Morgunblaðið - 21.06.1967, Síða 15
MOROUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 21. JUNt 1901.
15
Um 17. júní - hátíðahöldin
og fleira árið 1945
OTflNTN 17. júní síðastliðinn héldu
íslendingar hátíðlega af mikilli
fcurteisi 23. ártíð lýðveldisins.
Klukkum var hringt, Jóns Sig-
urðssonar var minnzt með ræð-
nm og blómsveigum, og kórar
irm land allt kyrjuðu sálma og
ættjarðarljóð. Það voru farnar
skrúðgöngur, og lúðurþeytarar í
Sveinn Björnsson
litklæðum dilluðu göngufólkinu
með hornakvaki. Trúðar og
töframenn, leikarar, söngvarar
og búktalarar skemmtu börnum
og fullorðnum. Forsætisráðherr-
ann og fjallkonan ávörpuðu þjóð
ina. íþróttamenn kepptu um
glæsta bikara, og hátíðargestum
gafst kostur á að skoða „þarf-
asta þjóninn" og arftaka hans á
bifreiðastæðinu vestan iþrótta-
leikvangsins. Síðan voru þeytt-
ir sönglúðrar og sýndir þjóðbún
ingar.
Þegar komið var kvöld hófst
dansskemmtan með sérstöku til-
liti til unglinga, þar sem hljóm-
sveit Ólafs Gauks lék fyrir
dansi, og þar að auki tveir tón-
listarflokkar aðrir, sem bera
þau framahdlegu nöfn „Lúdó"
og „Toxic“. Mig minnir, að um
það leyti, er ég var að vaxa úr
grasi, hafi þeir ,Lúdó-menn“
fcennti sig við hundkvikindi
nokkurt sem frægt er í skrípi-
myndum, og nefnt hljómsveit-
ina ,,Plúdó“, en síðan fellt einn
staf framan af og þannig fengið
út nafnið „Lúdó“, sem reyndar
er rammasta latína og merkir:
JÉg leik mér". Hitt nýyrðið,
„Toxic“, hefur ekki jafnléttúð-
uga merkingu, því að enskt orð,
sem er alveg eins skrifað þýðir
á voru máli ,sem viðkemur eitri,
eitraður". En þessi skrif eru nú
farin að fjalla um annað en í
upphafi var gert ráð fyrir.
— Veðurguðirnir hafa löngum
verið lítt hliðhollir útiskemmt-
unum og hátíðabramibolti hér á
landi, og 17. júní síðastliðinn
gerðu þeir ýmsar mannanna
fyrirætlanir að engu. í Vest-
mannaeyjum, Stykkishólmi,
Keflavík og víðar, varð að
'breyta eða jafnvel fella niður
ýmis dagskráratriði. En þrátt
fyrir öll veðurskilyrði var þjóð-
in samtaka um að fagna þess-
ari hátíð sjálfstæðisins og minn-
ast hinnar löngu frelsisbaráttu,
hver maður á sinn hátt.
En nú væri ekki úr vegi að
skyggnast lítið eitt aftur í for-
tíðina, — ekki margar aldir aft-
ur i tímann — heldur til ársins
1945, þegar fslendingar bjuggu
sig undk að gleðjast yfir fyrsta
afmæli Lýðveldisins fslands.
Klukkan 1 eftir hádegi hinn
8. dag maímánaðar 1946, endur-
varpaði ríkisútvarpið ræðu
Churchills, þar sem hann til-
fcynnti, að hinir stríðandi Þjóð-
verjar hefðu lagt niður vopn og
gefizt upp skilyrðislaust. Styrj-
öidinni 1 Evrópu var lokið. Að
vísu héldu Japanir, synir sólar-
innar, stríðinu áfram, en það
stríð var háð hinum megin á
hnettinum, fjarri bæjardyrum ís
lendinga, og snerti okkur ekki
eins náið. Það var ekki fyrr en
1. september 1945, nákvæmlega
6 árum eftir að styrjaldarbrjál-
æðið hófst, sem uppgjafarsamn-
ingur Japana var undirritaður,
og Japan hafði beðið ósigur í
fyrsta sinn.
