Morgunblaðið - 16.06.1968, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1968
5
ANCLI - SKYRTUR
COTTON - COTTON BLEND
og RESPI SUPER NYLON
Fánlegar í 14 stærðum frá nr. 34 til 47.
Margar gerðir og ermalengdir.
Hvítar — röndóttar — mistlitar.
ANCLI - ALLTAF
íslandsferð fyrir sýning-
arglugga um Island og Fl
ÖKUKCNNSLA
á nýja Cortínu
Upplýsingar í síma 34222.
SKOZKU feðgin, William Haim-
ilton og Johan dóttir hans, hafa
dvaiið á íslandi undanfarna daga.
íslandsferð þeirra er að því leyti
óvenjuleg, að hún er verðlaun
fyrir beztu gluggaútstillinguna
af 150 um ísland og Flugfélags
íslands.
WiUiam Hamilton rekur í Skot
landi rafmagnsverkstæði og
verzlun með rafmagnsvörur, sjón
vörp og hljómplötur. Þegar
hann heyrði um að Pye-hljóm-
plötufyrirtækið og Flugfélag ís-
lands ætluðu í samvinnu að efna
til samkeppni, þar sem veitt
væru verðlaun fyrir beztu glugga
útstillinguna, er fjallaði um
bæði fyrirtækin, þá ákvað hann
að taka þátt í því. í glugganum
hans var komið fyrir módeli af
Boing 707-þotu flugfélagsins að
fljúga milli íslands og fjallalands
ins Skotlands, en í annan stað
var komið fyrir hljómplötum á
heimamarkaði í Skotlandi og er-
lendis. 150 fyrirtæki í öllu Skot-
landi höfðu tekið þátt í samkeppn
inni, verzlun Hamiltons sigraði.
Verðlaunin voru 5 daga ferð til
íslands.
Þar sem svo stóð á. að Johan
dóttir hans var að ljúka prófi
við landafræðideild háskólans,
tók William Hamilton hana með
sér í ferðina. Þau eru búin að
skoða Reykjavík, fara að Gull-
fossi og Geysi og til Þingvalla,
og fljúga norður til Akureyrar
og aka að Mývatni. Og svo ánægð
voru þau með ferðina, að þau
frestuðu heimferðinni um tvo
daga og fóru ekki fyrr en í morg-
un. — Allt hefur verið miklu
betra og meira en lofað var í verð
launum Flugfélags íslaiids, sögðu
þau. Þetta hefur verið svo stór-
kostlegt, að við viljum helzt
segja öllum frá því. í augum
Breta er ísland ekki beinlínis
sumarleyfisland, en við munum
vissulega reyna að breyta því
áliti, sögðu þau.
Johan og
William Hamilton
Stuðningskonur GUNNARS THORODDSENS
boða tíl eftirmiðdagsfundar í Súluasal Hótel Sögu miðvikudaginn 19. júní
kl. 15,30. - Dagskrá auglýst síðar. - Allar konur velkomnar. - Fjölmennum
og mætum stundvíslega.