Morgunblaðið - 21.06.1967, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKÚDAGUR 21. JÚNÍ 1967.
Verða Grímseyingar kýrlausir?
MTTA Grímseyjarbréí sendi
Einar djákni Einarsson undir-
rituðum í byrjun sauðburð-
ar, þegar frost og kólga og
naprir norðanvindar herjuðu
þessa nyrstu byggð íslands og
raunar landið allt. — En
Grímseyingar voru bjartsýn-
ir og trúðu því að úr myndi
rætast fyrr en síðar. — Og
varð þeim að trú sinni.
G. Br.
Landbúnaður mun hafa verið
hér í langan tíma svipaður frá
áxi til áns, að hverfandi litlu
munar. Verða því einkum
beztu og verstu árin þau einu,
•em frásag.narverð geta talist.
Gífurleg harðindi og graslieysi
hafa sbundum komið hér, (sjálf-
*agt meiri og fleiri en sagnir
eru til um), eins og t.d. sumarið
eftir frostaveturinn 1918. Þá var
hér grasleysi svo mikið, að
meiri hluti trúmanna var lítt
eða ekki sláandi.
Það, sem ég set hér, er eftir
frásögn Magnúsar Símonarson-
*r hreppstjóra, en hann hefur
ekýrslur um búnað hér um
nokkuð langt árabil.
Eins og að líkum Tætur, eru
fiskiveiðar aðalatvinna eyjar-
skeggja. Þó hefur landbúnaður
alltaf verið nokkur og stundum
verulegur, með tilliti til að-
stæðna og íbúatölu. Þannig var
árið 1938 heyfengur 1000 hestar,
en þá voru á eynni 24 mjólk-
andi kýr, eitt naut, 5 hross, 359
kindur og 16 hænsni. En árið
1941 mun þó vera metár í bún-
aðarsögu Grímseyinga. Þá var
heyfengur 1100 hestar og þá
voru á fóðrum 449 kindur, 27
nautgripir 3 hestar og 120 hænsni.
Það ár voru einnig ræktaðar 63
iunnur af kartöflum og 10 tunn-
ur af gulrófum, hefir aldrei ver-
ið hér slíkt matjurtauppskera,
fyrr né síðar, svo kunnugt sé.
Bftir það fer landbúnaður
heldur minnkandi og ber þar
sitthvað til, einkum það, að á
stríðsárunum og eftir þau fer
fiskverð hækikandi og því eðli-
lega lögð megináherzla á að afla
sem mest. Ýmsir verzlunarhætt-
ir o.fl. breyttist einniig og nálg-
uðust það horf, sem nú er um
fl’est það, er að verzlun1 lýtur.
Nú í ár mun búskapur vera
Frá ráðstefnu norr-
ænna æskulýðsleiðtoga
DAGANA 9.—12. maí sl. var
haldin í Kaupmannahöfn ráð-
stefna norrænna æskulýðsleið-
toga (Den nordiske ungdoms-
lederkonference). Til ráðstefn-
unnar bauð borgarstjórn Kaup-
mannahafnar um 140 fulltrúum
ailra stærstu borga Norðurlanda,
en fulltrúar Reykjavíkur voru
þau Kristín Gústavsdóttir fé-
lagsráðsgjafi og Gunnar Bjarna-
®on leiktjaldamálari en þau eiga
bæði sæti í Æskulýðsráði, og
IReynir G. Karlsson framkvæmda
Btjóri Æskulýðsráðs. Ráðstefnan
Var haldin í tilefni 800 ára af-
mælis Kaupmannahafnar. Verk-
efni ráð.stefnunnar voru einkum
aeskulýðsmál stórborga Norður-
landa, aðstaða aeskufólks í nýj-
um borgarhlutum, álhrií fjöl-
imiðlunartækja á unga fólkið og
spurningin um það, hvernig
unnt er að ná til hinna ungu.