Seinna um daginn fluttu for-
seti íslands og forsætisráðherra
ræður af svölum Alþingishúss-
ins, og biskupinn yfir íslandi
söng messu í Dómkirkjunni.
Þessi farsælu endalok blóðug-
ustu styrjaldar, sem mannkynið
hefur háð, eru efalaust hið merk
asta, sem við bar á fyrsta ári
lýðveldisins. — Það ár hafði
samt verið eftirminnilegt og við
burðaríkt. Ný ríkisstjórn tók
við völdum 21. október 1944, ný-
skipunarstjórnin, sem mynduð
var af þrem flokkum, Sjálfstæð-
isflokknum, Alþýðuflokknum og
Sósíalistaflokknum. Hana studdu
32 þingmenn af 52. Forsætisráð-
herra var Ólafur Thors, og aðrir
ráðherrar í stjórninni voru Pét-
ur Magnússon, Emil Jónsson,
Finnur Jónsson, Brynjólfur
Bjarnason og Áki Jaköbsson.
Á árinu hafði stríðið heimtað
fórnir af Íslendingum, engu síð-
ur en öðrum þjóðnum. — f nóv-
ernber 1944 sökkti þýzkur kaf-
bátur Goðafossi undan Garð-
skaga, — skipið sökk á örfáum
mínútum og 24 fórust. í febrúar-
mánuði næsta árs var Dettifossi
einnig sökkt, — þar hurfu í haf-
ið 15 manns.
En þrátt fyrir stríðið gekk 1íf-
ið í landinu sinn gang. Snorri
Hjartarson og Halldór Laxness
og fleiri skáld gáfu út bækur,
og Kjarval hélt málverkasýn-
ingu, þar sem kaupendur voru
álíka gírugir og hefði verið út-
sala í áfengisverzluninni.
Lárus Salómonsson, lögreglu-
þjónn, skaut sel með skamm-
byssu á 40 metra færi, — geri
Oýrlingurinn og Harðjaxlinn bet
ur, og húsvilltur minkur olli
uppnámi á dansleik á Hótel
Borg, þar sem kvenfólk stökk
með hvíi og skrækjum upp á
stóla og borð og stóð þar unz
einn riddaralegur maður greip
það sem endi var næst, brenni-
vínsflösku, og greiddi minknum
höfuðhögg, svo að hann lá í
óviti.
Þjóðhátíðardaginn, 17. júní
1945, bar upp á sunnudag. Vik-
an fram að þeim degi leið án
stórtíðinda, en eigi að síður er
gaman að fletta Morgunblaðinu
í þeirri viku til að sjá sjálft
bæjarlífið endurspeglast, og
reyna að lilfa sig inn í tíma sem
eru liðnir og koma aldrei aftur.
í Morgunblaðinu þriðjudag-
inn 12. júní 1945 kennir margra
grasa. Frétt dagsins er, að
ástralskar hersveitir séu gengn-
ar á land á Borneó. Þar er
einnig skýrt frá því, að útsvörin
séu lægri en í fyrra, og 50 skatt-
greiðendum sé gert að borga 100
þúsund krónur eða meira í skatt
og útsvar. Hæstu gjaldendur eru
Kveldúlfur h.f. 2.612.487 kr.,
Fylkir h.f. 609.319 kr„ SÍS
436.723 kr., Bergþór E. Þorvalds-
son, heildsali, 431.101 kr. og
íSlippfélagið h.f. 428.979 kr.
Þótt fæstum sé á móti skapi
að komast í blöðin má gera ráð
fyrir, að fáií vilji það til vinna
að hljóta hæstu tölurnar í skatt-
skránni til að fá nafnið sitt á
prent.
Vísitalan þennan góðviðrisdag
í júní fyrir 23 árum hafði verið
reiknuð og reyndist vera 275
stig.
