Morgunblaðið - 26.03.1968, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1968
13
SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM:
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó
Onibaba.
Japönsk mynd.
Leikstjóri: Kaneto Shindo.
Nöfn aðalleikenda:
Nobukó Otawa.
Jitsuko Yoshimura
Kei Sato.
Ég hefi það eftir allgóðum
heimildum, að Japan verði orðið
þriðja mesta iðnaðarveldi heims
innan 1 til 2ja ára. Þetta er
þeim mun athyglisverðara sem
Japan mun vera snauðara að
ýmsum hráefnum til iðnaðar, til
dæmis finnast þar víst naumast
járn eða kol í jörðu. En þjóðin
er orðin vel þróuð tæknilega, er
dugleg, sparsöm og sérlega fljót
að notfæra sér til hagræðis þær
nýjungar, sem hún kynnist með
öðrum þjóðum.
Það þarf þá engan að undra,
þótt land þetta sé farið að láta
verulega til sín taka á sviði
kvikmyndaiðnaðar og japanskar
kvikmyndir njóti vaxandi hylli
víða um heim. Fer þar sem oftar
saman efnaleg framsókn og
grózka í listsköpun.
Þær japönsku kvikmyndir
sem ég hefi séð — ég verð að
játa, að þær eru allt of fáar —
virðast mér hafa viss samein-
kenni, þótt þær séu auðvitað að-
skildar af breytilegum efnivið og
tæknilegri útfærzlu. Þær sýna
ýmiskonar mannlífsfyrirbæri á
óhlífinn hátt, eru „sterkar" og
gera jafnvel stundum meiri kröf-
ur til taugakerfis áhorenda en
skarps skilnings. Því hinn misk-
unnarlausi tjáningarmáti mynd-
anna, lætur ekki ýkjamörgum
spurningum ósvarað, nema kafað
sé eftir dýpri rökum en almennt
mun vera meðal þeirra sem leiða
kvikmyndir sjónum. — Þetta
hafa ekki verið neinar kross-
gátur, sem hylja boðskap innn
i dimmu skýi leyndardóms, held-
ur opinskáar og beinskeyttar og
stundum, eins og sagt var nokk-
uð nærgöngular við fínar taugar
áhorfenda.
Þessi japanska kvikmynd, sem
hér verður lítillega kynnt, er
vissulega af sterkara taginu. Til
dæmis eru þar einhverjar opin-
skáustu ástarlífssenur, sem hér
hafa sézt í kvikmyndahúsum,
Að sumu leyti minna þær á
djörustu atriði úr sænskum og
dönskum kynlífsmyndum, svo í
fljótu bragði kynnu menn að á-
lykta, að Japanir hefðu geng-
ið í smiðju til þessara þjóða í
framleiðslu ástarleikja, næmir
sem fyrr á þá framleiðsluhætti
erlenda, sem skera sig út að
ágæti. Hér ber þó að hafa í
huga, að þær kvikmyndir, sem
lengst ganga í birtingu náinna
kynlífsatriða, hljóta samkvæmt
hlutarins eðli að verða alllíkar,
hvað þau atriði snertir, og sjálf-
sagt því líkari, sem þær eru
opinskáari. Þegar gengið er út
á yztu nöf velsæmisins í þess-
um efnum, þá tekur að þrengjast
um tilbrigðaúrkosti, ef menn
vilja ekki eiga á hættu að hrapa
fram af hengifluginu.
En það eru fleiri atriði en
dirfska í ástarleikjum og afbrýði
sem verka sterkt í þessari mynd.
Lýsingar á atvinnuháttum
tengdamæðgnanna, sem myrða
liðhlaupa á flótta og selja föt
þeirra og annan útbúnað sér til
lífsframfæris, eru á köflum hroll
verjandi.Líkunum kasta þær nið
ur í djúpan, þurran brunn, og
þangað niður leggja hræfuglar
tíðum leið sína til lausnar efna-
hagslegum vandamálum sínum.
En óttinn við refsingu fyrir
drýgðar misgjörðir er djúpstæð
ur í þessum frumstæðu mann-
eskjum. — Tengdadóttirin hefur
snöggtum meira samvizkubit út
af því, að leggjast með karl-
manni utan hjónabands, en hinu
að myrða menn sér til matar.
