Morgunblaðið - 25.08.1968, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1958
James O’Brien býður Kristján Jóhann Kristjánsson og fylgdarlið hans velkomið. Á myndinni
sjást, talið frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Hólmfríður Mekkinósdóttir, Halldór Guðmundsson,
fuiltrúi verzlunarráðsins, Axel Thorarensen, James O’Brien, Sigurður Magnússon, Alfreð Elías
son, Kristján Jóhann Kristjánsson, Bolli Gunnarsson, E.K. Olsen, Hjálmar Finnsson.
Stúlka hætt komin
Hékk á gluggakarmi á annarri hœð
LITLU munaði, að lítil stúlka
stórslasaðist á fimmtudag. Hafði
hún skriðið út um glugga á
annarri hæð húss í Þingholts-
strætinu og komist í sjálfheldu.
Hékk hún þar á annarri hendi,
en Ingólfur Sveinsson, lögreglu-
þjónn, sem átti þarna leið hjá,
kom auga á bamið, náði í stiga
og bjargaði því.
„Við spurðum Ingólf um atburð
inn og sagðist harrn hafa átt
þanna leið hjá Borgarbókasafn-
iniu, þegar hann sá stúlksuna.
Hún stóð á gluggakarminum
Oig hélit sér með anmarri hendi
í gluggann. Mér var sagt á eftir,
að hún hefði verið að leika sér
í herberginu og lokast á einn eða
annan hátt inmi. Hún hefur sjálf-
sagt orðið óróleg fyrst hún
reyndi að fara á þennan hátt út
úr herberginu. Glugginn sem hún»
fór út um, var ekki stór, svo-
kallaður efri gluggi. Hún hefur
svo séð, að ekki var haegt að
komast þessa leið, en ekki getað
eða þorað að fara inn aftur, enda
nokkuð erfitt.
Ég var svo heppinn að finma
stiga í nágrenninu og reisti hann
þarna upp og kom henni til hjálp
ar. Þá var maður kominn inn í
herbergið og hann hjálpaði mér
mieð stúlkuna, tók á móti henni
inn um gluggann.“
„Var stúlkan ekki hrædd?“
„Ekki virtist mér það, og það
var mesta mildi að ekki skyldi
koma fát á hana þvi að þarna
er nokkuð hátt fall niður á stein-
stétt og hún hefði hæglega getað
stórslasazt.“
20 ár frá fyrsta farþegaflugi
Loftleiða til Bandaríkjanna
Sunnudaginn 25. þ.m. er sögu-
Qegum áfanga náð í þróunarbraut
íslenzkra flugmála, þar sem
þann dag verða 20 ár liðin frá
því er Loftleiðir hófu fyrsta á-
ætlunarflug sitt frá íslandi til
Bandaríkjanna. Nokkru áður
höfðu flugmálastjórnir Bandarikj
anna og íslands orðið sammála
um að verða við beiðni Loft-
leiða um leyfi til áætlunarflugs,
og ákvað stjórn félagsins að
staðfesta það með ferð, er hefj-
ast skyldi frá Reykjavík með
Skymasterflugvél félagsins, TF-
RVC „Geysi“, hinn 25. ágúst
1948.
Flugstjóri í þessari ferð var
Alfreð Elíasson, núverandi fram
kvæmdastjóri Loftleiða, en að-
stoðarflugmaður hans Kristinn
Olsen, núverandi flugdeildar-
stjóri félagsins. Vélamaður var
Ha'ldór Guðmundsson, nú for-
Stjóri tæknideildar Loftleiða í
New York, flugleiðsögumaður
Axel Thorarensen, loftskeyta-
maður Bolli Gunnarsson og flug
freyjur Sigriður Gestsdóttir, er
nú starfar í söluskrifstofu Loft-
leiða að Vesturgötu 2 og Hólm-
fríður Mekkinósdóttir. Meðalald
ur áhafnarinnar var 26 ár.
Farþegar voru 45, 23 kar’ar og
22 konur, 12 útlendir, 33 íslenzk
ir, elzti farþeginn 67 ára, sá
yngsti hálfs árs.
Auk áhafnar voru í ferðinni
frá Loftleiðum þáverandi stjórn
arformaður, Kristján Jóhann
Kristjánsson og Sigurður Magn-
ússon b’aðafulltrúi.
Upphaflega var gert ráð fyr-
ir að fljúga frá Reykjavík til
Gander, en vegna óveðurs þar
var ákveðið að halda til Goose
Bay og var lent þar eftir tæpra
8 stunda flug. Að lokinni rúmrar
hálfrar annarrar klukkustundar
viðdvöl var haldið til New York
og lent á Idlewild flugvelli eft-
ir 5 klst. og 40 mínútur. Var
flugtíminm frá fslandi því tæp-
ar 14 klukkustundir.