í Happdrætti Háskóla íslands
var drætti í 4. flokki lokið, og
hæsti vinningur, 15 þúsund krón
ur kom á miða númer 1008. Næst
hæsti vinningur var 5 þúsund
krónur og auk hans voru ýmsir
vinningar á 2000, 1000, 500, 320
og 200 krónur.
Eins og venjulega var hægt að
lesa í Morgunblaðinu ýmsar
fregnir og auglýsingar úr
skemmtanalífinu. Þeir, sem ekki
hugðust sitja heima gátu valið
um kvikmyndahús eða knatt-
spyrnu: Knattspyrnumót Reykja
Víkur í kvöld kl. 8.30 — KR og
Valur. KR vann síðast. Vinnur
Valur nú?
Þeir, sem ekki höfðu áhuga á
gönguferðum eða kaffihúsaset-
um, gátu valið um þrjú kvik-
myndahús.
Nýja bíó: Ali Baba og hinir
40 ræningjar. (Litskreytt æfin-
týramynd. Aðalhlutverk: Jon
Hall, Maria Montez og Thuran
Bey. Sýnd kl. 5, 7 og 9).
Tjarnarbíó: í háalofti. (Bráð-
skemmtileg músik-, dans-,
trúða- og fimleikamynd með
Eleanor Powell. Sýnd kl. 5, 7,
og 9).
Gamla bíó: Hrói Höttur. (Lit-
mynd með Erroll Flynn kl. 5).
Viðbúnir til atlögu. (Amerísk
sjóhernaðarmynd. Bönnuð börn-
um innan 14 ára. Aðalhlutverk:
Robert Taylor og Charles Laugh-
ton. Sýnd kl. 7 og 9).
Þegar menn voru komnir á
skrifstofuna miðvikudaginn 13.
júní 1945, gátu þeir lesið í
Morgunblaðinu, að daginn áður
var Eisenhower ákaft fagnað 1
Lundúnum, er hann var gerður
að heiðursborgara.
Þar gaf einnig að líta frétta-
tilkynningu frá rrkisstjórninni,
þess efnis að Rögnvaldur Sigur-
jónsson hefði haldið píanótón-
leika í National Gallery of Art
í Washingtonborg. Meira en
1000 gestir skutu upp kollinum,
og að tónleikunum afstöðnum
var gestamóttaka til heiðurs
Rögnvaldi á heimili íslenzka
sendiherrans.
Önnur forsíðugrein skýrir frá
því, að komið hafi upp úr kaf-
inu, að fyrsta flugvél, sem
Bandaríkjamenn skutu niður í
stríðinu, var skotin niður yfir
fslandi. Það afrekaði Joseph B.
Shaffer nokkur flugliðsforingi,
14. ágúst 1942.
Inni í blaðinu kennir margra
grasa. Þar er löng grein tun
bændaför Suður-Þingeyinga um
Suðurland, og lítil klausa, sem
flytur þann fagnaðarboðskap, að
heilsufar manna á Bretlandi sé
nú allgott.
Framhaldssagan heitir „Á
sama sólarhring“ eftir Louis
Bromfield og þetta er 66. hluti
hennar.
Hjá Haraldi Hagan, Austur-
stræti 3, er sérstaklega fallegur
silfurrefur til sölu.
Á vellinum kvöldið áður tókst
Val að hefna fyrri ófara með því
að sigra KR með 4:0.
Dansleikur á Röðli í kvöld kl. 10.
Aðgöngumiðar á staðnum, Hljóm
sveit hússins.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
„Gift eða ógift“ — skopleik 1
þremur þáttum eftir J. B. Priest
ley kl. 8.
Tjarnarbíó hefur skipt um
myndir og sýnir nú kl. 5, 7 og 9
„Mongólíu", rússneska þjóðlifs-
mynd frá Mongólíu, og rússnesk-
ar fréttamyndir í kaupbæti.
Og þannig leið hinn 13. júni
1945 hér í Reykjavik, öðrum dög
um líkur, en þó einstæður og
óafturkallanlegur.
