Morgunblaðið - 27.09.1968, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. SEPT. 1S68.
3
Fafatízkan frá miðöld-
um fil vorra tíma sýnd
— á skemmtun Fósfbrœðrakvenna
Margir Reykvíkingar munu
með ánægju minnast skemmtana
og tízkusýninga Fóstbræðra
kvenna í fyrrahaust, er þríveg-
is fylltu Súlnasal Hótel Sögu,
og urðu þó margilr frá að hverfa.
Nú hafa Fóstbræðrakonur
ákveðið að efna til skemmtunar
með svipuðu sniði n.k. sunnu-
dag, 29. september kl. 15.00, einn
ig í Súlnasalnum. Verða þar kaffi
veitingar á vegum kvennanna,
en ýmsir af kunnustu bakara-
meisturum borgarinnar munu af
einstakri rausn leggja til kökur
og sætabrauð til viðbótar þeim
kræsingum, sem konurnar sjálf-
ar hafa útbúið.
f fyrra var lögð megináherzla
á kynningu nýjasta tízkufatnað-
ar. Nú verður aftur á móti sýnd
fatatízka liðins tíma, bæði inn-
lend og erlend, allt firá miðöld-
um og fram til vorra daga. Flest
ir búninganna eru í einkaeign
og hafa ekki verið sýndir opin-
berlega fyrr.
Að sjálfsögðu munu svo söng
ur og hljóðfærasláttur setja
terkan svip á skemmtunina. Fjórt
án Fóstbræður flytja þarna í
fyrsta sinn lagasyrpu úr söng-
leiknum „Fiðlarinn á þakinu“,
sem Magnús Ingimarsson hefur
útsett sérstaklega af þessu til-
efni. Lítill blandaður kór syng
ur létt lög, og þeir ÁgústBjarna
son og Kristinn Hallson syngja
Glúnta. Loks ber svo að nefna
hina frábæru kammerhljómsveit:
„Virtuosi della bella musica“,
sem hér er stödd af tilviljun og
fram á skemmtuninni. Munu þeir
góðfús'lega hefur lofað að koma
leika „con inspiratione scherzo
variatione spirituose". Samkom-
unni ilýkur með því, að Karla-
kórinn Fóstbræður syngur fáein
vinsæl lög undir stjórn söng-
stjóra síns, Ragnars Björnsson-
ar.
Milli skemmtiatriða leika þeir
Carl Billich og Gunnar Axels-
son létt lög á píanó. Kynnir
verður Jón Múli Árnason.
Eins og í fyrra rennur állur
ágóði af skemmtuninni óskertur
í húsbyggingarsjóð Fóstbræðra.
(Frá Fóstbræðrum).
Faxi GK kom til Raufarhafn-
ar í morgun og landaði 30 tonn-
um af síld í bræðslu og rúm-
lega 100 tonnum, sem fara í salt
hjá Norðursíld h.f.
Þá komu Þórður Jónasson EA
með 100 tonn í salt til sömu
Miðvikudaginn 25. sept var bú
stöðvar. Saltaðar voru hjá Björgu
h.f. 527 tunnur úr Héðni ÞH.
ið að salrta alls. hér á Raufar-
höfn 5371 tunnur, sem skiptast
þannig á stöðvarnar: Óðinn h.f.
3911 tunnur, Norðursfld h.f. 923
tunnur og Björg h.f. 537 tunnur.
Þá var búið að landa 14329 tunn
Skurðgrafa
sleit rafstreng
— oí/f bruna í
Krossanesi
Akureyri 26. sept.
AKUREYRI varð rafimagnslaus
laust fyrir kl. 17 í dag, þegar
skurðgrafa sleit rafmagnsstreng,
sem liggur frá aðalspennistöð-
inni til bæjarins. Við það stöðv-
uðust m.a. vélar Krossanesverk-
smiðjunnar, sem eru rafknúnar.
Þurrkarinn var fullur af síldar-
mjöli, sem ofhitnaði, þegar hann
hætti að snúast, og kviknaði í
mjölinu.
Slökkviliðið var kvatt til’ og
tókst því brátt að kæla þurkar-
ann, en mjölið í honum skemmd
ist verulega. Ekki er þó vitað
enn hve mikið af því er ónýtt.
Engar skemmdir urðu á verk-
smiðjuihúsinu, en einhverjar taf-
ir verða á vinnslu vegna óhapps
þessa.
Súlan EA kom hingað í dag
með söltunarsíld og voru saltað-
ar úr henni rúmlega 400 tunnur
í Krossanesi. Sv. P.
um af sjósaltaðri síld og af því
var landað úr síldarflutninga-
skipi Valtýs Þorsteinssonar 7674
tunnum.
