Morgunblaðið - 25.08.1968, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1968
19
Myndin er tekin fyrir utan Iðnó, er leikarar og starfsfólk þar kom saman í fyrsta sinn að loknu
sumarleyfi. A myndina vantar nokkra leikaranna.
inn verið sýndur bæði á vegum
Fjalakattarins og Þjóðleikhúss-
ins. Það er Jón Sigurbúömsson,
sem sviðsetur. Mann og konu að
bes.su sinni, en leikmyndir teikn
ar Steinþór Sigurðsson. Brynjólf
ur Jóhannessorí leikur séra Sig-
valda, en hann lék sem kunnugt
er þann fræga klerk við frum-
uppfærsluna 1955. Regína Þórð-
ardóttir fer með hlutverk Þór-
dísar í Hlíð, Valgerður Dan er
Sigrún og Þorsteinn Gunnarsson,
Þórarinn stúdent. Valdemar
Helgason leikur Hjálmar tudda,
en það hlutverk fór hann einnig
me'ð 1933.
Leikritið um Yvonne Búrgund
arprinsessu eftir Witold Com-
browioe er eitt þeirra nútíma-
leikrita, sein mesta athygli hafa
vakið víða erlendis á síðustu ár-
um. Höfundurinn er pólskur að
uppruna, en hefur mörg undan-
farin ár verið búsettur i Frakk-
landi. Leikrit þetta lá lengi í
handraðanum áður en það komst
á svið, en hins vegar var höf-
undurinn kunnur af skáldsög-
um sínum. Hann hlaut til dæmis
fyrir tveimur árum bókmennta-
verðlaun Evrópuráðssins.
Magnús Jónsson hefur þýtt
Yvonne, en leikstjóri verður
Sveinn Einarsson. Með stærstu
hlutverkin fara Jón Sigurbjöms-
son, Sigríður Hagalín, Borgar
Garðarsson, Jón A’ðils og Þórunn
Sigurðardóttir. Steinþór Sigurðs-
son teiknar leikmyndir, en bún-
inga teikna Una Collins. Yvone
mikið til óbreytt í vetur frá því
verður frumsýnd í október.
Starfslið Leikfélagsins verður
sem var á fyrra leikári, nema
hvað einn leikari bætist í hóp
fastráðinna leikara, Steindór
Hjörleifsson.
Slysatölur milli vik
morha 11.-17. ágúst
Starf Leikfélagsins hafið
Starfsárið er hafið hjá Leik
félagi Reykjavíkur. Núna í
vikunni komu leikarar í Iðnó
og starfsfólk saman í fyrsta
sinn að nýloknu sumarleyfi,
og þegar daginn eftir hófust
æfingar á tveim fyrstu verk-
efnunum, sem frumsýnd
verða í haust, Manni og konu
og Yvonne Búrgundar-
prinsessu eftir Combrowice.
Leikárinu lauk 19. júní sl. með
sfðustu sýningu á Heddu Gabler,
en aðsókn að þeirri sýningu var
svo mikil, að Hedda verður sýnd
að nýju nú í haust, og auk þess
er ráðgert að fara með hana í
stutta leikför til Akureyrar um
mánaðamótin september—októ-
ber.
Strax þann 20. júní lagði leik-
flokkur Leikfélagsins af stað út
á land með Koppalogn Jónasar
Árnasonar, sem sýnt hafði verið
í Iðnó frá því á jólum, lengst
allra leikrita á leikárinu. Koppa-
logn var sýnt 19 sinnum úti á
Norður- og Austurlandi, og hef-
ur nú veri’ð sýnt samtals 72 sinn-
um, en sýningar hefjast á Koppa-
logni aftur í Reykjavík um miðj
an október. Þriðja leikritið frá
fyrra leikári, sem sýnt verður í
haust, er svo skopleikurinn Leyni
melur 13, sem frumsýndur var í
maí í vor og hlaut mikla að-
sókn.
Leikhússtjóri, Sveinn Einars-
son, ávarpaði samstarfsfólk sitt
að afloknu sumarleyfi og lýsti
því sem framundan er í leik-
húsinu nú í haust. Ennfremur
ræddi hann ný viðhorf í húsbygg
ingarmálum félagsins, en þau
mál verða rædd á aðalfundi Leik
félagsins; sem haldinn verður
þriðjudaginn 5. september nk.
Hinn vinsæli alþýðusjónleikur,
Maður ok kona, verður frum-
sýndur upp úr 20. september. Er
þetta önnur sviðsetning L. R. á
leiknum, sem þeir Emil Thor-
oddsen og Indri’ði Waage sömdu
upp úr hinni sígildu sögu Jóns
Thoroddsens, en þessi leikgerð
var frumsýnd í Iðnó 4 jólum fyr
ir 35 árum. Síðan hefur leikur-
FRAMKVÆMDANEFND hægri
umferðar hefur fengið tilkynn-
ingar úr lögsagnarumdæmum
landsins um umferðarslys, sem
lögreglumenn haft gert skýrslur
um og þar urðu í tólftu viku
hægri umferðar.
í þeirri viku urðu 69 slík um-
ferðarslys á vegum í þéttbýli, en
25 á vegum í dreifbýli eða alls
94 umferðarslys á landinu öllu
Þar af urðu 47 í Reykjavík.
