Morgunblaðið - 08.02.1968, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1968
Lítt þekktur ítali vann
fyrsta gulliö í Grenoble
Suðurlandamaður hefur aldrei
sigrað í 30 km göngu fyrr
ÍTALSKUR tollvörður, Franco Nones, 27 ára gamall, vann fyrstu
gullverðlaun Ólympíuleikanna í Grenoble. Sigur hans í 30 km
göngu kom mjög á óvart — svo mjög, að hann var ekki einu
sinni í hópi þeirra göngugarpa, sem „beztu“ rásnúmerin fá, heldur
í þeim hópi sem „miðlungsnúmerin" hlutu. Hann er fyrsti maður
utan Norðurlanda og Rússlands, sem nokkru sinni hefur hlotið
verðlaun í 30 km göngu á Ólympíuleikjum — svo ekki sé talað
um gull. —
Franco Nones tók forystu þeg-
ar í upphafi. Gefnir voru upp
millitímar keppenda á 10 km
fresti. Hann var nálega hálfa
mínútu á undan næstu mönn-
um, Finnanum Eero Mæntyr-
anta og Norðmanninum Odd
Martinsen. Hins vegar voru ekki
nema 3 sekúndur á milli þeirra.
Mæntyranta, sem kallaður er
„sérfræðingurinn" á þessari
vegalengd göngu, eftir að hafa
England vnnn
Skotlnnd 2-1
í G.’ERKVÖLDI fór fram lands-
leikur í knattspyrnu milli Skota
og Englendinga miili liða skip-
uðum mönnum undir 23ja ára
aldri. Leikurinn fór fram á
Hampden Park í Glasgow. Eng-
land vann 2-1.
Chivers (Tottenham) skoraði
fyrsta markið en Hurt (Hearts)
jafnaði. Sigurmarkið skoraði svo
March (QPR).
Keppni hnfin í
skautnhlnupi
og íshokkí
KEPPNI lauk aðeins í einni
grein í Grenoble í gær, 30 km
göngu eins og sagt er frá ann-
ars staðar. Keppni hófst í lista-
skautahlaupi kvenna og þar hef-
ur bandarísk stúlka — heims-
meistari í greininni — forystu
að tæplega hálfnaðri keppni.
Einnig var keppt í íshokkí og
urðu úrslit þessi:
Svíþjóð — Bandaríkin 4—3
Kanada — V-Þýzkaland 6—-1
Sovétríkin — Finnland 8—0
sigrað í henni á öllum stórmót-
um síðustu 6 ára, tók mikinn
sprett þegar hann frétti þennan
millitíma eftir 10 km. Hann sax-
aði mjög á forskotið og er 20 km
voru gengnir skildu aðeins 4,2
sekúndur að hann og ítalann,
en ítalinn hélt forskotinu. Norð-
maðurinn var enn rúmar 30 sek-
úndum á eftir.
Og þá hófst lokasprettur-
inn. Erfiðar hæðir eru í
brautinni í upphafi síðustu 10
km, en síðan góðar „rennslis-
brekkur". Það rann mjög vel
hjá ftalanum og betur hjá
honum niður á við en flest-
um öðrum. Hann hafði einnig
frétt um velgengni sína — og
blásinn óþekktri sigurvon í
brjósti, elfdist hann til átaka
og á sama tíma dofnaði von
hinna, sem án árangurs höfðu
reynt að vinna upp tímamun-
inn, sem ítalinn vann í upp-
hafi. Frá þeirra sjónarmiði
var keppnin búin — og.töpuð.
Vonbrigði þeirra drógu þá
niður, en sigurvonin efldi
ftalann.
Varið yhkur d
ljósmyndurum
DEILAN sem upphófst í Gren-
oble á setningardegi leikanna
um það hvort heimilt væri að
hafa nafn framleiðenda skíða á
skíðum keppenda hefur verið
leyst. Varð að samkomu'lagi að
ekki þyrfti að mála yfir nöfn-
in, en til að koma í veg fyrir
auglýsingastarfsemi, sem ekki
samræmdist Olympiuleikjum var
ákveðið að engir skíðamenn
mættu láta taka myndir af sér
svo að nöfn sæjust á skíðun-
um. Ef út af yrði brugðið myndi
það varða brottrekstri frá
keppni.
Og sigur hans var alger
yfirburðasigur. Hann var næst-
um mínútu á undan Norðmann-
inum og finnski „sérfræðingur-
inn“ varð enn 20 sek. þar á eftir.
Úrslitatímar urðu þessir:
1. Nones Italíu 1:35:38.2 klst.
2. O. Martinsen Nor. 1:36:28.9.
3. E. Mæntyranta Finnlandi
1:36:55.3.
4. Voronkov Sovébl:37:10.8.
5. de Florian ítalíu 1:37:12.9.
6. Laurila Finnl. 1:37:29.8.
7. Tikarainen Finnl. 1:37:34.4.
8. Larsson Svíþj. 1.37.48.1.
Ítalía sendi áðeins tvo kepp-
endur í þessa grein og má segja
að sigur þeirra og frammistaða
hafi verið stórkostleg, enda eru
þeir vinsælustu menn Ólympíu-
bæjarins í Autrans.
