Morgunblaðið - 15.10.1968, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR
OKTÓBER 1«€8
19
50 ára:
Sigurjónsson
Rögnvaldur
FYRIR rúmum 30 árum, eða nán
ar tiltekið 6. október 1937, steig
kornungur maður fram á sviðið
í Gamla Bíói, er var þéttsetið af
eftirvæntingarfullum tónlistar-
unnendium. Fregnir höfðu borizt
um, að einn af gáfuðustu og efni
legustu nemendum Tónlistarskól
ans ætlaði að halda sína fyrstu
opinberu píanótónlei'ka, þá aðeins
18 ára, að loknu glæsilegu námi
undir handleiðslu Arna Kristjáns
sonar og buirtfararprófi frá Tón-
listarskólanum. Rögnvaldur Sig-
urjónsson píanóleikari var að
hefja sinn glæsilega feril í heimi
píanótónlistarinnar.
Rögnvaldur stnndaði síðan
framhaldsnám i París í píanóleik
og öðrum tónilistargreinum hjá
Marcel Ciampi á árunum 1937—
1939.
Á árunum 1942—1945 var
Rögnvaldur einnig við nám í
Bandaríkjunum við Juillard
School of Music og lauk prófi
þaðan. Jafnframt var hann í
einkatímum í píanóleik hjá
Sascha Gorodnitzki í New York.
Þegar Rögnvaldur kom heima að
námi loknu, gerðist hann kennari
við Tónlistarskólann árið 1945 og
er nú yfirkennari framhaldsdeUd
ar í pianóleik.
Rögnvaldur hefur, jafnframt
kennslunni, verið virkur og starf-
andi píanóleikari alla tíð og hélt
á síðastliðnu ári 30 ára afmælis-
tónleika sína á vegum Tónlistar-
félagsins. Fáir íslenzkir píanóleik
arar hafa hlotið alþjóðaviður-
kenningu á borð við Rögnvald,
Verkefnasvið hans hefur náð yfir
Chopin, Liszt, Schumann, Deb-
ussy, Beethoven, Brahms, Scria-
bin, Prokofieff, Mozart, Bach,
Schubert, Dvorak, Niels Viggo
Bentzon o. fl.
En af íslenzkum tónskáldum má
nefna Pál ísólfsson, Jón Nordal
og Leif Þórarinsson.
Rögnvaldur hefur haldið bæði
sjálfstæða píanótónleika og einn-
ig leikið með Sinfónuíuhljóm-
sveitum m. a. á öllum Norður-
löndum, Þýzkalandi, Austurríki,
Bandaríkjunum, Kanada, Austur-
Evrópuríkjunum og Rússlandi.
Hann hefur m. a. leikið með Sin-
fóníuhljómsveit fslands, Fílhar-
móinuhljómsveitinni í Osló og
Leningrad.
Rögnvaldur hefur spilað píanó-
tónlist eftir Chopin, Paganini-
Liszt, Cchumann og Niels Viggo
Bentzon inn á þrjár hæggengar
plötur hjá „His Master’s Voice“
hljómplötufyrirtækinu, og Fálk-
inn h.f. gaf út (BLPC 2, 7ERC
5, 7ERC 6).
Rögnvaldur er fæddur á Eski-
firði 15. október 1918 og voru
foreldrar hans Sigurjón Markús-
son sýslumaður og síðar stjórn-
SPEGLAR
FERMINGARGJAFIR
LUDVIG
STORR
Mikið úrval af fallegum
og nytsömum fermingar-
gjöfum — Skoðið
sýningargluggann —
SPEGLABÚÐIN
Laugavegi 15,
sími 1-9635.
íbúðir til sölu
4ra herb. íbúð við Hamrahlíð. Sérinngangur
og sérhiti.
4ra herb. íbúð við Álfheima, fimmta herb.
í kjallara. Bílskúrsréttindi.
3ja herb. íbúð við Framnesveg, nýstandsett.
3ja herb. íbúð við Reynimel. íbúðin er öll
nýmáluð og teppalögð.
Tvær 2ja herbergja íbúðir við Klapparstíg.
Málftutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar,
Guðmundar Péturssonar og Axeis Einarssonar,
Aðalstræti 6, símar 1-2002, 1-3202 og 1-3602.
arráðsfulltrúi í Reýkjavík og
kona hans Sigríður Björnsdóttir.
Kona Rögnvaldar er Helga dóttir
Gunnars Egilsonar stjórnarer-
indreka fslands á Spáni og
konu hans Guðrúnar Pétursdótt-
ur Thorsteinsson frá Bíldudal, og
eiga þau hjónin tvo syni, Þór
stud. philol. og Geir, menntaskóla
nema.
Vinir Rögnvaldar senda honum
og fjölskyldu hans beztu ham-
ingju- og árnaðaróskir með þakk
læti fyrir ótal ánægj ustundir
með von um, að þeir megi njóta
listar hans og skemmtilegra sam-
vista um mörg ókomin ár.
Gunnar H. Blöndal.
N auðungaruppboð
Eftir kröfu Útvegsbanka fslands verður landspilda í
Skógarbringum í landi Laxness í Mosfellshreppi,
nefnd Grenilundur 7, þinglesin eign Birgis Jóhanns-
sonar, seld á nauðungaruppboði, sem háð verður á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 17. okt. 1968, kL 4.30
e.h.
Uppboð þetta var auglýst i 13., 15. og 17. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1968.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Allar
gertfir
Myndamöta
•Fyrir auglýsingar
•Bcekur ogtimarit
•Litprentun
Minnkum og Stœkkum
OPHD frá kl. 8-22
MI A DAMÓT hf.
simi 17152
MOHGUNBlAÐSHlíSINU
Bezt að auglýsa í
Morgunblaðinu
Kirkjutónleikar
Aðalheiður Guð-
mundsdóttir mezzo-
sópran og Páll Kr.
Pálsson, organleikari
halda tónleika í Há-
teigskirkju sunnu-
daginn 20. október
kl. 19.00.
Aðgöngumiðar við
innganginn.
Philip Morris vekur athygli
á mest seldu
amerísku filtersigarettunni
í Evrópu.
Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er
raunverulegur tóbakskeimur.
Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro
þennan góða keim. Er þetta ekki það sem þér leitið að í filtersigarettunni?
„FILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI.