Morgunblaðið - 27.09.1968, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.09.1968, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. SEPT. 1968. Finnbogi Árnason yfirfiskmatsmaður í DAG verður gerð útför Finn- boga Árnasonar yfirfiskimats- manns, sem andaðist í Landspít- alanum 20. þ.m. eftir stutta legu. Er mikill harmur kveðinn að fjölskyldu, vinum og starfs- félögum við fráfall þessa mæta manns, sem ávann sér traust og virðingu þeirra, sem til hans þakktu. Finnbogi var fæddur 18. marz 1902, að Miðdalskoti í Laugar- dal, sonur hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur og Árna Guðbrands- sonar, sem þar bjuggu. Hann kvæntist árið 1926 Sig- ríði Ólafsdóttur frá Selkoti í Kngvallasveit og varð þeim fjög- urra bama auðið, Kristinn, Magn eu Ólöfu, Jónu og Guðrúnu, sem öll eru gift og búa hér í borg. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau að Ketilvöllum í Laugardal, en fluttust til Reykjavíkur árið 1930. Hóf hann þá starf hjá Sænska frystihúsinu við fisk- verkun, þar til hann réðist verk- stjóri í Hraðfrystistöð Reykja- víkur. Árið 1943, var hann ráð- inn sem yfirfiskimatsmaður hjá Fiskimati ríkisins og var það til dauðadags. Það er ekki ætlun mín með þessum fátæklsgu skrifum að fjölyrða um æviferil Finnboga eða gera skil athafnamannin- um, sem í æsku sá með draum- sýn aldamótamannsins, vélvæð- ingu framtíðarinnar til hagsbóta fyrir þjóðina, tók þátt í upp- byggingunni, auðnaðist að sjá t Móðursystir mín, Aðalheiður Halldórsdóttir, árangur af lífsstarfinu og gleðj- ast hið innra að vel loknu dags- verki, heldur er hér kvaddur hinztu kveðju tengdafaðir minn og vinur. Hann var hár vexti og afar þrekinn, enda rammur að afli. Andlitssvipurinn var bjartur og góðmannlegur og bar ljósan vott um drengskap og góðvild, sem hann átti í ríkum mæli. Enda fólki starsýnt á þennan vask- lega mann, hvar sem leiðir hans lágu. Kímnigáfa var honum með- fædd og var hann oft ákaflega orðheppinn. Hann var prúð- menni í umgengni og hlýlegur í viðmóti, skapmikill og tilfinn- ingaríkur, en duldi hvort tveggja vel. Hins vegar væri ástæða til, gat hann verið að- sópsmikill og stórtækur, en hon- um var það eðlilegt að leysa hvern vanda með réttsýni og drengskap. Það er erfitt að kveðja góðan vin, en enginn ræðir sínum næt- urstað. Ég þakka þér góða samfylgd og einlægan vinarhug og hafðu þökk fyrir allt frá okkur fyrstu kynnum, ég óska þér góðrar heimkomu í þeirri miklu ferð, sem nú hefur hafizt. Drottinn, gef þú dánum ró, hinum líkn, sem lifa. Þorlákur Runólfsson. f DAG fer fram jarðarför Finn- boga heitins Árnasonar, en með þessum fáu kveðjuorðum verður ekki rakin ætt hans né öll hans margvíslegu störf. Við andlát Finnboga er fallinn í valinn einn af þeim mönnum, sem hófu störf við uppbyggingu Fiskimats ríkisins og síðan unnu ötullega að verkefnum þeirrar stofnunar á hverjum tíma, en þeir andaðist í Kaupmannahöfn 25. þ.m. Harry Frederiksen. t Eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, Víðir Sveinsson skipstjóri, Suðurgötu 27, Sandgerði, verður jarðsungin frá Hval- neskirkju laugardaginn 28. september kl. 2. Blóm vinsamlega afþökkuð. Jóhanna Óskarsdóttir og dætur, Sveinn Magnússon, Rannver Sveinsson. t Maðurinn minn og faðir okkar, Björn Þorleifsson Þórukoti, Ytri-Njarðvík, sem lézt 24. þ.m. verður jarð- sunginn frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 30. sept. kl. 2 e.h. Guðlaug Stefánsdóttir og böm. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, Guðríður Þorsteinsdóttir Lindargötu 30, sem andáðist 23. þ. m. verð- ur jarðsungin frá Fossvogs- kirkju laugardaginn 28. sept. Sonja Valdimarsdóttir Erlingur Herbertsson og barnabörn. t Móðir mín, tengdamóðir mín og amma okkar, Sigríður Zoega ljósmyndari, verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 30. þ.m. kl. 2. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlega benf á Barna- spítalasjóð Hringsins. t Útför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa, Júlíusar Jónassonar fyrrum vegaverkstjóra, frá Vífilsnesi, til heimilis að Háagerði 59, verður gerð frá Kirkjubæjar- kirkju laugardaginn 28. þ.m. kl. 2 eftir hádegi. er til þessara starfa þekkja, vita að þau krefjast mikillar árvekni og öruggra ákvarðana. Þessi störf Finnboga heitins, sem við frumstæð skilyrði hóf þau við mikilsvert málefni og hef ir þjónað þeim síðan af alúð og kostgæfni verða seint fullþökkuð, enda verður hans í þessari stofn- un ætíð minnst með virðingu. Af öllu samstarfsfólki og vinum hjá Fiskmati ríkisins er Finnbogi heitinn nú kvaddur hinztu kveðju. Við biðjum Guð að blessa minn ingu hans og næstu tilveru ásamt því að við samhryggjumst eftir- lifandi ættingjum hans. B. Á. Bergsteinsson. Valgerður Kristín Jónsdóttir Minning F. 23. 7. ’76. D. 13. 9. ’68. Kveðja til ömmu. Þitt jarðar ljós var alltaf skært, um lífsins daga langa. Heiminum öllum varstu kær þó oft væri erfið þín ganga. oft strauk með blíðu til vor var talað. Þú kenndir að ganga upp bratta braut og trú í brjósti oss ala. Elsku amma þú horfin ert hér, til hinna í öðrum heimi. í bænum okkar þökkum við þér þín minning aldrei gleymist. Sigurlaug Jónsdóttir. t Innilegustu þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur vináttu og samúð vi'ð andlát og jarðarför, Halldór Jónsson á Arnargerðareyri ÉG LAS í Morgunblaðinu í dag ágæta minningargrein um minn látna vin, Halldór Jónsson, er lengi bjó á Arngerðareyri við ísafjarðardjúp og sem andaðist í Reykjavík, 24. júlí þessa árs, 79 ára gamall. Af sérstökum ástæðum þykir mér rétt að bæta nokkuð við þessa minningargrein, og það er af því, að ég tel að minninguna um þennan ágæta mann ætti að bera svo hátt meðal íslenzkra bænda, að hún gleymist aldrei. Þetta er af því að hann átti að því virðingarverðan og eftir- minnilegan hlut að enn er hægt að stunda sauðfjárrækt á ís- landi. Sú saga er þannig, að þegar verið var að vinna eitt hið mesta óhappaverk, sem unnið hefir ver ið á síðari tímum í landi voru þá kom Halldór Jónsson til bjarg ar, ekki einn, en í félagi við fáa aðra ágæta bændur við ísa- fjarðardjúp. En því miður man ég ekki nöfnin á þeim og senni- lega eru þeir flestir eða allir komnir nú sömu leiðina, sem Halldór, það er yfir tjaldið mikla. Þetta gerðist þegar verið var að breiða Karakúlpestar óþverr- ann yfir landið og sem enginn aðili átti meiri sök á en Búnað- arþing, þá ætlaði búnaðarþings- fulltrúinn úr Norður-ísafjarðar- sýslu að fá því framgengt að einn af Karakúlhrútunum yrði keyptur vestur í Nauteyrar- hrepp. Um það var