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á ráðstefnunni: ,,Á ráð-
Btefnu norrænna æskulýðsleið-
toga í Kaupmannahöfn dagana
9.—12. maí 1967 urðu menn um
það sammála, að æskulýðsleið-
togar stórborganna þörfnuðust
nauðsynlega nákvæmari og
skipulagðari þeklkingar á hug-
sjónum, þörfum og óskum unga
fólksins. Nauðsynlegt er, að þeir
sem fást við æskulýðsmál fái
stöðugt upplýsingar um árangur
rannsókna og kannana á þessu
sviði. Einnig að sérfræðingar í
æskulýðsmálum og leiðbeinend-
ur og leiðtogar er vinna með
unga fólkinu komi saman og
ræði um þær niðurstöður, er
með rannsóknunum fást, og þörf
nýrra rannsókna, Vafalaust yrði
það hagkvæmast, að starf þetta
yrði unnið á samnorrænum
grundivelli. Auk þess væri æski-
legt að stofnsetja nefnd eða ráð
norrænna sérfræðinga á þessu
sviði, svo sem félagsfrœðinga,
félagsráðgjaifa, sálfræðinga o. fl.
Gaetu þeir þannig veitt hver öðr-
um mjög greiðlega upplýsingar
um hinar fjölbreytilegu rann-
'sóknir og kannanir í æskulýðs
málum, og ráðgast um nýjar.
Ráðstefna norrænna æskulýðs-
leiðtoga vOl beina því til Norð-
urlandaráðs að það taki frum'
kvæðið í þessu máli og komi
því í framkvæmd“.
með allra minnsta móti, svo að
helzt er útlit fyrir að t.d. naut-
peningsrækt leggist með öllu
niður. Ber þar til, að nú er
hægt að fá mjólk frá Afcureyri,
hraðkælda — að vísu nokkuð
dýra, — en ekki svo sem nemur
fyrirhöfn og kostnaði við kúa-
hald. Nú eru hér 6 kýr, einn
vetrungur (naut), 386 kindur, 78
hænsni og 3 hross. Heyskapur var
hér s.l. sumar 10—1100 hiestar.
En svo var veturinn harður og
vorið, það sem af er, að hey-
laust er nú að kalla og gengur
illa að fá hey úr landi. Er því
einkum á kjarnfóður að treysta,
og þá litlu nurtu af súrheyi, sem
enn er til. Sauðburðux er byrj-
aður á öllum bæjum og hefur
gengið eftir atvikum vel. En
gróðurlaust má heita með öllu
og verður að gefa lambám, þótt
geldfé sé látið naga sinu frá
vetrinum. Mikill snjór er hér
ennþá og oft frost á nóttum eða
við frostmark. Fiskafli er hér
neesbum enginn núna, en það
lagast nú vonandi.
Margir óttast að grassprefta
verði lítil í sumar, þótt frost sé
ekki mikið í jörðu, því að haf-
ísinn, sem hér er á naesbu grös-
um, veldur sólarleyisi og kulda-
næðingur, sem hefta gróður.
Þokur og ísing eru tíðir gestir.
En þrátt fyrir þetta held ég að
svartsýni gæti ekki að ráði hjá
fólkinu hér og það er ég viss um
að hvenær sem sólin brýzt gegn
um kuldaskýin munum við
gleyma þokunni og ísingunni og
sogja með Stefáni frá Hvítadal:
. . Það er ekki þörf að
kvarta,
þegar blessuð sólin skín**.
Og ailir vona að sólin komi
og bræði klakann. Við byggjum
trú okkar á þeirri von og v ism,
að ljósið sigri myrkrið, hér sem
annarsstaðar, að lokum.
Ýmsar framkvæmdir hafa ver-
ið gerðar hér á seinustu árum
einfcum í byggingum. Fiskimjöls-
verksmiðja hefur verið byggð og
stórt félagsheimili er í smíðum
og nú er Kaupfélag Eyfirðing*,
K.E.A., að láta gera hér frystá-
geymslu fyrir fisk, sem sefjast
á til neyzlu á Akureyri.
125 nemendur í Héraðs-
skolanum á Laugarvatni
HÉRAÐSSKÓLANUM á Laugar
vatni var slitið að kvöldi 29.
maí síðastl. t skólaræðu sinni
minntist Benedikt Sigvaldason
skólastjóri skólanefndarmanna,
er látizt höfðu á skólaárinu,
þeirra Böðvars Magnússonar á
Laugarvatni og Skúla Gunn-
laugssonar i Bræðratungu.
