Morgunblaðið - 26.03.1968, Side 32
HEIMILiS
TRYCEING bMj^z
ALMENNAR TRYGGINGARP
PÐSTHÚSSTRÆTI9 S I M I 17700
Þúsundir
leita 3ja
ára drengs
Stígvél hans fundust
í Rauðarárvík
og Laugarnesi
ÞRIGGJA ára drengur, Har-
aldur Bjarnason, Gullteig 18,
hvarf að heiman frá sér síð-
degis í gær. Var hans leitað
í gærkvöldi og fram á nótt af
þúsundum Reykvíkinga, en
hann hafði ekki fundizt er
blaðið fór í prentun laust eft-
ir miðnætti. Stígvél með hos-
um í, sem talið var að væru
af Haraldi, fundust í gær-
kvöldi, annað í Rauðarárvík
og hitt í Laugarnesi. Er um
1 til IV2 kílómetri á milli
staðanna þar sem stígvélin
fundust.
Það var um klukkan hálf fimm
í gær að leitað var til lögreglunn
ar í Reykjavík um aðstoð til að
leita að Haraldi. Fóru Björgun-
Framhald á bls. 2
Með 15 flöskui
uf úfengi
LÖGREGLUNNI var tilkynnt
um þrjá grunsamlega menn, sem
voru á ferli á Bergstaðastræti
rétt um miðnættið á laugardags
kvöld. Voru þeir með þrjár ferða
töskur og reyndust vera í þeim
15 flöskur af áfengi. Við yfir-
heyrslu játaði einn þremenning
anna að hafa stolið 18 flöskum
af víni í húsi í Reykjavík og
einnig játaði hann á sig tvö önn
ur innbrot, sem hann framdi að
faranótt laugardags, en í þeim
olli hann töluverðum skemmd-
um. Þremenningarnir voru á leið
inni í einkasamkvæmi með vín-
ið, þegar í þá náðist.
Til Víkur eftir
vökur og erfiði
1 tveggja til þriggja metra háir.
Síðdegis í dag er aftur byrjað
að snjóa. — Fréttaritari.
I
Vík, Mýrdal, 25. marz.
BÍLALEST komst til Víkur
Herþota fórst yfir Landsveit
Flugmaðurinn hjargaðist til bœja
ÞAÐ bar við um sexleytið , gær,
er tvær eins manns orrustuflug-
vélar úr 57. orrustuflugsveit
Bandaríkjahers á Keflavíkurflug
velli voru á æfingaflugi yfir of-
anverðri Landsveit að hreyfill
annarrar vélarinnar bilaði. Stökk
flugmaðurinn út í fallhlíf og sá
flugmaður hinnar orrustuþotunn
ar að hann stóð upp og gekk af
stað er hann var kominn til jarð
ar.
Gerður var út leitarleiðangur
þegar í stað, og þegar Mbl. hafði
samband við varnarliðið síðar í
gærkvöldi var flugmaðurinn
kominn til bæjar. En ekki vissi
upplýsingadeild hersins nafnið á
bæ þeim, sem maðurinn hafði
komið til, en sími var lokaður
á þessu svæði svo að ekki var
hægt að inna nánar eftir atvik-
um.
Upplýsingadeild hersins bað
Mbl. að koma því á framfæri, að
fólk væri beðið að snerta ekki
flugvélarbrakið því á því gæti
oltið hvort hægt yrði að grafast
fyrir orsakir slyssins.
Þoturnar, sem voru af gerð-
inni F 102, vpru á venjulegu æf
ingarflugi þegar slysið varð.
Mýrdal í dag, en í henni voru
fimm bjlar, sem komu með vör-
ur til verzlunarfyrirtækjanna
hér. Höfðu sumir bílanna verið
á leið hingað frá því á fimmtu-
dag, en aðrir miklu skemur.
Bíistjórarnir höfðu þá sögu að
segja, að ferðin hefði öll verið
hin erfiðasta, miklar vökur og
erfi’ði. Mest voru snjóþyngslin í
Mýrdalnum og við Litla-Hvamm
eru haéstu skaflar á veginum
IJPPGRiPA
RÆKJUVEIÐI
Isafirði 25. marz:
RÆKJUVEIÐAR hófust að nýju
í ísafjarðardjúpi strax að loknu
verkfalli og í síðustu viku var
uppgripaveiði, allt upp í 2% lest
í róðri. Þrátt fyrir mjög stirða
tíð og erfiða munu allir bátarnir
23 að tölu, hafa náð leyfðum viku
skammti, sem er þrjár lpstir, og
sumir á tveimur til þremur dög-
um.
Rækjuveiðar hafa nú verið
leyfðar fram til 1. maí. — H. T.
Beiö bana er
dráttarvél hvolfdi
Mykjunesi 25. marz.
BANASLYS varð er dráttarvél
vait út af veginum skammt frá
Rauðaiæk sl. föstudagskvöld.
Helgi Elíasson, 17 ára piltur til
heimilis á Rauðalæk, sem ók vél-
inni, varð undir henni er hún
fór út af og mun hafa látizt sam
stundis.
Það var á áttunda tímanum á
föstudagskvöldið að Helgi lagði
af stað heiman að frá sér og ætl
aði að Brekkum. Hann var
skammt kominn er dráttarvélin
fór út af og hann varð undir
henni með fyrrgreindum afleið-
ingum. Veður var mjög slæmt
og er talið að hann muni hafa
misst stjórn á vélinni. Var hann
látinn er að var komið um átta-
leytið og mun hafa' látizt um leið
og dráttarvélinni hvolfdi.
M. G.
Þota af gerðinni F 102
Sjóprófum
lýkur í dug
SJÓPRÓF í máli Hildar hófust
í Reykjavík í gær. Varð þeim
ekki lokið, en verður fram hald-
ið í dag.ogbúizt við að þeim ljúki
síðdegis.
Stolið fyrir 14000 kr.
í FYRRINÓTT var brotizt inn í I Var unnið að rannsókn máls-
verzlunina Esju á Kjalarnesi og ins í gær, en ekki hafði tekizt að
stolið verðmætum fyrir um hafa upp á þjófunum þegar síð
14.000 kr. I ast fréttist.
)