Síldarverksmiðja ríkisins hér
hefur um 750 tonna afköst á sól
arhring og þróarrými fyrir 9000
tonn og er í ágætu lagi en hefur
aðeins fengið um 700 tonn til
vinnslu, Síldarverksmiðjan var
búin að taka á móti 34500 tonn-
um á sama tíma í fyrra.
Fyrstu göngur voru hér í gær
og í dag er leiðindaveður storm-
ur og rigning. Ólafur.
Laxá hættir
Soltað ó Húsavík
Salfað af kappi
á Raufarhöfn
Raufarhöfn 26. sept.
Laxá kom til Raufarhafnar í
kvöld og losar hér tómar og salt-
fullar tunnur, sem skipið var
með á síldarmiðunum.
Laxá hefur að undanförnu
verið á síldarmiðunum á vegum
Sildarútvegsnefndar, sem leigði
skiðið ti'l þess að flytja tunnur
og salt til skipanna á miðunum.
Laxá er nú hætt, og fer að
öllum líkindum héðan til Húsa-
víkur til þess að lesta þar salt-
fisk. Ólafur
Húsavík 26. sept.
í fyrradag voru saltaðar hér
úr Örfirisey RE, 830 tunnur úr
280 tonnum og úr Dagfara 220
úr 50 tonnum.
í dag kom svo Náttfari með
1000 sjósaltaðar tunnur og er
það þriðji túrinn með svipað
magn, sem Náttfari kemur úr.
Guðrún GK kom með 330 sjó-
saltaðar tunnur og 100 rtonn af
síld, sem úr voru saltaðar 130
fcunnur.
Seyðisfirði 26. sept.
115 tonn af síld ti'l söltunar, sem
f kvöld kom Gullberg NK með
verður söl’tuð í nótt. Þá er von á
Margréti SI hingað á morgun
með 90 tonn af ísaðri síld, sem
fer í salt.
Sveinn.
Jeppi fauk
Æ'm ' • /T
ut 1 SJO
Ólafsfirði, 25. sept.
j LAUST fyrir hádegi í dag
l fiauk mannlaus Landroverbif-
' reið út af veginum í Ólafs-
I fjarðarmúla, niður bjargið og
)í sjóinn.
Nánari tildrög er þau, að
J menn voru við vegagerð í
) Hámúlanum og verkstjóri
I vegagerðarinnar, Guðmundur
[Gíslason, hafði skilið bifreið
sína eftir á vegarbrúninni.
gekk á með hryðjum. í einni
Suðaustan hvassviðri var, og
hryðjunni, sem var mjög
snörp sáu menn hvar bifreið
)Guðmundar fauk út af veg-
I inum og steyptist í sjóinn.
l Þar sem bifreiðin fauk fram
af eru um 250 metra snarbratt
I fall til sjávar. — Jakob.
Boston, Syracuse, 26. sept.
AP—NTB.
ENN kom til kynþáttaóeirða i
Boston og Syracuse í gærkvöldi.
Hópar ungra blökkumanna fóru
með óspektum um götur Boston
og var einn maður drepinn. Níu
lögreglumenn og ellefu aðrir
voru fluttir í sjúkrahús, en marg
ir unglingar voru teknir hönd-
um.
í Syracuse réðust blökkumenn
á vegfiarendur og bíla með grjóti
og flöskum. Sjö menn voru tekn
ir höndum.
Saltað í
Neskaupstað
Neskaupstað 26. sept.
í gær barst hingað nokkuð af
síld. Drífa saltar úr vélbátnum
Magnúsi NK 72, sem kom með
170 tonn af ísaðri síld. Sæsilfur
saltar úr Helga Flóventssyni,
sem kom með 120 tonin. Þá er
saltað á söltunarstöð Síldar
vinnslunnar úr vélbártnum Bjarti
sem kom með 200 tonn. Guðbjörg
ÍS kom hingað í gær með 170
tonn af síld, sem fór í bræðs'lu.
Síldin í Guðbjörgu var óísuð, en
allir hinir bátarnir voru með ís-
aða sílid.
Ásgeir.
Ekkert slátrað
Ólafsvík 26. sept.
Sýnt þykir nú að sauðfjár-
slátrun verði ekki hér í haust.
Munu bændur í nágrenninu ým-
ist slátra fé sínu í Stykkishólmi
og í Borgarnesi. Slárturhús Kaup,
félags Snæfe'llinga, sem undan-
farin ár hefur slátrað hér í Ól-
afsvík er lokað eins og aðrar
verið sagt frá í fréttum. Er alls
óvíst hvenær gjaldþrotaskipti
verða tekin fyrir.
Bátar hafa lítið getað stund-
að sjó þessa viku vegna brælu,
en hér hefur að undanförnu
verið norðaustanátt. Reytings-
afli var hjá bátunum fyrir helg-
ina.
