Morgunblaðið - 09.06.1968, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1968
3
Jón Auðuns, dómpróf.:
BRÓDURMORÐ
MORÐIÐ á Rotoert Kennedy hef-
ir vakið margar spurningar,
enga almennari en þessa:
Hvernig getur þetta gerzt í menn
ingarríki?
Spurningin getur ekki beinzt
að þessum hræðilega verknaði
einum ,hér þarf að mörgu að
gæta.
Fyrsti bróðurmorðinginn
heyrði Drottin kalla til sín: Hvar
er bróðir þinn? Blóð hans hróp-
ar til mín af jörðunni. Lostinn
samvizkubiti svaraði maðurinn:
Á ég að gæta bróður míns?
Hvort guðsröddin var það eða
rödd samvizkunnar, sem var að
vakna í manni, er stóð á mörk-
um dýrs og manns, skiptir ekki
meginmáli. En síðan samvizkan
sló Kain yfir líki bróður hans
hefir broddur þessarar spurnar
búið í samvizku mannsins: Á ég
að gæta bróður míns?
Og samt hefir blóðaldan hrun-
ið um jörðina og aldrei fleiri
mannslífum verið fórnað á víg-
völlum en á okkar öld. Og á svo
kölluðum friðar'tímum höfum
við séð mannslífið að litlu met-
ið.
Man enginn neyðarópin úr
fangabúðum nazista? Eru morð-
in á Stalíns-tímanum gleymd?
Er bergmálið aJE kúlnaregninu,
sem kaffærði frelsisviðleitni
Ungverja, þagnað? Er okkur
gleymdur glæpurinn í Eystra-
saltslöndunum? Er ek'kert að
gerast í Vietnam og Nígeríu?
Á ég að gæta bróður míns?
Munu Finnar aldrei spyrja
þess í hljóði?
Það er spurt um fleira nú en
þetta eina bróðurmorð, en
hvernig gat það gerzt í menn-
ingarríki, sem er því miður
mjög að setja ofan í augum
sæmilega siðaðs fólks? Hvar
liggja rætur þessa morðs og
margra annarra?
Við hverju er að búast þegar
mikill hluti þess lesmáls, sem
þorri fólks sækist eftir, segir frá
glæpsamlegum ofbeldisverkum
sem sjálfsögðum athöfnum og
ruddalegustu líkamsárásum sem
eftirsóknarverðri karlmennsku?
Við hverju er að búast, þar sem
villimannlegir hnefaleikar eru
ákjósanleg dægradvöl? Við
hverju er að búast, þar sem
morðvopn eru nærfellt talin
barnaleikföng? Við hverju er að
búast þegar ungir alast upp við
blygðunarlausustu ofbeldisverk
og manndráp í kvikmyndahúsun-
um og við sjónvarpstækin í
heimahúsum?
Getur hjá því farið, að slíkri
kynslóð verði manndráp sjálf-
sögð athöfn og eðlileg til að fá
sínum vilja framgengt?
Með undrun og harmi horfum
við stundum i vesturveg til
þeirrar þjóðar, sem um skeið hef
ir v.erið máttugasti útvörður lýð-
ræðis. En hvað er um okkur
sjálf? Á hverri leið erum við?
Hér hafa á síðustu tímum verið
framin manndráp og siðlausar
líkamsárásir. Hvað veldur? Snú-
um spurningunni að okkur
sjálfum:
Við hvað elst unga kynslóðin
á fslandi upp í dag?
Það er talað margt um grósku
í listum. Ekki veit ég við hvað
er þá miðað, þegar þess er gætt
að listirnar verða með ári hverju
grófari, ruddalegri. ískyggilega
mikið af því, sem kvikmyndahús
in flytja og unga fólkið sækir, er
gegnsýrt kynferðislosta og of-
beldisathöfnum. Og ennþá
ískyggilegra er það, að sjönvarp-
ið er látið flytja öþverrann inn
I í heimilin, þar sem börn og ung-
lingar horfa því nær daglega á
svívirðilegustu líkamsmeiðingar
og manndráp í sjónvarpsmyndun j
um. j
Það var talað af mikilli vand-
lætingu um afmenninguna, sem
fylgdi Keflavíkursjónvarpinu,
ruddaskapinn, morðin. Hvað höf
um við nú fengið í staðinn, —-
og vandlætararnir þegja? .