Mjög gott veður var er gangan
hófst og litlu síðar var brautin
böðuð sól og aðstæður allar hin-
Framhald á bls. 27
íslenzku Olympíukeppendurnir ganga inn á leikvanginn í
Grenoble við setningu OL-Ieikana. Fánaberi er Kristinn Bene
diktsson en næstur gengur Gísli Kristjánsson fararstjóri. —
Símamynd AP.
Sá bezti sigraði
Hinn óvœnti ítalski sigurvegari
er „nœstum44 norrœnn skíðamaður
— FY'RST það var ekki Norð-
maður sem sigrað gat í 30 km.
göngu, þá ert þú sá útlendingur
sem ég vildi helzt sjá taka við
gullinu, sagði norski göngukapp
inn Odd Martinsen við ítalska
Odd Martinsen í göngubrautiuni
í Grenoble.
sigurvegarann sem vann fyrsta
gullið á veírarleikunum í Gren-
oble.
Þeir félagar, Martinsen og
Nones hafa álíka lengi keppt á
alþjóðamótum en Martinsen með
mun meirí árangri — þar til nú.
Martinssen sagði, að þegar
hann að gengnum 6 km. hefði
fengið fréttir um að Nones væri
að vinna upp þann tímamun.
Jafnvel fréttin um að ég væri
vel á undan Mæntyranta gat
ekki breytt neinu um, að úti-
lokað væri fynr mig að ná Non-
es.
— Bezti maður keppninnar
vann gullið, sagði Mæntyr-
anta, Olympíu- og heimsmeist
ari eftir keppnina, — um það
er enginn vafi.
— Ég reyndi það sem ég
gat, en að mér tækist að
mjókka bilið inilli okkar á
miðsvæði keppninnar, hafði
ég enga möguleika gegn svo
sterkum endaspretti sem Non
es bjó yfir. Ég var á góðum
Mæntyranta, margfaldur meist-
ari varð að láta sér nægja 3.
sætið.
skíðum, en það rann heldur
illa hjá mér í brekkunum nið
ur á við. En það er engin af-
sökun. Það var sá bezti sem
vann, sagði hinn þrítugi
meistari þessarar greinar,
sem unnið hefur þessa grein.
á OL-Ieikjum og heimsmeist
aramótum og mörgum öðrum
stærri mótum allt síðan 1962.
Arsenal og Leeds í
úrslitum d Wembley
ARSENAL sigraði í fyrrakvöld
Huddersfield með þremur mörk-
um gegn einu í síðari leik félag-
anna um réttinn til að leika úr-
slitaleikinn í deildabikarnum á
Wembley í næsta mánuði. Fyrri
leikinn vann Arsenal einnig, en
>á með þremur mörkum gegn
tveimur. Seinni leikurinn var
leikinn á Leeds Road, velli
Huddersfield og jöfnuðu heima-
menn stöðu félaganna þegar
Leyton skoraði eftir 10 mín. leik.
Sarmmels breytti stöðunni í 4-3
(samanlagt) rétt fyrir leikhlé.
Þessi staða hélzt út mestallan
seinni hálfieikinn, en á síðustu
10 mín. gerði Arsenal út um und-
anúrslitin með tveimur mörk-
um, Jenkins og McLintock með
glæsilegum skalla. Arsenal vann
Huddersfield því með 6-3, sam-
anlagt.
Arsenal hefur ekki leikið á
Wembley síðan 1950 er félagið
sigraði í bikarkeppninni gegn
Liverpool með 2-0. Arsenal leik-
ur til úrslita í deildabikarnum
gegn Leeds United eða Derby
County, sem eiga eftir að leika
síðari leik undanúrslita. Leeds
vann fyrri leikinn í Derby með
1-0.
Leikur Leeds og Derby fór
fram í gærkvöldi á velli Derby
og vann Leeds 1-0 og verða því
Leeds og Arsenal í úrslitunum á
Wembley.
Stærsti dagur lífs míns
- sagði Italinn sem kom öllum á óvart
FRANCO NONES var eitt
stórt bros, er hann mætti
blaðamönnum eftir að úrslit
göngukeppninnar í Grenoble
voru kunn í gær. Rétt áður
höfðu fararstjórar Norð-
manna afhent honum afreks-
merki norska sambandsins
fyrir glæsilegan árangur og
góða frammistöðu.
Nones sagði, að hann hefði
byrjað skíðaæfingar 16 ára
gamall og unnið sinn fyrsta
sigur í unglingakeppni 1960.
Sá sigur hefði orðið sér mikil
hvatning og hann hefði ár-
lega síðan þá dvalizt Lengri
eða skemmri tíma í Svíþjóð,
Finnlandi eða Noregi við æf-
ingar og sænski þjálfarinn
Bengt-Heemann Nilsson mest
hjálpað sér — og raunar gert
úr sér, það sem hann væri
nú. Stærsti sigur hans eor 6.
sæti á heimsmeistaramótinu
1966
Fyrir keppnina hafði hann
gert sér ljóst, að ef til viU
gæti hann unnið verðlauna-
pening, en um olympskan
meistaratitil hafði hann ekki
þorað að hugsa. Hann kvaðst
hafa ætlað að enginn gæti ógn
að Mæntyranta, en var einnig
hræddur við Odd Martinsen.
Nones sagði að 15 km. og
30 km. ganga væri „sitt upp-
áhald“ en þegar göngumaður
er í góðri þjálfun, skiptir
vegalengdin ekki meginmáli,
sagði hann.
Á æfingum fyrir þessa
keppni hefur Nones gengið
Framhald á bls. 27