Morgunblaðið - 05.10.1967, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.10.1967, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKT. 1067 21 ISTIIITU MÁLI Indira Gandhi til Júgóslavíu. Belgrad, 3. okt. AP. Frú Indira Gandhi, forsætis- ráðherra Indlands, kemur til Júgóslavíu í opinbera heimsókn 11. október n,k. í boði Titos JúgóSlavíuforseta, og forsætis- ráðherra Júgóslavíu, Mika Spiljak. Heimsókn frú Gandhi stendur í tvo daga. Frú Kennedy til Kambodsja New York, 3. október, AP. Frú Jacqueline Kennedy, ekkja Kennedys Bandaríkjafor- seta, hefur þegið boð Norodoms Sihanouks fursta í Kambodsja, að koma þangað í næsta mán- uði. Nokkuð er síðan stjórn- miálasambandsslit urðu milli Bandaríkjanna og Kambodsja, en horfur á að það komist í samt lag bráðum að sögn. Merk- ar fornminijar eru í Kambodsja og fylgdi það fréttinni að frú Kennedy hefði lengi langað til að skoða þær, allt síðan á skóla- árunum. Hús hrynja af elli Kairó, 3. okt. AP. Átta manns fórust og aðrir átta særðust illa er tvö hús hrundu í Zeinhom, útborg Kairó í suðri. Þetta atvikaðist þannig, að hús eitt, talið nær hálfrar annarrar aldar gamalt, riðaði og féll og tók með sér næsta hús, sem sagt var ámóta gamalt. Giófust allir sem í húsunum voru undir rústunum og var það margra klukkustunda verk að ná fólkinu upp, því er af komst. Desai í V-Þýzkalandi. Bonn, 3. okt. AP. Morarji Desai, fjármálaráð- herra og aðstoðarforsætisráð- herra Indlands, kom til Bonn í dag til þriggja daga viðræðna við stjórnarleiðtoga í V-Þýzka- landi, þar á meðal við Kiesinger kanzlara og Willy Brandt utan- ríkisráðherra. Sjö þúsund náðaðir í tilefni krýningarinnar. Teheran, 3. okt. AP. Sjö þúsund fangar verða náð- aðir í Teheran í tilefni krýning- ar Persakeisara og er það að fornri hefð í landinu að fangar séu náðaðir þegar þjóðhöfðingi er krýndur. Síldarstúlkur Söltunarstöð í Neskaupstað óskar eftir að ráða nokkrar vanar söltunarstúlkur nú þegar. Fríar ferðir og fleiri hlunnindi. Yfirbyggt söltunar- plan. Upplýsingar veittar í síma 81419 Reykjavík á kvöldin og síma 64 Neskaupstað. ALLT \ SAMA STAÐ s TÍI sölu Opel Record station árg. 1964. Taunus 17 M station árg. 1960. Opel Record 2ja dyra 1965. Hillman Imp árg. ’64, ’67. Humber Scepter árg. ’66 sjálfskiptur. Commer cop station árg ’64. Singer chamois árg. ’66. Austin Gipsy árg. ’62. Egill Vilhjálmsson hf. Laugavegi 118. — Sími 22240. ARKITEKTAR - VERKFRÆÐINGAR - TÆKNIFRÆÐINGAR Arvid Bunæs heldur fyrirlestur um eldvarnir í stærri byggingum í dag, fimmtudaginn 5. október, kl. 17.30 í húsakynnum Byggingaþjónustunnar að Laugavegi 26 . Arkitektar, verkfræðingar og tæknifræðingar eru hvattir til þess að mæta á fyrirlestur þennan. Brunavarnaeftirlit rikisins Brunabótafélag íslands Hafnarfjörður Blaðbera vantar í Hvammana og á Suður- götu, Hringbraut. Afgreiðslan Arnarhrauni 14, sími 50374. ÞEGAR VIÐ BYGGÐ- EJM BÍLINN TIL AÐ ENDAST í 11 ÁR gleymdum v/ð ekki oð jbér þurfið að sitja í honum í 11 ár. Sæti þessi eru í öllum VOLVO fólksbílum: AMAZONE FAVORIT AMAZONE DE LUXE VOLVO 144 VOLVO GIJNNAR ÁSGEIRSSON H.F. Suðurlandsbraut 16 — Sími 35200. ROLLS-ROYCE notar aðeins Garðar Gíslason h.f., bifreiðaverzluin Hverfisgötu 4 - Sími 11506. MIÐSTÖDVAROFNAR Ideal - (^tatníard ERU EINIR STÆRSTU FR4MLEIÐENDU R HITATÆKJA í HEIMINUM, MEÐ VERK- SMIÐJUR f ENGLANDI, FRAKKLANDI, BELGÍU, V-ÞÝZKALANDI, ÍTALÍU, BANDARÍKJUNUM, KANDA OG VÍÐAR. Ide al - c$»ta«dawí MIDSTÖÐVAROFNAR HAFA VERIÐ f NOTKUN HÉR Á LANDI f SÍÐASTLIÐINN RÚM 40 ÁR OG ERU í FLEIRI HÚSUM HÉR EN AÐRIR INNFLUTTIR OFNAR. Ideal - Ælandard FRAMLEIÐA FLESTAR TEGUNDIR MIÐST ÖÐVAROFNA, SEM Á HEIMSMARKAÐINUM ERU. ALGF.NGUSTU TEGUNDIRNAR ERU VENJULEGA TIL Á LAGER HJÁ OKKUR. „Neo Classic** pottofnar. „FRK“ pottofnar. ÞAÐ ER TVÍMÆLALAUST MIKIÐ ÖRYGGI FYRIR HÚSEIG- ENDUR AÐ HAFA f HÚSUM SÍNUM OFNA, SEM SVO LÖNG OG GÓÐ REYNSLA ER FYRIR OG SEM TIL ERU Á LAGER HÉR, í STÆRÐUM OG GERÐUM, ER HENTA BEZT HVERJU SINNI. J. Þorlóksson & Norðmann hi. BANKASTRÆTI 11 SKÚLAGÖTU 30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.