Morgunblaðið - 09.06.1968, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1968
— Það er eftirtektarvert að í hvert skipti sem ég fer að ráðum
yðar, verð ég alltaf að koma aftur til yðar.
mönnum er ögrað til þess. Hann
þagnaði til þess að sjá, hvernig
Stambulov bryggðist við. En ekki
varð einu sinni nein breyting á
svipnum kring um augun, sem
var hálfgremjufullur og hálf-
reiður.
— Yfirhershöfðinginn ykkar
skipaði svo fyrir í gaermorgun
sagði Nemetz, — að allir Ung-
verjar skyldu snúa aftur til
vinnu sinnar. Ætlið þér þá að
taka burt mann, sem mikil þörf
er fyrir, fyrir það eitt, að hon-
um kemur ekki saman við
tengdaföður sinn?
Stambulov leit á blöðin, sem
hann var með fyrir framan sig.
— Toth . .. Janos Toth. Er
það tengdafaðir hans?
— Stendur heima. Og svo er
líka frú Toth ... tengdamóðir-
in.
— Eigið þér nokkra tengda-
móður, herra fulltrúi? spurði
Stambulov næstum vingjarnlega.
— Nei- Nemetz hló. — Sem
betur fer hef ég aldrei gifzt.
Rússinn hló. Sem betur fer!
Þessi var góður! Hann andvarp
aði djúpt. — Það getur svo sem
vel verið, að þessi frú Toth sé
vargur en samt er hún hrein
asta friðardúfa í samanburði við
hana tengdamóður mína. Ef ég
dey tíu árum fyrir aldur fram,
þá er það henni að kenna. Já,
hver okkar hefur sinn djöf-
ul að draga. Segið þér Halmy
lækni, að hann skuli engar á-
hyggjur hafa. Ég sendi mann í
sjúkrahúsið til að rannsaka mál-
ið. Ef hann kemst að því sama,
sem þér hafið sagt mér ...
— En það er bara eitt atriði,
sem ég skil ekki, sagði Nemetz.
— Tothhjónin hafa yfirleitt
ekki komið nærri sjúkrahúsinu
síðasta hálfa mánuðinn. Hvern
ig geta þau þá fullyrt, að Halmy
sé um að kenna dauða ofurstans?
Vingjarnlegi svipurinn þurrk-
aðist út af andliti Rússans —
bráðnaði eins og þunn snjóföl,
þegar marzsólin fellur á fjalla-
hlíðarnar, svo að ekki verður
annað eftir en harður, grár
kletturinn.
— Það hafa þau heldur ekki,
sagði hann. — Mínar upplýs-
ingar koma frá sjúkrahúsinu.
Nemetz stóð upp- —Þakka
yður kærlega fyrir. Og hringið
þér umfram allt, ef þér skylduð
þurfa á hjálp deildarinnar minn
ar að halda bætti hann við, enda
þótt hann gæti ekki hugsað sér,
að nokkurntíma mundi til þess
koma.
Stambulov rétti honum hönd-
ina. Hún var viðkomu eins og
deig. En þegar Nemetz ætlaði að
draga að sér höndina aftur,
harðnaði deigið snögglega og
varð eins og stál undir silki-
mjúkri húðinni, og stálið hélt
hönd hans fastri.
— Þér gætuð gert mér dálít-
inn greiða, sagði Stambulov, er
hann loksins sleppti hendinni.
Hann gekk að skrifborðinu og
talaði í innanhússímann við rit-
ara sinn, sem kom að vörmu
spori með ein tólf úttroðin um-
slög. Stambulov tók þau og rétti
Nemetz.
— Það eru hlutir, sem hafa
verið í eigu mannanna úr yðar
deild. Mér datt í hug, að að-
standendurnir vildu fá þá.
Nemetz starði á umslögin og
skildi ekki neitt, eða vildi ekki
skilja.
74
— Hlutir úr deigi . . .? tautaði
hann.
— Já. Buddur, sjálfblekung-
ar, úr ... röddin var óþolin-
móð og geðvonzkuleg. — Við vilj
um gjarna skila þeim aftur til
fjölskyldnanna. Við erum orðnir
þreyttir á þessum lygasögum um
að dátarnir okkar steli frá föng-
um okkar. Við drepum okkar
menn ef þeir gera sig seka um
slíkt.
Nemetz tók nú að gera sér
Ijósa hina ógnvekjandi þýðingu
þessara umslaga. Hann hélt á-
fram að stara á þau og hryllti
við þeirri stundu, er hann yrði
neyddur til að opna þau.
— Við viljum helzt láta lítið
á þessu bera, hélt Stambulov á-
fram — Þessvegna hef ég ekki
sent þetta beint til lögreglu-
stöðvarinnar. Ég læt yður ráða,
hvernig þér farið að þessu.