Á Idlewild flugvelli biðu, auk
fréttamanna, komu flugvélarinn
ar Hjálmar Finnsson, er þá var
fulltrúi félagsins í New York.
nú fOrstjóri Áburðarverksmiðju
ríkisins, fulltrúi borgarstjórans í
New York, Mr. James O’Brien
og fulltrúi verzlunarráðs borg-
arinnar. Þótti það fréttnæmt, að
svo skyldi vilja til að fyrsta á-
ætlunarflugvélin frá því landi,
sem við ís er .kennt skyldi renna
inn í eina þá mestu hitabylgju,
er skollið hafði yfir New York.
Enda þótt Loftleiðum hefði
verið veitt heimild til áætlunar-
flugs árið 1948, þá urðu ferðirn-
ar ekki reglubundnar fyrr en á
árinu 1952 og í ársbyrjun 1953
hóf félagið fyrstu vikulegar ferð
ir milli Evrópu og Banda-
ríkjanna. Frá einni ferð í viku
hefir ferðunum svo smám saman
fjölgað unz þær eru nú — á tví
tugsafmæli áætlunarflugsins —
orðnar 19 í viku milli fslands og
Bandarikjanna.
Til fyrstu áætlunarferðanna
notuðu Loftleiðir flugvélar af
Skymaster gerð, er fóru með 335
km hraða, miðað við klukku-
stund, og fluttu 46 farþega. Nú
er flogið vélum af Rolls Royce
gerð, sem fara með 630 km hraða
á klukkustund og flytja 189 far-
þega.
Á því 20 ára tímabili, sem nú
er að baki, hafa Loftleiðir alls
flutt rúmlega 850 þúsund ,far-
þega milli New York og íslands.
Má fullyrða, að fátt hafi orðið
til þess að auka betur góðkynni
milli Bandaríkjamanna og ís-
lendinga en áætlunarferðir Loft-
leiða. f því sambandi má t.d.
minna á, að um helmingur við-
dvalargesta Loftleiða hér á ís-
Ekið ó kyrr-
stæðon bíl
Frá kl. 22 í fyrrakvöld til kl.
11,30 í gærmorgun var ekið á
kyrrstæðan bíl ét bílastæðinu við
Ásgarð 1-17, og varð af talsvert
tjón.
Þeir sem átt hafa leið nm þetta
bílastæði á ofangreindum tima,
vinsamlegast athugi bíla sína,
þvi að öllum líkindum hefur
ökumaður ekki veitt þessu eftir-
tekt. Góðfúslega hringið i síma
34905 og látið vita, eða í Svein
Þormóðsson á Morgunblaðinu,
simi 10100.
landi er nú bandarískur og kynn
isferðir íslendinga til Bandaríkj
anna eru sívaxandi.
Á hinu 20 ára timabili áætl-
unarflugs Loftleiða milli íslands
og Bandaríkjanna hefir Loftleið
um verið heimilað að bjóða lægri
gjöld milli Bandaríkjanna og
Norður Evrópu en þau, sem önn
auk góðrar fyrirgreiðslu, átt mik
inn þátt í að auka Loftleiðum
vinsældir. Ber á 20 ára afmæl-
inu að þakka flugmálayfirvöld-
um Bandaríkjanna þann skiln-
ing, sem þau hafa sýnt á sér-
stöðu íslendinga, og láta í ljós
von um, að næstu 20 árin á þró-
unarferli Loftleiða fái félagið
aðstöðu til þess að halda a.m k.
þeim hundraðshluta, sem það hef
ir nú af farþegaflutningunum yf-
ir Norður-Atlantshafið.
MBL. hefur borizt svofelld yfir-
lýsing frá Samtökum um vest-
ræna samvmnu:
„Stjórn Samtaka um vestræna
samvinnu fordæmir tilefnislausa
árás Sovétríkjanna og band-
ingja þeirra í Varsjárbandalag-
inu á Tékkóslóvakíu og lýsir
yfir dýpstu samúð sinni með bar
áttu Tékkóslóvaka fyrir frelsi,
fullveldi og lýðræðislegum stjóm
arháttum. Jafnframt harmar
stjómin þær auknu viðsjár í al-
Hjarta 11
grætt í 5
Houstom, Texas, 19. ágúst
NTB-AP.
