Morgunblaðið - 15.10.1968, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR
OKTÓBER J 968
wmmm
-—<
}v H **1 f • | í fi. |'
fcvS'íZ, '/}■'< vnfý'/s/ty- ''■
WAW^mwmí
þeirra leit við þegar stúlkurnar
nálguðust hann, ranghvolfdi
augunum og lét skina í gular
tennurnar.
— Þetta er hann Saíómon -
uppáhaldið prófessorsins, sagði
Graham. — Þeir virðast skilja
hvor annan til fullnustu.
— Ég yrði nú seint hænd að
skepnu, sem lítur svona út, sagði
Sandra. — Er það virkilega al-
vara, að ég eigi að ríða svona
tannduftið
sem gerir
gular
tennur
HVÍTAR
— Já, þegar þú ferð að vinna
uppi í fjallinu. Það er einasta
leiðin til að komast gegn um fok
sandinn. En þetta er enginn
vandi. Maður hallar sér bara veí
aftur og lætur líkamann rugga
eftir hreifingum skepnunnar.
Jill hlustaði ekki á þetta. Hún
hafði komið auga á ungan úlf-
alda sem var Ijósbrúnn og með
afskaplega stór, sorgbitin augu.
— Sjáðu! sagði hún við Olvier.
— Þetta er hann Móses, sagði
hann. Þú getur sennilega fengið
hann fyrir reiðskjótta, ef þú vilt.
Spurðu bara hann Graham.
— En er hann nógu sterkur,
til að bera mig?
— Hann virðist vera mjög ung
ur. Hún rétti út höndina og
klappaði skepnunni á bakið, en
Móses virtist ekkert kunna því
illa. — Hann er svo -ætur.
Oliver hló. — Moses er fimm
vetra, og það er nú barnsaidur-
inn hjá úlföldum, en hann er
orðinn vel taminn. Hann getur
borið þig margar mílur, án þess
að láta sig muna um það.
Kannski alla leið inn í fyrir-
heitna landið, Jill.
— Það gæti nú orðið 'erfitt,
svaraði hún. — En ég skil ekki,
hvernig þú getur munað öil nöfn
in á þeim. Þeir fullorðnu eru all-
ir alveg eins.
— Ég hef k.ynnzt þeim áður,
eða að minnsta kosti flestum
þeirra. Ég fór á úlfaldamarkað
með honum Graham í fyrra,
þegar hann keypti þá.
— Þú ert þá alltaf hérna í
fríinu þínu? Langar þig aldrei
að fara heídur eitthvað annað í
staðinn?
— Ég hef gaman gf tilbreyting-
unni. Og ekkert getur verið
meiri tilbreyting en þetta. Grah-
am! Heldurðu, að hún Jill megi
fá hann Móses hérna? Eða ertu
búinn að ráðstafa honum ein-
hvernveginn öðruvísi.
— Nei. Þú getur fengið hann,
Jill. Graham brosti til hennar
og Oliver gekk, eins og ósjálf-
rátt til Söndru og skildi þau
eftir. — Ég skal útvega þér ein-
hverja kennslu í fyrramálið áður
en þú ferð að búa til hádegis-
matinn.
— Þakka þér fyrir. Mér veitir
ekki af að læra að sitja á honum.
— En þú verður að lofa mér
því að fara varlega. Ég kann
ekki við, ac þú þjótir burt og
villist. Hann brosti til hennar.
— Til þess ertu alltof dýrmæt,
telpa mín.
— Já, þú átt við, að þá mund-
irðu sakna eplakökunnar? sagði
hún. Og áður en hann fengi
nokkru svarað, var hún gengin
til þeirra Otivers og Söndru.
7. kafli.
Viku seinna hafði Jil] létzt um
fjögur pund, lært meira i arab-
isku og lært fleiri aðferðir til
að leyna þurrkuðu grænmeti og
niðursoðnu keti í réttunum. Og
hún hafði líka fengið sæmilega
æfingu í að sitja á -úlfalda.
Fyrsti kennsíutíminn hafði
veirð skemmtilegur og fjörugur,
því að hlægjandi hópur burðar-
karla hafði horft á hana, þar
sem Hún sat í skúfasöðlinum á
Mó;es, þegar hann lagðist á
hnén til að hleypa henni á bak.
En svo tók hann stóran slag
og stóð upp og Jill féll fram á
UMBOÐ
UM ALLT LAND
ALAFOSS
ÞiNGHOLTSSTRÆTI 2
REYKJAViK SIM113404
I: Elskar þú mig ennþá II: Já.
hálsinn á honum og hélt sér
þannig dauðahaldi. Eftir nokkur
upphvatningarorð frá hinum
trygga Ahmed, tókst henni samt
að reisa sig við og togaði nú í
einfalda tauminn í beizlinu.
,,Húiissj“ æpti Ahmed og Móses
hlýddi og stóð kyrr. En svo fris-
aði hann og ætlaði að brokka af
stað aftur, en Ahmed hljóp á
eftir honum og æpti í sífellu, en
skepnan lét það eins og vind um
eyrun þjóta. Jill, sem sat með
krosslagða fætur hristist og
skókst upp og niður, er Móses
tók að leggja land undir fót með
furðulegum hraða. Hann þaut
aílt kring um klettsnefið. en
hægði svo á sér aftur þegar kom
ið var að tjaldstaðnum. Brátt
kom Ahmed til hans, hláupandi
og lafmóður og fléttaði saman
blótsyrðunum. Jill fór að skilja,
hversvegna pilturimn varð að
hafa þessa æfingu svona eld-
snemma morguns. Það hefði ekki
getað komið til nokkurra mála í
miðdegishitanum.
Næsta morgun datt JiII gott í
hug. Hún hafði skorið stóra
sneið af eplaköku og fór nú með
hana út til Mósesar og rétti
honum bitann á pappadiski.
Hann jóðlaði bitann, af mikilli
hrifningu og beygði svo hálsinn
niður til þess að taka diskinn,
sem hafði dottið é jörðina, og át
hann upp til agna. Eftir þetta
yflgdi hann Jill eins og tryggur
hundur.
Þetta kvöld voru margir auð-
\
ir stólar við kvöldborðið. Þetta
var þó engin furða, þar eð marg
ir úr leiðangrinum höfðu það til
að gleyma sér við vinnuna og
þar með alveg tímanum. Yfirleitt
virtist tímaskynið vera heldur
lélegt í þessu hægfara landi.
Graham var í Damaskus, Oliv-
er og Hammond Barker og Davíð
Game voru líka fjarverandi.Jill
vissi vel, hvar þeir voru — það
var svo sem milu vegar ftá tjald
staðnum. Hún ákað að ríða
Mósesi til þeirra og fá sér dá-
'itla hreyfingu í kvöldkælunni.
Hún settist varlega í rauða
söðulinn og krosslagði fæturna,
en Ahmed náði sér í einhverja
gamla truntu og fór með henni.
Jill tók að velta því fvrir sér,
hver mundi hafa skipað Ahmed
að missa aldrei sjónar á henni,
þegar hún færi út að ríða, en
spurningum hennar þar að lút-
andi hafði hann aidrei svarað
öðru en sviplausu brosi og axla-
yppingu.
Móses bar hana þangað sem
mennirnir tveir voru við jarð-
skjálftamælingar sínar. Flutn-
ingabílar stóðu þar með hundr-
að skrefa millibili og tenedir
saman með digrum streng. Með
þvi að koma af stað titringi á
öðrum bílnum og mæla. hversu
langan tíma hann tæki að ná til
hins bílsins gegn um jörðina.
gátu þeir fengið nokkra hugmynd
um. hvað þarna væri undir. Mós
es var alltaf til í að hvíla sig,
svo að Jill horfði stundarkorn á
15. OKTÓBER
Hrúturinn 21. marz, — 19 apríl
Eitthvað er að togast á um þig. en þar til þér er ljóst, hvað það
er, skaltu ekk’ binda þig Þú mátt búast við mislyndi samverka-
manna þinna.
Nautið 20. apríl — 20. mai
Þér er ögrað, en ekki minndar hugrekkið við það. Flestir virð-
ast vera á mótJ þér, en pað kann að vera þér sjálfum að kenna.
Tvíburarnir 21 mai — 20. júní
Vertu kátur hvað sern á dynur. Óveðrið gengur yfir. Rólegt
yfirbragð er galls lgildi.
Krabbinn 21. (úni — 22. júlí
Það kemur sér vel, hvað þú ert varfærinn. Leggðu snemma niður
vinnu og eyddu kviildinu við bóklestur.
I-jónið 23. jílí — 22. ágúst
Farðu vel að ættmennum þínum. Gamlar deilur geta risið upp
á ný. Farðu nákvæmlega að öllum reglum settum um meðferð
vinnuvéla. og sömideiðis í umferð.
Meyjan 23. ágúst — 22. rept.
Það er ýmtslegt í þínu valdi, sem getur komið á jafnvægi í
kröfur og framboð.
Vogin 23,sept.—22 okt.
Búztu við mikilli andstöðu. Þú þarft ekki að vera með óánægju.
Frestaðu i'erðalögum.
Sporðdrekirm 23. okt. — 21. nóv.
Gættu fyllsta öryggis. Áttvísi þin er örugg.
Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des.
Það er hvort sen: er enginn sammála þér, svo að þú skalt bara
fara þínar eigm leiðir. Þú verður feginn.
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Farðu meðaiveginn í dag. Togstreita milli einka og viöskipta-
Aís virðist óhjákvæmileg. Reyndu að hugsa málin, það skýrir þau.
Vatnsberiim 20 jan. — 18. febr.
Réttsýni þín rekst í dag á í umgengni við óbilgjarnar mann-
eskjur. Reyndu að gera ráð fyrir smá skekkju.
Fiskarnir 19. febr. — 20. marz.
Langferðir og ökutæki eru þér til óþæginda í dag. Haltu kyrru
fyrir, ef hægt er, og sinntvi daglegum störfum.