Morgunblaðið - 18.09.1968, Side 10

Morgunblaðið - 18.09.1968, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. SEPT. 1968 V.R. boðar til almenns fundar: Unga fólkið í atvinnu- lifinu og stjórnmálin VERZLUNARMANNAFÉLAG «• Reykjavíkur hefur boðað til al- menns fundar n. k. fimmtudags- kvöld, og verður fundarefnið „Unga fólkið í atvinnulífinu og stjórnmálin.“ Frummælendur á fundinum verða Baldur Óskars- son, formaður Félags ungra Fram sóknarmanna, Kristján Þorgeirs- son, formaður Félags ungra jafn aðarmanna, Magnús Gunnarsson, viðskiptafræðinemi og Sigurður Magnússon, forseti Iðnnemasam- bands fslands. Á eftir framsögu- ræðum verða síðan frjálsar um- ræður. Á fundi með fréttamönnum í gær, skýrði Guðmundur H. Garð arssan, formaður V.R. frá því að aðaltil'gangurinn með þessum fundi væri, að gefa áhugafólki tækifæri til að ræða um og brjóta _ til mergjar þann vanda í íslenzku þjóðlífi ,sem kynni að 'hafa skap- azt vegna áhrifaleysis yngi kyn- Nýr viðskipta- samningur við Pólland Utanríkisráðuneytið hefur sent eftirfarandi fréttatilkynningu: ,,Hinn 16. þ.m. var undirritað- ur í Varsjá viðskiptasamningur milli íslands og Póllands fyrir árið 1969. Er hinn nýi samning- ur í megin atriðum samhljóða núgildandi samningi. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 17. september 1968.“ Eldur í Seðlabankanum UM hádegisbil í gær var slökkvi liðið kallað út að Seðlabankan- um. Hafði smáeldur kviknað vegna útleiðslu á rafmagni í kjallara hússins, þar sem seðlar landsmanna eru flokkað- ir. Smáglóð komst í trébita fyr- ir ofan ljósalampa, en hún var fljótlega slökkt með handslökkvi tæki. Engar skemmdir urðu á húsmunum eða seðlum. slóðarinnar á gang jóð- og bæj armála. Sagði Guðmundur, að af 4000 meðlimum Verzlunarmanna félags Reykjavíkur væri um 3000, sem væru 40 ára og yngri, og því ekki nema eðlilegt að félagið hefði forgöngu um slíkan fund. — Þetta unga fólk í iðnaði, sjávarútvegi, landbúnaði, verzl- un flugi, siglingum o. s. frv., sem er að hefja eða hefur ný hafið sitt lífsstarf í atvinnulífi þjóð- arinnar á mi'kið í húfi, að á ís- landi sé rekin heilbrigð sjórn- málastarfsemi af traustum stjóm málamönnum, þar sem staða at- vinnuveganna og þýðing er rétt metin og eðlileg uppbygging þeixra tryggð. >ess vegna getur ungt fólk i atvinnulifinu ekki, og það má ekki, eftirláta stefnumót- un umræður og þátttöku í stjóm málum fáum útvöldum mönnum. Vegna framtíðar sinnar og þjóð- arinnar verðr það að vera virkur þátttakandi, sagði Guðmundur. Sem fyrr segir verður fundur- inn haldinn að Hótel Sögu, fimmtudaginn 19. sept. og hefst hann kl. 20,30. Kváðust forráða- menn félagsins rei'kna með að hann yrði vel sóttur, og að þeir vonuðust eftir þvi að á honum kæmu fram athyglisverðar hug- myndir og tillögur. Frímerki til minnmg- ra um Leil Eiríksson Á LAUGARDAG tilkynnti ..................v....... .v yfirmaður póstþjónustu Bandaríkjanna, Marvin Wat- son, að gefa ætti út frímerki til mirmingar um Leif Eiríks- son, sem sigldi til Vestur- heims um 500 árum á undan Kolumbusi. Frímerkið verður að upp- hæð 6 cent og verður gefið út 9. október í Seattle í Was- hington. f Seattle og nágrenni er mikill fjöldi fólks af norr- ænu bergi brotið. Stendur þar s-tytta við höfnina af Leifi heppna. Á frímerkinu verður mynd af Leifsstyttunni í Reykjavík, sem gerð var af hinum kunna bandaríska myndhöggvara, Sti-rling Calder. Frímerkið verður brúnt og er það óvenjulegt að frimerki í einum lit þarf tvær umferð- geta sent umslög merkt sjálf- ir i prentun. Bakgrunnurinn um sér, ásamt greiðslu í al- er prentaður með offsetprent- þjóða svaramerkjum til un og síðan myndin og staf- POSTMASTE’R, SEATTLE, irnir með venjulegri pressu. Washington 98101, U.S.A. í Efst á frímerkinu er nafn