Morgunblaðið - 15.10.1968, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR OKTÓBER 1966
25
- 170 milljónir
Framhald af bls. 2
mek-íháttar framkvæmdum, sem
á dagskrá eru.
Búrfellsvirkjuu. iHér er byggt
á áætlun Landsvirkjunar. Upp-
hæðin lækkar úr 75 m.kr. 1968
í 50 m.kr. 1969.
Landshafnir. Láasfjárþörf
landshafnanna minnkar mjög á
næsta ári vegna þess að gert er
ráð fyrir, að framkvæmdum
þeim, sem staðið hafa yfir í Þor-
lákshöfn og í Njarðvík, ljúki á
þessu ári. Brýnar framkvæmdir
í landshöfnum á árinu 1969 eru
ekki taldar aðrar en að hlaða
grjóti á hafnargarð 1 Þorláks-
höfn til varnar sjógangi (4 m.
kr.) og byggja verbúð og ljúka
ljós og vatnsleiðslum í Rifi (3
m.kr.). Lánsfjárþörfin yrði þá
7 m.kr. samanborið ýið 40 m.kr.
á árinu 1968.
Reykjanesbraut. Hér er um að
aræða greiðslur vaxta og afborg-
ana, sem eru mjög þungar á
næstu árum og miklu þyngri en
tolltekjur brautarinnar og fram-
lag til hennar á vegaáætlun.
Fjármál þessarar brautar þarfn-
ast nánari athugunar við í sam-
bandi við undirbúning vegaáætl
unar fyrir næstu fjögur ár, en
hér hefur verið reiknað með 20
m.kr. láni til brautarinnar á ár-
inu 1969, er notast myndi til
greiðslu vaxta, og afborgana af
lánum, sem eru flest til tiltölu-
léga skamms tíma. Er hér því í
rauninni um lengingu lána að
ræða.
Hafnarfjarðarvegur. Sam-
kvæmt þeim áætlunum, sem
gerðar voru fyrr á þessu ári um
verk, og þeim fyrirheitum, sem
þá voru gefin, ætti lánsfjárþörf-
in á árinu 1969 að vera 36 m.kr.
(samanborið við 10.9 m.kr. 1968).
Óleyst vandamál. Verði sá
háttur hafður á afgreiðslu þess-
ara mála, sem að ínaman er gerð
grein fyrir, verða enn allmikil
óleyst vandamál fyrir hendi
ýmsum greinum opinberra
framkvæmda.
Sé gert ráð fyrir, að vandamál
vegaframkvæmda séu leyst
gegnum vegasjóð í sambandi við
nýja vegaáætlun, að öðru leyti
en snertir Reykjanssbraut, Hafn
arfjarðarveg og Jlísilveg, sem
VELJUM fSLENZKT
tekinn hefur verið inn á fjárlög,
virðast óleystu vandamálin vera
í aðaiatriðum þesai:
Rannsóknir og boranir
vegna saltvinnslu
Rannsóknarstofnun
12.0 millj.
iðnaðarins (innrétt- ing byggingar á Keldnaholti) 15.0 —
Flugmál 10.0 —
Menntaskólar 6.0 —
Landspítali 7.0 —
Lögreglustöð í Reykjavík 7.0 —
Alls 57.0 —
— Cernik
Framliald af l»ls. 1
inn verði sennilega undirritaður
með viðhöfn, ef til vill í Prag
og að fulltrúar annarra Var-
sjárbandalagsríkja undirriti hann
einnig.
ÁGREININGUR
Tékkóslóvakísk sendinefnd er
kom samkvæmt . áreiðan-
legum heimildum til Moskvu
í síðustu viku til að ganga frá
samningnum í einstökum atrið-
um, en för nefndarinnar var
aldrei staðfest opinberlega hvorki
í Moskvu né Prag. En einn
þeirra manna, sem sagt var að
átt hefði sæti í nefndinni, Karel
Rusov hershöfðingi, var í Moskvu
þegar Cernik kom þangað í morg
un og tók á móti honum.
Fréttir hermdu, að risið hefði
ágreiningur í undirbúningsvið-
ræðunum og Cernik hafði farið
til Moskvu til að leysa þennan
ágreining, en þessar fréttir hafa
ekki fengist staðfestar. Tékkó-
slóvakar stefna að því, að meiri
hluti sovézku hermannanna verði
fluttir úr landi fyrir 28. okt.
þegar 50 ár verða liðin síðan
lýst var yfir sjálfstæði Tékkó-
slóvakíu, og talið er að Rússar
vilji flytja burtu hersveitir, sem
þeir telja ekki beinlínis nauð
synlegt að hafa í landinu, áður
en vetur gengur í garð.
í fylgd með Cernik eru að
sögn Tass Frantisek Hamouz að-
stoðarforsætisráðherra, Peter Col
otka aðstoðarforsætisráðherra,
Bohuslav Kucera dómsmálaráð-
herra og Koloman Boda, formað
ur rannsóknarstofnunar landbún
aðar og matvælaiðnaðar Tékkó-
slóvakíu. Talið er, að Hanouz
hafi verið formaður sendinefnd-
arinnar, sem fór til Moskvu í
síðustu viku. Cernik var tekið
með fullri viðhöfn á Moskvu-
flugvelli í dag.
