Morgunblaðið - 15.10.1968, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1968
Frábær árangur í undan-
keppni í 100 m
ALL.T benti til þess í gær, að
þeir spádómar rættust, að heims
metið í 100 m hlaupinu fyki á
þessum Olympíuleikum, ef
marka má árangrana, sem náð-
ust í tveimur fyrstu umferðum
100 m hlaupsins.
Heimsmethafinn, Charlie
Green, hljóp tvívegis 100 m á
10.0, bæði í fyirstu umferð og
fyrsta milliriðli. Ljóst er þó, að
hann fær harða keppni, þvi að
Kúbumaðurinn Hermes Ramirez
hljóp á sama tíma í fyrsta milli-
riðli og 5 hlauparar hlupu á. 10.1
sek.
í>rír fyrstu menn í fyrstu um-
ferð fóru áfram í milliriðil, e'ða
alls 27, en síðan eru fimm upp-
bótarsæti, þannig að keppendur
í milliriðlinum verða alls 32.
Nokkrir keppendur komust á-
íram í milliriðilinn á tímanum
10.5 og 10.6 en sjö menn, sem
allir höfðu hlaupið 10.4, en ekki
komizt í 3 fyrstu sætin í sínum
riðli, börðust um uppbótasætin
fimm. Hundraðshlutar úir sek-
úndu voru þá látnir skera úr um
það, hverjir kæmust áfram og
við það féllu Maniak frá Pól-
landi, og Klopotnov frá Rúss-
landi, úr keppninni.
í keppni í milliriðlunum sigr-
e'ði Charlie Green sinn riðil og
Tvö
rothögg
ÞEGAR á sunnudag hófst keppni
í róðri, kajakaróðri, hnefaleik-
um, hokkí og sundknattleik á
Mexikóleikunum. Það þar til tíð
inda í hnefaleikakeppninni, að
Rúmeninn P. Vasile vann mót-
herja sinn í keppni í veltivigt á
xothöggi. Vakti hann mesta at-
hygli fyrsta daginn.
Annað rothögg var slegið í
fluguvigt. Það gerði Yong Lee
frá S-Kóreu, en mótherjinn var
frá Uganda.
En þar sem áðurnefndar grein
ar hafa fáa a'ðdáendur hér verð
ur þeirra lítið sem ekki getið
nema þegar til úrslita kemur eða
önnur markvérð tíðindi gerast.
- ÍÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13
gera yfirburðir. Aðalhetja liðs-
ins — og þjóðarhetja — Vinc-
cente Perede skoraði þegar eft-
ir nokkrar mínútur. Og Mexikan
ar áttu ótal tækifæri eftdr það.
Aftur komu þeir knettinum í
mark Columbiu en ungverski
dómarinn viðurkenndi ekki mark
ið — og urðu óhemju læti (i
hljóðum) á leikvanginum.
f A-riðli leika: Mexikó, Kol-
umbía, Frakkálnd og Guinea. f
B-riðli leika Spánn, Brasilia,
Nigería ogjapan. í C-riðK eru
Ungverjaland, Ghana, Salvador
og Israel og í D-riðli Tékkó-
ulóvakíia, Bulgfría Guatamala
Thailand. Tvö beztu lið í riðlum
fara í 8 'liða útslit. Stærsti leik-
ur keppninnar — að því að talið
er verður 16 október í Puebta
en þá mætast úrslitaliðim frá
Tokíóleikunum. Búlgarar sem
sigruðu og Tékkar.
Þess skal getið að það eru
áhugamenn þessara þjóða sem
keppa á OL.
í gær, mánudag, voru fjórir
leikir á dagskrá.
hljóp á 10.0. Fréttastofufregnir
segja, að hann hafi hlaupið á
fullu fyrstu 80 metrana, en þá
slappaði hann af og hljóp á-
reynslulaust í mark. Ekki fæst
þetta afrek þó viðurkennt sem
olympíumet, þar sem vindhraði
var of mikill.
Annars urðu úrslit í milliriðl
unum, sem hér segir:
Riðill 1: Miller, Jamaica, 10.1
sek. 2) Jim Hines (USA) á 10.1
sek. 3) Figuerola (Kúbu) á 10.2
sek. 4) Ivan Moreno (Chile) á
10.3 sek.
Vetrarstnrf
Skotfélagsins
SKOTFÉLAG Reykjavíkur hef-
ur hafið vetrarstarf sitt, en æf-
ingar fara fram í íþróttahöllinni
í Laugardal á fimmtudögum kl.