hvert umsdag á að setja spjald Leifs Eiríkssonar. Á miðju á þykkt við póstkort og loka hægri kants stendur U. S. síðan umslaginu. Umslögin, Postage og þar fyrir neðan 6 sem send eru póststofunni í cent. Seattle, ber að auðkenna með Frímerkið er teiknað af eftirfarandi áritun: „First day Kurt Weiner, og að öðru levti covens 6 cent Leif Erikson unnið og prenfað af stárfs- stamp“. Bréfin sem send eru mönnum ríkisprentsmiðju til Seattle mega ekki vera Bandaríkjanna. póststimpluð síðar en 9. októ- Vélskólinn settur S.L. MÁNUDAG var Vélskóli íslands settur í 53. skiptið, og í þriðja sinn undir nafninu Vél- skóli íslands, en í vetur kemur sú breyting á starfsháttum skól- ans, sem var gerð samkvæmt lög um frá 1966, til fullra fram- kvæmda. í skólasetningarræðu Gunnars Bjarnasonar, skólastjóra, kom m.a. fram, að nemendur í skól- anum verða um 200 í vetur, auk þess sem starfsemi Vélskólans út um landisbyggðina eykst. 1. og 2. stigs kennsla verður rek- in á Akureyri og er 2. stigs kennsla þar nýmæli. Þá stend- ur einnig til að kennsla 1. stigs fari fram í Vestmannaeyjum. í ræðu sinni gat skólastjóri um nokkrar nýjungar, sem tekn ar verða upp í kennislu skóians í vetur. Má m.a. nefna, að í fyrsta sinn verður tekin upp kennsla í stýritækni, og sagði skólastjóri að hér væri um óum- flýjanlega kennslu að ræða fyr- ir vélstjóramenntunina, enda væri þetta nú kennslugrein í öilum vélstjóraskólum á Norður löndum. Safnarar, sem óska eftir að eignast fyrsta dags útgáfu, ber. Antigona Sofoklesar og leikrit eftir Dario Fo — meðal viðfangsefna L.R. í vetur Á FUNDI með fréttamönnum í gær, skýrðu forráðamenn Leik- félags Reykjavíkur frá nokkr- um leikritum, sem tekin verða til sýningar á leikárinu. Má þar að nefna Antigónu Sófó- klesar, og verður það í fyrsta sinn, að grískur harmleikur er tekinn til sýningar á íslenzku leiksviði. Þýðingu fyrir Leikfé- lagið hefur Helgi Hálfdánarson gert. Ekki er enn fullráðið hve- nær „Antigóna“ verður frum- sýnd. Síðari hluta októbermánaðar verður svo næsta frumsýning hjá Leikfélaginu a „Yvonne Bur gundaprinsessu“ eftir pólska ritahöfundinn W. Gombrovitz. Kosningar til Al- þýðubandalagsþings Sjálfkjörið í tveimur félögum í Reykjavík KOSNTNGAR til Alþýðusam- bandsþings hófust um sl. helgi og standa til 6. október. Fá fé- lög hafa ennþá kosið fultrúa síina, -en hér í Reykjavík hefur þó orðið sjálfkjörið í tveimur félögum, í Múrarafélagi Reykja- víkur og Félagi jámiðnaðar- manna. Fulltrúar Múrarafélags- ins eru: Hilmar Guðlaugsson, Einar Jónsson og Jón G. S. Jóns- son. Fulltrúar jámiðnaðarmanna eru: Guðjón Jóns'son, Brynjólfur Steinsson, Guðmundur Rósin- karsson, Snorri Jónsson og Tryggvi Benediktsson. Varnarliðið tekur þátt í æfingum NATO FRANK B. Stone, flotaforingi, yfirforingi NATO á íslandi hefur tilkynnt, að sveitir frá varnarlið inu í Keflavík muni taka þátt í flotaæfingum NATO á Atlants- hafi sem eru að hefjast. Um eitt hundrað herskip taka þátt í þess um æfingum og frá Keflavík ▼erða sendar orrustuflugvélar frá fimmtugustu og sjöundu orr- ustuflugsveitinni og Orion kaf- bátaeyðingarvélar frá fertugustu og fjórðu eftirlitsflugsveitinni. Orrustuflugvélar frá brezkum flugmóðurskipum munu taka þátt í æfingum með vélunum frá Keflavík. Hann skrifaði leikritið fyrir þrjá tíu árum, en dró það ekki fram úr pokahorninu fyrr en tuttugu árum síðar. Yvonne Burgunda- prinsessa hefur verið sýnd í mörgum löndum undanfarin ár. Magnús Jónsson þýddi leikinn, Sveinn Einarsson er leikstjóri og leikmynd garði Steinþór Sigurðs ison, en Una Collins teiknaði bún- inga. Miaðal annarra verka eru A- ást (á ensku Luve) eftir banda- rískan höfund, Murry Schigal. Úlfur Hjörvar þýddi á íslenzku Þá hefur L. R. í hyggju að taka til sýningar leikrit eftir ítalska leikskáldið Dario Fo, en hann er leikhúsgestum að góðu kunn- ur síðan L.R. sýndi einþáttunga hans „Þjófar, lík og falar konur“ fyrir nokkrum árum. Orðrétt þýðing á heiti þessa nýja leiks er „Sá sem stelur fæti er heppinn í ástum.