Hvert erum við að stefna
ungu kynslóðinni, sem elst upp
við þetta? Erum við ekki að
fæða hana á því, sem er undir-
rót margra morða og glæpa f
Vesturheimi? Hefir enginn á- <
hyggjur af þessu? Hveænig verð-
ur kynslóðin, sem við erum að
ala upp í landinu? Ættu ekki
þeir glæpir, sem hver af öðrum
hafa verið drýgðir í okkar litla
þjóðfélagi á skömmum tíma, að
vera okkur nokkur áminning?
Hið hryllilega morð á Robert
Kennedy vekur andstyggð og
harm hverjum góðum manni.
En það á líka að kenna okkur
að spyrja um sitt hvað það, sem
I er að gerast í okkar eigin húsi.
Nýi gæzluvöllurinn.
Nýr barncagæzluvöllur
opnaður í Hafnarfirði
„VIÐ erum að opna hér góðan
gæzluvöll í mjög ákjósanlegu
veðri — enda alliir í sólskins-
skapi‘‘, sagði formaður leikvall-
arnefndar Hafnarfjarðar, frú
Helga Guðmundsdóttir, ex blaða-
maður Mbl. kom að leikvellin-
um við Smyrlahraun, sem teki-
inn var í notkun í gærmorgun.
Völlurinn er tæpir tvö þúsuiid
fermetrar að stærð, húsið er
vandað með tvöföldu gleri í
gl'Uggum.
Gæzluvöllurdnn tekur á móti
börnum á aldrinum tveggja til
sex ára, sem tvær gæzlukonur
Menntamálaráðstefna
á vegum Félags háskólamenntaðra manna
FQSTUDAGINN 14. júní n.k.
gengst Félag háskólamenntaðra
kennara fyrir menntamálaráð-
stefnu í Reykjavík. Er þetta í
fyrsta sinn, sem félagið heldur
slíka ráðstefnu. Rætt verður um
vanrækt námsefni í hugvísindum
og raunvísindum, landspróf og
leiðir til framhaldsnáms og kenn-
aramenntun og kennaraskort. Til
ráðstefnunnar er boðið skóla-
stjórum framhaldsskóla og ráða-
mönnum fræðslumála. Á aðal-
fundi F.H.K., er haldinn verður
daginn eftir, verða umræðuefni
ráðstefnunnar tekin til ályktunar
og þar verður einnig lögð fram
til umræðu og ályktunar ítarleg
stefnuskrá félagsins í fræðslu-
málum. Aðalfundur félagsins
hefur til þessa verið haldinn á
starfstíma skólanna, en sam-
kvæmt nýjum ákvæðum félags-
laganna verður (hann haldinn í
júnímánuði framvegis. Tilgang-
urinn er að auðvelda félögum úti
á landi að taka þátt í störfum
þess, gera fundinn að eins konar
landsfundi samtakanna.
Menntamálaráðstefna F.H.K.
fer fram í Leifsbúð í Hótel Loft-
leiða og hefst kl. 10 árdegis n.k.
föstudag. Dagskrá er á þessa leið:
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður félagsins, setur ráðstefn-
una. Dr. Matthías Jónasson flyt-
ur ávarp er nefnist: Hefðbundin
fræði og þekkingarkrafa nútím-
ans. Um vanrækt námsefni í hug
vísindum og raunvísindum fjalla
Arnór Hannibalsson, magister (í
þjóðfélagsfræði), og Páll Theó-
dórsson, eðlisfræðingur (eðlis- og
efnafræði). Að loknu matarhléi
kl. 2 e.h. hefur Ingólfur A. Þor-
kelsson, kennari, framsögu um
kennaramenntun og kennara-
skort og Hörður Bergmann, kenn
ari, um landspróf og leiðir til
framhaldsnáms.
gæta firá kl. 9 tál 12 f. h. og 2
til 5 e. h. Við hliðina er opinn
völl'UX, ætlaður stærri börnum
Þann hluta vallarins, sem geng-
ið er í geginum inn að gæzlu-
vellinum, ætlaður fegrunar
nefnd Hafnarfjarðar að tyrfa.
gróðursetja þar blóm og tré og
koma fyrir bekkjum, svo konur
langt að komnar með börn sín,
geti tyllt sér þar niður.
