Morgunblaðið - 08.02.1968, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.02.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1968 5 Jeppinn kastaðist til með 700 pund af áburði sem sett höfðu verið til að þyngja hann Rœtt v/ð Sigurgeir Tómasson, bónda oð Mávavatni í Reykhólasveit, en hann varð að flýja íbúðarhús sitt í Kortið sýnir bæina þrjá í R eykhólasveit, sem einna verst urðu úti í ofviSrinu. ofviðrinu um helgina MIKLAR skemmdir urðu á bæjunum í kringum Reyk- hóla í Reykhólasveit, en þar varð ofviðrið einna mest um helgina. Margvíslegar skemmdir urðu heima að Reykhólum, snjóflóð féll á túnið að bæn- um Grund, og olli miklum skemmdum á því, þar sem stórgrýti fylgdi flóðinu. Síðast en ekki sízt varð heimilisfólk, að bænum Mávavatni, að flýja íbúðarhúsið, þegar all- ar rúður hússins, sem áveðra voru, brotnuðu og húsið fyllt- ist af snjó. Að Mávavatni býr Sigur- geir Tómasson ásamt konu sinni Dísu Magnúsdóttur, og fjórum börnúim þeirra, á aldr inum 2—11 ára. Morguniblað- ið átti í gær símtal Við Sig- urgeir, og sagði hann svo frá atburðum aðfaranótt miánu- dagsins. — Veðrið þessa nótt var óskaplegt og man ég ekki eftir öðrum eins ofsa, Grjót- hnullungar tókust á loft, og skyndilega, litlu fyrir kl. 5, brotnuðu allar rúður, sem áveðra voru vegna grjótflugs- ins. Gegnumtrekkurinn var ó- skaplegur um leið og rúð- urnar voru farnar, og snjór- inn átti greiða leið inn í húsið. Áttum við því einskis annars úrkostar en að flýja húsið. — Við ákváðum að reyna að komast til Tómasar á Reyk hólum, en þangað eru aðeins nokkur hundruð metrar. Við vorum svo heppin, að bílskúr ’ inn er samfastur við íbúðar- húsið og gengt þangað úr húsinu. Þar á ég Landrover- jeppa, og þurftum við því ekkert að fara út í veðrið, þegar við fórum á milli bæj- anna. — Ég hafði sett 7 álburðar poka á jeppann til að þyngja hann, en hver poki vegur um 100 pund. Þrátt fyrir það kastaðist jeppinn til í veðr- inu, og menn geta því ímynd að sér, hvernig það hefði ver ið, ef áburðarpokarnir hefðu ekki verið fyrir hendi. Börn- in tóku þessu öllu með mik- il’li ró, og það var tekið vel á móti okkur að Reyklhólum. — Miklar skemmdir urðu á húsinu ,og er ég núna að vinna að því að lagfæra það. Miðstöðin sprakk öl'l, innan- stokksmunir skemmduist af af snjónum og innveggir sprungu og málningin á þeim flagnaði af. Þá skem-mdist þakið einnig nokkuð. Er ég núna búinn að byrgja glugg- ana, sem brotnuðu, og er að rífa húsið að innan. Að Reykhólum urðu tals- verðar skemmdir, sem fyrr segir, og áttum við sím.tal við séra Þórarin Þór að Reykfhólum til að spyrjast fyrir um þær. — Hér heima að Reyklhól- um urðu skemmdirnar einna tilfinnanlegastar á kirkjunni, sagði hann. — Hún er til- tölulega nýbyggð, og er ekki alveg fullkomlega búið að ganga frá henni að innan. f stórviðri þessu brotnuðu all- ar rúður í henni, sem áveðra voru, og litlu síðar nokkrar rúður á suðurhliðinni. Gegn- um trekkurinn var svo óskap legur, að hann braut fyrst niður hurðina í innri dyrum kirkjunnar, en síðan brotn- uðu útidyr kirkjunnar upp, en þær voru úr mjög vönduð- um harðviði og kostuðu tug þúsund kónur. Þá fór snjór inn í kirkjuna, og er t.d. teppið í kór kirkjunmar á kafi í snjó. Er enn ekki lokið við að þrífa kirkjuna að inn- an að fullu. Þessar skemmdir • - - - — á kirkjunni komu sér annars mjög illa, því við höfðum bar ist í bökkum fjárhagslega, og eigum ekki túskilding af- gangs til þess að kosta lag- færingu á kirkjunni. Víðar urðu þó skemmdir og tjón hér á Reykhólum en á kirkjunni einni. Kaupfél'ag- ið hafði t-d. reist hér útihú, og þar brotnuðu rúður. Fuku vörur úr verzluninni um allt, og miklar skemmdir urðu inn í verzluninni. Er þetta vensta veður, sem elztu menn muna að hér hafi komið. Þó var ofsinn meiri hér í kringum Reykhóla en annars staðar í sveitinni, enda skemmdir hér mestar, sagði Þórarinn að lok um. J Athugasemd frá FIB Togaraeigendur hafa aldrei stungið upp á því að hafa ekki loftskeytamenn á togurunum f LEIÐARA Morgunblaðsins 6. þ.m., er rætt um hin uggvæn- legu sjóslys nú undanfarið, en í þeirn hefir brezk togaraútgerð og sjómannastétt goldið mikið og hörmulegt afhroð. Rætt er um, að ekki séu loftskeytamenn á öllum brezkum togurum og í framhaldi af því segir: „f umræðum um vandamál tog araútgerðarinnar hér á landi hefir því verið varpað fram, hvort hægt væri að létta und- ir með togaraútgerðinni m.a. með því að fækka mönnum um borð, þ.