Morgunblaðið - 15.10.1968, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR OKTÓBER 106«
15
Athugasemd við skrif Tímans um
landkynningarmynd „Keith filrns"
Til dagblaðanna í Reykjavík,
vegna greinar sem birtist í Tím-
anum 9. október sL
ÞAR sem ég veit, að ýmsir
aðilar hafa gagnrýnt veru mína
og vinnu hér á íslandi, þykir
mér vænt um, að hafa nú gilda
ástæðu til að svara þeirri gagn-
rýni, og vil ég sérstaklega
þakka E.K.H. - fréttamanni „Tím
ans“ fyrir að gefa mér þýðingar-
mestu ástæðuna til andsvara,
með baksíðufrétt sinni í „Tíman-
um“ þann 9. október sl. undir
fjögurra dálka fyrirsögninni:
Ferðaskrifstofa ríkisins styrk-
ir erlendan kvikmyndaiðnað hér.
Sú frétt, sem hér um ræðir,
birtist eftir sýning'u myndar
minnar: „ísland land í sköpun",
en hún er framleidd fyrir Ferða
skrifstofu ríkisins af fyrirtæki
mínu „Keith Films“ og var hún
sýnd og kynnt fréttamönnum
þann 8. október sl. Ég mun ekki
ræða gagnrýni fréttamannsins
um myndina sjálfa enda dæmir
hver frá sínu sjónarmiði um
kosti hennar eða lesti. Þó væri
fróðlegt að vita um hæfileika
hans og þekkingu, til að dæma
um kostnað kvikmynda og til-
gang. Ég vil mótmæla eftirfar-
andi klausu, sem tekin er úr
fréttinni: „Hins vegar kemur
myndin fyrir augu íslendinga er
á. hana horfa, eins og raðað sé
upp öllum þeim póstkortum sem
út hafa verið gefin hérlendis og
þau rakin með myndavélinni."
Fróðlegt^ væri að vita, á hvaða
forsendum fréttamaðurinn telur
sig þess umkominn að tala þann
ig fyrir munn landa sinna. Ég
vil hér á eftir, leitast við að út-
skýra tilgang myndiarinnar
segja sannleikann um kostnað
hennar og ræða hugmyndina að
gerð hennar. Full ástæða þykir
mér einnig til að svara fyrir mitt
leyti hinum ærumeiðandi og á-
byrgðarlausu fullyrðingum frétta
mannsins. Ég er þess fullviss, að
Ferðaskrifstofa ríkisins mun
svara ásökunum í sinn garð, sem
finna má í fyrrnefndri frétt,
enda er það ekki mitt verk að
svara fyrir hana.
Fréttamaður „Tímans“ skrifar:
„Hingað koma upp misjafnlega
færir kvikmyndatökumenn, frá
misjafnlega áreiðanlegum kvik-
myndafyrirtækjum, taka myndir
af ... “ o.s.frv., en þetta tel ég
ærumeiðandi ásakanir gagnvart
fyrirtæki mínu. Sem svar við
þessu, vil ég taka það fram, að
fyrirtæki mitt framleiðir aðeins
kvikmyndir samkvæmt samningi,
þar sem hvert smáatriði er
greinilega fram sett og mundi ég
með ánægju afhenda fréttamann
inum eintak, eða sýnishorn, af
slíkum samningi, ef hann vildi
gerast svo lítillátur að kynna
sér hann, til samanburðar við
aðra samninga, sem gerðir hafa
verið um þessi efni hérlendis.
Á undanförnum árum hef ég
gert þrjár kvikmyndir fyrir Loft
leiðir í New York, en þær eiru
til kynningar íslandi og Luxem-
burg. Þess mé geta í þessu sam-
bandi, að Loftleiðir stuðluðu að
framleiðslu kvikmyndarinnar
sem ég gerði fyrir Ferðaskrif-
stofu ríkisins, enda var „flug-
félaga" getið í frétt „Tímans"
og mætti því skilja orð blaðsins
þannig, að Loftleiðir væru með-
al fyrirtækja sem leituðu til
„misjafnlega áreiðanlegra fyrir-
tækja“. Ég mæli með því, að
„Tíminn" leiti þess rétta hjá mál
svörum Loftleiða, hvort myndir
mínar hafi haft þá þýðingu fyrir
félagið sem til var ætlazt. í
sjálfu sér sannar útbreiðsla
þeirra það gildi sem þær hafa,
og má geta þess, að kvikmynda-
söfn í Bandaríkjunum hafa léð
þær til skóla, fræðslusafna, fyr-
irtækja, sjónvarpsstöðva og ann
arra stofnana.
Því verður vart neitað, að
þessi kynning á landinu hlýtur
að verða því hagstæð í heild,
hvort heldur sem litið er til
ferðamálastofnana eða landkynn
ingar almennt. Sú kvikmynd sem
ég gerði fyrir Ferðaskrifstofu
ríkisins, var hvorki gerð fyrir
fréttamann „Tímans" eða mig, né
nokkrun íslending yfirleitt. En
fréttamanninum virðist örðugt
að setja sig í annara spor, en
til þess var þó ætlazt, að þeir
fréttamenn sem sáu myndina á
dögunum, gerðu sér ljóst, að
myndin var gerð fyrir það fólk
sem var allsendis ókunnugt fs-
landi og íslenzkum aðstæðum, en
kvikmyndin á einmitt að hjálpa
þessu fólki til að kynnast landi
og þjóð. Ég vil taka það fram,
að myndin er gerð fyrir börn og
fullorðna, misjafnlega þroskað
fólk, af öllum stéttum. Af þess-
um sökum varð myndin að vera
auðskilin hverju mannsbarni,
um leið og hún kynnti ísland og
lendinga og möguleika landsins
sem ferðamannalands, án þess
þó að fylgja hinum hefð-
bundinu reglum sem gilda um
gerð slíkra mynda. Ég hef með
öðrum orðum reynt að gera kvik
myndina óvenjulega að þessu
leyti, þó innan þeirra takmarka
sem viðfangsefnið setti hverju
sinni. Því hefur mikiU tími farið
í að klippa myndina, skrifa
handrit að henini, tónsetja hana
og setja í hana hljóðeffekta, svo
og hefur mikill tími farið í sam-
ræmingu einstakra atriða, þann-
ig að skipting milli þeirra mætti
vera sem eðtilégust.
