Morgunblaðið - 04.04.1967, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1967.
7
„Það væri nú annað hvort,“
sagði konan þegar ég
hélt aleinn til Parísar
UM þessar mundir sýnir olíu-
málverk í glugga Morgunblaðs
ins Ágúst Petersen listmálari.
Sýning þessi er jafnframt sölu
sýning og stendur í 10 daga.
Uppl. í auglýsingadeildinni.
Ágúst hefur haldið nokkr-
ar sýningar, bæði heima og
erlendis, og hefur selt tals-
vert. Hann selur mest á sýn-
ingum, en einnig heima hjá sér
á Skeggjagötu 13.
Við röbbuðum við Ágúst
yfir kaffibolla heima hjá hon
um í fyrri viku, og hann
hafði margt að segja.
„Gott iistaverk á að draga
manninn að sér i staðinn
fyrir að hrinda honum frá
sér. Það á að búa yfir iát-
leysi, vera upplifað, auðskil-
ið, en þó dulið, eins og lífið
sjálft.
En það á helzt að vera
áhrifaríkara, dýpra og þægi
legra á að horfa, en fyrir-
myndin sjálf, en ekki þver-
öfugt, eins og alltof oft á sér
stað.
Kveikjan til sköpunar lista
verks getur verið margvísleg:
Náttúran í öllum sínum marg
breytileik, brotajárn og drasl
á víðavangi, tónlist, svo sem
sinfóniur, lestur ljóða, fólkið
í landinu", sagði Ágúst og
var mikið niðri fyrir.
„Ég verð víst að telja mig
,figurativan“, en þegar ég
mála hugsa ég ákaflega lítið
um stefnur og stíla, en út-
koman verður oftast eitthvað,
sem kallað hefur verið „real
istiskur expressionismi“, en ég
veit ekkert, hvernig á að
þýða það á íslenzku.
Ég heyrði einhvern segja,
að ég líktist engum, en ef
hægt væri þó að tala um lík-
Ágúst Petersen.
indi við einhvern, þá væri
það Júliana Sveinsdóttir.
Satt er það, við erum bæði
fædd og alin upp í Vest-
mannaeyjum, svo að vel get-
ur verið, að landslagið og
náttúran hafði haft svipuð á-
hrif á okkur í uppvextinum.
Að mála myndir er aðal-
atvinna mín. Ég lifi af þessu.
Ég reyni að hafa brauð til að
geta -málað, og _ ég mála til
að hafa brauð. Ég er kvænt-
ur og listin verður því að
vera mér einnig lifibrauð. Ég
fór til náms í París og Lond-
on, en konan gat ekki farið
með, en gaf mér góðfúslegt
leyfi til að fara einum og
sagði: „Það væri nú annað-
hvort“.
Þegar ég var í Myndlistar-
skólanum, var aðalkennari
minn Þorvaldur Skúlason. Ég
er ekkert frábitinn abstrakt-
list, ef hún er vel gerð. Ég hef
hlotið frekar góða dóma í
blöðum, og Listasafnið hefur
keypt af mér tvær myndir.
Grænir litir falla mér vel í
geð, svo og andrúmsloftið og
víddin. Yfirleitt mála ég að-
eins skissur á staðnum, en
fullvinn myndirnar hérna í
kjallaranum. Mér finnst vera
einhver skáldskapur í öllum
mínum verkum. Eiginlega er
minna um það núna að menn
máli Heklu og Lómagnúp, en
þessi mynd hérna er úr Mý-
vatnssveit en é,g man ekki
nafnið á fjallinu þarna til
hægri.
Rétt er að ég láti það fylgja
í lokin, að ég hygg á stóra
sýningu eftir ár, en þessi
gluggasýning er til þess að
sýna, að ég er alltaf að, sí-
vinnandi".
Og með það gengum við
frá Ágústi að sinni, og þökk-
uðum konu hans fyrir kaffi-
sopann. — Fr. S.
L
Ágúst Petersen sýnir í Mbl. glugga
Akranesferðir Þ.Þ.Þ. mánudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og laugar-
daga frá Akranesi kl. 8. Miðvikudaga
og föstudaga frá Akranesi kl. 12 og
sunnudaga kl. 4. Frá Reykjavík alla
daga kl. 6, nema á laugardögum kl.
2 og sunnudögum kl. 9.
Skipaútgerð ríkisins: E9ja er í Rvík.
Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum kl.
21:00 í kvöld til Rvíkur. Blikur er á
I^orðurfandshöfnum á austurleið.
Herðuibreið er á Norðurlandshöfnum
á vesturleið.
Loftleiðir h.f.: Leifur Eiríksson er
væntanlegur frá NY kl. 10:30. Heldur
áfram til Luxemborgar kl. 11:30. Er
væntanlegur til baka frá Luxemborg
kl. 02:15. Heldur áfram til NY kl.
03:00 .Bjarni Herjólfsson fer til Ósló-
ar, Gautaborgar og Kaupmannahafn-
ar kl. 11:15. Er væntanlegur frá
London og Glasgow kl. 01:15.
Hafskip h.f.: Langá fór frá Vest-
mannaeyjum 2. m«þ. til Malmö, Aahus,
Tureu jg Helsinki. Laxá er í Rvík.
Rangá fór frá Rotterdam 2. þm. til
Hamborgar, Hull og Rvíkur. Selá iest-
ar á Faxaflóahöfnum. Dina ér í
Riga. Maroo lestar í Kaupmannahöfn.
Eimskipafélag íslands .hf.: Bakka-
foss fer frá Þorlékshöfn á morgun 4.
til Keflavíkur. Brúarfoss er væntan-
legur til Rvikur kl. 19:00 í dag frá
NY. Dettifoss kom til Rvíkur 30. frá
Kotka. Fjallfoss kom til Kvíkur 31.
frá Þorlákshöfn og Krisiansand. Goða
foss fer frá ísafirði í dag 4. til Hofs-
óss, Dalvíkur, Grímsby og Rotterdam
og Hamborgar. Gul'lfoss fer frá Kaup
mannahöfn 5. til Leith og Rvíkur.
Lagarfoss fór frá Keflavík í gær til
Rostock, Tallinn, Ventspils og Hels-
ingfors. Mánafoss fór frá Great
Yarmouth í gærkvöldi til Antwerpen
og London. Reykjafoss fer frá Patreks
firði í kvöld til Rvíkur. Selfoss fór
frá Rvík 29. til Cambridge, Norfolk og
NY. Skógafoss fór frá Gufunesi í gær
til Hull, Zandvoorde, Antwerpen,
Rotterdam og Hamborgar. Askja fór
frá Hamborg í gær til Rvíkur. Rannö
fór frá Kaupmannahöfn 30. til Rvíkur
Seeadler fer væntanlega frá Hull 1
dag 3. til Rvíkur. Marietje Böhmer er
á Seyðisfirði, fer þaðan til Avonmouth,
London og Hull. Nancie S. kom til
Rvíkur 30. frá Hamborg. Utan skrif-
stofutíma eru skipafréttir lesnar i
sjálfvirkum símsvara 2-14-66.
Skipadeild S.Í.S.: Arnarfell er vænt-
anlegt til Sigllifjarðar í dag. Jökulfell
er 1 Camden, fer þaðan á morgun til
íslands. Dísarfell losar á Húnaflóa-
höfnum. Litlafell losar á Vestfjörð-
um. Helgafell er væntanlegt til Ant-
werpen á morgun, fer þaðan til Rott-
erdam. Stapafell losar á Norðurlands-
höfnum. Mælifell er í Gufunesi. Peter
Most fer í dag frá Húnaflóa til Horna-
fjarðar. Ole Sif er í Rvík, fer þáðan
til Borgarness. Atlantic fer í dag frá
Sauðárkróki til Rvíkur. Baccarat fer
frá London í dag til Hornafjarðar.
Flugfélag íslands h.f.: Millilanda-
flug: Sólfaxi fer til Kaupmannahafnar
kl. 00:00 í dag. Vélin er væntanleg
aftur til Rvíkur kl. 21:00 í kvöld.
Flugvélin fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 á morgun.
Snarfaxi fer til Vagar, Bergen og
Kaupmannahafnar kl. 11:00 1 dag.
Vélin er væntanleg aftur til Rvíkur
kl. 21:10 á morgun. Innanlandsflug:
í dag er áætlað að fljúga til Vest-
mannaeyja (2 ferðir), Akureyrar (2
ferðir), Patreksfjarðar, Húsavíkur.
