Morgunblaðið - 15.10.1968, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR OKTÓBER 1{>68
13
Hvöttu Tékka en
púuðu á Rússa
í FYRSTA skipti eftir innrásina
í Tékkóslóvakíu mættust Rúss-
ar og Tékkar í íþróttakeppni á
Olympíuleikunum í fyrradag.
Kvennaflokkar þjóðanna
kepptu í blaki og lauk leiknum
með sigri Tékka, sem sigrðuðu í
þremur lotum af fjórum. Greini-
legt var að báðar þjóðirnar lögðu
mikið upp úr sigri í leiknum og
oft sjá boltann sleginn kröfug-
lega. "*
Áhorfendur sem voru allmarg-
ir á leiknum, stóðu allir með
Tékkum og hvöttu þá óspart. —
Hins vegar fengu Rússnesku
stúlkurnar heldur kuldalegar
móttökur og var púað á þær í
sífellu. Þegar leiknum laus svo
með sigri Tékka var fögnuður
áhorfenda gífurlegur.
Tékkar hafa ekiki sigrað Rússa
í flokkaiþróttum sl. 6 ár, fyrr en
nú.
Berit í
úrslifum
Einn Norðurlandabúi er kom-
inn í úrslit í ,,tæknigreinum“ á
OL í Mexikó, Það er norska
stúlkan Berit Bertheísen sem
margir muna síðan hún keppti
og vann í fimmtarþrauit kvemna
á Norðurlandamótinu hér '
Hún náði 2-3. lengsta stökki
í undankeppni í langstökki á
sunnudag, stökk 6.48 — en á
bezt fyrir 6.56 m. Lengra stökk
aðeins Rosendhal frá A-Þýzka-
landi 6.54 m.
- , jtjt W&’ i
i* i ' ? .....U
Fyrsti sigurinn unninn — fyrsta gullið. Og það var ekki ár eynslulaust í 10
Mexikó. Neftali Temu slítur snúruna eftir örvæntingarfulla keppni við Mamo
ópíu.
km hlaupinu í
Wolde frá Eþí-
Sumir hlupu hálfmeivitund-
arlausir aðrir gáfust upp
Æsileg keppni um gullið i sögufrægu W km. hlaupi
NAFTALI Temu frá Kenía varð fyrsti Olympíusigurvegarinn í
Mexico. Bar hann sigur úr býtum í 10 km hlaupi eftir æðisgengna
og dramatíska baráttu. Hann og Wolde frá Eþiópíu — báðir þraut-
þjálfaðir í háfjallabrautum — hlupu er á leið þessa æsispennandi
keppni í sérflokki. Aðrir frægir garpar, eins og heimsmethafinn
Ron Clarke frá Astralíu og Keino frá Kenía heltust úr lestinni
undir lokin, Keino hafði forustu er síðasti hringurinn hófst, féll,
staulaðist á fætur og lauk hlaupinu með þeim síðustu en var síð-
an dæmdur úr leik, fyrir að hafa farið út af brautinni (í fallinu).
Og Clarke hljóp siðustu 4 hringina nær meðvitundarlaus af súr-
efnisskorti, náði þó sjötta sæti, en féll á marklínu og var með-
vitundarlaus í 10 mínútur, rankaði þá við sér eftir súrefnisgjöf
en hafði óreglulegan hjartslátt, sá tvöfalt og gat varla talað, og
var fluttur á sjúkrahús. Háfjallaloftið í Mexico setti því sann-
arlega svip sinn á þessa fyrstu grein frjálsíþróttakeppninnar.
M
Clarke í keppni í Mexikó. 17
heimsmet á hann að baki. en
hann þoldi illa þunna loftið í
Mexikó.
Sigur Temus og silfur Wold-
es kom engum á óvart vegna æf
inga þeirra um langan tíma á há
fjallabrautum. En menn töldu að
heimsmethafinn Clarke kjmni
Síðustu 100 m voru
eins og 2 mílur
— en ég œtla í 5 km hlaupið
Heimsmethafínn í fyrstu
greininmi sem í var keppt á
OL varð fyrsta fórnardýr
loftþynnunar í Mexikó. ösku-
grár í framan hljóp hann síð
ustu hringi 10 km hlaupsins,
hálfmeðvitundarlaus og féll á
grúfu er hann hafði stigið yf
ir marklínuna sem 6. maður.
Ástralskur læknir hljóp til
hans og Clarke var borinn
á sjúkrastofu vallarins. Hann
var meðvitundarlaus í 10 mín
en þá kom súrefnisgjöf er
hann fékk honum til meðvit-
undar. Hjartað sló þá mjög
óreglulega, Clarke sá tvöfalt
og kom aðeins út úr sér rugl-
ingslegum setningum — eða
1 alls ekki orði
Bannaðar voru heimsóknir
tií hans í gær en læknirinn
segir að hann búist við að
þetta hafi ekki eftirköst og
Olarke geti tekið þátt í 5 km
laupinu eftir tvo daga.
Clarke þykir hafa sýnt
óvenjulega hörku- og keppnis-
skap að Ijúka hlaupniu. Ég
tel að flestir hefðu gefizt upp
sagði læknirinn.
£g ætla í 5 km hlaupið og
held að ég eigi sigurmögu-
leika þar, sagði Clarke er
hann slap út af sjúkrahúsinu
í gær.
