt um hvort hér sé fundin lækning við krabba meini og söm eru viðbrögð annarra vísindamanna, en árangurinn af meðferðinni er svo stórkostlegur, að ég veit ékki hvað flokkast get- ur undir lækningu, ef ekki einmitt þetta“. Framhald á bls. 21. Liu Shao-chi valtur í sessi Framhald á bls. 21.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.