Morgunblaðið - 23.10.1968, Side 17
MORGUNBLAÐtÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 19S8
17
- FRÆÐSLUMÁL
FramhaM af bls. 11
í heild kemur í ljós að það stend
ur saman af fjölmörgum megin-
þáttum, sem hver um sig gegn-
ir ákveðnium tilgangi innan þjóð
félagsins. Meðal þessara megin-
þátta má nefna þjóðfélagsstofn-
anir, svo sem skóla, heimili, lög-
gjafarþing, dómstóla, heilsuvernd
og sjúkrahjálp, kirkju, almanna-
tryggingar, og þannig maétti
lengi telja. Hver þessara þátta
um sig er byggður upp sam-
kvæmt ákveðnum lögum, regl-
um, tilskipunum og öðrum fyrir-
mælum, sem giida í hverju þjóð-
félagi. Þessvegna er talað um
skólakerfi, efnahagskerfi, em-
bættismannakerfi, og þannig má
einnig lengi telja. Til þess að
skilgreina nánar meginstarfshætti
hinna einstöku þjóðfélagskerfa
hafa menn notað ákveðin vinnu-
brögð, sem byggjast á því, að
draga fram með skýrum línum
hina einstöku sérþætti innan
kerfisins og utan. En kerfið, og
þá ekki fremur skólakerfið, er
ekki dauður uppdráttur eins og
ætla má af orðum J.H. Skóla-
kerfið er meira en „samstæða
af skólum á mismunandi stigum“
eins og J.H. lætur í ljós. Skó'la-
kerfið felur því í sér próf og
prófréttindi með öllum þeim af-
leiðingum sem því fylgir. Skóla-
kerfið felur í sér uppeldisheim-
speki, sem það reyndar grund-
vallast á. Skólakerfið felur í
sér starfsemi þess híuta embætt-
ismannakefiisinia, er varðar
fræðslumálin. Skólakerfið er ná-
tengt löggjafarvaldinu að því er
snertir fræðslulög. Starfshættir
menntamálaráðuneytisins, embæt
ismannaskipanir, fyrirmæli til
námsstjóra, skólastjóra og kenn
ara er hluti þess sem vér köll-
um fræðslukerfi. Námsbókaút-
gáfa, fjármál skóla eru einnig
hluti af skólakerfinu. Réttur há-
skólans til sjálfstæðrar starfsemi
í einstökum málefnum er einn
þáttur hins sérstæða íslenzka
fræðslukerfis. Réttur prófessora
til að láta af starfi og ráða mann
í sinn stað, án þess að segja
upp starfi, er einnig eitt af sér-
bennum íslenzks fræðslukerfis.
Ráðning í skólastjórastöður og
kennarastöður, í embætti fræðslu
málastjóra og námsstjóra, svo og
stöður í menntamálaráðuneytinu,
allar til lífstíðar, eru einnig sér-
kenni hins íslenzka fræðslu-
kerfis. Landsprófið er enn eitt
af þessum sérkennum íslenzks
fræðslukerfis, og þannig mætti
halda áfram. Fyrirsögn höfundar
ber því að endurskoða rækilega
þegar þessi skýring er höfð í
huga.
Enda þótt viðurkennt sé að
höfundur hafi fullan rétt til þess
að nota sínar eigin skilgreining-
ar, enda þótt þær séu ekki al-
mennt virtar, verður þó að gera
þá lágmarkskröfu að höfundur
sé samkvæmur sjálfum sér. Hof-
undur skilgreinir hugtakið skóla
kerfi sem „samstæðu af skólum
á mismunandi stigum." Um sjálf
fræðslulögin segir höfundur að
þau séu fyrst og fremst „ramma-
löggjöf“, sem samkvæmt framan
greindri skilgreiningu er ekki
að sjá að hann skoði þau, sem
ákveðinn þátt kerfisins. Aftur á
móti segir höfundur á öðrum
stað (n. grein, 3. dlk.) „f kerf-
inu er sveigjanleiki, sem lög-
gjafar vorir verðskulda þökk
fyrir. Á öðrum stað segir höf.