Einnig hafa á síðasta ári látizt
Teitur Eyjólfsson frá Eyvindar-
tungu, er lengi var annar aðal-
endurskoðandi skólans. For-
mannaskipti höfðu einnig orðið
í skólanefnd héraðsskólans á
síðasta vetri. Sigurður Ó. Ólafs-
son lét af starfi formanns, en í
hans stað var skipaður formaður
Guðmundur Daníelsson rithöf-
undur og skólastjóri á Eyrar-
bakka.
Nemendur skólans voru í vet-
ur 125 í 5 bekkjardeildum. Próf-
um í I. og II. bekk lauk 5. maí.
Hæstu aðaleinkunn í I. bekk
hlaut Erlingur Brynjólfsson frá
Galtastöðum í Gaulverjabæjar-
hreppi: 8.02, en í II. varð hæst-
ur Hallgrímur Guðjónsson frá
Ytri-Njarðvík. 8,30.
Undir gagnfræðapróf gengu
27 nemendur, og stóðust það al’l-
ir. Hæstu aðaleinkunn á gagn-
fræðaprófi hlaut Helga Jónsdótt
ir frá Akureyri, 8.73. — Undir
landspróf miðskóla gekk 21
nemandi, og fengu 20 þeirra
framhaldselnkunn í landsprófs-
gfeinum. Hæstu meðaleinkunn í
landsprófsdeild h'laut Haukur
Halldórsson frá Dýrastóðum í
Norðurárdal, 8,18.
Auk verðlauna frá skólanum
fyrir hæstu aðaleinkunnir á
gagnfræðaprófi og landsprófi
afhenti skólastjóri verðlauna-
bækur frá danska sendiráðinu í
Reykjavík til nemenda, er sýnt
höfðu sérlega góða kunnáttu í
dönsku. Þau verðlaun hlutu
Helga Jónsdóttir frá Akureyri
og Borgþór Arngrímsson frá
Höfn í Hornafirði.
Heilsufar var gott 5 skólan-
um síðasta vetur. Guðný Jónsd.
hjúkrunarkona starfaði enn sem
fyrr hjá öllum skóilum Laugar-
vatns sameiginlega. — Árs-
hátíð héraðsskólans var haldin
11. marz. Fór hún vel fram, en
var ekki sérlega fjölsótt vegna
slæms tíðarfars um þær mund-
ir. Nemendur fóru að vanda t
svokaldaða leikhúsferð til Reykj*
víkur. Ýmsir leikflokkar sóttu
Laugarvatn heim á skólaárinu.
Hinn 21. maí fékk skólinn heim-
sókn 20 ára gagnfræðinga. Þor-
kell Bjarnason á Laugarvatni
hafði orð fyrir þeim og skýrði
því, að í tilefni af gagnfræða-
afmæli sínu hyggðust þeir gefa
skólanum rismynd af Þórði Krist
leifssyni, er í 33 ár var mikils
metinn kennari við skólann.
Skólastjóri fór að lokum sér-
stökum viðurkenningarorðum
um nemendur þá, sem voru að
kveðja skólann að loknum loka-
prófum þar fyrir sakir óvenju-
legrar háttvísi og l'júfmennsku
í alíri framkomu þeirra. Öðrum
skólum á Laugarvatni og öllu
samstarfsfólki þakkaði hana
gott og farsælt samstarf á liðnu
skólaári.
Að skólaslitum loknum héldu
nemendur af stað í skólaferðalag
til Norðurlands undir fararstjórn
Ósfcars ólafssonar og Helga „
Geirssonar kennara.
íbúð í Hlíðunum til sölu
Efri hæð og ris ásamt bílskúr til sölu, sameigin-
lega eða í tvennu lagi. Útsýni yfir Miklatún.
Upplýsingar í síma 12388 kl. 5—8.
■
NYTT frá NOXZEMA
TropicTai?
sólarolía og lotion gerir yður eðlilega
brúna á styttri tíma en nokkur
önnur sólarolía.
Tropic Tan sólaráburður er seldur
og notaður um allan heim við geysi-
legar vinsældir.
Sannfærizt og kaupið Tropic Tan
sólarolíu strax í dag.
Tropic Tan fæst í öllum lyfja- og
snyrtivöruverzlunum um land allt.
Heildsölubirgðir:
Friðrik BerteBsen
Laufásvegi 12, sími 36620.