Annað hvort hefur mér mis-
tekizt þessi vinna, eða þá að
fréttamaður „Tíxnans" hefur ver
ið með annarleg gleraugu á nös-
um, er hann horfði á myndina,
að ekki sé meira sagt. Hitt er
svo annað mál að betra er að
láta myndina tala sínu máli
sjálfa, heldur en hlusrta á álit
fréttamanns sem virðist hafa fjnr
irfram takmarkaðan vilja til að
sjá og heyra.
í fréttinni segir: „Það virðist
vera orðinn töluverður gróðaveg
ur fyrir útlendinga, að gera
kvikmyndir fyrir íslenzka aðila,
er leggja stund á landkynningu,
eins og t.d. flugfélögin, ferða
skrifstofur og opiinbera aðila“,
og seinna segir að ég „selji þær
fyrir offjár. AUt uppihald, ferða
kostnaður og risna er borguð
fyrir þessa menn, auk þess sem
þeir geta smyglað inn í landið
dýrum filmum og öðrum tækjum
til kvikmyndagerðar". Ég vil.
feitast við að svara þessum
þvættingi í tvennu lagi og byrja
á þeirri hlið sem að kostnaðin-
um snýr.
Þá ber fyrst að geta þess, að
Ferðaskrifstofa ríkisins til-
kynnti á fyrrgreindum frétta-
mannafundi, að heildarverð
myndarinnar væri rúmar 300.000
krónur að öllum kostnaði með-
töildum, en sú upphæð breyttisit
talsvert í meðförum „Tímans" og
varð að tæpumf 400.000 krónum.
f öðru lagi vil ég geta þess, að
samkvæmt samningi og vegna
framlengingar á umsömdum tíma
fékk ég greiddar kr. 165.000 en
mismuninn greiddi Ferðaskrif
stofa ríkisins Lslenzkum aðilum
og fyrirtækjum sem á eiinhvern
hátt lögðu fram þjónustu varð-
andi kvikmyndagerðina.
Vegna þess orðatags sem á
„Tímafréttinni" er, gætu lesend
ur hans álitið, að úthaldskostnað
urinn hefði verið greiddur auka-
lega, en sé ekki meðtalimn í fyrr-
nefndri upphæð. En sannleikur
j inn er sá, að ég hef persónu-
lega greitt í dollurum sem svar
ar kr. 215.000 tfl fyrirtækja f
Bandaríkjunum vegna kvikmynd
arinnar, og þannig getur hver
maður séð, að ég hefi ekki þénað,
heldur tapað sem svarar tæp-
um kr. 50.000, en munurinn er
gletitilega mikilt á þeirri upphæð
í tap, eða þeim tæpum 400.000
krónum sem ég er sakaður um
að hafa „labbað“ með út úr land
inu.
Eina leiðin sem mér er fær til
að vinna upp fyrrgreint tap er
sú, að reyna að selja eintök
(copiur) af myndinnL Erunfrem-
ur vil ég geta þess, að kvik-
mynd af þessari gerð kostar und
ir öllum venjuelgum kring-
umstæðum frá 500.000 ti'l 600.000
Fr&mhald á bls. 21
Allt á sama stað:
BIFREIÐASALA EGILS.
Notaðar bifreiðir til sölu.
Singer Vouge 1967. Skipti á Volkswagen koma til greina.
Commer Cob 1963.
Hiliman Imp. 1964. Ný vel og gírkassi.
Hillmann Imp. 1967. Ekinn 15 þús. km.
Opel Record 1962.
Benz 220 1955.
t
Skoda 1000 1965.
Willys jeep 1966 með Meyer stálhúsi.
Willys jeep 1963 lengri gerð.
Ford Bronco 1966 með spili.
Fiat 600 T 1966 sendibifreiö.
Commer 2500 1967 sendibifreið. Stöðvarpláss fylgir.
Hillmann Super Minx 1966 station.
Jeep Wagoner 1965, sjálfsikiptur, vökvastýri og
afturhemlar.
Fiat 1800 station 1960.
Volkswagen Variant 1964 .
Tökum vel með farnar bifreiðar í umboðssölu.
Úti- og innisýningarsvæði.
Egill Vilhjálmsson hf.
Laugavegi 118 — Sími 22240.
DANISH
GOLF
Nýr stór! gócíur
smávindill
Smávindill í réttri stærd, fullkominn smávindill, fram-
leiddur úr gædatóbaki. DANISH GOLF, nýr, stór!
Smávindilljsem ánægja er adkynnast.DANISHGOLF
er framleiddur af stærstu tóbaksverksmidju Skandina-
viu, og hefir í mörg ár verid hinn leidandi danski
smávindill.
Kaupid í dag DANISH GOLF í þægilega 3stk.pakkanum.
SCANDINAVIAN TOBACCO COMPANY
DENMARK