(H,l) „Kerfið er intellektúalist-
iskt og byggist því á vali góðra
kennara." Hér er vissulega um
töluvert ósamræmi að ræða hvað
við kemur þessari skilmerkilegu
skilgreiningu höfundar. En þar
sem J.H. hefur greinilega ekki
selt sál sína þeim vinnubrögðum
sem „vér tæknikratar" höfum
upp tekið sé ég ekki ástæðu til
frekari sparðatínings, en mun
beina máli mínu að kjarna við-
fangsefnisins.
JJH. ballar greinaflokk sinn:
JFlest er í lagi með skólakerfið",
eins og áður er nefnt. Eftir skil-
greiningu höfundar má segja að
flest sé í lagi með hina kerfis-
bundnu flokkun ákveðinna skóla
4 mismunandi stigi. En þetta er
aila ekki efni greinaflokksins.
'Ef farið er eftir skilgreiningu
höf. má segja að greinarnar f jalli
mjög almennt um íslenzk fræðslu
og skólamál. En hvers vegna
segir þá höfúndur ekki, „Flest
er í lagi með fræðslumálin.“
Svarið er mjög einfalt. Höf.
finnur ekkert í lagi. Réttast væri
því að segja að höf. finnur „allt
í ólagi með fræðslumálin.“ Við
lestur þessara greina verður ekki
komið auga á eitt einasta atriði,
sem er í samræmi við fullyrð-
ingar fyrirsagnarinnar. Á hinn
bóginn er ekki annað að sjá en
að höf. leggi sig mjög fram um
að sýna að flest er í ólagi með
fræðslumálin. Þessu til staðfest
ingar skulu tilfærð nokkur dæmi
og er grein og dálkur tilgreind-
ur svo lesendur geti fengið nán-
ara samhengi. Gagnrýni Jóhanns
Hannessonar á íslenzkum fræðslu
málum mun ef til vill vera sú
skeleggasta, sem fram hefur kom
ið til þessa. Eftirfarandi dæmi
úr greinarflokki höfundar bera
þess Ijóst vitni:
1) Ákveðnum námsgreinum er
haldið við af gömlum vana. (1,2)
2) Kjör íslenzkra kennara eru
lakari en kennara í nágranna-
löndunum. (1,4)
3) Uppeldismenntun íslenzkra
kennara er minni en kennara í
nágrannalöndunum. (1,4)
4) Það er átakanlegt hve mikla
fátækt Kennaraskóli fslands hef
ur átt við að búa. (II.l)
5) Slæmur aðbúnaður kennara-
skólans á undanförnum árum hef
ur sín áhrif á nútímann. (11,1)
6) Ef ekki er val góðra kennara
er hætt við slæmum afleiðingum
(11,2)
7) Kerfið byggist á vali góðra
kennara. (11,29
8) Kennarar hafa verið útilok-
aðir frá háskólanámi. (11,5)
9) Til þess er ætlast að kenn-
arar vinni í sumarfríum. (111,1)
10) Meðan aðrar þjóðir leggja
áherzlu á að veita kennurum hag
kvæm sumarnámskeið til að auka
þekkingu sína, þá vinna íslenzk
ir kennarar við að grafa skurði.
(111,1)
11) Ekki verður með neinni sann
girni við því búizt að kennara-
stétt vor sé fær um að veita
sömu menntun og kennarastéttir
nágrannaþjóðanna. (III,2)
12) Námslán til kennara eru
ekki fáanleg og styrkir vart telj
andi. (III,4)
13) Það er kominn tími til að
bæta úr kennaraskortinum.
(111,5)
14) Kennaraskorturinn á rætur
sínar að rekja til hugsjónafátækt
ar almennings. (III,5)
15) Æfingaskólinn, sem skóla-
stjóri kennaraskólans bað um ár
ið 1908, er ekki tekinn til starfa
enn. (11,1)
16) Námsleiði á rætur sínar að
rekja til lélegra kennara. (11,2)
17) Góðir kennarar þurfa að
leggja á sig sérstakt erfiði vegna
slæms aðbúnaðar. (11,3)
18) Þrátt fyrir velmegun og lúx
usmannvirki fyrir milljónatugi
höfum vér ekki æfingaskóla.
(11,3)
19) Kennslutæki og aðbúnaður ís
lenzkra skóla er fátæklegur.
(11,3)
20) Ýmislegt í skólastarfi voru
minnir á aðbúnað hjá flótta-
mannastarfsemi. (11,3 og HI,5)
21) f námsskrá er gert ráð fyrir
sjálfstæðum vinnubrögðum, en
til þess eru allar aðstæður ófull-
nægjandi. (11,3)
22) Námsefni skyldunámsins er
svo þungt, að það heldur fólki
niðri á lágu menningarstigi, og
veldur seinagangi, þroskaleysi og
leiða. (11,3)
23) Þar sem of mikið er unnið
með námi — eða með kennslu
— fer ekki hjá því, að útþynn-
ing á sér stað, og þessi útþynn-
ing kemur fram í minni þroska
og minni dómgreind en æskilegt
getur talizt. (III,2)
24) Þunn menntun hæfir mörg
um og margir sætta sig vel við
þunna menntun. (III,2)
25) Þar sem menntunarmarkið er
lágt er auðveldara en ella að
fá kennara til að sætta sig við
lág laun ef sumarfrí er langt.
(111,2)
26) Mannréttindi til náms í dag
eru ekki eins mikil og var á
miðöldum. (11,5)
27) Margir prýðilega þroskaðir
menn eru útilokaðir frá háskóla
námi. (11,5)
28) Menntaskólarnir eru of fá-
ir. (11,5)
29) Stefnan hér á landi virðist
sú að láta hvort sigla sinn
sjó, skólann og fjölmiðlunartæk
in. (11,8)
30) íslenzkir skólar starfa flest
ir mun skemmri tíma ár hvert
en skólar nágrannaþjóðanna.
(111,1 og 1,4)
31) Það er öruggt, að samifjöldi
skólaára veitir ekki sömu mennt
un á íslandi og í nágrannalönd-
unum. (III,2)
32) Það er alger firra, að ætla
að 6 mánaða skóli geti veitt
sömu menntun og 9 mánuða skóli
(111,1)
33) Algengt er að kalla það átta
mánaða skóla, sem í reynd starfa
aðeins í sjö mánuði. (111,1)
34) Kennslutími er drýgri í 9
mánaða skólum heldur en 6
mánaða skólum. (III, 1)
35) Prófin gera starfsemi skól-
anna ódrýgri en ella. (III, 1)
36) Þrengslin í skólunum eru
oss til skammar. (III,5)
37) Þrengslin í skólunum eru ó-
afsakanleg. (III,5)
38) Mikil þörf er á að endur-
skoða námsefni skólanna. (1,2)
39) Einstakir þættir íslenzku
uppeldisheimspekinnar eru jrfir
leitt veikari og óraunhæfari í
framkvæmd en hjá nágranna-
þjóðum vorum. (1,4)
40) íslenzkar kennslubækur eru
þynnri en kennslubækur ná-
grannaþjóðanna (1,4).
41) Það virðist sem þjóðin hafi
ekki efni á að binda skólabæk-
ur barnanna í betra efni en papp
ann í mjólkurhyrnunum. (1,5)
42) Það virðist sem ekki sé nægt
fé til þess að láta skólastjóra
vora fá nauðsynlega skrifstofu-
hjálp. (1,5)
43) Stefnan í kennslubókamál-
unum heldur íslenzkum skólum
niðri, bæði nemendum, kennur-
um, höfundum og öllum almenn-
ingi. (11,2)
44) Kennslubókapólitíkin hér
er mótuð af sparsemi (11,2)
45) Stefnan í íslenzkri náms-
bókagerð hefur valdið ófremd-
arástandi. (11,2)
46) Kennslubókapólitíkin hefur
útþynnt alþýðumenntun hér á
landi um áratugi. (11,2)
47) Kennslubókapólitíkin hefur
valdið þjóðinni stórtjóni. (11,2)
48) í bókagerðinni er ósveigjan
leiki, sem gerir ráð fyrir að all-
ir landsmenn skuli hafa sömu
greind og læra það sama. (11,3)
49) Gagnrýni skólamanna á
kennslubókum mun vera al-
menn. (11,2)
i50) íslenzbar kennslubækur
standast illa samanburð tilsvar-
andi námsbóka hjá nágrannaþjóð
unum. (11,3)
51) Hér rækta menn ræfilshátt í
bókagerð meðan þjóðin eyðir
hundruðum milljóna í fánýtar
framkvæmdir. (11,3)
52) -fslenzkar skólabækur eru
átakanleg sjón, þegar búið er
að nota þær um nokkurt skeið.