Fimmtudaginn 14. júni var frá
því skýrt, að ákveðinn hefði ver
ið staður og stund fyrir ráð-
stefnu „hinna þriggja stóru“ til
að þeir gætu ákveðið, hvernig
málum skyldi skipað að stríðinu
loknu, en ekki er sagt hvar né
hvenær sú ráðstefna skuli hald-
in.
Þá er einnig tilkynnt, að
landsfundur Sjálfstæðisflokksins
verði settur kl. 5 um daginn í
sýningarsalnum við Kirkju-
stræti. Formaður flokksins, Ólaf
ur Thors forsætisráðherra, ræð-
ir stjórnmálin frá síðasta lands-
fundi.
í síðustu viku lönduðu tíu
botnvörpungar í Englandi. Gengi
sterlingspundsins er 26.22 krón-
ur.
I.K. dansleikur verður í Al-
þýðuhúsinu í kvöld kl. 10.
Ólafur Thors
Gömlu og nýju dansarnir. Að-
göngumiðar frá kl. 6. Sími 2826.
Ölvun bönnuð.
Tjarnarbíó hefur nú enn skipt
um mynd og sýnir hið ágæta
sjónarspil „Söng vegfarandans“,
og Silli & Valdi auglýsa vanillu-
stengur, stórar og safamiklar.
Þannig leið vikan fram að 17.
júní 1945. Þegar hann rann upp
var ekki útlit fyrir gott veður,
fremur en árið áður, en er leið
á daginn glaðnaði til, og úti-
skemmtanirnar fóru fram I
Hljómskálagarðinum af mikilii
prýðL
Þjóðhátíðarnefnd hafði ákveð
ið, hvernig hátíðarhöldunum
skyldi háttað:
8.00 Fánar dregnir að hún.
1.30 Biskupinn yfirt íslandi, dr.
Sigurgeir Sigurðsson, mess
ar í Dómkirkjunni.
2.10 Forseti fslands leggur
blómsveig að minnisvarða
Jóns Sigurðssonar.
2.20 Forsætisráðherra og borg-
arstjóri flytja ræður af
svölum Alþingishússins.
2.45 Gengið verður í skrúð-
göngu til íþróttavallar.
3.00 17. júní mótið sett að við-
stöddum forseta íslands.
8.30 Kvöldskemmtanir hefjast 1
Hljómskálagarðinum. Sig-
urður Eggerz, fyrrverandi
forsætisráðherra, flytur
ræðu.
Almennur söngur undir
stjórn Páls ísólfssonar.
(Þjóðkórinn).
Lárus Pálsson leikari og
fleiri lesa ættjarðarkvæði.
Karlakórinn Fóstbræður og
Karlakór Reykjavíkur
syngja.
Lúðrasveit Reykjavíkt’r
leikur og Pjetuir Jónssoni
óperusöngvari, syngur við
undirleik hennar.
Að þessum dagskráratriðum
loknum var stiginn dans til kl.
2:00 eftir miðnætti á 300 fer-
metra stórum palli, sem reistur
hafði verið í tilefni dagsins.
Þjóðhátíðarnefnd hlutaðist til
um, að engar félagsskemmtanir
væru haldnar í samkomuhúsum
bæjarins og skoraði á borgarana
að neyta áfengis í nófi og á bqrn,
þeirra að ganga um með lþla
íslenzka fána til að gera sitt til
að auka á hátíðarblæ dagsins.
Þennan 17. júní fyrir 23 árum
brautskráði Verzlunarskóli fs-
lands stúdenta í fyrsta sinn.
Hópurinn var ekki ýkja stór,
— sjö nýstúdentar, sem ásamt
félögum sínum í Menntaskólan-
um í Reykjavík tóku þátt í há-
tíðahöldunum þennan júnídag á
fyrsta afmæli Lýðveldisins ís-
lands. ^
— Þráinn.
Þeir skemmtanasjúku hafa nú
úr nógu að velja í næturlífinu:
Frá hátíffarhöldunum 17. júní 1945.