— 10 km hlaupið var ein
martröð er á leið, sagði hann.
Ég hafði ekki hugmynd um
hve langt sigurvegarinn var
á undan mér á síðasta hringn
um og mér fannst sem síð-
ustu 100 metrarnir væru eins
og 2 mílna hlaup. En á hálfri
þessari vegalengd tel ég mig
hafa möguleika.
5 km hlaupið (undanrásir)
er á þriðjudag — og þeir
verða þá lokatilraun þessa
fræga hlaupagarps, sem sett
hefur 17 heimsmet í langhlaup
um, til að hreppa Olympiu-
gull.
loksins að geta hloti’ð Olympíu-
gull, þar sem þjálfun hans er nú
mjög góð og heimsmetið er hans.
„Heimamaðurinn" Juan Mart-
inez vann aðalerfiði hlaupsins
framan af. Hin dramatisku augna
blik létu ekki á sér standa því
fljótt eftir upphaf hlaupsins féll
V-Þjóðverjinn Letserieh og þeg-
ar „hinir sterku" tóku að sýna
jtaktik sína méð hröðum rykkj-
um og rólegheitum á milli,. féll
einn hlaupari af öðrum aftur úr
aðalhópnum.
Clarke hélt sig aftarlega í byrj
un og reyndi aldrei að taka frum
kvæði, enda hafði hann fundið
fyrir erfíðleikunum áður vegna
loftþynnunnar.
En aðalstríðið hófst er hring-
ur var eftir. Þá var Keino í far
arbroddi, en útslitinn. Þá hófst
einvígi Temu og Wolde um gull-
ið og þeir geystust fram úr aðal-
hópnum. Temu virtist stífna upp
er koma á beinu brautina fram
an við markið, en honum tókst
á undraverðan hátt að svara ,,á-
rás“ Wolde er hann gerði síðustu
tilraun til að sigra Temu og
komst þá að hlið Temu. Aðeins
5/10 úr sekúndu skildu þá að
í markinu.
Gammundi hlaut bronsfð og
kom að marki 7 sek. á eftir „há
fjallamönnunum“ tveimur en
Martinez, Mexikaninn ungi,
hlaut 4. hæti.
Natafli Temu er 23 ára gam-
all hermaður. Hann er 1.71 m
að hæð en vegur aðeins 60 kg.
Hann tók einnig þátt í Tókíó-
leikunum án þess að „komast á
blað“ en varð brezkur samveld-
ismeistari fyrir 2 árum i 6 mílna
hlaupi — tæplega 10. km.
ÚRSLIT:
Ol.m. N. Temu Kenía 29:27.0
2. Mamo Wolde Eþíópíu 29:27:5
3. M. Gammundi Túnis 29:34.2
4. J. Martinez Mexiko 29:35.0
5. Sviridov Sovét
6. Ron Clarke Ástralíu.
33 menn luku hlaupinu en 41
var skráður.
Q5£P
Iranbúi
fékk gull
Iranbúinn Mohamed Nassiri
vann annan gullpeningmn sem
keppni var lokið um á OL á
sunnudaginn. Það var í bantam
vigt í lyftingum.
Keppnin þar var afar hörð
milli Nassiri og Ungverjans Imre
Fö'ldi. Báðir lyftu þeir 367.5 kg.
samalagt í tilraununum þremur
en það er nýtt Ol-met og jafnt
heimsmetinu.
Það sem úrsíitum réði var að
Mohamed Nassiri reyndist 0.3
kg léttari er keppendur voru
vegnir að keppni lokinni. Slikt
ræður úrslitum, þá er tveir eru
jafnir.
Nassiri er 23 ára gamall og
hefur 8 sinnum bætt heimsmet á
ferli sínum. Hann er einnig í
úrvalsliði í fimleikum.
Knattspyrna á OL
Knattspymukeppni Ólympíu-
leikarma hófst á sunnudaginn,
fyrsta keppnisdag leikanna. Þá
fóru fram fjórir íeikir,
Mexíkó — Columbía 1-0
ísrael — Ghana 5-3
Frakkland— Guinea 3-1
Ungverjaland — Stf vador 4-0
Keppnin fer fram í fjórum
riðlum og er leikið i fjórum borg
um, þannig að hver riðill á sína
„heimaborg" og búa liðsmerm
þar.
50 þús manns sáu Mexico
sigra Columbíu á Azteca leik-
vanginum en riðill Mexikó er í
Mexióborg. Höfðu Mexikanar al
Framhald á bls. 26
|68. sigurinn - án taps
ÓSLITINNI sigurgöngu Banda
rikjamanna í körfuknattleiks
keppni á Olympíuleikunum
var fram haldið í upphafi
keppninnar nú á sunnudag.
Leiknir voru þá nokkrir leik
ir og úrslit urðu:
Bandaríkin — Spánn
Rússland — Pólland
Júgóslavía — Panama
Búlgaría — Kúba
Og á mánudag var keppni
fram haldið og úrslit þá:
Bandaríkin — Senegal 93-36.
Var þetta 68. sigur Bandaríkj
aanna í rö'ð á Olympíuleik-
um síðan keppni í leörfuknatt
leik var tekin upp 1932.
Brasilia — Marocco 98-52
91-50 Júgóslavía — Panama 96-85
96-58 Rússland — Marocco 123-51
70-61
81-46