Morgunblaðið - 13.09.1967, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. SEPT. 1967
jS||k
n m
S' - -V
./ ^5$
?V |ÉÉ
- v - >
í&kj&fy " * $$
i
IfJlfS
.
tMmgM
Jimmy Smith, leiknasti maður í Iiði Aberdeen skorar hér fyrsta mark liðs sáns á móti Evrópu
meisturunum Celtic. Takið eft’ir að fremsti maður í sókn A berdeen er bakvörðurinn. Aber-
deenmenn bera merki baeði á b’rjósti og á baki.
þess að sjálfsögðu að vel til
takist og allir ættu að nota
það tækifæri að sjá ágæt
■evrópsk lið leika hér. Til þess
igefast fá . tækifæri utan
Evrópubikarleikjanna.
KR-ingum á áhorfendapöll-
um leizt mjög ve.l á skozka
Aiðið enda hefur því tekizt
ibetur en flestum öðrum lið-
ium að nó hinu „fljótandi"
ispili, að allir séu með og
iskeður því í leik þess að bak
verðirnir eru upp við mark
mótherjanna eins og sjá má
á meðfylgjandi mynd.
— í keppni áhugamanna við
í KVÖLD kl. hálf sjö hefst tölu. Engu liði heims hefur
í Laugardalnum síðari leikur tekizt það gegn KR.
KR og Aberdeen í Evrópu- Við rákumst á nokkra
keppni bikarmeistara. Þá þeirra blaðamanna, sem hing
gefst annað hvort tækifæri að fylgja Aberdeenliðinu,
til að sjá KR-inga margfald- eins og sönum Skotum bar.
ast í gömlum og nær horfn- Þeir sögðu með alvörusvip,
um Vesturbæjarstíl eða þá að að þeim hefði ekki litist illa
horfa á þessa „maskínu“ sem á KR-inga í fyrri leiknum.
Aberdeen-liðið hlýtur að iSumir leikmannanna virtust
vera, ef það ' endurtekur þeim hættulegir, en hið rétta
fyrri afrek — að vinna KR- ,,team-work“ hefði aldrei
inga aftur með tveggja stafa náðst upp.
atvinnumenn
Þeir bættu þvi við, að eig-
inlega mætti alltaf búast við
svona úrslitum þegar atvinnu
lið þaulæft og í fullri þjálf-
un mættu áhugamannaliði
með takmarkaða tækniþjálf-
un að baki. Hið óvænta gæti
alltaf skeð en 10—0 væri
ekki óvæntara en jafn leik-
,ur þegar svo stæði á.
Og með þessi orð að hugg-
un, hvetjum við fólk til að
sjá leikinn í kvöld. Allir óska
Undankeppni UMFf
í knattspyrnu lokið
UNDANKEPPNI í knattspymu
fyrir landsmót ungmennasam-
bands íslands er nú lokið, en
hún hefur staðið frá 1. júní til
7. september s.l.
Keppninni er þannig háttað
að keppt er í þrem riðlum og
eru 4 héraðssambönd í hverjum
riðli eða 12 héraðsambönd, sem
þátt tóku í undankeppninni.
Úrslit í riðlakeppninni urðu
þau að í 1. riðli sigraði Ung-
mennasamb. Skagafjarðar hlaut
5 stig, nr. 2, varð Héraðssam-
band Þingeyinga hlaut 3 stig,
nr. 3 Ungmenna og íþróttasam-
band Austurlands hlaut 2 stig,
og nr. 4 Ungmennasamband
Eyjafjarðar hlaut 1 stig.
Úrslit í 2. riðli urðu þau að
nr. 1 varð Héraðssamband Snæ-
fells- og Hnappadalssýslu hlaut
5 stig, nr. 2 Ungmennasamb.
Húnvetninga hlaut 5 stig, nr. 3
Héraðssamband Strandamanna
hlaut 2 stig og nr. 4 Ungmenna-
samb. Vestur-Húnvetninga er
hlaut ekkert stig.
Úrslit í 3ja riðli urðu þau að
nr. 1 varð Ungmennasamb.
Kjalarnesþings hlaut 3 stig, nr.