(II,3)
53) Prófkerfið á rætur sínar að
rekja til skriflegra embættis-
prófa frá því tveim öldum fyrir
Krist. (11,4)
54) Landsprófinu mætti sleppa
ef nóg væri til af menntaskól-
um. (11,5)
55) íslenzk skólasaga er ekki
til á voru máli. (III,3)
56) Bókaflokkar til eflingar
skólunum eru nálega ókunnir
hér á landi. (11,2)
57) Heimildarrit vantar íbarna-
og unglingaskólana. (11,3)
58) Efnisskrá vantar jafnvel í
sumar af barnabókunum. (11,3)
59) Veika hliðin í íslenzkum skól
um er þroskinn. (11,6)
60) Fjölmargir íslenzkir mennta
menn þekkja ekki nöfn helztu
siðfræðinga mannkynsins. (1.4)
61) Ekkert hefur verið hirt um
að bæta það tjón, sem verðfell-
ingastefnan hefur valdið á þeim
fáu sjóðum, sem tiltækir eru til
að styrkja ungt fólk til náms.
(III,2)
Hér hafa verið dregin saman
nokkur helztu meginatriði úr
greinaflokki Jóhanns Hannesson
ar prófessors, undir fjrrirsögn-
inni, „Flest er í lagi með
fræðslukerfið?" Eftir að hafia
lokið við lestur areinaflokksuna
vaknar sú spurning, Hvað er í
lagi með fræðslukerfið? Ætla
hefði mátt að höfundi þætti hlíta
að nefna svo mikið sem eitt at-
riði í samræmi við fullyrðingu
fyrirsagnarinnar. Svo er þó
ekki. Eins og að framan greinir
gagnrýnir höfundur íslenzk
fræðslumál vægðarlaust, en þrátt
fyrir þessa gagnrýni er hann
trúr þeirri uppeldisheimspeki,
sem hið íslenzka kerfi grundvall
ast á. Þetta kemur berlega í ljós
þegar litið er á aðra hlið þessa
máls. Höfundur hefur fast mót-
aðar skoðanir á skyldum, rétt-
indum og verkefnum einstakl-
inga og hópa innan þjóðfélagsins.
Þessi uppeldissp>eki er mjög í
anda þeirrar stefnu, sem fylgt
hefur verið í íslenzkri fræðslu-
málastjórn fram á þennan dag.
Skoðanir höf. og ganrýni á hin-
um einstöku þáttum fræðslumál
anna eru því ekki gagnrýni á upp
eldisheimspekinni, sem kerfið
grundvallast á, heldur er
hér um að ræða gagnrýni
á stöðnun kerfis, sem höf-
undur aðhyllist í meginat-
riðum. Þetta er mjög í sam-
ræmi við þá skoðun sem
kemur fram hvað eftir annað í
fyrrnefndum greinaflokki, að
„kerfið getur verið í lagi“ enda
þótt öll fræðslumálin séu í mesta
ólestri. Það verður því ekki ann
að séð en að gagnrýni höfundar
beinist að menntamálaráðherra
sjálfum. Hin „ágæta“ rammalög-
gjöf íslenzkra fræðslumála virð-
ist því ekki koma að notum þeg-
ar hugsjónasnauður menntamála
ráðherra situr við stjórnvölinn.
Ungur reglusamur maður
óskar eftir vinnu á kvöldin og um helgar.
Margt kemur til greina.
Upplýsingar í sima 82287 eftir kl. 18 e.h.
í þeim fjölda
kúlupenna, sem
eru á markaðinum,
er einn sérstakur —
BALLOGRAF,
sem sker sig úr
vegna þess,
hversu þægilegur
hann er í hendi.
Hið sígilda form
pennans gerir
skriftina auðveldari,
svo að skrifþreyta
gerir ekki vart við sig.
•
BALLOGRAF-
EPOCA
blekhylki endast til að
skrifa 10.000 metra
(sem jafngildir
eins árs eðlilegri
notkun).
Skriftin er
ætíð hrein og mjúk,
vegna þess að
blekoddurinn er úr
ryðfríu stáli,
sem ekki slitnar.
Þessir pennar eru
seldir um allan heim
í milljóna tali.
Alls staðar njóta þeir
mikilla vinsælda.
epoca
HINN HEIMSFRÆGI SÆNSKI KÚLUPENNI