Morgunblaðið - 15.10.1968, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR OKTÓBER 1W>8
12
Tékkunum var sérstaklega
fagnai við setningu OL
Allt fór fram með glæsibrag, en
búsundir hermanna voru á verbi
Setningarathöfn Olympíuleik-
anna í Mexikó fór fram í kyrrð
og spekt og var í þeim fastmót-
aða ramma sem haldizt hefur
naer óbreyttur síðan í Berlín
1936. Leikvangurinn var full-
skipaður eða milli 80 og 90 þús-
undir manna. Meðal þeirra voru
6000 óeinkennisklæddir lögreglu
menn tilbúnir að skakka leikinn
ef tií óeirða kæmi. Útifyrir
mynduðu hundruð hermanna í
OL-met.
í kringlu
JAY Silvester frá Bandaríkjun-
um hafði yfirburði í undan-
keppni kringlukastsins. Hann
setti nýtt olympíumet og kastaði
63.34 metra.
A1 Ooter frá Bandaríkjunum
étti fyrra metið 61.00 m, sett í
Tokyo 1964. Silvester setti ný-
lega heimsmet, er hann kastaði
64.40 metra.
Manfred Losch frá A-Þýzka-
landi kastaði næstlengst e'ða
60.40 metra.
í DAG verður keppt á Olym-
píuleikunum í eftirtöldum
greinum:
kl. 4 Fimmtarþraut
kvenna
kl. 4 Spjótkast (undan-
keppni)
kl. 4.30 200 metra hlaup
(riðlakeppni)
kl. 9 100 metra hlaup
kvenna (undan-
úrslit)
kl. 9 Kringlukast (úrslit)
kl. 9.20 400 metra hlaup
kvenna (undan-
úrslit)
kl. 10.10 5000 metra hlaup
(riðlakeppni)
kl. 11.35 400 metra grinda-
hlaup (úrslit)
kl. 11.50 100 metra hlaup
kvenna (úrslit)
kl. 0.10 800 metra hlaup
(úrslit).
V-Þýzkalond —
Austurríki 2:0
VESTUR-ÞÝZKALAND sigrði
Austurríki í fyrri leik liðanna í
undanúrslitum heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu með
tveimur mörkum gegn engu. —
Leikurinn fór fram »L sunnudag.
litklæðum með glitrandi sverð
varnarvegg einskonar heiðurs-
göng fyrir tigna gesti er að bar.
innar er er á 8. þúsund kepp-
endur gengu fylktu liði í litrík-
um búningum undir þjóðfánum,
inn á leikvanginn undir dynj-
andi lúðrablæstri. Dúfum var
sleppt ti'l tákns um þann friðar
anda sem leikirnir eiga að vera
boðberi fyrir og í fyrsta sinn
h'ljóp nú stúlka, Enriqueta Bas-
iho Sotelo með eldinn inm á
leikvanginn, og tendraði hann á
stalli, þar sem hann mun loga
meðan á leikunum stendur.
Á mínútunni kl 1 eftir mexi-
könskum tíma gekk forseti Mexi
kó Gustavo Diaz Ordas í fcxr-
setastúkuna og þjóðsöngur Mexi
og var leikinn. 19 fallbyssu-
skot kváðu við og síðan hyllti
mannfjöldinn þjóðhöfðingja
Mexikó vel og lengi. Hann veif
aði í kveðjuskyni.
Þá voru mismunandi Mtir loft-
belgir látnir mynda risastóra ol-
ympíuhringi á himni og síðan
hófst skrúðganga þátttakenda
inn á leikvanginn. Fyrstir gengu
Grikkir að venju og síðan þátt-
tökulöndin 124 í stafrófsröð,
heimamenn síðastir. Skrúðgangan
var sérlega litrík og tókst vel
en athygli vöktu búningar
margra þjóðlanda og stuttu
pilsin stúlknanna.
Tékkneska liðið fékk sérstak
ar mótttökur, fagnaðarbylgja
braust út eins og keðjuspil eftir
því sem liðið gekk sinn hring á
vellinum.
Bandaríkjaliðinu var og vel
fagnað, en sumir blökkumanna
í því mynduðu Y-sigurmerkið
með fingrunum er þeir gengu
fram hjá forsetastúkunni.
Þá gekk Diaz Odras forseti
fram og setti leikana með hinu
hefðbundna ritúali.
Milli atriða voru sungnir há-
tíðasöngva og stílmiklar fána-
hyllingar framkvæmdar.
Þá var komið að stóra augna-
blikinu, er stúlkan bar eldinn
á leikvanginn hljóp með hann
hring og upp þrepin á stalMnn
þar sem eldstóin er.
Dúfinum var síðan sleppt, Ol-
ympíueiðurinn svarinn og síðan
hófst brottganga liðanna af velli
í sömu röð og þau komu inn.
Sd bezti
farinn heim
UNGVERSKI knattspyrnumaður
inn, Varga, sem talinn er í hópi
fremstu knattspyrnumanna
heims, hefur yfirgefið ungverska
olympíuliðið í Mexikóborg, og
mun vera farinn úr landi, að
sögn ungversku fréttastofunnar.