Samkvæmt reynslu frá 1966 og
1967 eru 90% líkur á því, að
slysatala í þéttbýli sé milli 58
og 92, en í dreifbýli milli 10 og
32, ef ástand umferðarmála helzt
óbreytt. Slík mörk eru kölluð
vikmörk eða nánar tiltekið 90%
vikmörk ef mörkin eru miðuð við
90% líkur.
Slysatölur voru því milli vik-
marka, þ.e. á þann hátt sem bú-
ast mátti við bæði í þéttbýli og
dreifbýli.
Af fyrrgreindum umferðar-
slysum urðu 19 á vegamótum í
þéttbýli. Vikmörk fyrir þess
háttar slys eru 13 og 32.
Alls urðu í vikunni 11 umferð-
arslys, þar sem menn urðu fyrir
meiðslum. Vikmörk fyrir tölu
slíkra slysa eru 3 og 14. Af þeim
sem meiddust, voru 3 ökumenn,
5 farþegar og 6 gangandi menn,
eða alls 14 menn.
í þessum umferðarslysum
varð eitt banaslys, hið fyrsta,
sem kunnugt er um síðan hægri
umferð tók gildi. Varð það á
veginum heim að bænum Vaði í
S.-Þing. Dráttarvél, sem var ein
á ferð, fór út af veginum og
valt. Varð ökumaður undir
henni.
Samkvæmt vegalögum frá
1963 eru vegir heim að bæjum
sýsluvegir, nema síðustú 200
metrarnir. Slysið átti sér því stað
á sýsluvegi, sem telst opinber
vegur. Það er því skráð sem um-
ferðarslys.
4
LESBÚK BARNANNA
HVAÐ HENTAR HVERJUM?
Efst á myndinni eru fimm ólíkir menn. Hver
þeirra þarf að nota þrjá af hlutunum, sem eru
fyrir neðan þá á myndinni. Hvaða hluti mund-
uð þið velja ef þið væruð í þeirra sporum?
SMÆLKI
Pétur litli hafði meiti
sig á fæti. Á hverjum
degi kom læknir til þess
að nudda hann. Það var
ákaflega sárt fyrk Pétur
litla, því að læknirinn
var harðhentur.
Einn dag varð læknir-
inn sjálfur veikur og
sendi a.nnan í sinn stað.
Nú hætti Pétur alveg að
kveinka sér. Hann
brosti, þegar verið var
að nudda hann.
,,Þú ert duglegur
drengur“, sagði móðir
hans. „Finnur þú ekki
mikið til?“
„Ekki hið minnsta",
svaraði Pétur. „Ég er
ekki svo heimskur að
láta nudda veika fót-
inn“.
Vinurinn: „Hvað þótti
þér mest um vert á ferð
þinni um Alpafjöllin?“
Ferðamaðurinn: „Að
konan mín var alltaf
mállaus af aðdáun“.
María gamla ferðaðist
með járnbrautarlest í
fyrsta skipti á ævinni.
J árnbrautarþjónninn:
„Get ég fengið farmið-
ann yðar?“
María: „Hvað er þetta?
Viljið þér fá farmiðann
minn?“
Járnbrautarþjónninn:
„Já, látið mig fá hann“.
María: „Nei, ef þér
viljið fá farmiða, verðið
þér að snúa yður til
mannsins, sem sat fyrir
innan gatið á veggnum.
Þar fékk ég minn“.
Rakarinn: „Þetta er í
fyrsta skipti, sem ég hef
þá ánægju að raka yð-
ur“.
Maðurinn: „Nei, ég
hef komið hingað einu
sinni áður“.
Rakarinn: „Jæja, ég
get ómögulega munað
eftir andliti yðar“.
Maðurinn: „Því get ég
vel trúað. Nú eru sárin
öll gróin“.
Lögregluþjónninn: „Ég
held að þið höfum fund-
ið konuna yðar, sem var
týnd“.
Maðurinn: „Haldið þér
það? Hvað segir hún?“
Lögregluþjónninn:
„Ekki neitt“.
Maðurinn: „Þá er það
ekki konan mín“.
Ráðning
Prentvillupúkaþrautin
(svar úr síðasta blaði):
THOMAS EDISON.
KAKAN
eftir Sally Jarvis
„HVERS vegna viltu
ekki hnetuköku, amma?“
spurði Siggi litli og
horfði á ömmu sína setja
krem á kökuna.
„Hnetukaka var einu
sinni uppáhaldskakan
mín, sagði amrna og
andvarpaði. „Þegar ég
var á þínum aldri beið
ég og beið eftir að
mamma ba-kaði hnetu-
köku. En það var sein-
legt að baka hana, svo
að mamma gerði það
mjög sjaldan. Þegar hún
svo loksins bakaði hnetu
köku var það venjulega
fyrir eimhver gestaboð,
og þá fékk ég ekki að
smakka á henni fyrr en
gestirnir voru farnir“..
„Eitt sinn sem oftar
ákváðu mamma og pabbi
að hafa gestaboð þá um
kvöldið, og mamma ætl-
aði að baka hnetuköku
á meðan ég var í skólan-
um. Þegar ég kom heim
fór ég, eins og venjulega,
beint inn í eldhús, en það
var enginn þar. Allir