2 Ungmennasamb. Borgarfjarð-
ar hlaut 2 stig og nr. 3 Héraðs-
sambandið Skarphéðinn er
hlaut 1 stig.
í 3ja riðli átti Ungmennafélag
Keflavíkur að vera þátttakandi,
en 7. sept. þegar lokafrestur til
að hafa lokið undankeppni var
útrunnin, hafði það ekki leikið
neinn leik svo það var þar með
úr keppninni.
í undanúrslit komust 2 efstu
lið í hverjum riðli og hefir verið
dregið um hvaða lið leika eiga
saman. En því er þannig háttað
að þau 3 lið, sem sigra í undan-
úrslitum, leika síðan til úrslita
á Landsmóti ungmennafélag-
anna, sem fer fram að Eiðum á
næsta sumri.
Þeir sem leika saman í undan-
úrslitum eru þessir:
1. leik. U.M.S.B x U.S.A.H.
2. — H.S.H. x U.M.S.S.
3. — U.M.S.K. x H.S.Þ.
Leikirnir munu að öllum lfk-
indum fara fram að Reykja-
skóla í Hrútafirði laugardaginn
16. og sunnudaginn 17. septem-
ber n.k.
Molar
REAL Madrid var eina liS-
ið sem vann sigur á útivelli
þá er fyrsta umferð í spönsku
deildarkeppninnj var leikin
um helgina. Liðið vann Se-
villa 2—0 og telst mjög góð-
ur árangur.
INGER Becker V-Þýzkalandi
setti nýtt landsmet er hún
vann fimmtarþraut kvenna á
sunnudaginn með 4935 stigum
— 293 sftigum frá heimsmeti
Irenu Press. Einstök afrek
voru 11,2 (grind) 12.57 (kúlu
varp) 1.60 (hást.) 6.26 (lang-
stökk) og 23.7 í 200 m.
Nálega 2000 manns
á auka OL-leikjum
UM fjörutíu þjóðir senda kepp-
endur til „Litlu Olympíuleik-
anna’ sem háðir verða í Mexico
City 14,—29. okt. n.k. Þrjú land-
anna senda hvort um sig um
eða yfir 200 manna lið til keppn
innar þ.e. Sovét, Japan og
'’Mexico.
Bandarikin hafa tilkynnt
65 íþróttamenn og konur muni
sendir til þessara leika í æfinga-
og reynslus'kyni. Leikarnir eru
nú haldnir á sama tíma að ári.
Er þetta í annað sinn sem slík-
ir „æfinga-leikir“ eru haldnir.
Akureyringar
Vestmannaeyinga
Akureyri, 12. s eptember.
KNATTSPYRNULIÐ frá íþrótta
handalagi Vestmannaeyja kom
hingað um helgina í boði tBA or
endurgalt með því heimsókn Ak
ureyringa til Vestmannaeyja fyrr
5 sumar. Liðið lék tvo leiki hér
nyrðra. Fyrri leikurinn fór fram
á laugardaginn og þá sigraði ÍBA
!með sex mörkum gegn fjórum.
1 hálfleik var staðan fimm gegn
einu. Dómari var Rafn Hjalta-
lín.
Síðari leikurinn fór fram á
sunnudag og þá sigruðu Akur-
eyringar aftur með sex mörk-
um gegn tveimur. Eftir fyrri
hálfleik var staðan jöfn, tvö
mörk gegn tveimur. Dómari í
þessum leik var Páll Emilsson.
Fyrirhugað er að árlega verði
16 ÁRA skólastrákur, Per
Erling Eide frá Larvík í Nor-
egi stökk 1.96 í hástökki á
sunudaginn. Annar 18 ára
varð annar með 1.91.
háð bæjakeppni milli Akureyr-
ar og Vestmannaeyja, með sama
sniði. — Sv. P.
þar sem 3
tóku þátt
ÍR-ingar á móti
heimsmeistarar
— íslendingar sigursœlir í Noregi
en gekk illa í Svíþjóð
ÍR-ingar og gestir þeirra, sem
eru á keppnisferðalagi í Skandi
navíu. þéldu heim frá Osló 2.
sept. til Kongsunger, bæjar um
100 km frá höfuðborginni. Þar
var keppt 3. sept. í nokkrum
greinum og urðu íslendingar
sigursælir. Veðrið var hing veg
ar mjög óhagstætt, ausandj rign
ing og völlurinn eitt svað.
