Morgunblaðið - 21.06.1967, Page 2
2
MORGUNBIjAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1967.
För Voznesenskys til
New York hindruð
Mosikivu, 20. júní — AP
VESTRÆNIR sérfræðingar í
menningarmálum í Moskvu létu
aS því liggja í dag, að Sovét-
stjórnin hefði komið í veg fyrir
að Andrei Voznesensky, skáldið
unga, færi til New York eins og
fyrirhugað var, vegna dvalar
Alexeis Kosygins, forsætisráð-
herra þar í borg.
Voznesensky átti að koma til
New York á morgun og lesa
upp úr ljóðum sínum á sumar-
hátíðinni í Lincoln Center. í
gær, mánudag, barst stjórn Lín-
coln Centers skeyti, þar sem
sagði: „Get ekki komið —
Voznesensky".
TaLsmaður sovézka rithöÆunda
satmbandsins, sem hefur alla uim
sjón með ferðum rithöfunda og
skálda, sem aðild eiga að þeim,
sagði, að Voznesensikiy gæti ekki
farið vegna veikinda, en vint-
ur hans einn vestrænn, reeddi
við hann í sírna í dag og komst
a@ raun um, að hann vár við
beztu heilsu. Þegar vinurinn
s-purði Vozneset.sky um fyrir-
huigaða ferð hans til New York,
vilidi hann ekkert um hana
segja.
Fregnir höfðu borizt um það
til New Yonk, að afturhaildss-am-
ir aðilar í rithötfundasamband-
inu h-efðu komið í veg fyrir, að
Voznesensky færi, en sú sikýr-
ing er talin óisennileg, að minnsta
kos-ti í hópi vesitrænna sérfræð-
inga í Mosfcvu. Þeir benda á að
Voznesensky hafi síður en svo
verið í ónáð hjá menningaryfir-
völdunum að undanförnu, enda
þótt hann sé sami þrákáltfurinn
og frjélslyndur sem áður. Hann
hefur þó ekkent Mtið til sín taka
deilurnar milili afturha-lidssamra
og frjálslyndra menntamanna.
Ribhöfundasambandið hafði
fyr.ir viku beðið bandaróska
sendiróðið að útbúa vegabréfs-
áritun fyrir Voznesensky, vegna
þes-sarar ferðar hans, sem er hin
þriðja til Vesturlanda á númu
ári. Hins vegar s-sndi samband-
ið svo aldrei vegabréf hans til
sendiráðsins, eins og um var
talað — en þá hafði Kosygin,
forsœtisráðherra, ákveðið s-kyndi
lega að fara til New York og
halda rœðu á AMisherjarþi-nginu.
Telja vestrænir sérfnæðingar
í Mos'kvu lang láklegast að
stjórnin sjálf hatfi kornið í veg
fyrir för sikáldsins.
Kosningaskemmtun
starfsfóíks D-listans
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN efnir til tveggja kosn-
ingaskemmtana fyrir þá fjölmörgu sem störfuðu fyrir
D-listann fyrir og á kjördag í Reykjavík.
Kosningaskemmtanirnar verða í Lídó og Hótel Borg
föstudagskvöld, 2. júní kl. 8.30.
Ómar Ragnarsson skemmtir og Finninn Manu sýnir
akrobatik
Miðar eru afhentir á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins
í Sjálfstæðishúsinu v/ Austurvöll (2. hæð) milli kl.
9 — 6.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Unglingadansleikur
DANSLEIKUR verður haldinn í kvöld 21. júní í Sig-
túni fyrir þá fjölmörgu unglinga sem störfuðu fyrir
D-listann fyrir og á kjördag.
Dansleikurinn hefst kl. 20 og lýkur kl. 23.30. Dátar
leika fyrir dansi og Finninn Manu sýnir akrobatik.
Miðar verða afhentir á skrifstofu Sjálfstæðisflokks-
ins í Sjálfstæðishúsinu v/ Austurvöll (2. hæð) milli
kl. 9 — 6 í dag.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Sigurður með guUverðlaunin.