Hinrik.
Vetrarstarfið byrjar
Tónlistarfélagið er nú að hefja
vetrarstarfsemi sína. Fyrstu tón-
leikarnir á þessu hausti verða
n.k. mánudags og þriðjudags-
kvöld í Austurbæjarbíói, þá
leika þeir Árni Kristjánsson
píanóleikari og Björn Ólafsson
fiðluleikari. Á efnisskránni
verða þessi verk: Fantasía í C-
dúr op. 159 eftir Schubert, Són-
ata í G-dúr op. 78 eftir Brahms
og Sónata í A-dúr op. 47 (Kreutz
Björn
er-sónatan) eftir Beethoven.
Það er orðið æði langt síðan
að þeir Árni og Björn hafa hald-
ið hér opinbera tónleika sarnan,
til þessa hefir það ætíð þótt
merkisviðburður og mun svo
enn verða er þessir ágætu lista-
menn láta til sín heyra.
Tónlistarfélagið mun bráðlega
birta lista yfir þá tónleika, sem
fyrirhugaðir eru á næsta vetri.
Árni
STAKSTEIIVAR
Að viðurkenna
mistökin
Kommúnistablaðið birti í gær
hugvekju um það, að stjórn-
málamenn ættu að viðurkenna
mistök sín og læra af reynslunni.
í þessari hugvekju sagði m. a.:
„Stjórnmálamaður, sem viður-
kennir, að honum hafi orðið á
mistök veit, að hann verður bar-
inn með gömlum ívitnunum og
slíkt telur hann ekki samrýmast
virðingu sinni. Hann vill birtast
almenningi eins og standmynd,
sem steypt er í eir, dauð og óum-
breytanleg, en ekki eins og lif-
andi manneskja með holdi og
blóði, tilfinningum og takmörk-
unum." Þetta er merkileg sjálfs-
lýsing höfundar. Vissulega er það
rétt að stjórnmálamenn eiga að
viðurkenna mistök sín og sann-
arlega geta þeir sem aðrir laert
af reynslunni. Er stundum vili
verða misbrestur á því. Það ætti
sá maður að vita, sem mest hef-
ur ritað um frelsisást og dyggðir
Sovétmanna. Annað dæmið um
þetta er afstaða nokkuira stjórn-
málamanna í kommúnistaflokkn-
um til álbræðslunnar og Búr-
fellsvirkjunar. Fremstur í flokki
þeirra kommúnista ,sem börðust
gegn þeim framkvæmdum var
höfundur ofangreindrar tilvitn-
unar. Hann barðist gegn þeim
með oddi og egg tíndi til all-
ar hugsanlegar röksemdir gegn
þeim og hikaði ekki við að færa
þær í búning, ef nauðsynlegt
var til að fá „rétta“ niðurstöðu.
Lærir hann af
reynslunni?
Nú, rúmum tveimur árum eftir
að orustan um álbræðsluna var
háð á Alþingi og á landsmála-
vettvangi er nær öllum orðið
ljóst, að það hefðu verið hrapal-
leg mistök, ef tekin hefðu verið
ráð kommúnista og Framsóknar-
manna varðandi álbræðsluna og
Búrfellsvirkjun. Víst er að þá
væri mikið og alvarlegt atvinnu-
leysi í landinu og engin skref
hefðu verið stigin til þess að fitja
upp á nýjum atvinnugreinum.
Nú vinnur hins vegar mikill f jöldi
verkamanna og iðnaðarmanna
við þessar framkvæmdir og nær
fullvíst má telja að stækkun ál-
bræðslunnar og Búrfellsvirkjun-
ar verði hraðað frá því sem áð-
ur var áætlað. I kjölfar þessara
framkvæmda hefur verið hafizt
handa um athuganir á nýjum
orkufrekum iðngreinum og eng-
um blandast hugur um að þar
er nýtt landnám að hefjast í ís-
lenzkum atvinnumálum. En hvað
gera mennirnir, sem börðust
gegn þessum framkvæmdum?
Læra þeir af reynslunni? Viður-
kenna þeir mistök sín frammi
fyrir alþjóð? Eða telur rit-
stjóri kommúnistablaðsins það
ekki „samrýmist virðingu" þess
manns, sem gengur með helgi-
svip um sali Alþingis að viður-
kenna mistök sín og læra af
reynslunni? Er hann kannski
eins og „standmynd, sem steypt
er í eir, dauð og óumbreytan-
leg?“ Viðbrögð þessa manns hing
að til benda ekki til þess að
hann ætli að viðurkenna mistök
sín — nema túlka beri hugvekj-
una í gær sem sjálfsgagnrýni að
hættj Maoista.