Morgunblaðið - 23.10.1968, Page 12
12
MORGUNBL.AÐH), MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 196«
Austur og Vestur faðmast á þessari mynd. Það er Djurdjica
Bjedov frá Júgóslavíu sem hallar sér að Sharon Wichman frá
Bandaríkjunum er þær taka við verðlaunum fyrir 100 metra
bringusund. Sú rússneska t.v., Galina Prozumenshikova, sem
bronsið hlaut, er ekkert glaðleg á svipinn.
Fjo^ar svipmyndir sem sýna stökkstíl Bob Beamons, lang stökkvarans fræga, sem stökk
8.90 metra.
Þetta er einn af keppendunum í nútíma fimmtarþraut, en hún samanstendur af keppnisgrein-
um í hlaupi ,reiðmennsku, sundi, skylmingum og skotfimi. Það er I. Mona, sem hlaut silfur-
verðlaun í einstaklingskeppni, sem er hér í einni keppnisgreininni.
„Flug 767 — það er annar fugl á flugi nálægt þér“ kynni að
vera texti með þessari mynd frá stangarstökkskeppninni í tug
þrautinni. Tugþrautarmennimir stukku á tveimur brautum og
„sandkassarnir“ voru hlið við hlið og því stundum tveir á
lofti í einu. Nær er Joachim Kirst frá A-Þýzkalandi, en fjær
A-Min Wu frá Formósu.
Svona lauk tugþrautinni. Bill Toomey (nr. 311) er fagnað og óskað til hamingju af heimsmet-
hafanum Kurt Bendlin á sama tíma og hjálparmenn fara til að aðstoða Joachim Kirst, sem
féll í yfirlið eftir 1500 m hlaupið. T.v. er annar A-Þjóðverji, Manfried Titker.
Þetta er Mauno Lindroos frá Finnlandi. Hann ætlaði sér um
of í lyftingum. Er hann ætlaði að snara þunganum yfir höfuð
sér, féll hann aftur á bak með brambolti miklu. Hann slapp
við meiðsli, en þeir sem nærstaddir voru segja, að það sem
hann lét sér um munn fara — jafnvel þó það hafi verið á
finnsku — sé ekki prenthæft.