Hann þagnaði sem snöggvast. —
Einhver var að stinga uppá, að
við eyðilegðum bara innihald
þessara umslaga, en ég þvertók
fyrir það. Mér er sama, hve
miklir glæpamenn þessir menn
hafa verið, en við verðum að
minnsta kosti að taka fullt til-
lit til fólksins þeirra. Við erum
þó siðaðir menn!
Nemetz stalst til að líta á
Stambulov til þess að sjá, hvort
hann væri að gera að gamni
sínu. En hann var grafalvarleg-
ur. Aftur kvöddust þeir með
EINANGRIJIM
Góð plasteinangrun hefur hita
leiðnisstaðal 0.028 til 0.030
Kcal/mh. °C, sem er verulega
minni hitaleiðni, en flest önn-
ur einangrunarefni hafa, þar
á meðal glerull, auk þess sem
plasteinangrun tekur nálega
engan raka eða vatn í sig. —
Vatnsdrægni margra annarra
einangrunarefna gerir þau, ef
svo ber undir, að mjög lélegri
einangrun.
Vér hófum fyrstir allra, hér á
landi, famleiðslu á einangrun
úr plasti (Polystyrene) og
framleiðum góða vöru með
hagstæðu verði.
Reyplast h.f.
Ármúla 26 - Sími 30978
handabandi og svo fór Nemetz
út.
Einhversstaðar á leiðinni út,
kvaddi hann Blavatsky, en
seinna gat hann ekki munað,
hvar eða hvernig.
í stað þess að ganga inn í mið
borgina, gekk hann nú í öfuga
átt áleiðis til skemmtigarðsins.
Hann settist á fyrsta bekkinn,
sem hann kom að, og opnaði um-
slögin.
í því þriðja fann hann buddu
Otto Koller, ásamt nafnskírteini
hans, sjálfblekungi og gamla
gullúrinu hans. Nemetz opnaði
budduna í þeirri von að finna
í leynihólfinu einhverja orðsend
ingu eða kveðjuorð, sem honum
kynni að hafa tekizt að krota
niður, þó ekki hinztu kveðju
heldur eitthvað eins og: „Trúðu
þeim ekki, þetta er allt í gamni,
og láttu hana ekki skamma mig
þó að ég sé burtu í tvær nætur.
Þeir hafa ekki drepið mig. Ég
ksm í skrifstofuna á morgun eða
hinn daginn eða þar næsta
dag . . . “
En þarna voru engin skila-
*
AUÐTITAÐ
VEITÉG
«6
0
©
að kaffi er svo viðkvœmur drykkur
að það verður að
laga það með umhyggju.
Einkum verðurað VARAST, að:
nota staðið vatn í kaffilögun,
að láta kaffið sjóða, að
hita upp kaffi sem hefur kólnað,
að laga kaffi í of stórri könnu.
Það borgar sig að laga kaffið
með umhyggju.
0.J0HNS0N
& KAABER
^ VELJUM ÍSLENZKT
60
<B>
ISLENZKAN IÐNAÐ
60
Tauniis 17 M. Sport
er til sölu af sérstökum ástæðum.
Bíllinn er sérpantaður, með aukahlutum svo sem,
gólfskiptingu og fl.
Upplýsingar í síma 32620.
LITAVER
PLA8TINO-KORK
Mjög vandaður parketgólfdúkur.
Verð mjög hagstætt.
Hrúturinn 21. mR4 — 19. apríl.
Gerðu skyldu þina við kirkjuna í dag. Njóttu félagskapar
góðra vina.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Dagdraumar um auðæfi og völd. Vertu raunsær. Þú heyrir
eitthvað athyglisvert seinni partinn.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní.
í dag ertu í félagslífinu. Vertu gagnlegur en ekki ágengur.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Friðsamlegt fólk i kringum þig kann að ásælast eitthvað, sem
þitt er. Sinntu kirkjunni í dag.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Hafirðu búið yfir einhverju, kann það að koma fram i dag.
Farðu í kirkju Gott er kvöld í fámennum hópi, vertu Mtillátur.
Meyjan 23. ágúst — 22. september.
Ættir.gjar og vinir verða erflðir í dag, allir eru d'álítið nöldur-
gjarnir. Þú munt verða einhvers vísari í kirfcju, sem gefur þér
kjark. Hugsaðu ráð þitt i dag.
Vogin 23. september — 22. október.
Furðulegt hvað peningamir geta gufað upp. Gefðu eitthvað
til kirfcju þimnar. Sparaðu að öðru leyti.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember.
Vertu allur þar sem þú ert séður, það borgar sig.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
í dag er góður dagur til að sinma rannsófcnarstörfum og alvar-
legum hugaunum.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
í dag ættirðu að grannskoða hiug þinn allan og dagfar. Reyndu
að finna einhverja leið til að verða hamingjusamari.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar.
Taktu þinn skammt af þegnskap á þig. Tónlist er ofarlega á
baugi.
Fiskamir 19. febrúar — 20. marz.
Vertu þínum nánustu samvinnuþýður eftir kirkjuför í dag.
J