VERKAMENN MÓTMÆLA
Verkamenn í hinni geysistóru
CKD-vélaverksmiðju í Prag mót
mæltu í dag þrýstingi, sem Rúss
ar hafa haldið uppi gegn tékkó-
slóvakískum leiðtogum og héldu
því fram, að hinar hörðu árásir
blaða í Sovétríkjunum og fylgi-
ríkjum þeirra væru liður í bar-
áttu fyrir þvf að neyða frjáls-
lynda leiðtoga Tékkóslóvakíu til
að segja af sér. í ályktun, sem
verkamennirnir samþykktu og
birt var í verkalýðsblaðinu Prace
segir að þeir geti ekki tekið
með þegjandi þögninni árásum á
pólitíska fulltrúa sína og um-
boðsmenn sína í stofnunum rík-
isins, sem hafi unnið sér traust
þeirra síðan í janúar. Ef við
gerðum það, mundum við ef til
vill heyra einn góðan veðurdag,
að Svoboda, Dubcek, Cernik,
Smrkovsky og aðrir hefðu sagt
ar sér, segir í ályktuninni.'
Því er eindregið vísað á bug,
að frjálsræðisþróunin í landinu
hafi undirbúið jarðveginn fyrir
gagnbyltingu og sagt, að í raun
og veru sé þessu öfugt farið.
Lýst er yfir algerum stuðningi
við stefnu, sem fylgt hefur ver-
ið síðan í janúar og baráttu-
menn þessarar stefnu. Sagt er,
að árásir sovézkra og annarra
austur-evrópskra blaða séu brot
á Moskvusamkomulaginu, sem
gert var skömmu eftir innrásina
Því er bætt við, að undarlegt
sé að þessum blöðum sé heimilt
að leiðbeina forsætisráðherra
Tékkóslóvakíu og dómsmálaráð-
herra hans og dæma um hvað
sé ólöglegt og löglegt og hvað
sé andsósíalistískt, á sama tíma
og tékkóslóvakísku blaðamönn-
um sé bannað að skrifa um mál
efni Sovétríkjanna og fylgiríkja
þeirra.
f ályktuninni er dreifing sov-
ézkra áróðursrita á verksmiðju
svæðinu fordæmd. Ályktunin er
einkar mikilvæg vegna þess að for
stjóri CKD-verksmiðjunnar var
um langt skeið Frantisek Kapek
kommúnisti af gamla skólanum,
sem nú tekur virkan þátt í starf
semi andstæðinga Dubcek í flokk
um. Sagt er, að Kapek og fjórir
af foringjum sovézka hernáms-
liðsins hafi verið meðal ræðu-
manna á fnndi, sem nokkur hund
uð kommúnistar andvígir Dub-
cek héldu í Prag í síðustu viku.
SPÁIR FALLI DUBCEKS
í Vín spáði hinn kunni tékkó-
slóvakíski rithöfundur, Ladislav
Mnacko, því í dag að þess yrði
ekki langt að bíða að Dubcek
og aðrir frjálslyndir leiðtogar
yrðu sviptir embættum. Mnacko
fór til ísraels í fyrra í mót-
mælaskyni við stuðning Novotny
stjórnarinnar við Arana, sneri
aftur til Tékkóslóvakíu í maí
en fór úr landi á ný í síðasta
mánuði. Hann hefur nýlega sent
frá sér bókina, „Sjöunda nótt-
in“, sem fjallar um innrás Var-
s j árbandalagslandanna.
TIL SÖLU
Fasteignirnar Vesturgata 4 og Grófin 1, ásamt tilheyrandi
eignarlóðum að stærð um 650 fermetra hefi ég til sölu .
SIGURÐUR REYNIR PÉTURSSON
hæstaréttarlögmaður
Óðinsgötu 4 — Sími 21255.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna.
LANVEITINGAR
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna mun í næsta mánuði taka til
meðferðar umsóknir sjóðsfélaga um íbúðalán. Eyðublöð fyrir um-
sóknir verða afhent á skrifstofu sjóðsins og skal skila þeim til
skrifstofunnar, Bankastræti 5, Reykjavík, fyrir 1. nóvember n.k.
Umsóknir, er síðar berast, koma ekki til greina.
Umsókn skal fylgja.
1. Nýtt veðbókarvottorð, þar sem tilgreindur er
eignarhluti (hundraðshluti) í fasteign.
2. Brunabótavottorð eða
3. Teikning, ef hús er í smíðum.
4. Veðleyfi, sé þeirra þörf.
5. Yfirlýsing um byggingarstig, ef hús er í smíðum
(Sjóðurinn lánar ekki út á hús fyrr en þau eru
fokheld).
6. Vottorð um samþykki maka.
Eldri umsóknir eru úr gildi fallnar.
Nauðsynlegt er, að umsóknir séu skilmerkilega útfylltar og að
tilskilin gögn fylgi, ella má búast við, að þær fái ekki afgreiðslu.
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.