“ Leikinn þýddi Sveinn Einarsson. Þá er unnið að undirbúningi skemmtunar, sem haldinn verð- ur á vegum Leikfélagsins til á- góða fyrir húsbyggingarsjóð. Efn ið er tekið úr gömlum og vin- sælum revíum. Pétur Einarsson, Guðrún Ásmundsdóttir og Ár- óra Halldórsdóttir hafa veg og vanda af undirbúningi skemmt- unarinnar, sem verður væntan- isga í Austurbæjarbíói um miðj an október. Litla leikfélagið verður með starfsemi sína í Tjarnarbæ og sennilega með svipuðu sniði og í fjrrra. Þar verður og leiklist- arskóli félagsins til húsa. Sveinn Binarsson gat þess, að engir ný- ir nemendur hefðu verið tekn- ir í skólann í haust, ien hins veg ar verður efnt til námskeiðs eft- ir áramótin, sem mun standa fram á vor. Þar verður kennd leiktúlkun, framsögn og líkams- rækt. Breytingar á starfsliði L. R. verða þær helztar, að Steindór Hjörleifsison kemur aftur til fé- lagsins, sem fastráðinn leikari, en hann hefur sem kunnugt er gegnt stöðu dagskránstjóra sjón varpsins undanfarin ár, en læt- ur nú af því starfi. Fiskimól umræðu hjú EEC til Brússel, 17. sept. — NTB. Á ÞINGI Efnahagsbandalags Evrópu, (EEC), sem haldið verð- ur í Strasbourg 30 .sept. — 3. okt. n.k. munu mörg mikUsverð mál verða á dagskrá, m.a. um atburðina í Tékkóslóvakíu og ný viðhorf vegna þeirra. , Meðal þeirra mála, sem auk þessa verða á dagskrá, eru sam- eiginleg stefna EEC-landanna í fiskimálum skattamálum o.f 1. Athugasemd MEÐ grein minni um Lög um atvinnuréttindi skipstjórnmanna, sem birt er í 8. tbl. Sjómanna- blaðsins Víkingur, og áður hafði verið birt í Morgunblaðinu, fylg- ir athugasemd frá mér, þar sem ég segi m.a. að leiðréttinig á vill- um í Morgunbla'ðinu hafi ekki fengizt birt. Þetta er á misskiln- ingi byggt, leiðréttingin var birt. Mér þykir leitt, að þessi mistök skuli hafa átt sér stað. Jón Eiríksson. VELJUMISLENZKT Aukinn útllutningur EFTfl ■ landana Washington, 17. sept. — AP. ÚTFLUTNINGUR Fríverzl- unarbandalagslandanna, EFTA, til Bandaríkjanna jókst um 13,8% fyrstu sex mánuði þessa árs. Sagði skrifstofa EFTA í Washington í dag, að þessi aukn- ing væri hin mesta varðandi verzlun EFTA við nokkurn meiriháttar markað á sama tíma. Innflutningur EFTA-landanna frá Bandaríkjunum jókst á sama tíma um 6%. Austurríki og Portúgal juku útflutning til UiSA mest, um 20,5% og 25%. Aukning vörusölu Breta til USA nam 15,1%, Danmierkur 10%, Finnlands 15,1% og Nor- egs um 12,4%. Þingnelnd samþykkir Fortas Búizt við miklu málþófi í öldungar- deild Bandaríkjaþings Washington, 17. sept. — AP. LAGANEFND bandarísku öld- ungadeildarinnar samþykkti fyr- ir sitt leyti í dag útnefningu Abe Fortas í embætti forseta Hæstaréttar Bandaríkjanna. Hin margumdeilda skipan Fortas fer nú fyrir Öldungadeildina sjálfa, en óvíst er með öllu hver verða örlög hennar þar. Johnson for- seti hefur af mörgum þingmönn- um verið ákaft gagnrýndur fyrir þessa embættisskipan. í laganefndinni var tilinefning Fortas samþykkt með 10 atkvæð um gegn 6. Fjölmairgir þingmenn í öld- ungadeildinni hafa hótað að hailda uppi málþófi er tiLnefning in kemur fyrir deildina. Tvo þriðju hluta atkvæða í deildinni þarf til þess að koma í veg fyrir málþóf með því að sam þykkja að sitytta ræðutíma þing- manna. Andstæðingar Fortas, eiinkum repúblíkanar og demókiratar frá Suðurríkjunum, segja&t hafa vís næg atkvæði tiJ þess að halda umræðum áfram endalaustt og jafnvel til þess að koma í veg fyrir tilnefninguna í atkvæða- greiðslu, en til þess þarf ein- faldan meirihluta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.