Birgir ísl. Gunnailison
Nýir hæstu-
réttorlögmenn
SL. föstudag 16. júní, luku próf-
málum fyrir Hæstarétti tveir
nýir hæstaréttarlögmenn, þeir
Birgir ísl. Gunnarsson og Volter
Antonsson.
Birgir fsl. Gunnarsson er
fæddur í Reykjavík 19. júlí 19G6,
sonur hjónanna Jórunnar ísleifs
dóttur og Gunnars E. Benedikts-
sonar hrl. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1955 og emfoættis-
prófi í lögfræði við Háskóla ís-
lands 1961. Hann héfur setið í
borgarstjóm Reykjavíkur og
borgarráði síðan 1962 og jafn-
framt rekið málflutningsskrif-
stofu í Reykjavík.
Voiter Antonsson er fæddur
á Eyrarbakka 14. júní 1933 og
eru foreldrar hans hjónin Anton
Halldórsson, bryti, og Jónína
Islendingur hlýt-
ur gullverðlaun
— á norrænni frimerkjasýningu
NORRÆNA frímerkjasýningin,
Nordien, var haildin í Tarnby
ráðfoúsinu, dagana 1.—3. apríl
sl. Þátttakendur á sýningunni
voru frá öilum Norðurlöndunum
og var keppt um mörg verðlaun,
þeirra á meðal fánastöng með
fána Reykjavíkurborgar, gefinn
a-f borgarstjóranum í Reykjavík.
Æðstu gullverðlaun sýningar-
innar hlaut Sigurður H. Þor-
steinsson fyrir póstsögusatfn
sitt, þ.e. safn stimpla og heim-
illda um upphaf pósts og póst-
leiða á íslandi. Á alþjóðafrí-
merkja sýningunni Amphilex
1967 hlaut svo íslenzki frimerkja
verðlistinn, bronsverðlaun í
bókmenntadeild sýningarinnar,
en hann hetfur áður hlotið verð-
laun á Wipa og Sipe frímerkja-
sýningunum.
ísland gekk i alþjóðasamtök
frímerkjasa-fnari á þingi þeirra
í Amsterdam 23. maí sl. Full-
trúi íslands á fundinum var Sig
urður H. Þorsteinseon.
Hlýnandí loftslag útrým
ir haftyrðli á fslandi
Frú IVfaJa Egg-
ertsson látin
FRÚ Maja Eggertsson, eigin-
kona Árna Eggertssonar ræðis-
manns í Winnipeg lézt í fyrra-
dag þar í borg. Útför hennar
fer fram í dag.
ÖRNINN er ekki eini fugl-
inn, sem er að deyja út á
íslandL Nýlega frétti Mbl. af
því að haftyrðili sé að deyja
út og bjafði það samband við
Árna Waag, fuglafræðing og
spurði hann um málið.
Árni sagði, að líklega hefði
haiftyrðillinn aldrei verið
mjög algengur á íslandi.
Hann er hánorrænn fugl, sem
fylgir ísnum. Vitað er til
þess, að hann hafi or-pið á
tveiimur stöðum hér á 1-andi
WimWmmz
Sumar
— í Skoruvík á Langanesi og
í Grímsey. Haftyrðill er nú
horfinn úr Skoruvík, en eft-
ir munu vera 5 hjón í Gríms
ey í mesta lagi.
Almennt er talið — sagði
Árni — að orsök þess, hversu
haftyrðlinum fækkaði, sé sú,
að veðurfar hefur farið hiýn-
andi hér á landi. Fuglin-n, sem
er hánorrænn eins og áður er
sagt er í milljónatali á Spits
bergen og Jan Mayen, þar
sem hen-tugt lotftslag ríki-r.
ÍS rúá
si,?A
* V"f
Vctur .. :■ J
* ■;■, iív;;;.;,'- - ;; ■
í grein, sem dr. Finnur
Guðmundsson reit segir hann
tfrá sambandi hlýnandi veður
fars og breytingum á fjölda
fuglategunda. Er talið að haf-
tyrðill sé gleggsta dæmið um
þetta samfoand, en ein-nig
mun hávellu hafa fækkað eitt
hvað hér á landi atf sömu á-
stæðum.