Jón Þ. Ólafsson sigraði í há-
stökki, stökk 1.95. Reyndi hann
síðan að stökkva 2,02, en það
hefði verið vallarmet, en hon-
um mistókst. Norðmaður var
annar.
Valbjörn Þorláksson vann 200
m hlaup á 22,9 sek, en varð
annar í langstökki 6,58 m.
Erlendur Valdimarsson varð
annar í kúluvarpi 15.18. Sigurveg
arinn varpaði 15,82.
Þórarinn Arnórsson fékk inn-
flúenzu eftir dvölina í Osló og
óvíst að hann geti keppt frek-
ar í ferðinni.
Jón H. Magnússon varð eftir
í Osló um þessa helgi og tók
þátt í æfingum með flestum
beztu sleggjukösturum Norð-
manna undir leiðsögn Sverris
Strandlis, fyrrum heimsmethafa.
Keppti Jón báða dagana, varð
þriðji fyrri daginn kastaði um
51 m en á sunnudaginn vann
hann og kastaði tæplega 53 m.
Hópurinn hélt svo til Gauta-
borgar aðfaranótt mánudags og
kepptu þegar sama dag. Var lít-
il bjartsýni í hópnum, sem var
þreyttur eftir næturlanga ferð
og keppti kvöldið áður.
Fór það og svo, að aðeins einn
komst á verðlaunapallinn. Var
það Valbjörn, sem varð þriðji í
stangarstökki með 4.40 m. Svíi
sigraði og stökk 4,75 m.
Jón Þ. Ólafsson varð 4. í há-
stökki með 1,93 m, en Svíi sigr-
aði á 2.03. Hástökkið varð mönn
um mikil vonbrigði, því flestir
beztu stökkvararnir höfðu stokk
ið áður um 2.15 m. Sigraði Jón
einmitt nokkra silíka, sem
nokkru áður höfðu stokkið 2.14
m eða meir m.a. v-þýzka meist-
arinn. Hann náði líka „aðeins“
1,93.
Erl. Valdimarsson hafði við
ramman reip að draga því 4
beztu menn í kringlukasti köst-
uðu yfir 55 m. Erlendur varð
7. og vann m.a. kunnan banda-
rískan kastara Ed Burke. Sigur-
vegari í kringlukasti varð heims
methafinn í kúluvarpi, Randy
Mattsson. Hann sigraði einnig í
sinni heimsmetsgrein, varpaði
19.50 m.
Þetta mót varð sérstaklega
skemmtilegt og áhorfendur
geysimargir. Þarna kepptu m.a.
þrír heimsmethafar, langstökkv-
arinn Ralph Boston, Randy
Mattsson og síðast en ekki sízt
methafinn í 300 m hindrunar-
hlaupi, Belgíumaðurinn Roel-
ants. Hljóp hann þarna í fyrsta
sinn á sumrinu í keppni en vann
á frábærum tima 8:31 mín.
Einnig var frábært hlaup Svi-
ans Forsanders i 110 m grind
13.9 sek. á móti dálitlum vindi.
ÍR-ingar héldu svo til Kaup-
mannahafnar 6. sept., þar sem
þeir keppa 8. sept.
Karl Hólm sendir beztu kveðj
ur heim fyrir þeirra hönd.
Badminton
ÍÞRÓTTAHÖLLIN í Laugardal
mun verða tilbúin til badmin-
tonæfinga um miðjan þennan
mánuð og íþróttasalir skólanna
litlu síðar.
Tennis- og badmintonfélagið
hefur skrifstofu í húsi ÍBR. í
Laugardal. Verður hún opin
næstu vikur kl. 5—7 daglega.
Sími hennar er 35850.
Allir, sem æfðu á vegum TBR.
sl. vetur, og ætla að halda sömu
tímum áfram, þurfa að gefa sig
fram við skrifstofuna hið allra
fyrsta.
Þá geta aðrir þeir, sem hug
hafa á að æfa badminton í vet-
ur, snúið sér til skrifstofu fé-
lagsins og lagt inn umsókn um
æfingatíma.