Morgunblaðið - 21.06.1967, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1967.
17
Stefunía H. Guðna-
dóttir sjötug
SJÖTUG er í daig Steíanía Hall-
dóra Guðnadóttir, nú til heimilis
að Kirkjuivegi 45 í Ketflaivík.
Stefanía er fædd í Hælavík á
Hornströndum, dóttir hjónanna
Guðna Kjantanssonar og Hólim-
fríðar fsleifsdóttur. Hún ólst u.pp
hjá foreldrum sínum oig átti
heimili hjá þeim þar til hún
gitftist ■ Sigurði Sigurðssyni, sem
einnig óLst að mestu leyti upp
í Hælavík. Þau gengu í hjóna-
band 5. nóvem'ber árið 1917 og
bjuggu í Hælavík til ársins 1936,
er þau fliuttiust til Hesteyrar. Þar
var Sigurður símstöðvarstjóri
næstu 10 árin.
Börn þeirra hjóna urðu 13, en
2 þeirra létust í bernsku. Hin
eru öll uppkomin og búsett víðs
vegar um landið. Má geta þess,
að elzta dóttir þeirra er hin
landsikunna skáLdkona, Jafcobína
Sigurðardóttir.
Það liggur í augum uppi, að
hlutverk Stefaníu var engan
veginn létt eða auðvelt á með-
an börnin voru að vaxa upp. En
hún var vandanum fyllilega vax
in og lá aldrei á liði sínu. Marg-
ir foreldrar hafa vafalaust getf-
ið börnum sínum meiri jarð-
neska fjármuni að veganesti út
í lífið en þau Stetfanía og Sig-
urður gerðu. En þó hygg ég, að
þau hafi mjög mörgum börnum
auðugri að heiman farið úr for-
eldrahúsum. Því að svo nauðsyn
legir og nytsamir sem fjármun-
irnir eru, þá hafa þó hin and-
legu verðmæti langtum meira
gildi, þegar út í lífið er komið.
Það var m.a. skoðun Stefaníu
og Sigurðar, að hiklaust má full-
yrða að reynslan hafi sannað
þeim, að sú skoðun var ekki á
sandi reist.
Árið 1946 fluttust þau hjónini
alfarin atf Ströndunum ' og sett-
ust að í Keflavík. Þar beið
þeirra það þungbæra hlutskipti,
að Sigurður var rúmliggjandi
sjúklingur í meira en áratug.
samfleytt. AUan þann tima stóð
Stefania traustan vörð við
sjúkrabeðinn og hjúkraði manni
sínum af þeirri ástúð og um-
hyggju, sem aldrei biiaði eða
brást.
Fyrstu kynni mín af Stefaníu
urðu á þann veg, að mér varð
fullljóist, að þar var engin með-
almanneskja á ferð hvað gáfur
snerti. Og nánari samskipti við
hana og heimili hennar hafa
leitt það ótvirætt í ljós, að hún
er gædd miklu líkams- og sál-
arþreki. En það sem mér finnst
þó mest um vert, í fari hennar,
er góðvild hennar í alira garð,
góðhugur og sálargöfgi. Hún er
í hópi þeirra alitotf fáu, sem
breiða birtu í kringum sig og
hafa bætandi áhrif á allt um-
hverfi sitt.
Sjálf vill Stefanía ekkert af
sínum verðleikum vita og alis
ekki um þá ræða. „Hafi mér
auðnazt að koma einihverju
góðu til leiðar í lífinu“. segir
htin, „þá er það ekki mín dyggð,
heldur er það Homum að þakka,
sem yfir okkur öllum vakir, —
Hanum, sem hefir leitt mig,
stutt mig og blessað á liðnu
æviskeiði.
Kæra Stefanía mín. Ég er
þakklátur fyrir okkar kynni. Þú
og þið hjónin hafið glatt og
styrkt trú mína og sigurmátt
hins góða í tilverunni.
Guð blessi þig á merkum tíma
mótum og haldi héðan í frá sem
hingað til verndarhendi sinni
yfir þér og þínum.
Þess skal að lokum getið, að
Stefanía verður ekiki heima í
dag. En laugardaginn 24. þ.m.
dvelur hún að Vestur-götu 2il í
Keflavíik og tekur þá á móti
vinum sínum, sem vilja flytja
henni hamingjuóskir í tiletfni af
mælisins.
Bj. J.
- UTAN UR HEIMI
Framihald af bls. 14.
á hæð og rödd hans og útlit
svipar mjög til John F.
Kennedy. Hinn látni forseti
sagði eitt sinn um gamanleik-
arann Vaughn Meader, sem
vanur var að herma eftir hon-
um, að „hann líktist meira
bróður mínum Teddy“.
Limaburður Edwards,
handahreyfingar hans, þegar
hann vill leggja áherzlu á
eitthvert atriði, minna á John
Kennedy.
Á tímabili var talsvert
rætt um Edward sem hugsan-
legt forsetaefni á göngum
Öldungadeildarinnar og í
siðdegisveizlum, en það tal
rénaði síðan aftur. Edward
sjálfur skýtur sér undan
spurningum varðandi mögu-
leika hans sjálfs eða bróður
hans á því að komast í fram-
boð sem forsetaefni.