Á SUNNUDAGSMORGUN var
grætt hjarta úr ellefu ára dreng
í fimm ára telpu, og er líðan
hennar eftir atvikum góð, að því
er fregnir frá St. Lukes sjúkra-
húsinu í Houston herma. Hjarta-
græðsluna framkvæmdi lækna-
Iið undir stjórn dr. Dentons A.
Cooleys, sem þar með hefur
stjórnað níu hjartagræðslum.
Sjö sjúklinga hans eru á lífi, og
tveir þeirra útskrifaðir úr sjúkra
húsinu og famir að vinna.
Hjartagjafinn, James Dudley
VIÐ erum ekki ánægðir með
stillingu umferðarljósanna á
Miklubraut, sagði Guttormur
Þormar, yfirverkfræðingur hjá
gatnamálastjóra í viðtali við Mbl.
í gær og mun erlendur sérfræð-
ingur væntanlegur hráðlega frá
fyrirtækinu, sem seldi okkur
ljósin til þess að stilla þau endan-
lega.
Reykvíkiingar sem aðriir, er leið
eiga uim götur bcxr.gariinnair hafa
teki® eftir þvi, að beygjuljósiin á
Mikkubraiut eru alltof stuitt. Gutt-
ormur sagði, að kkukfca stjómaði
ljósumurm og væri mismiuniaindi
tími á þeim, Beygjuljósin enu
hins vegar einskonar atfgangsljós,
þannig, að tími þeirra styttist eft-
ir því sem hin lengjast. Fyrirtæk-
þjóðamálum, sem þessi svívirði-
lega árás mun hafa í för með sér,
og þann viðgang afturhalcþtafla
í heiminum, sem hún stuðlar að.
Árásin er freklegt brot á Stofn-
skrá Sameinuðu þjóðanna, sem
hljóta að láta málið til sín taka
og gera það sem í þeirra valdi
stendur til að koma í veg fyrir
að stórveldi og leppríki þedrra
fái þannig fótum troðið sjálfs-
ákvörðunarrétt fullveldi smá-
þjóða“^
ára drengs
ára telpu
Herron, sem var ellefu ára, lézt
af heilablæðingu. Föður hans,
sem er prófessor í efnafræði við
Purdueháskóla í Lafajætte, Indi-
ana, var tjáð, að drengurinn væri
líklega heppilegur hjartagjafi
og flutti hann drenginn þá til
Houston. Telpan, sem hjartað
fékk, heitir Maria Giannaris.
Var fyrirsjáanlegt að hún mundi
ekki lifa lengi, án hjartagæðslu,
og kom til greina fyrúr nokkru
að græða í hana hjarta úr öðrum
dreng, en foreldrar hans vildu
ekki gefa hjarta ha«is.
ið sem seld-i ljósin hingað til
liands, ráðlagði það, að ekki yrði
hreyft við stillingu þeinra fyrstu
mánuðina, sem þau væru í notk-
un, en nú er væntanlegur sér-
fræðinguir til þess að stilla ljósin
og lagfæra þennan galda.
>á kvað Guttoirmiur saimistiíil-
ingu Ijósanna ekki nægitega
góða og yrði það tagfært einniig
og yrði þá hraðkin merktur á
hverjum stað. Hann kvað við-
bragðsflýti ökumainna ekki nógu
mikinn og kæmi hann einnig að
sök í þessu efni. Þó hafðá hann
trú á því að það stæði til bóta.
Nokkiurs misskilnings hefur
gætt meðal ökuan'anna á ljósum-
um við Álfheimia-Suðurlanids-
'oraiuit og Nóatún-Laugaveg. Þar
er leyfilegt að aika á móti græmiu
ljósr og beygja, þótt örin, er sýn-
ir beygjunia sé ekki komin. ör-
jn er einungis til þess að sýna
ökumönmum, að umtferðin á móti
sé bönnuð. Komi hins vegar eng-
in umferð á móti og slökkt ex á
örmni má beygja. í þessu tid-
tfelli sem öðnum igildir sú regla, að
aka naá móti græinu ljósi.
> ----------»■♦-•»----
Erindi um stjórn-
arskrórmúlið
SAMBAND ungra Framsóknar-
manna hefur gefið út í bæklings-
formi erindi, sem flutt voru á
ráðstefnu SUF um stjórnarskrár-
málið. Eru birt í bæklingi þess-
um þrjú erindi, svo og ávarp foar-
manns Framsóknarflokksins o g
ályktun ráðstefnunnax.
Farþegahópurinn að ganga frá borði i N ewYork.
Fordæma tilefnis-
lausa árás
Erlendur sérfræðingur
stillir umferðarljðsin