Haftyrðill er af svarttfugla-
ætt og er þeirra lang minn-st-
ur. Er hann lítið eitt stærri
en skógarþröstur. svartur að
otfan og hvítur að neðan í
sumarbúningi eins og títt er
um svartfugla.
>ess má geta að algjörlega
er bannað að ónáða hatftyrð-
il við hreiður s.s. eins og
með því að ljósmynda fugl-
inn á hreiðri. Einnig er bann-
að að ónáða örn, fálka og snæ
uglu á hreiðri.
Dregið hjá
Lionsfélögum
Dregið hetfur verið í happ-
drætti Lionsumdæmisins á ís-
landi.
Þessi númer kom-u upp:
1. Flugferð Rvk.-Chicago-Rvk.
nr. 1404. 2. Flugferð Rvk.-Brúss
el-Rvk. nr. 12. 3. Kvikmynda-
tökuvél nr. 247. 4. Kvikmynda-
tökuvél nr. 233 . 5. Út-varpstæki
nr. 628. 6. Borðkveikjari nr.
848.
Volter Antonsson.
Gunnarsdóttir. Hann varð stú-
dent frá Menntaskólanum í
Reykjavík vorið 1953 með 1.
einkunn. Emfoættisprófi í lög-
fræði lauk hann vorið 1959 með
1. einkunn. Hann stundaði um
skeið blaðamennsku og kennslu,
var frá 1963 lögfræðingur í
Framkvæmdabanka íslands, nú
Framkvæmdasjóði. Héraðsdóms-
lögmaður varð hann 9. apríl
1963.
Áiehstnr og
bílvelta
í GÆR kl. 18.35 var allharður
árekstur á Reykjanesbraut á
móts við svokaliaðan Setbergs-
veg. Land-Rover og Volkswagen
lentu þar saman með þeim af-
leiðingum að Volkswagninn valt.
Fernt var í bifreiðinni, sem valt
og slasaðist eitt barn svo að
flytja varð það á sjúkrahús.
Land-roverinn ók norður
Reykjanesbraut og gaf stefnu-
ljós til hægri, en í sömu mund
ætlaði hin bifreiðin fram úr.
Kræktist stuðari Land-Roversins
i afturbretti Volkswagnsins og
valt hann a.m.k. tvær veltur að
sögn lögreglunnar.
f Volkswagninum voru hjón
með 2 börn. Meiddust bæði börn
in og kastaðist annað þeirra út
úr bifreiðinni. Flytja varð það
á sjúkrahús. Var Mbl. ókunnugt
um meiðsli þess í gærkvöldL
Árbæjorsaín
opnar í dag
ÁRBÆJARSAFN opnar í dag
eftir veturinn. í sumar verður
safnið opið alla daga frá kl. 2:30
til 6:30, nema mánudaga.
f vetur hafa tvö hús bætzt í
hóp þeirra, sem flutt hafa verið
að Árbæ. Eru það Hábær. og
Efstibær, sem stóðu á Skóivörðu
holtinu. Vinnu við húsin er ekíki
enn endanlega lo-kið og verða
þau því ekki opin gesbum fyrst
um sinn.
Presta-
stefnan
PRESTASTEFNUNNI var fram
haldið í gær og skiptust fundar
menn í umræðuhópa. Umræðu-
efni var helgisiðabókin. >á flutti
gestur Prestastefnunnar, s-éra
Gunnar Östenstad, starfsmaður
Lútherska heimssambandsins,
erindi, er hann kallaði: Ábyrgð
kristins safnaðar.
Prestastefnunni lýkur í dag.
17 þúsimd lesta skip
í Hafnarfjarðarhöfn
UNDANFARNA daga hefur leg-
ið í Hafnarfjarðarhöfn 17 þús-
und lesta enskt flutningaskip.
Flutti það tilbúna húshluta, er
fóru til Keflavíkurfluigval-lar. f
gærkvöldi var svo væntanlegt
annað skip af svipaðri stærð, og
var það með sama farm. Eru
þetta stærstu skip sem legið hafa
í Hafnarfjarðarhöfn. Var a-llgott
fyrir skipið að athafna sig i
höfninni, sem mun vera ein
dýpsta höfn landsins.