Hvað er takmark hans
sjálfs? „Það sem ég er að
reyna að gera í Öldungadeild
inni er að vinna uppbyggj-
andi starf fyrir landið og
heimafylki mitt“.
Samstarfsmaður Kennedy-
anna setur málið skýrar
frarn: „Teddy hefur ekki
verið næstvaldamesti maður
landsins, — en það hefur
Bobby verið. Hann veit
hverju hægt er að koma í
framkvæmd í Hvíta húsinu".
Róbert Kennedy tók sæti í
Öldungadeildinni áTÍð 1964.
Hann var þá þegar fræg per-
sóna í opinberu lífi og átti
að baki feril sem dómsmála-
ráðherra, og samband hans
við Johnson forseta var orð-
ið þvingað.
Edward kom til Washing-
ton, þegar Jóhn F. Kennedy
tók við í Hvíta húsinu og all-
ur stjórnmálaheimur borgar-
innar beið eftir að Edward
yrðu á fyrstu mistök sín.
Hann leys-ti þann vanda mieð
því að halda sig frá Hvíta
húsinu og taka við hinu lítft
áberandi hlutverki nýliða í
Öldungadeildinni. Hann
ræddi aðeins við blaðamenn
frá heimafylki sínu og forð-
aðist meira að segja sjón-
varpsmenn.
Hann leysti atf hendi hið
lítilvæga starf nýliða í deild-
inni að sitja í forsæiti á hinum
langdregnu fundum. Þar var
hann 22. nóv. 1963, þegar
skilaboð komu um, að Kenne-
dy forseti hefði verið skotinn.
Edward fékk fregnina frá
dyraverði í Öldungadeildinni
og bað samþingmann sinn að
taka við forsæti og hélt út úr
salnum.
Jafnvel þá voru fjórir mán-
uðir, unz hann flu'tti fyrstu
meiriháttar ræðu sína í deild-
inni. Hún fjallaði um hinn
látna bróður hans og mann-
réttindafrumvarpið. „Hann
lagði líf og sál í þetta frum-
varp“, sagði Kennedy með
rödd, sem skalf af geðshrær-
ingu.
Hlé varð á stfarfi hans í deild
inni fyrir þrem árum vegna
slyss, sem hann varð fyrir.
Hann hryggbrotnaði 1964 í
flugslysi í Massachusetts og
var ekki vinnufær í sex mán-
uði. í slysinu fórust tveir
menn.
Sími var eina vopn Ed-
wards í herferð hans til að
ná endurkosningu til sex ára.
Hin ljóshærða kona hans,
Joan, og her sjálfboðaliða sáu
um kosningaundirbúninginn.
Kennedy var ennþá á sjúkra-
húsinu, þegar hann var end-
urkjörinn af kjósendum í
Massachusetts með 11 þúsund
atkvæða mun, en það er mesti
atkvæðamunur, sem nokkur
frambjóðandi til Öldunga-
deildarinnar hefur fengið í
Massachusetts.
Með spelkur við bak sÞt
hélt Kennedy aftur til Öld-
ungadeildarinnar, er 89. lög-
gjafarþingið hófst. Hann not-
ar ennþá spelkur til stuðnings
bakinu, en þrátt fyrir meiðsl-
in hefur hann farið á skíði og
leikið knattspyrnu.
AUGIYSINGAR
SIMI SS*4*8Q
Börn sem verða á öðru
íiámskeiðlnu á Jaðri
u
greiði vistgjöld sín 21. — 23. júní kl. 4—5.30.
NEFNDIN.
ATVINNA
Fólk vant fiskflökun eða flatningu óskast strax.
Mikil vinna.
HJALLANES H.F., Kópavogi
Sími 40760.
Málverkasýmng
Höfum opnað kynningarsýningu með 20 málverk-
um eftir Sigurð Kristjánsson, listmálara. Þetta eru
allt olíumálverk flest stór.
MÁLVERKASALAN,
Týsgötu 3 — Sími 17602.
Til leigu
Tvö samliggjandi og eitt sjálfstætt skrifstofuher-
bergi eru til leigu rétt við Miðbæinn.
Upplýsingar í síma 16694.
Iðnaðarhúsnæði
á jarðhæð rúmlega 300 ferm. að stærð til sölu
eða leigu. Tilboð leggist inn á afgreiðslu Morgun-
blaðsins fyrir 24. þ.m. merkt: „Iðnaðarhúsnæði —-
768“.
Höfum flutt timburaf-
greiðslu okkar að Skeifunni 8
ÁSBJÖRN ÓLAFSSON HF.
Klapparstígur 11
Lausar 'ibubir o. fl.
í húsinu nr. 11 við Klapparstíg eru til sölu 2ja,
3ja, 4ra og 5 herb. íbúðir á hagstæðum skilmálum.
Einnig er þarna um að ræða hentugt verzlunar- eða
skrifstofuhúsnæði, svo og til margs koha rannarrar
starfsemi. Allt í I. fl. standi og laust nú þegar.
Til sýnis kl. 3—4 og 8—10 e.h. Upplýsingar gefur
Austurstræti 20 . Sirni 19545
VÖRUGÆÐUNUM MÁ ÆTÍÐ TREYSTA
Franskir bakpokar
Vönduðustu pokar á markaðinum