á.m. að hafa enga loftsk ey tam enn.“ (leturbr. vor). í leiðara í dag, 7. febr., vitnar Þjóðviljinn í þessi ummæli Morg unblaðsins orðrétt og gerir að sínum. Hætt. er við að lesendur láti sér detta í hug, að slíkar tillögur hafi komið frá togara- eigendum. Er því hér með harð- lega mótmælt. í þessu sambandi skal á það bent, að á árinu 1963 og aftur á árinu 1966 störfuðu nefndir á vegum sjávarútvegsmálaráðu- neytisins að könnun á hag og afkomu togaraútgerðarinnar og gerðu þær tillögur um lausn á aðsteðjandi vandamálum henn- ar. Félag ísl. botnvörpuskipa- eigenda átti fulltrúa í bóðum þessum nefndum. f þeim var aldrei stungi'ð upp á að hætta að hafa loftskeytamenn á togur- unum. Tillögux nefndanna snér ust eingöngu um fækkun þeirra manna, sem á þilfari vinna, og bera skýrslur nefndanna þessu glöggt vitni. Félag íslenzkra botnvörpuskipaeigenda hefir aldrei gert neinar tillögur í þessa átt. Togaraeigendum er ljóst, að togarasjómenn eiga lífsöryggi sitt mjög undir því, að skipin séu búin fullkomnum fjarskipta og siglingatækjum og að með þau fari hæfir menn, sem gæti þess að þau séu ávallt í full- komnu lagi, en það er einmitt hlutverk loftskevtamannanna að gæta þess að svo sé. í þessu sam bandi má líka benda á, að síð- an á miðjum 4. áratug þessarar aldar 'nefir verið öryggisvarzla alian sólariiringinn á íslenzka togaraflotanum, þannig að ætíð er kxftskeytamaður á vakt. við „morse“ og loftskeytatæki, og skapar þetta fyrirkomulag mikið öryg.gi, ekki aðeins fyrir togar- ana og sjómenn á þeim, heldur og fyrir öll íslenzk og erlend skip hér við land. Athugasemd þessi er í dag send Morgunblaðinu og Þjóðvilj anum. Reykjavík, 7. febrúar 1968. Félag ísl. botnvörpuskipaeig- enda. Aths. Morgunblaðinu er ánægja að birta þessa athuga- semd FÍB, en vill benda á að það hefur aldrei haldið því fram að togaraeigendur hafi sett fram kröfu um að hætt yrði að hafa loftskeytamenn á íslenzk- um togurum, eins og raunar sést á ti'lvitnuninni í forustugrein blaðs'ns. Ritstj. BRIDGE ÖNNUR umfer’ð Reykjavíkur- meistaramótsins í bridge var spiluð 4. febrúar sl. Úrslit urðu þessi: Meistaraflokkur Benedikt vann Símon ....... 5:3 Zóphanías vann Ingibjörgu . 8:0 Hjalti vann Hilmar ........ 6:2 Dagbjartur vann Bernharð . 7:1 I. flokkur Páll vann Andrés .......... 8:0 í Stykkis- hólms- höfn HÉR eru tvær myndir frá Stykkishólmi, sem sýna bát- ana sem voru hætt komnir við bryggju í ofsaveðrinu 4. og 5. þ.m. en áður hefur verið sagt frá þessu í fréttum Mbl. En það var mikil mildi að ekki fór verr, því á tímabili leit svo út sem bátarnir myndu brota allir meira og minna. Það var þeim tU happs • að íshroði sá, sem sést á m.ynd unum, kom seinni hluta sunnudagsins og myndaði skjaldborg um bátana, svo þeir sluppu. Jón vann Hörð 6:2 2 — Hjalta Elíassonar 13 Gunnar vann Halldór 5:3 3 — Símonar Símonars. 11 Magnús vann Matthías .... 8:0 I. flokkur II. flokkur 1 Sv. Magn. Eymundss. 13 Halldór vann Gísla 8:0 2 — Jóns Stefánssonar 12 Ármann vann Sigtrygg .... 8:0 II. flokkur Ari vann Ragnar 8:0 1 Sv. Ara Þórðarsonar 16 STAÐAN EFTIR 2 UMFERÐIR Þriðja umferð verður spiluð Meistaraflokkur St. 11. febrúar og hefst kl. 14:00 í 1—2 Sv. Benedikts Jóhannss. 13 Domus Medika. Kalkútta, Indlandi, 6. febr. AP ÞRJÁTÍU manns munu hafa dáið úr kulda í Vestur-Bengal, Assam og Bihar, allra síðustu daga. Ó- venjulegar frosthörkur hafa ver- ið á þessum slóðum undanfarna daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.