Morgunblaðið - 15.10.1968, Síða 32
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA
SÍMI
AUGLYSIN6AR
SÍMI SS*4*SO
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1968
Þinqforsetar
kjörnir í gœr
1 GÆR fóru fram á Alþingi kosn
ingar forseta Sameinaðs Alþingis
og efri- og neðri deildar. For-
seti Sameinaðs Alþingis var kjör
inn: Birgir Finnsson, Ólafur
Björnsson, fyrsti varaforseti og
Sigurður Ingimundarson 2. vara
forseti. Skrifarar Sameinaðs
þings voru kjörnir: Páli Þor-
steinsson og Bjartmar Guðmunds
son.
Forseti neðri deildar var kjör-
inn Sigurður Bjarnason, 1. vara
forseti Benedikt Gröndal og 2.
varaforseti Matthías A. Mathie-
sen. Skrifar þingdeildarinnar
voru kjörnir: Friðjón Þórðarson
og Ingvar Gíslason.
Jónas G. Rafnar var kjörinn
forseti efri-deildar, 1. varafor-
seti var kjörinn Jón Þorsteins-
son og 2. varaforseti Jón Arna-
son. Skrifarar þingdeildarinnar
voru kjörnir þeir: Steinþór Gests
son og Bjarni Guðbjörnsson.
Birgir Finnsson.
Síldin komin við
Suðvesturland
Stjórnarfrumvarp lagt fyrir á Alþingi:
Stofnuð verði fjögur ný ráðuneyti
— eitt fyrir hvern höfuðatvinnuveg; sjávarútveg, landbúnað og
iðnað og Heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneyti. Atvinnu-
málaráðuneytið verði
9TJORNARFRUMVARP um
Stjórnarráð Islands var lagt
fram á Alþingi í gær. Gerir frum
varpið ráð fyrir töluverðum
breytingum frá núverandi skip-
an. Samkvæmt ákvæðum frum-
varpsins skal Stjórnarráð ís-
lands greinast í 13 ráðuneyti, en
þau eru nú 10. Hin 3 nýju ráðu-
neyti sem stofna skal til eru
Landbúnaðarráðuneyti, Sjávarút
vegsmálaráðuneyti og Iðnaðar-
málaráðuneyti, þ.e. sérstakt
ráðuneyti fyrir hvern höfuðat-
vinnuveg þjóðarinnar um sig. Þá
er ráðgert að Atvinnumálaráðu-
neytið verði lagt niður, heil-
brigðismál, sem nú lúta Dóms- og
kirkjumálaráðuneyti og trygg-
ingarmál, sem nú ber undir Fé-
lagsmálaráðuneytið, verður lögð
til nýs ráðuneytis er nefnist
Heilbrigðis- og tryggingamála-
lagt niður
ráðuneyti. Frumvarpið gerir ráð
fyrir að lögin öðlist gildi 1. jan-
úar 1970.
f athugasemdum með frum-
varpinu segir, að 1958 hafi á Al-
þingi verið samþykkt þingsálykt
unartillaga, þar sem skorað var
á ríkisstjórnina að láta fram fara
endurskoðun á löggjöf um
Stjórnarráð íslands, og leggja
fyrir Alþingi lagafrumvarp um
þetta efni svo fljótt sem verða
mætti. Var þá fljótlega skipuð
nefnd, sem samdi frumvarp er
ekki var lagt fyrir Alþingi. Nú
verandi ríkisstjórn tók hins veg
ar málið upp og lét semja það
frumvarp er lagt var fram í
gær.
Frumvarpið gerir ráð fyrir
mörgum nýmælum í skipan
Stjórnarráðsins, Auk fram-
angreindra breytinga má nefna:
Kosningar til Stúdentafélags Háskólans:
Öll málefni, sem bera á upp
fyrir forseta fslands til staðfest-
ingar, skulu áður tekin til með-
ferðar á ráðherrafundi.
Forsætisráðherra skipar starfs
mann Forsætisráðuneytis rit-
ara ráðherrafundar. Ritari skrá-
ir fundargerð ráðherrafundar í
gerðarbók, er ráðherrar hafa
staðfest fundargerðina.
Þegar skipt er störfum með
ráðherrum, skal hvert ráðuneyti
óskipt lagt til eins og sama ráð-
herra. Lagt er til að forsætis-
ráðherra megi ákveða, að ráðu-
neytisstjóri veiti fleirum en einu
ráðuneyti forstöðu, ef því verður
við komið, og að fleiri en eitt
ráðuneyti hafi sameiginlegt
starfslið og húsn'æði.
Ráðherra er heimilt að ráða
mann utan ráðuneytis sér til að-
stoðar meðan hann gegnir em-
bætti, svo sem tíðkast hjá öðr-
um þjóðum.
LISTI VÖKU SIGRAÐI
— Hlaut 420 atkv. og 4 menn kjörna
SL. LAUGARDAG fóru fram
kosningar til stjórnar Stúd-
entafélags Háskóla fslands.
Úrslit urðu þau, að A-listi,
Vöku, félags lýðræðissinn-
aðra stúdenta sigraði, hlaut
420 atkvæði og 4 menn
kjörna, en B-listi, borinn
fram af 15 háskólastúdentum
og studdur af félögum frjáls-
Fimm gegn einum
— en komust að því fullkeyptu samt
lyndra stúdenta, jafnaðar-
manna og róttækra hlaut 410
atkvæði og 3 menn kjörna.
Þetta er í þriðja sinn, sem
kosningar fara fram til stjóm
ar Stúdentafélags Háskólans
með þessum hætti, en í fyrri
skiptin tvö fékk B-listinn
meirihluta, sem hann tapaði
nú.
Á kjörskrá voru um 1450 stúd
entar en 850 greiddu atkvæði og
Norðurstjarnan í fyrsta sinn i full afköst
Síldin er komin við Suðvest-
nrland og komu margir bátar
með afla til hafna á Reykja-
nesi, til Vestmannaeyja og Akra-
ness í gær, þar sem síldin var
ýmist fryst, söltuð eða flökuð.
Niðursuðuverksmiðjan Norður
stjaman í Hafnarfirði fékk nú
f fyrsta sinn nægilegt síldar-
magn, til að hægt væri að hef ja
full afköst. Er unnið þar nótt
og dag, við frystingu og flök-
un, en eftir þessa skorpu munu
verða til byrgðir fyrir verksmiðj
una i 5 mánuði. Nú er líka I
fyrsta sinn hægt að sjóða nið-
ur ferska síld í verksmiðjunni.
Sjá nánar frétt á bls. 10.
Aftur á móti er engin síld-
veiði fyrir Norðausturlandi. Bát
ar fóru út um helgina eftir nær
viku landlegu og í gærkvöldi
hafði ekki frézt um neina veiði.
Síldin við Suðvesturland veidd
ist á Eldeyjarbanka og fóru bát
arnir út aftur strax og þeir
höfðu landað í gær. Til Reykja
víkur komu Þorsteinn með rúm
81 tonn, sem fór í ísbjörninn og
Iðjuverið, Fylkir með 43 tonn
Framhald á bls. 31
TIL harðra átaka kom milli
dansks manns og fimm fslend-
inga á planinu við Bifreiðastöð
Reykjavíkur áðfaranótt sunnu-
dags. Beitti Daninn jafnt höndum
og fótum og þegar lögreglan kom
á vettvang, lágiu tveir íslending-
ar í valnum og hinir þrír stóðu
heldur höllum fæti í átökunum.
Þrír íslendingar voru fluttir í
Slysavarðstofuna, tveir fengu
strax að fara þaðan, en sá þriðji
var fluttur í sjúkrahús, þar sem
Daninn hafði sparkað illa í nára
hans. í gær var svo annar ís-
lendingur fluttur í sjúkrahús og
kom í ljós, að hann hafði höfuð-
kúpubrotnað í átökunium.
Þióðarhogsmunir verði tryggðir með öruggum
rekstri utvinnuvegannu og olmennri ntvinnu
— Ályktun flokksráðsfundar
Sjálfstæðismanna
FLOKKSRAÐSFUNDI Sjálf-
stæðismanna lauk síðdegis á
laugardag. í fundarlok var
samþykkt með samhljóða at-
kvæðum eftirfarandi tillaga:
„Flokksráð Sjálfstæðis-
flokksins lýsir samþykki
sínu á, að efnt hefur verið til
viðræðna á milli stjórnmála-
flokkanna um hinn mikla
efnahagsvanda þjóðarinnar,
sem skapazt hefur vegna ó-
hagstæðs árferðis, aflabrests,
verðhruns og markaðsörðug-
leika. Flokksráðið treystir
fulltrúum flokksins í viðræðu
nefnd og öðrum forustumönn
um til að halda svo á málum,
að sem bezt verði tryggðir
hagsmunir þjóðarheildarinn-
ar með öruggum vexti höfuð-
atvinnuvega hennar og þar
af Ieiðandi almennri at-
vinnu“.
Mikla umræður urðu á flokks-
ráðsfundinum og tóku þessir til
máls síðari hluta lauigardagsins:
Dr. Bjarni Benediktsson, Sverr
ir Hermannsson, Ámi Grétar
Finnsson, Ólafur Björnsson, Páll
Daníelsson, Sigurður Bjarnason,
Guðmundur Garðarsson, Emil
Magnússon, Kristján G. Gíslason,
Sigurður Helgason, Haukur Egg
ertsson, Jóhann Hafstein, Magn-
ús Jónsson, og að lokum Bjarni
Benediktsson, sem þakkaði fund
armönnum ánægjulega fundar-
setu og sleit fundinum.
Við yfirheyrslur kom í ljós, að
veitzt hafði verið að kunningja
Danans og gleraugu hans slegin
af honum og brotin. Réðist Dan-
inn þá á þann, sem það gerði,
en síðan blönduðu hinir fjórir sér
í átök þeirra með fyrr.greindum
afleiðingum.
er það nokkru minni kjorsókn
en í fyrra. Auðir seðlar voru 18
og ógildir 2. Af A-lista voru
kjörnir Ólafur G. Guðmundsson
stud med., Ellert Kristinsson
stud. oceon., Skúli Sigurðsson
stud. jur, og Bjarni P. Magnús-
son, stud. med. Af B-lista voru
kjömir Svednn R. Hauksson
Framhald á bls. 31
Hœstaréttardómur staðfestir
16 ára fangelsisdóm
yfir Þorvaldi Ara
í GÆR var kveðinn npp f
Hæstarétti dómur í máli Þor-
valdar Ara Arasonar og var
staðfestur dómur undirréttar
um 16 ára fangelsisdóm.
í dómi hæstaréttar þykir
sannað að ákærði réði fyrr-
verandi eiginkonu sinni bana
af ráðnum hug að Kvisthaga
25 að morgni 7. janúar 1967,
eins og nánar er skilmerki-
lega rakið í héraðsdómi. En
eigi þykir verða staðhæft að
ásetningur hans til að fremja
brotið hafi orðið til fyrr en við
síðustu orðasennu þeirra.
Varðar verknaður ákærðavið
211 grein almennra hegning-
ariaga og þykir hæstarétti
refsing hans hæfilega ákveð-
in fangelsi í 16 ár. Síðan er f
dóminum kveðið svo á að
gæzluvarðhald ákærða skuli
koma með fullri dagatölu frá
7. janúar 1967 refsingu hana
til frádráttar, skv. 76 grein
hegningarlaganna.
Þá eru í dóminum staðfest
ákvæði héraðsdóms um svipt-
ingu réttinda ákærða, þ.e.
svipting leyfa ákærða til mál
flutnings fyrir héraðsdómi og
hæstarétti og löggildingu til
sóknar opinberra mála í hér-
aði, svo og svipting verzlun-
arleifa til heildsölu og smá-
sölu. Þá er ákærði dæmdur
til að greiða allan sakarkostn
að fyrir héraði og hæstarétti.