Morgunblaðið - 04.04.1967, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRIL 1987.
Ur sal Kjotiönaöarmiöstoövarinnar.
Kjötiðna&arstöð K.E.A.
tekin til starfa
Fullkomnasta og oýtízkulegasla
kjötiðaaSoistöð loadsios
Akureyri, 22. marz.
í MORGUN var formlega vígð
hin nýja og stórglæsilega Kjöt-
iðnaðarstöð KEA á Oddeyri, og
var mörgum gestum boðið til
mannfagnaðar í því tilefni, bæði
héðan úr bæ og frá Reykjavik.
Meðal þeirra voru Ingólfur Jóns
son, landbúnaðarráðherra, Hjalti
Páisson, framkvæmdastjóri :nn-
flutningsdeildar SfS, Jón Þór,
forstöðumaður birgðadeildar
SfS og Svanbjörn Frímannsson,
bankastjóri. Var öllum boðið að
skoða hina nýju stofnun og síð
an að bragða á framleiðs'uviir-
um hennar að Hótel KEA. Var
það sammæli gesta, að þar væri
óvenjulega fjöibreytt og fagurt
veizluborð. og ekki gáfu bf igð-
gæðin útlitinu eftir.
Ryggingaframkvæmdir hó'ur.t
ihaustið 1963 og lauk í ársby.'jon
1967. Húsið er gert úr strengja-
steypu , er 1800 fermetnr ið
flatarmáli og um 10000 rúmme r
ar að stærð. Öll vinnsta fer fram
á einni hæð, en á efri hæð eru
vélasalir og umbúðageymsla. C ll
gólf eru lögð flísum, sem geta
aldrei orðið hálar, og einnig eru
veggir flísalagðir upp í 1,3 n
hæð. Húsnæðið er mjög bjart og
vistlegt og miðað við strön juscu
hreinlætis- og heilbrigðiskröfur.
Loftræsting er mjög fullkomir,
og allt loft, sem inn í húsið íer,
er marglhreinsað. Þá er andrúms
loftið yfirþrýst, þannig að eng-
inn gustur og þar með ekke.-t
ryk frá umhverfinu getur borizt
inn um dyr eða gættir.
Ailt skipulag og fles'tar teikn-
ingar eru gerðar af danska verk
fræðifyrirtækinu N. E. Wern-
berg, sem hefur lengi unn.ð að
skipulagningiu matvæla.n'.ð-
stöðlva víða um heim, en mikið
af teikningum var síðan strð-
ir Mikael Jóhannesson, alk raí-
fært hér á Akureyri. Má þar
einkum nefna húsateikningar eft
kerfi hússins, sem var teiknað
og skipulagt af Aðalgeir Páls-
syni, rafmagnsverkfræðingi og
Magnúsi J. Kristinssyni, -aívéia
virkjameistara, vatns- og gufu-
lagnateikningar frá teiknsiofu
Sig. Thoroddsen og frumtekning-
ar af lofthitunar- og kælikerfun
eftir Pétur Valdemarsson. Rvgg-
ingaframkvæmdir, niðursetn'g nu
tækja og frágang allan ónnuð-
ust ýmsir iðnaðarmenn og verk
takar 'hér á Akureyri. Eftirlit
f.h. KEA annaðist Stefán Hall-
dórsson, byggingameistari,
Kjötiðnaðarstöð KEA e~ búir
nýjum vélum og tækjum af full-
komnustu gerð, aðallega frá Dan
mörku og Þýzkalandi. Má þar
nefna hraðhakkara, pylsu-
sprautu, hakkavélar, áleggs-
skurðar- og lofttæmipökkunar-
vél, heitreykingar- og kaldreyk-
ingarofna, margs konar niður-
suðuvélar og fullkomið frysti-
og kælikerfi. Mjög rúmgott kæli
rými er í stöðinni fyrir unnar
og óunnar vörur. .
Pylsugerð KEA, sem tók fyrst
til starfa 1934, hefir framleitt
margskonar varning úr kinda-
kjöti, stórgripakjöti og svína-
kjöti, og KjÖtiðnaðarstöðin mun
halda áfram þeirri framleiðslu
og auka fjölbreytni hennar
smám saman. Mest framleiðslu-
aukning er samt fyrirhuguð á
niðursuðuvörum, og mun stöð-
in senda eftirtaldar tegundir á
markað bráðlega: Ræjarabjúg>u,
smásteik, nautakjöt, kindakjöt,
kjötbúðing, svið, steikta lifur,
lifrarkaéfu og kihdakæfu, og til-
raunir eru hafnar með niður-
suðu á slátri.
Vörumiðar eru sérlega glæsi-
legii. Uppsetningu þeirra annað
ist Kristján Kristjánss'on, for-
stöðumaður teiknistofiu POR
með aðstoð Ijósmyndara auglýs-
ingadeildar danska santwinnu-
sambandsirts. Prentverk Odds
Rjörnssonar sá um prentun
þeirra og annarra umbúða.
Danskur pylsugerðar- og nið-
ursuðumeistari, Kurt Strand, hef
ir verið ráðinn um nokkurra
mánaða skeið sem ráðunautur
um framleiðsluaðferðir, nýjar
framleiðslugreinar og vörugæði.
Kjötiðnaðarstöðin verður undir
yfirstjórn Hauks P. Ólafssonar,
slá'tur- og frystihússstj'óra, en
kjötiðnaðarmeistari er Einar
Sigurðsson. Starfsmenn stöðVar-
innar eru um 30.