Því verður hún að vonum flemtri
slegin, er djöfullinn sjálfum birt
ist henni á næturþeli, þegar hún
hyggst heimsækja elskhuga sinn
og ætlar að hremma hana.
Mér finnst ekki ástæða til að
rekja náið efnisþráð þessarar
myndar enda munu margir
verða til að sækja hana, og þeim
sem heima sitja, gagnar lítið
lausleg rakning söguþráðar. —
Hér er um svo sérstæða kvik-
mynd að ræða, svo sterka að
efni og útfærslu, svo spenn-
andi, þótt atburðavettvangur sé
þröngur og persónur fáar, að
hún mun tvímælalaust vekja
mikla athygli ,og umtal. — Hún
býr yfir magnaðri austurlenzkri
kyngi, sviptir mannlegar hvatir
þeim siðræna hjúpi og keisara-
klæðum, sem algengast er að í-
klæða þær á Vesturlöndum. —
Segja má, að allar höfuðpersón-
ur sögunnar séu glæpamenn í
venjulegri merkingu þess orðs.
Hvergi örlar á „góðu fólki“.
Áhorfendur sjálfir verða að
fara með hlutverk gúða fólks-
ins í þessari mynd.
s.k.
Einbýlishús í Stykkishólmi
Húseignin Víkurgata 1, í Stykkishólmi er til sölu.
Náuiari upplýsingar gefur Gunnar Jónatansson,
Stykkishólmi sími (93) 8119.
Megurnarnudd
Dömur athugið! Þið sem ætlið að fá fasta tíma fyrir
vorið endurnýið pantanir sem fyrst.
Innifalið í hvert sinn er hjól, nuddbelti, hitakassi,
liandnudd og bað.
NUDDSTOFAN, Laugavegi 13 — Sími 14656.
(Hárgreiðslustofa Austurbæjar)
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Skólatónleikar
í Háskólabíói miðvikudaginn 27. marz kl. 10:30 og
kl. 14:00 og fimmtudaginn 28. marz kl. 14:00.
Börn, sem eiga áskriftarmiða að tónleikum 27.
febrúar komi á tónléikana miðvikudaginn 27. marz
kl. 10:30 (ekki fimmtudag 28. marz eins og stendur
á miðanum) og börn, sem eiga áskriftarmiða 26.
febrúar kl. 14:00 komi nú miðvikudaginn 27. marz
kl. 14:00. Aðgöngumiðar að tónleikum fimmtudag-
inn 28. marz kl. 14:00 eru seldir i skólunum og í
Ríkisútvarpinu Skúlagötu 4.
Frá Sjálfstæðis-
kvennafélaginu Vörn
Konur á Akureyri og í nágrenni.
Vörn efnir til sýnikennslu í blómaskreytingum
(einkum með tilliti til hátíðisdaganna og ferming-
anna fram undan) í SjáHstæðishúsinu miðvikudag-
inn 27. marz kl. 14—18.
Konur geta mætt hvenær sem er á þessum tíma.
Leiðbeinandi Ringelberg í Rósinni Reykjavík.
Kaffiveitingar á boðstólum.
Allar áhugakonur velkómnar, en félagskonur eru
einkum hvattar til að maeta.
NEFNDIN.
; jjjj
OPAL SOKKABUXUR
eru framleidar úr úrvals crepegarni.
OPAL SOKKABUXUR
eru framleiddar af stærstu sokkaverk-
smiðju Vestur-Þýzkalands.
OPAL SOKKABUXUR
eru fallegar og fara sérlega vel á fæti.
OPAL SOKKABUXUR
eru á mjög hagstæðu verði.
OPAL SOKKABUXUR
seljast þess vegna bezt.
Kaupið aðeins það bezta
Kaupið OPAL SOKKA
og SOKKABIiXUR
Einkaumboðsmenn:
Kr. Þorvaldsson & Co. heildverzl.
Grettisgötu 6, símar 24730 og 24478.
Nýkomið glæsilegt úrval gluggatjaldaefno
Dralon, fiberglass, og hin margeftirspurðu ódýru
efni, stórisar, margar nýjar gerðir i fjölbreyttu úrvali
Áklæði og gluggatjöld
Skipholti 17A. — Sími 17563.