ísafjarðar og Egilsstaða. Á morgun er
áætlað að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar,
ísafjarðar, Vestmannaeyja og Egils-
staða.
f páskahretinu 1961
Oft er frost á fróni
flækis't ís við land
kólnar kærleiksband
kommar brugga grand
Yfir álitstjóni
æðrast Hannibal
svekkt er sveinaval
í Selárdal.
Nú á atómöld
Einar hefur völd
klúðrast sérhvert kvöld
kveðjan oft er köld.
Fljótfærnin er flestum
fjötur, vinur kær,
lymska í leyni grær,
en Lúðvík hlær.
Kallinn í kassanum.
Fasistasvín" í felum
##
Bílaverkstæði Ungur maður vanur bíla- viðgerðum óskar eftir vinnu. Uppl. í síma 33736 eftir kl. 7 á kvöldin næstu daga. Stretch-buxur tii sölu í telpna- og dömu- stærðum. Margir litir og einnig saumað eftir máli. Framleiðsluverð. Sími 14616.
Ódýrt sjónvarpstæki Til sölu er 1 árs gamalt selst ódýrt. Sími 81097. Keflavík og Reykjavík, selzt ódýrt. Sími 81007. Kílóhreinsun Nýjar vélar, nýr hreinsi- lögur, sem reynist frábær- lega vel. Efnalaugin Lindin Skúlagötu 51.
Hafnfirðingar Tek börn í gæzlu hálfan eða allan daginn. Börn eldri en þriggja ára koma ekki til- greina. Uppl. í síma 51770. Til leigu 2ja herb. íbúð í háhýsi við Austurbrún frá 1. maí n.k. Tilb. með uppl. sendist Mbl. fyrir 7. maí merkt „Reglusemi 2175“.
Ford Bronco til sölu. Klæddur að inn- an, teppalagður. Hagkvæm kjör ef samið er strax Uppl. í síma 10012.
Brúðarkjóll Til sölu mjög fallegur síð- ur brúðarkjóll. UppL í síma 24034.
Keflavík Herbergi til leigu. Uppl. í síma 1948. íbúð óskast Einhleyp kona óskar eftir lítilli íbúð. Upl. í síma 22150.
Kenni frönsku og ítölsku Get bætt við nokkrum nemendum 2—3 saman. — Sími 16989. Ráðskona óskast strax, ekki yngri en þrít- ug. Uppl. í síma 1897. Vest mannaeyjum.
Til leigu 5 herb. íbúð um 112 ferm. á góðum stað í Hafnar- firði. Uppl. á kvöldin 1 síma 50018. Fyrirfram- greiðsla.
Sauma í húsum Vinn úr nýju sem gömlu. Breyti, bæti, geri við. Sníð og máta. Uppl. í síma 13175 eftir kl. 7 daglega.
Stofuskápur Til sölu er notaður stofu- skápur. Hentugur fyrir föt, tau, bækur, skrifborð o.fl. Á sama stað eru seldar innihurðir og fl. Sími 16805.
Sjónvarpsloftnet önnumst viðgerðir, og upp setningar. Fljót afgiViiðsla. Uppl. í síma 36629 og 40556 daglega. Aukakennsla fyrir barnaskóla- og gagn- fræðaskólanemendur. Sími 30163.
Keflavík — Keflavík Herbergi óskast til leigu, þarf helzt að vera forstofa með innibyggðum skápum. Uppl. í síma 2040,
Digul-prentvél óskast Tilboð sendist til afgr. blaðsins eigi síðar en 8. apríl 1967, merkt „202 — 2117“. Aukastarf Maður, sem vinnu vakta- vinnu, óskar eftir auka- starfi. Mjög margt kem- ur til greina. Uppl. í síma 15967.
Skrifstofustiilka
Óskum eftir að ráða stúlku til vélritunar og ann-
arra afgreiðslustarfa sem fyrst. Umsóknir með
upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
okkur fyrir 10. apríl næstkomandi.
Sparisjóður Kópavogs.
BLAÐBURÐARFQLK
ÓSKAST ■■■
I EFTIRTALIN
HVERFI:
Snorrabraut
Aðalstræti
Tjarnargata
Laufásvegur II
Fálkagata
Lambastaðahverfi
Laugavegur III
Talið við afgreiðsluna sími 22480
„Skelfing er gott til þess að vita, að maður skuli ekki vera alveg gleymdur. — Nafninu minu skaut
upp í kínversku blöðunum á dögunum, og þar var ég kallaður „fasistasvin".