í 'hádegisverðarboði stjórnar
KEA í dag tók Ingólfur Jóns
son, landbúnaðarráðherra t-fl.
máls og mæltist efnislega á
þessa leið: í upphafi máls c'íns
þakkaði ráðherrann allar möt-
tökur og óskaði KEA til ham-
ingju með myndarlegt framtak,
þar sem hér væri risin stærsta
og fullkomnasta kjötiðnaðarstöð
á landinu. Hann taldi þetta nauð
synlegt framtak, þar sem fs-
lendingar væru að kalla byrj-
endur í þessum iðnaði. Raddir
hefðu heyrst um, að nauðsynlegl
væri að flytja inn erlendar lan.I-
búnaðarvörur vegna yfirburða á
gæðum, en gegn því yrðum við
að sporna. Því væri nauðsynlígt
að gera vörur okkar þannig úr
gaiði, að þær yrðu jafngóðar h;.n
um erlendu. Þess væri að vænta,
að vörur Kjötiðnaðarstöðvarinn-
ar yrðu jafngóðar hinu bezta
erlendis, þrátt fyrir miklar fram
farii þar á síðuustu árum. Hrá-
efnið islenzka væri gott og enn
gætum við bætt það með kyn-
bótum, betri fóðrun og betri með
höndlan. „Ég vildi með komu
minni hingað sýna“, sagði ráð-
herrann, „að ég tel, að hér sé
um merkilega framkvæmd að
ræða og að eftir henni er tekið.
Ég óska þess, að þeir, sem að
henni standa, verði ekki fyrir
vonibrigðum, og ég veit, að þeir
verða það ekki. Það, sem stjórn
og framkvæmdastjóri KEA taka
að sér, er alltaí myndarlega af
hendi leyst“.
Einnig tóku til máls þeir
Jakob Frímannsson, fram-
kvæmdastjóri KEA, Valgarður
Raldvinsson, settur bæjarstjóri,
deildarstjórarnir Kristinn Þor-
steinsson og Guðmundur Ketils
son og Jóhann Þorkelsson, hér-
aðslæknir. — Sv. P.
Haukur P. Olafsson, forstoðumaður Kjötiðnaðarstöðvarinnar, Ingólfur Jónsson Jandbúnaðar-
ráðherra, Jakob Frímannsson, framkvæmdastjóri og Svanbjörn Frímannsson, bankastjóri.
LEIKHÚSLÍF í ÓLAFSFIRÐI
LEIKFÉLAG Ólafsfjarðar sýnir
um þessar mundir sjónleikinn
„Mann og konu" eftir Jón Thor-
oddsen. Félagið hefur á undan-
förnum árum haldið uppi líflegri
starfsemi á hinu prýðilega sviði
félagsheimilisins Tjarnarborgar
og hefur auk þess ferðast til
nærliggjandi byggðarlaga með
sum verkanna. Af leikritum
undanfarinna ára má nefna til
dæmis „Gildruna", Tengda-
pabba", „Þrjá skálka" og „Ham-
arinn“ svo að eitthvað sé nefnt.
Fyrra verkefni félagsins á þessu
starfsári var „öldur“ eftir dr.
Jakob Jónsson og var það einnig
sýnt á Akureyri í byrjun þessa
árs. Leikstjóri beggja leikrita
Jiessa starfsárs hefur verið
Kristján Jónsson frá Reykjavík
og hefur hann einnig fært upp
nokkur fyrri viðfangsefni félags-
ins af forkunnar dugnaði og
vandvirkni. Leikmyndir flestar
hefur Kristinn G. Jóhannsson
gert hin síðari ár og auk þess
stjórnað einni uppfærslu.
Án tillits til fólksfjölda er ljóst
að Leikfélag Ólafsfjarðar hefur
unnið hið merkasta starf á und-
anförnum árum og fyllilega þess
vert að athygli sé vakin á því.
Þá bar það til tíðinda í vetur
að stofnað var leikfélag innan
Gagnfræðaskólans og valdi sér
að fyrsta verkefni gleðileikinn
„Enarus Montanus „eftir Holberg
og sýndi bæði hér heima og á
Dalvík undir stjórn skólastjór-
ans, Kristján G. Jóhannssonar.
Af þessu verður ljóst að Ólafs-
firðingar hafa ekki farið var-
hluta af leiklistinni í vetur og
hefur það vissulega lífgað
skammdegið til muna. Verkefni
það, sem nú er á fjölunum er
állerfitt í uppsetningu og fólks-
frekt en ekki verður annað séð
en leikstjórinn, Kristján Jónsson,
hafi þar enn firna vel að unnið.
Þá er ánægjulegt að nú koma
fram nokkrir eldri leikarar bæj-
arins, sem ekki hafa sézt á sviði
um árabil og nýliðar sem gefa
góðar vonir um áframhaldandi
grósku í leiklistarstarfi Ólafs-
firðinga. Leiktjöldin við „Mann
og konu“ voru fengin frá Leik-
félagi Fáskrúðsfjarðar en þar
Magnúsar Pálssonar, leikmynda-
teiknara.
Ráðgert mun að fara með
„Mann og konu“ í næstu byggðir
þegar sýningum er lokið hér
heima.
Hið mikla starf leikfélags Ól-
afsfjarðar hefur hvílt af mestum
þunga á stjórn félagsins en aðal-
stjórnin er skipuð þessum mönn-
um: Formaður Asgeir Ásgeirsson
son, gjaldkeri Stefán ólafsson og
ritari Sigmundur Jónsson.
Kr. Jóh.
Hanna Brynja Axelsdóttir, Freyja Bernharðsdóttir og Asgeir As-
geirsson í hlutverkum sinum.
Frá æfingu á „Manni og konu“: Baðstofulíf að Hlíð.