Morgunblaðið - 09.06.1968, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 196«
Rauðarárstíg 31
S'imi 22-0-22
(ViAGIMÚSAR
(skipholti 21 símar 21190
eftir lokun simi 40381
lOsiM' I-44-44
mmm/fí
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 11—13.
Hagstætt leigugjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748.
Sigurður Jónsson.
BÍLALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
BÍLALEIGAN
AKBRAIJT
NÝIB VW 1300
SENDUM
SÍMl 82347
' ÓTTAR YNGVASON
hé raBsdómsI ög maðu r
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
BLÖNDUHLÍÐ 1 • SÍMI 21296
r— ' Sigurður Helgason héraðsdómslögmaður t Digranesveg 1S. — Simi 42390. ^
•A Sumri hallar . . .
Velvakanda hafa borizt nokk
ur bréf um íhöfund visunnar
alkunnu, „Sumri hallar . . .“
o. s. frv., en maður, sem nefn-
ir sig Þingeying bað Velvak-
anda fyrir nokkru að hafa uppi
á höfundi vísunnar, eins og
lesa mátti í foréfi hans, er foirt
ist hér. Velvakandi hefur í
huga að birta foréfin saman,
en þar eð eitt þeirra er mjög
langt, mun foirting þeirra bdða
fram í næstu viku. Þetta er
tekig fram vegna óþolinmæði
eins bréfritarans. Þegar allt að
tóitf bréf berast Velvakanda á
degi hverjum, er skiljandegt,
að sum verða að bíða birting-
ar um hríð.
★ Þarf að stofna
þjóðvörð?
„Brandur og Klængur" skrifa
(bréfið allstytt):
„Fiest ef ekki öll lýðræðis-
ríki eiga sér þjóðvörð, þ.e. lið
þjóðhollra og lýðræðistrúrra
borgara, sem kalla m,á út til að
stoðar lögreglu til þess að hafa
hemil á óaldarlýð og öfgaöfl-
um, sem vilja lýðræðið feigL
Ríkisvald hlýtur ðhjákvæmi-
Iega að vera veikt í lýðræðis-
ríkjum (a.m.k. veikara en í
einræðisríkjum), einkum þar
sem lítill eða enginn her er
til. Samt hlýtur lýðræðið að
mega verja sig. Dæmi eru þess,
að tiltölulega fámennur en harð
snúinn og ofstækisfullur hópjir
Öfgamanna geti ógnað lýðræðis
skipulaginu og komið öllu í foál
og brand. Ýmislegt bendir til
þess, að kommúnistar séu að
mynda slíkan hóp hér á landL
Að vísu treysta þeir sjálfum
sér ekki til stórræða, en hafa
hins vegar tilkynnt, að þeir
eigi von á fjölmennum hópi at-
vinnudemonstranta erlendis frá
í þessum mánuði. Hér mun um
að ræða hóp þaulæfðra ofbeld-
isafla, sem óþekktir aðiljar
kosta til þess að standa fyrir
óeirðum víða um lönd. Heim-
sókn slíkra manna mun að vísu
vera lítt að skapi íslenzkrar al-
þýðu, enda munu móttökurnar
verða eftir því. Ætli ofstækis
ihópur innan Æskulýðsfylking-
arinnar að efna hér til óeirða
með aðstoð erlendra málaliða,
eins og hann hefur hótað opin-
foerlega, mun ekki standa á
okkur Reykvíkingum að taka
mannalega á móti. Því miður
er ©kki laust við, að okkur finn
ist sumir foeinlínis hlakka til
að taka tíl ’höndunum. En slík-
ur hugsunarháttur er hættuleg-
ur. í stað þess að einstaklingar
séu að hópa sig saman tii að-
gerða gegn þessum skríl, er
foetra, að hið opimbera sjáltft
hafi hönd í bagga, því að ann-
ars geta mótaðgerðirnar orðið
þjösnalegri en efni standa tiL
Þess vegna finnst okkur, að rík
isvaldið eða Reykjavíkurlög-
reglan eigi að satfna saman og
þjálfa lið, sem getur aðstoðað
hið opinbera, ef í nauðir rekur,
en annars ekki“.
Velvakanda finnst nú, að hér
sé verið að mála skrattann
á vegginn. Sermilega óttast
þessir gagnmerku borgarar ein
hver kommalæti í kringum ráð
herrafund Atlantshafsbanda-
lagsins. Nú hafa bæði Stúd-
entaráð Háskóla íslands og
Stúdentafélag Hásikóla fslands
lýst sig mótfaflin hvers konar
uppþotum. Eftir er bara komm
únistafélag háskólans, sem hef
ur þó bara dylgjað um skríls-
FRA AVIV "
h-i
komnar aftur buxnadragtir
fyrir telpur 1—4ra ára, ^
2 peysur og buxur. Z;
Verð frá kr. 722,— '%
til 867,— c-’
ilæti, og viss hópur innan Æsku
lýðsfylkingarinnar. En eftir
frammistöðuna á hafnarbakkan
um á H-daginn, fær Velvak-
andi ekki séð, að mikið sé að
óttast. Fyrirlitning almennings
álitsins hlýtur líka ao hafa
haft sitt að segja. — Verði
kommúnistar hins vegar með
eitthvert sprelll, er foara fróð-
legt að sjá, hverjir leggja sig
niður við að taka þátt í því.
