Morgunblaðið - 03.05.1968, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
300.000
húsdýr
í hættu
Havana, 2. maí — NTB —
• BÚAST má við því, að um
þrjú hundruð þúsund húsdýr
falli, hefjist ekki vorrigningar á
austurhluta Kúbu í þessum mán
uði — og það heldur fyrr í mán
uðinum en seinna.
Varaforsætisráðherra Kúbu,
Raoul Castro, skýrði frá þessu í
ræðu í gær og sagði, að þurrk-
arnir í austurhluta landsins nú
væru einhverjir hinir alvarleg-
ustu, sem Um gæti í sögu Kúbu.
Hætta er á að þeir leiki hart
sykurræktarhéruðin og þar við
bæti9t, að stjórnin hefur gripið
til þess ráðs að nota hluta syk-
urframleiðslunnar til að gera
sýróp handa kvikfénaðinum.
Hafa þegar farið þannig um
75000 lestir af sykri. Mjólkur-
framleiðslan hefur mjög dregizt
saman vegna þurrkanna og hef-
ur verið hert á mjólkurskömmt-
un. Kjöt er einnig skammtað.
Raoul Castro hélt ræðu sína á i
hátíðahöldunum vegna 1. maí í
Framhald á bls. 31 i
Ludvik Svoboda forseti Tékkóslóvakiu á heiðurspalli við hátiða
höldin á miðvikudag.
Friðarviðræður
heíjast í Nígeríu
FuBltrúar IMígeríu og Biafra
rædast við í London
London og Lagos, 2. maí (AP)
ÁKVEÐIÐ hefur verið að stjórn-
I ir Nígeríu og Biafra sendi full-
| trúa sína til London í þessari
viku til að ræða hugsanlegar að-
gerðir til að binda enda á borg-
] arastyrjöldina í Nigeríu. f þess-
um undirbúningsviðræðum verð
ur fyrst og fremst fjallað um
hugsalegan fundarstað fyrir frið-
arsamninga.
Borgarastyrjöldin í Nígeríu
hefur nú staðið í tíu mánuði, og
til þessa hefur ekki verið unnt
að koma á viðræðum fulltrúa
Nigeríu og Biafra. Framkvæmda
stjóri brezka Samveldisráðsins,
Arnold Smith frá Kanada, hefur
á undanförnum mánuðum hvað
eftir annað átt leynilegar við-
ræður við fulltrúa deiluaðila til
að reyna að koma á friðarvið-
ræðum, og er fundurinn í Lon-
don fyrsti árangur þeirra til-
rauna.
í London var skýrt frá þess-
um fyrirhuguðu viðræðum í dag,
og fréttin höfð eftir fulltrúum
hjá Samveldisráðinu. Segir þar
að fulltrúar Nígeríu og Biafra
hafi fallizt á undirbúningsvið-
ræður í London án skilyrða, en
búast mætti við því að þar kæmu
tiil umræðu skilyrði fyrir
vopnahléi. sem nauðsynlega
þyrfti að koma á áður en friðar-
viðræður hefjast. Að öðru leyti
þyrfti fulltrúarnir að leysa tvö
Bandarikin fallast á viðræður um
borð í herskipi frá Indónesíu
fieð/ð eftir svari trá Norður-Vietnam
Washington, 2. maí — AP—NTB
BANDARÍKJASTJÓRN lýsti því
yfir á miðvikudag að hún féllist
á tilboð stjórnar Indónesíu um
að friðarviðræður fulltrúa Banda
ríkjanna og Norður-Vietnam
færu fram um borð í indónesísku
herskipi á Tonkinflóa.
Svar stjórnar Norður-Vietnam
við tilhoðinu hefur enn ekki bor
izt, en haft var eftir talsmanni
sendiráðs Norður-Vietnam í La-
os í dag að Hanoi-stjórnin gæti
ekki fallizt á tilboðið.
í frétt frá Vientiane, höfuð-
borg Laos, er það haft eftir tals
manni sendiráðs Norður-Vietnam
að stjórnin í Hanoi haldi fast við
fyrri kröfu sína um að hugsan-
legar friðarviðræður verði haldn
af annað hvort í Varsjá eða
Phnom Penh. höfuðborg Kamb-
ódíu. Sagði talsmaðurinn að Han
oi-stjpórnin gæti alls ekki fall- ■
izt á viðræður um borð í indó- j
nesísku herskipi úti á Tonkin- I
flóa. Taldi talsmaðurinn að sú j
staðreynd að Bandaríkjastjórn
gæti fallizt á viðræður um borð
í herskipinu sýndi að ástæðurn-
ar, sem Johnson Bandaríkjafor-
seti hefur fært fyrir þvi að hann
geti ekki samþykkt viðræður í
Varsjá eða Phnom Penh, væru
aðeins fyrirsléttur.