Konur í Slysavarnafélaginu
Hraunprýði gáfu nýlega 25 þús
und kr. til barnaleikvalla, sem
Helga sagði, að nefndin væri
mjög þakklát fyrir. Og fleiri
hefðu brugðizt vel við, t. a. m
hefði komið frarn mjög góður
S'kilndngur á þessu máli hjá
bæjarstjórn.
í leikvallanefnd Hafnarfjarðar
enu auk Helgu Guðmundsdóttur
Guðrún Ingvarsdóttir og Mál
fríður Stefánsdóttir.
Sumarsýning
í Ásgrímssafni
í DAG verður hin árlega sumar
sýning Ásgrímssafns opnuð en
safnið hefur verið lokað undan-
farnar vikur m.a. vegna ýmis-
konar lagfæringa en frá Dan-
mörku komu í maí gamlar mynd
i'r úr viðgerð og tök tíma að
koma þeim fyrir í hinum þröngu
htúsakynnum safnsins.
Þessi sýning er 23. sýning Ás
grímssafns sdðan það var opnað
árið 1960. Sumarsýningin nú er
með svipuðu sniði og hinar fyrri
en þá er leitast við að sýna sem
fjölþættust viðfangsefni í list-
sköpun Ásgríms Jónssonar frá
a'ldamótum til síðustu æviára
hans. Með slíkri tilhögun eru
ekki sízt hafðir í huga þeir er-
lendu gestir sem jafnan skoða
safnið á sumrin.
í heimili listamannsins hefur
verið komið fyrir vatnslitamynd
um, m.a. frá Kerlingarfj öllum,
Þingvöllum, Mývatnssveit. Einn
ig myndir úr Njiálu og Sturl-
ungu.
í vinnustofu Ásgríms er sýn-
ing á olíumálverkum, m.a. eru
nokkrar þær myndir sem ný-
komnar eru úr viðgerð frá
danska ríkislistasafninu, og hatfa
aldrei verið sýndar áður. Sú
elzta atf þeim mun vera frá ár-
unum 1916—18, og er atf atburði
úr Njálu.
Ásgrímssafn hefur látið prenta
kynningarrit á ensku, dönsku og
þýzku um Ásgrím Jónsson og
safn hans. Einnig kort í litum
af nokkrum landslagsmyndum í
eigu safnsins, éisamt þjóðsagna-
teikningum.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl. 1,30
—4. Aðgangur ókeypis.
í júllí og ágúst verður safnið
opið alla daga á sama tíma nema
lauga'rdaga.
Hraunborgir í Húsafellsskógi. Mynd þessi er nýkomin úr við
gerð, máluð á árunum 1930-35.
Ítalíuferðir
Italska blómaströndin - London
brottf. 26. júlí og 9. ágúst.
Róm - Sorrento - London
brott. 16. ág. og 30. ág.
Ferð/n, sem fólk treystir
Ferð/n, sem fólk nýtur
Ferð/n, sem tryggir yður
mest fyrir peningana er
SpánarferðSr
Verð trá kr. 10.900.- með söluskatti
LLoret de Mar - skemmtilegasti
baðstaður Spánar * 4 dagar London
brottf. 18. júní (fullt), 26. júlí, 9. ágúst (fullt),
16. ágúst, 23. ágúst, 30. ágúst, 6. sept., 13. sept.
Crikkland - London brottf. 13. sept.
Skandinavia - Skotland brottf. 16. júií.
Mið-Evrópuferðin vinsœla brottf. 3. ág.
Dragið ekki að panta
ÚTSÝNARFERÐ
FERÐASKRIFSTOFAN
ÚTSÝN
Austurstræti 17
Sími 20100/23510.