20.30 og á sunnudögum kl. 9.30
f.h. Skotið er af 50 m færi. Um
400 manns eru nú í félaginu.
Riðill 2: 1) Hermes Ramirez
(Kúbu) á 10.0 sek. 2) Mel Pend
er (USA) 10.1 sek. 3) Roger Bam
buck (Frakkland) 10.1 sek 4) Jer
moe (Kanada) 10.2 sek.
Þriðja riðilinn vann svo Char
lie Green, eins og áður segir á
10.0, en ekki var hægt að sjá
hverjir þeir 3 voru sem halda
áfram með honum í undanúrslit,
vegna þess hve trufluð frétta-
skeyti voru .
Þessir 12 hlauparar kepptu síð
an um þáð seinni hlutann í gær,
hvað sex menn skyldu fara í úr
slit, en það liggur ekki fyrir,
þegar þetta er skrifað.
Stjórn H.S.f. Fremri röð frá vinstri: Valgeir H. Ársaélsson,
Axel Einarsson formaður H.S.Í. og Rúnar Bjarnason. Aftari röð
Axel Sigurðsson, Sveinn Ragnarsson, Jón Ásgeirsson og Einar
Th. Mathiesen. i
Ársþing H.S.Í.:
Kannaöir möguleikar á bikar-
keppni í handknattieik
Axel Einarsson endurkjörinn formaður
Ársþing H.S.f. var haldið í
Domus Medica s.I. laugardag.
Þingið sóttu um 70 manns, full-
trúar frá 8 sambandsaðilum og
gestir. Meðal gestanna voru Gísli
Halldórsson forseit f.S.Í. og Þor
steinn Einarsson íþróttafulltrúi
ríkisins. Þingforseti var kjörinn
Hermann Guðmundsson og þing
ritari Jón H. Magnússon.
Fyrsti leikur
HC er í kvöld
Hraðkeppni með þátttöku KR, ÍBH
og Reykjavíkurúrvals
Danmerkurmeistarar H.G.
munu leika sína fyrstu leiki hér
í kvöld. Leikurinn fer fram í
Laugardalshöllinni og hefst kl.
8.30 Verður þarna um eins kon-
ar hraðkeppni að ræða, því að
fjögur lið munu leika um kvöld-
ið.
Fyrsti leikur KR og HG, en að
því búnu Hafnarfjarðarúrval við
sigra í þessum tveimur leikjum
leika síðan til úrslita. Leiktími
er 2x15 minútur.
í liði HG í kvöld gefst hand-
knattleiksunnendum m.a. færi á
að sjá hinn fræga markvörð Ben
Mortensen og landsliðsmanninn
Carsten Lund. Reykjavíkurúrval
hefur áður verið birt, en hér á
eftir fer lið Hafnarfjarðarúrvals:
Hjalti Einarsson FH, Kristófer
Magnússon FH, Geir Hallsteins-
son FH, Örn Hallsteinsson FH,
Auðun Óskarsson FH, Birgir
Björnsson FH, Viðar Símonar-
son Haukum, Þórður Sigurðsson
Haukum, Ólafur Ólafsson Hauk
um, Stefán Jónsson Haukum, Þór
arinn Ragnarsson Haukum.
Kúluvarp:
1. Mattson USA 20.54
2. Woods USA 20.12
3. Grutsjin USSR 20.09
4. Hoffman A-Þýzk. 20.00
5. Maggard USA 19.43
6. Komar Pólland 19.28
Langstökk kvenna:
1. Visecopoleanu (Rúmenía)
6.82
2 Sherwood (Bretland) 6.68
3. Tzlisjeva (USSR) 6.66
4. Wiczorek (A-Þýzkal.) 6.48
5. Sarna (Pólland) 6.47
6. Berthelsen (Noregi) 6.40
ffærkvöldi
Spjótkast kvenna:
1. Nemeth (Ungverjal.) 60.36
2. Penes (Rúmeníu) 59.92
3. Eve Jando (Austurriki) 58.04
4. Rudas (Ungverjal. 56.38
5. Jaworska (Pólland) 56.06
6. Urbancic (Júgóslavíu) 55.42
100 m. hlaup karla:
1. Jim Hines USA 9.9 sek.
(heimsmet)
2. Lennox Miller (Jamaica)
10.0
3. Charlie Green (USA) 10.0
4. Montea (Kúbu) 10.1
5. Bambuck iFrakkland) 10.1
6. Pender (USA) 10.1
Axel Einarsson formaður H.S.Í.
flutti þingsetningarræðu og gerði
í henni grein fyrir verkefnum
s.l. starfsárs. Kom fram að þau
hafa verið mjög umfangsmikil og
víðtæk. Meðal nýjunga sem efnt
var til á árinu má nefna þjálf-
unarmiðstöð yfir sumarmánuðina
og þjálfaranámskeið, hið fyrsta
er haldið hefur verið í Reykja-
vík.
í lok ræðu sinnar gat Axel
þess að nú væri útlit á að á
næstunni yrðu fleiri íþróttahús
tekin í notkun og skapaði það
breytt viðhorf. Því hefði stjórn
H. S.f. ákveðið að reyna að mynda
ákveðnar reglur áður en þessar
breytingar kæmust á og hefði
nú í fyrsta sinn verið skipuð
mótanefnd H.S.f. til að undirbúa
reglur um mótanefnd H.S.Í. Yrðu
niðurstöður nefndarinnar vænt-
anlega lagðar fyrir næsta árs-
þing.
Þingið gerði nokkrar samþykkt
ir og beindi m.a. þeim tilmælum
til Í.B.R. að íþróttahúsin yrðu
opnuð til æfinga eigi síðar en
I. sept. ár hvert, svo keppni
gæti hafizt í síðasta lagi 15. sept.
Þá gerði þingið ályktun um að
fela stjórn H.S.f. að kanna mögu
leika þess að koma á bikarkeppni
í handknattleik og samþykkti
að beina til hlutaðeigandi yfir-
valda að athuga möguleika þess
að íþróttahús verði byggt þann
ig að jafnframt mættj nota þau
sem félagsheimili og þannig nýta
betur það fjármagn, sem fyrir
hendi er. Loks lagði þingið á-
herzlu á að íþróttahúsbyggingar
yrðu framvegis byggðar þannig,
að þar rúmaðist löglegur keppn-
isvöllur fyrir handknattleik.
Þá samþykkti þingið að frá
og með 1. okt. s.l. séu í gildi
þær breytingar á handknattleiks
reglum sem samþykktar hafa ver
ið á þingi Alþjóðahandknattleiks
sambandsins, en þær eru helzt-
ar að heimilt er að nota gervi-
efni í marksúlur og markás, að
hvert handknattleikslið skuli nú
framvegis skipað 12 leikmönnum
og að tveir dómarar skuli annast
leikstjórn.
í stjórn H.S.f. voru kjörnir:
Axel Einarsson formaður, Axel
Sigurðsson, Einar Th. Matthie-
sen, Jón Ásgeirss., Rúnar Bjarna
son, Sveinn Ragnarsson og Val-
geir H. Ársælsson. Varamenn í
stjórn voru kjörnir þeir Jón
Kristjánsson, Magnús V. Péturs-
son og Bjarni Björnsson. End-
urskoðendur voru kjörnir Krist
ján Friðsteinsson og Valur Ben-
ediktsson og í dómstól H.S.Í
voru kjörnir Hafsteinn Guð-
mundsson, Haukur Bjarnason og
Kristján Oddsson.
Enska knattspyrnan
.ÚRSLIT leika í ensku deildar- Wolves — Chelsea 1-1
keppninni sL laugardag urðu
þessi: 2. deild
1. deild Aston Villa — Crista] PaL 1-1
Arsenal — Cocentry 2-1 Blackburn — Carlisle 0-2
Ipswich — Newcastle 11-4 Blackpool — Portsmouth 1-1
Leeds — West Ham 2-0 Bolton — Charlton 3-0
Leicester — W Bromwich 0-2 Bristol City — Birmingham 0-0
Liverpool — Manc. Utd. 2-0 Derby — Preston 1-0
Manch. City — Tottenham 4-0 Fulham — Norwich 1-3
Q.P.R. — Sheff. Wed. 3-2 Hull City — Huddersfield 3-0
Southampton — Everton 2-5 Millwall - - Cardiff 2-0
Stoke — Burnley 1-3 Oxford — Bury 2-2
Sunderland — Nottm. Foiresl 3-1 Sheff. Utd. — Middlesbro 1-3
Mattson fékk gullið
RANDY Mattson sigraði í kúlu-
varpi á Olympíuleikunum í
Mexikó í gærkvöldi. Hann kast-
aði kúlunni 20.54, sem er lakari
árangur en hann náði í undan-
keppninni.
Annar varð Rússinn Gutsjin
með 20.09 og bronsið hlaut
Woods frá Bandaríkjunum sem
kastaði 20.04. Hoffmann frá A-
Þýzkalandi varð fjórði með 20
metra slétta og Maggard frá
Bandarikjunum fimmti.