Þar verða sauðirnir aðskildir
frá höfrunum í íslenzku þjóð-
félagi. Hins vegar er ástæðu-
laust að leyfa þessum lýð að
gera meiri óskunda af sér en
að verða sjálfum sér til skamm
ar, og það er rétt út af fyrir
sig, að eins og stemmningin er
nú í bænum eftir skrílslætin á
hafnarfoatekanum og í kirkju-
garðinum, þá er betra, að lög-
reglan hafi hönd í bagga með
hugsanlegum samtökum borg-
ara, því að ekki má móthöggið
verða verra en kllámhögg
komma.
ií Ekki Ásmundur
Guðmundsson
biskup
Vegna fyrirspurna skal það
tekið fram, að grein sem ný-
lega birtist í Velvakanda, und-
irrituð Ásmundur Guðmunds-
son, er eteki eftir Ásmund Guð-
mundsson biskup.
•Jc Enn um
Faðirvorið
Velvakandi!
„Ég þakka þér fyrir birtingu
bréfs míns, og þær athugasemd
ir sem síðan hafa komið fram.
Það er e.t.v. ósanngjarnt að
vænta meira rúms í dálkum
þínum, en mér finnsrt málefnið
svo miklu skipta að ég freistað-
ist til að senda þessar línur í
viðbót. Mér finnst afstaða þín
ekki nógu málefnaleg. Þú seg-
ist „eiga bágt með að breyta
um orðalag". Þetta þæginda-
sjónarmið á hér ekki við. SjáLf
ur lærði ég Barnalærdóm Klav
eness og veit af eigin reynslu,
að það er mögulegt að breyta
um orðalag, ef maður viður-
kennir rökin fyrir því. Að bæn-
in hafi „bezt áhrif í því formi,
sem hver og einn lærði hana
í á bernskuárum“, finnst mér
ekki sannfærandi, þegar ég hefi
ilhuga, fovað mörg börn læra
Faðirvorið með brengluðu orða
lagL Auk þess er hér ekki um
algjört einkamál að ræða. Og
eins og það er óþolandi, að söng
flokkur syngi lag með sundur-
leitum texta, þannig getur
aldrei farið vel á því, að marg-
ir menn flytji sömu bænina
upphátt með ólíku orðalagi.
Um það vorum við Steinar Guð
mundsson alveg sammála.
Spurningin verður því: Hvern-
ig er textinn réttur, og hvar
getum við fundið hann? Að því
er Faðirvorið snertir, tel ég að
biblíuþýðing hvers tíma eigi að
ráða því, með þeim takmörk-
unum þó, sem ég minntist á í
fyrra bréfi mínu.
Klavenesskverið var í sam-
ræmi við ísl. biblíuna, þegar
það var löggilt, en er í ósam-
ræmi við þá, sem nú er notuð.
Þess vegna getur Kverið ekki
haft úrslitaþýðingu í þessu
efni. Þeir ágætu fræðimenn,
dr. Ásmundur Guðmundsson og
próf. Sigurður Sívertsen, sem
sáu um núgildandi þýðingu,
sýndu mikla djörfung, þegar
þeir færðu 6. bænina til sinnar
upprunalegu myndar á okkar
máli, því að það er ekki auð-
velt að breyta venjum, sem
gömlum mönnum eru orðnar
tamar og kærar. En því miður
hefur aldrei verið gerð alvar-
leg tilraun ti’l að taka breyting
una til greina. Allur þorri al-
mennings með marga presta I
broddi fylkingar, hefur haldið
fast við orðalagið, sem þeim
er „gamalt“ og þannig ruglað
börn og unglinga, sem í sínum
kennslubókum læra Faðirvorið
með öðru orðalagi.
Ég þakka sr. Bimi O. Björns
syni fyrir hans bréf. Ég held,
að það, sem honum er „ekki
fullljóst", stafi af óljósu minni
um bréf Steinars. Það gaf mér
ekkert tilefni til að ræða um
„þýðingargalla" Faðirvorsins,
enda skortir mig þekkingu til
þeirra hluta. Ég vil þó, eink-
um vegna barnanna, taka und-
ir orð hans um 5. bænina. Mörg
um börnum reynist þessi bæn
sérstaklega erfið og torskilin.
Væri ekki hægt að nota „eins
og“ í stað „svo sem vér og“ og
„mótgerðamönnum“ í stað
„skuldunautum“?
Nú mó enginn skilja orð mín
þan-nig, að ég vænti þess eða
óski eftir því, að biblían verði
þýdd á eitthvert barnamáL
Henni hæfir hátíðlegt mál og
fagurt- En hún verður að fylgja
eðlilegri þróun málsins. Mörg
orð og orðatiltæki sem öllum
almenningi voru töm og auðskil
in fyrir nokkrum áratugum,
eru það ekki lengur, þar sem
svo er, þarf að breyta um orða-
lag. Það væri æskilegt að þeir
sem til þess eru færir, veittu
okkur almúgamönnum meiri
fræðslu um þessi efni, og það er
sérstaklega tímabært nú, þeg-
ar ný útgáfa biblíunnar er í
undirbúningi.
Drengjahattar
og húfur. Stærðir 1—10 ára
.IV®
** ** Austurstrœii 12 ^
FYRIR 17. JÚNÍ FÝRIR 17. JÚNÍ FYRIR 17. JÚNÍ
a
1
►—4
td
h-*
-3
Ennfremur mikið úrval af barnafatnaði.
Verzlunin Kolorina
Stigahlíð 45—47. — Sími 81920.
Pí
hH
27
'D
K
►—1
FYRIR 17. JÚNÍ FYRIR 17. JÚNÍ FYRIR 17. JÚNÍ
Steingrímur Benediktsson."
Stuðningskonur
Gunnnrs Thoroddsens
hafa opnað skrifstofu í Hafnar&træti 19, II. hæð,
sími 13630. Opið kl. 2 — 6 daglega.
Stuðningskonur eru hvattar til að hafa samband
við skrifstofuna.