svo haldinn almennur fundur í Búnaðarfélagi þessa hrepps og skyldi þar taka ákvörðun í málinu. Fundurinn var vel sóttur, en skoðanir manna mjög skiptar. Búnaðarþingsfulltrúinn barð- ist fyrir kaupunum og gekk svo langt að hann kom með yfirlýs- ingu skriflega frá tvsimur félags mönnum fjarverandi um það að þeir væru kaupunum samþykk- ir. Halldór Jónsson barðist mest gegn því að kaupa hrútinn og krafðist þess að eigi væru tekin gild atkvæði annarra rnanna, en þeirra, sem mættir væru á fund- inum, eins og eðlilegt var og sem náði meirihluta samþykki fundarmanna. Á þessu valt. Hrútakaupin voru felld og mátti litlu muna. Þetta varð til þess að ísafjarð- arsýsla og stærri svæði á Vest- fjörðum var bjargað frá þeim Skjalaskápar og spjaldskrárkerfi trá SHAIMIMOIM Ólafur Gíslason & Co. hf., Ingólfsstræti 1 A., sími 18370. mesta voða, sem íslenzkur land- búnaður hefur mætt á þessari öld. Og þetta varð til þess að önn ur héruð gátu fengið hei’lbrigð- an stofn af hinu frelsaða svæðL Um þetta hef ég persónulega umsögn frá Halldóri sjálfum. En því miður fékk ég .ekki upplýs- ingar um hverjir voru hans stuðningsmenn í þessari merki- legu og þýðingarmiklu björgun og sem íslenzk sauðfjárrækt lifir á, nú og framvegis. En af því að svo vildi til að ég vissi um þet’ta mikilsverða atvik, þá vildi ég ekki láta vitn- eskjuna um það niður falla þeg- ar verið er að minnast þessa ágæta manns. Ég tek undir allar þær góðu lýsingar, sem um hann hafa ver- ið sagðar, og ég hafði séð. Hann var vitur maður og varfærinn. Hann kom miklu góðu til leiðar og ég virði og blessa minniniguna um hann. • Akri, 10. sept. 1968. Jón Pálmason. BiLAKAURm&m* Vel með farnir bílar til sölu ] og sýnis f bllageymslu okkar j að Laugavegi 105, Tækifæri til að gera góð bílakaup.. — Hagstæð greiðslukjör. — Bílaskipti koma til greina, Falcon station árg. 63. Pontiac árg. 59. Simca 1000 árg. 63. Volkswagen árg. 62, 66. Trabant, nýr. Ford F 500, mjög góður bíll, árg. 65. Opel Record árg. 63, 64. Prinz árg. 65. Bronco árg. 66. Skoda Combi árg. 64, 67. Rambler, sjálfskiptur árg. 62. Moskwitch árg. 65. Falcon árg 66. Mustang árg. 66. Volvo Amazon árg. 57. Commer sendibíl árg. 66. Renault R 8 árg. 63. Taunus 12 M árg. 63. Commer cup árg. 63. Zephyr 4 árg. 65. Opel Caravan árg. 62, 63. Land-Rover, dísil, árg. 64. Land-Rover, benzín, árg. 65, 66. Willy’s lengdur, árg. 64. Chevrolet station árg. 63. Ódýrir bílar, góð greiðslu- kjör. Chevrolet árg. 59, kr. 45 þ. Renaulf Dauplhine árg. 62, kr. 40 þús. Skoda árg. 55, kr. 30 þús. Willy’s árg. 46, kr. 50 þús. Volkswagen árg. 55, kr. 30 þús. Tökum góða bíla i umboðssölu| Höfum rúmgott sýningarsvæði innanhúss. MZttP UMBOÐIÐ SVEINN EGILSSON H.F. LAUGAVEG 105 SiMI 22466 Kæru vinir, alúðarþakkir fyrir hugljúf heillaskeyti og góðar gjafir á áttræðisafmæli mínu. Beztu kveðjur og þakkir sendi ég öllum er sýndu mér vin- semd á 75 ára afmæli mínu. Bryndís Jónsdóttir, Snæbjörn Jónasson, Sigríður Snæbjörnsdóttir, Jónas Snæbjörnsson, Herdís Snæbjörnsdóttir. Jónína Ásmundsdóttir, böm, tengdasynir og bamabörn. Gunnars Pjeturssonar. Þorbjörg Berg Guðnadóttir, Svanfriður Hjartardóttir og börn hins látna. Ríkarður Jónsson. Sigriður E. Hjartar Þingeyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.