— „Bandaríkin reyna að bera
fram hverja afsökunina á fæt-
ur annarri til þess að geta hald-
ið styrjöldinni áfram“, sagði tals
maðurinn. Hann benti á að til
þessa hafi Johnson forseti gert
þær kröfur til fundarstaðarins
að hann væri í hlutlausu ríki,
en Indónesía er ekki hlutlaus í
augum Hanoi-stjórnarinnar. Þá
sagði hann að ekki væri unnt
að verða við sí-endurteknum
Framhald á bls. 31
Ein af sovézku eldflaugunum, sem sýndar voru i Jerúsalem i gær
i tilcfni 20 ára afmælis Israelsríkis. Er þetta eldflaug af gerðinni
„S.A.—2“, sem tekin var herfangi af Egyptum.
Hersýning í Jerúsalem
— og mótmæli í Líbanon
Jerúsalem, 2. maí. (AP-NTB).
MIKIL hersýning var haldin í
Jerúsalem í dag í tilefni þess að
20 ár voru liðin frá stofnun ísra-
elsríkis. Ekki kom til neinna
árekstra þrátt fyrir hótanir Ara-
ba, sem höfðu harðlega mótmælt
því að hersýningin yrði haldin i
borginni. Einnig hafði Öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna og IJ
Thant framkvæmdastjóri SÞ
sent stjórn Israels áskorun um
að hætta við hersýninguna, en
þeirri áskorun var ekki sinnt.
Talið er að um hálf milljón
manna hafi fylgzt með hersýning
unni á götum Jerúsalemborgar,
en auk þess var sjónvarpað frá
sýningunni um landið allt.
Finamlhald á bls. 23
Blómum veifað í stað vígorðasp jalda á
óvenjulegri 1. maí-hátíð í Prag
Víðast fóru þau fram með
venjulegum hætti - vopnasýn-
*
ingar í IWoskvu - Oeirðir á Spáni
Moskvu, Prag og víðar, 2. maí
NTB — AP
1. maí — dagur verkalýðs-
ins — var haldinn hátíðlegur í
gær víðsvegar um heim, en
með býsna mismunandi hætti að
venju.
I Moskvu og Austur-Berlín
settu vopna- og hergagnasýning
ar mestan svip á hátíðahöldin
og hermenn fóru þar gæsagangi
um götur og torg.
í Prag ríkti meiri gleði en
menn muna síðustu tvo áratugi
og veifuðu menn blómum í stað
kröfuspjalda. Meöal þátttakenda
voru ýmis samtök, sem bönnuð
hafa verið, m.a. skátar í hefð-
bundnum einkennisbúningum.
Einnig voru hippar þar fjöl-
mennir og ' höfðu uppi spjöld
sem á stóð „Elskið í stað þess
að berjast". Leiðtoga kommún-
j istaflokksins var fagnað með
1 blómum og beiðnum um eigin-
handaráritanir.
Á Spáni fóru stúdentar og
ungir verkamenn um götur og
! torg og brutu rúður, jafnframt
því sem hafðar voru uppi kröf-
ur, er teljast til lágmarkskröfu
gerða verkalýðsins á Vestur-
löndum svo sem kröfur um
verkfallsrétt og leyfi til að
mynda frjáls verkalýðsfélög.
Gleíiin ríkti í Prag.
Við hátíðahöldin í gær fengu
Tékkóslóvakar fyrsta tækifærið
Framh. á bls. 31
vandamál áður en friðarsamn-
ingar hefjast. i fyrsta lagi hvar
friðarsamningar skuli fara fram,
og í öðru lagi á hvers vegum
fríðarumræðurnar skuli haldnar.
Yakubu Gowon hershöfðingi,
leiðtogi sambandsstjórnarinnar
í Nígeríu, hefur fallizt á að frið-
arviðræður fari fram í London,
en Ojukwu ofursti, leiðtogi
Biafra, hefur óskað eftir við-
ræðum i Dakar, höfuðborg Sene-
gal. Segir Ojukwu ofursti að
útilokað sé að ''halda friðarvið-
Framh. á bls. 23