Segir ennfremur, að hann muni
ekki snúa aftur til Mexikó. Eng
ar frekari skýringar hafa verið
gefnar.
Hér sjáum við tvo af íslenzk u keppendunum. Óskar Sigur-
pálsson lyftingamaður, sem k eppir í milliþungavikt á föstu-
dag er að æfa sig, en á horfi r Guðmundur Hermannsson, sem
keppti á sunnudaginn.
Guðmundur varð 16. af
20 í undankeppninni
Mattson setti Olympíumet án þess að taka á
ALLMIKLAR sviptingar voru í
undankeppni kúluvarps í gær, en
heimsmethafinn Rany Mattson
hafði samt mikla yfirburði —
varpaði kúlunni 20.68 m í fyrsta
Brautin var 6
km. of löng
í GÆR mótmæltu hjólreiðamenn
í Mexikó við stjórnendur keppn-
innar, að brautin sem ætluð er
í 160 km hjólreiðum væri of
löng.
í fyrstu vildu forréðamenn
varla hlusta á þetta „mas“ en
keppendur héldu fast við sitt og
brautin var mæld. Eftir mæl-
inguna var tilkynnt, að brautin
hefði reynzt 6 km of löng —
ög yrði að sjálfsög’ðu stytt.
Hér tendrar Enriquete Basilo eldinn í stónni á leikvanginum.
kasti og áreynslulaust að því er
virtist. Guðmundur Hermannsson
var þarna meðal keppenda, kast
aði 17.35m, sem er nokkuð frá
hans bezta. Segir í einkaskeyti
tii Morgunblaðsins, að hann hafi
orðið 16. af 20 keppendum.
Mattson hafði mikla yfirburði
í undankeppninni, eins og fyrr
segir, en Evrópumethafinn, Gusj
kin frá Sovétríkjunum náði einn
ig ágætum árangri — 19.88 metr
um. Bandaríkjamaðurinn Georg
Wood varpaði níu Septimetrum
skemur, en landi hans Maggard
þ'urfti þrjú köst til að komast í
aðalkeppnina — néði 19.26 metr
um í sínu síðasta kasti. Afrek
Mattsons — 20.68 metrar — er
nýtt Olympíumet. Hið fyrra átti
Dallas Long, en harm varpaði
20.33 m á Tokyo.
Ungverjinn Vilmos Varju, fyrr
verandi Evrópumethafi, varð að
bíta í það súra epli að komast
ekki í aðalkeppnina. 11 keppend
ur náðu að kasta yfir 18.90, sem
var takmarkfð til að komast í
aðalkeppnina. En þar sem 12
menn fengust ekki í aðalkeppn-
ina var sá sem næstu var mark-
inu tekinn sem 12. maður. Var
það Jeffrey Teale, sem kastaði
sentimetra lengra en Ungverj-
inn, eða 18.86 m.
Heimsmet, Evrópumet
og OL-met í undanrás
Kiprigut trá Kenya með bezta tímann
í 800 metra hlaupinu
Mjög góður árangur náðist í
fyrstu umefrðum 400 m grinda-
hlaupsins og 800 m hlaups á Ol-
ympíuleikunum í Mexíkó á
sunnudag. Bandaríkjamaðurinn
Ron Whitney hljóp til að mynda
á 49.0 sek í grindahlaupinu. og
er það olympískt met og broti
úr sekúndu betra en gifdandi
heimsmet. f sama riðlá varð R.
Scubert frá Vestur-Þýzkalandi
amnar á nýju Evrópumeti —
49.1 sekúndu. Þá náði Hennige
frá V-Þýzkalandi einmig ágæt-
um árangri — 49.5 sek, en ann-
ar í þeim riðli var Vanderstöck
frá Bandaríkjunum — hljóp að-
eins á 50.6 sek — en hann á
gildandi heimsmet.
Kenya-maðurinn Kirpigut náði
langbeztum tíma í fyrstu um-
ferð 800 m hlaupsins — hljóp
á 1.46.1 mín. Annar í þeim riðli
var ein helzta gul'lvon Banda-
ríkjanna í þessari grein, Tomais
Farrelí, hljóp á 1.47.9 mín. Wade
Bell, frá Bandaríkjunum, sem
margir höfðu spáð sigri í 800 m
varð fimmti í sínum riðli, og er
því fallinn úr keppni. Banda-
ríkjamönnum er það þó nokkur
huggun, að landi Bells, Ronald
Kutschinski að nafni, hreppti
eitt af fjórum uppbótasætum og
kemst því í undanúrdlit, enda
þótt hann hafi ekki verið einn
af tveimur fyrstu í sínum riðli.
Austur-Þjóðverjinn Dieter
Fromm náði næst bezta tímanum
í fyrstu umferðinni — hljóp á
1.46.9. mín. Styrkleiki Kenya er
auðsær í þessari grein, því að
þrír þeirra komast áfram í und-
ankeppnina.